Morgunblaðið - 15.04.2000, Qupperneq 51
MORGUNBLAÐIÐ
NEYTENDUR
LAUGARDAGUR 15. APRÍL 2000 51,
Athugasemd frá
framkvæmdastjdra Nýkaups
Röng fullyrðing*
að Nýkaup hafí
hækkað vöruverð
MORGUNBLAÐINU hefur borist
eftirfarandi athugasemd frá Finni
Ámasyni, framkvæmdastjóra Ný-
kaups, vegna frétta um verðkönnun
Samstarfsverkefnis NS og ASÍ á
höfuðborgarsvæðinu sem birt var í
Ijósvakamiðlum í gær.
„Neytendasamtökin hafa sent frá
sér fréttatilkynningu um þróun á
verðlagi í matvöruverslunum. Eg vil
gera alvarlegar athugasemdir við
forkastanleg vinnubrögð Neytenda-
samtakanna í framsetningu niður-
staðna og framkvæmd við útsend-
ingu gagna.
Athugasemdir mínar sem beinast
að framsetningu snúast um þá röngu
fullyrðingu Neytendasamtakanna,
að Nýkaup hafi hækkað vöruverð um
5,1% frá því að Baugur gaf út yfir-
lýsingu um átakið „Viðnám gegn
verðbólgu".
Neytendasamtökin framkvæmdu
verðkönnun í febrúar, sem send var
fjölmiðlum. Sú könnun innihélt 110
vöruliði. Neytendasamtökin fram-
kvæma nú í apríl aðra verðkönnun,
einnig með 110 vöruliðum. í þessum
tveimur verðkönnunum eru 58 vöru-
liðir sem eru bæði í könnuninni í
febrúar og apríl. Aðrir vöruliðir eru
ekki samanburðarhæfir, þar sem um
sitthvorar vörurnar er að ræða.
Þessar 58 vörur kostuðu í Nýkaupi
í febrúar 15.232 krónur, en kosta nú í
apríl 14.983 krónur. Þessi niðurstaða
þýðir að verðlag hefur lækkað á
þessum vöruliðum um 1,6%. Það er
mjög auðvelt að færa fyrir því rök að
skekkjumörk könnunar Neytenda-
samtakanna sé +/- 5%.
Þar með er ómögulegt að draga þá
ályktun að Nýkaup hafi hækkað verð
um 5% né að Bónus hafi lækkað um
3,6%.
Ég vil benda á að vísitala matvöru
lækkaði nú á milli mánaða á meðan
miklar hækkanir voru á öðrum þátt-
um neysluvöruvísitölunnar. Nýkaup
framkvæmir vikulega verðkannanir
sem ná til rúmlega 4.000 vöruliða
sem staðfesta að verðlag hefur ekki
hækkað.
Athugasemd mín varðandi fram-
kvæmd á útsendingu gagna snýr að
því að Neytendasamtökin senda frá
sér fréttatilkynningu í lok dags á
föstudegi með það að markmiði að
verslanir geti ekki svarað fyrir sig.
Verslanir fá gögnin síðan í hendur
eftir að fréttir birtast í fjölmiðlum og
þurfa að ganga á eftir gögnunum.
Vinnubrögð Neytendasamtak-
anna í þessu tilliti bera því lýðskrumi
frekar vitni en vönduðum vinnu-
brögðum."
Nýtt
Itölsk
möndlukaka
KÍSILL
ehf. hefur
hafið inn-
flutning á
ítölskum
möndlu-
kökum sem
nefnast
Panforte. Kökumar koma frá
Toscana á Ítalíu og eru gjarnan
borðaðar á Ítalíu í kringum jól og
páska.
Kökumar fást í Nóatúni, Bjöms-
bakaríi, Mosfellsbakaríi og hjá Osta-
búðinni á Skólavörðustíg.
Hreinsiklútar
fyrir andlit
COM-
ODYNES
Dermato-
logical
hreinsiklút-
ar stuðla að
rakajafn-
vægi húðar;
innar. I
fréttatil-
kynningu
frá Innflutn-
ingi og dreifingu ehf. kemur einnig
fram að þeir hindri offramleiðslu á
húðfitu og myndun nýrra fílapensla
og bóla. Dagleg umhirða andlitsins
er forsenda þess að um árangurs-
ríka meðferð geti verið að ræða.
Hreinsiklútamir em fáanlegir í
flestum lyfjaverslunum og stór-
mörkuðum. Hver pakkning inni-
heldur 20 klúta og kostar pakkinn
450 til 480 krónur.
Verðkönnun Samstarfsverkefnis NS og ASÍ-félaga
á höfuðborgarsvæðinu
Nýkaup hefur hækk-
að verð um 5,1%
Bónus hefur lækk-
að verð um 3,4%
Verð í Bónusi hefiir
lækkað um 3,4% frá því
síðasta verðkönnun var
gerð á vegum Sam-
starfsverkefnis NS og
ASÍ-félaga á höfuðborg-
arsvæðinu 1 febrúar.
Nýkaup hefur hækkað
verð um 5,1%.
SIÐASTLIÐINN miðvikudag var
gerð verðkönnun á vegum
Samstarfsverkefnis NS og ASÍ-
félaga á höfuðborgarsvæðinu í
tólf matvöruverslunum á höfuð-
borgarsvæðinu. I ljós kom að
verð í Bónusi hefur lækkað um
3,4% frá því að síðasta verðkönn-
un var gerð í febrúar en Bónus er
sem fyrr meðjægsta verðið. Að
sögn Agústu Ýrar Þorbergsdótt-
ur, verkefnisstjóra Samstarfs-
verkefnisins, hækkar verðið í
Nýkaupi mest eða um 5,1% frá
síðustu könnun þrátt fyrir að
Baugur hafi nýlega sett af stað
átakið Viðnám við verðbólgu.
Verslunin Nettó er með næst-
lægsta verðið og lækkar verð um
I, 7% frá síðustu könnun. Fjarðar-
kaup halda þriðja sætinu þriðju
könnunina í röð og lækka sig um
1,1%.
Ágústa bendir á að mjótt hafi
verið á mununum milli Fjarðar-
kaupa og Hagkaups í síðustu
könnunum og segir að munurinn
hafi aukist í þessari könnun og sé
nú 2,6%.
Hagkaup hækkar verð lítillega
frá síðustu könnun og næstar
koma síðan í röðinni 10-11 versl-
anirnar, Samkaup, Strax og 11-
II. Ágústa segir að klukkubúðin
Strax hafi tekið við sér og lækki
vöruverð um 2,6% og nálgast 10-
11 sem hækkar lítillega.
Fjögur efstu sætin skipa
Sparkaup með 104,9, Nóatún með
105, Þín verslun Seljabraut 105,7
og Nýkaup 106,7. Nýkaup hækk-
ar mest eða um 5,1%, Sparkaup
um 3,7% og Nóatún um 2,2%.
Þín verslun lækkar
mest frá í fyrra
Ef könnunin er borin saman við
könnun sem framkvæmd var í
Matvöruverslanir á höfuðborgarsvæðinu
Hlutfallslegur verðmunur milli 12 verslana
12. apríl 2000
VERSLANIR
Bónus -17,0%
Nettó
Fjarðarkaup
Hagkaup
10-11
Samkaup
Strax
11-11
Sparkaup
Nóatún
Þín verslun, Seljabraut
Nýkaup
HÆRRAVERÐ
Meðalverð úr öllum
verslunum, er sett
sem 0%
Verðbreytingar á tímabiiinu 1. feb. til 12. apr.
VERSLANIR
LÆGRA VERÐ
Bónus
Strax
Nettó
11-11
Fjarðarkaup
Samkaup
Þín verslun, Seljabraut
10-11
Hagkaup
Nóatún
Sparkaup
Nýkaup
-3,4%
-2,6% Q
-1,7%
-1,5%
-1,1% [
-1,0%
-0,1%
HÆRRA VERÐ
] +0,6%
] +0,7%
+2,2%
n +3,7%
I +5,1%
Verðbreytingar á tímabilinu
3. mars 1999 til 12. apríl 2000
VERSLANIR
Þín verslun, Seljabr.
Hagkaup
Fjarðarkaup
Bónus
Nettó
11-11
Samkaup
Nýkaup
10-11
Nóatún
LÆGRAVERÐ HÆRRAVERÐ
+0,4%
+0,9%
+1,9%
+2,2%
] +4,2%
mars á síðasta ári kemur í Ijós að
Þín verslun, Seljabraut, lækkar
sig mest eða um 5,4% og Nóatún
um 4,2%.
Að sögn Ágústu Ýrar náði
könnunin til 99 vörutegunda.
Minnsta vöruúrvalið var sem fyrr
í Bónusi og munurinn á minnsta
og mesta vöruúrvali er 30 vöru-
tegundir.
Hún bendir á að um beinan
verðsamanburð sé að ræða og
ekki sé lagt mat á þjónustustig,
sem er afar mismunandi.
Könnunin var gerð á sama tíma
í öllum verslununum og ekki var
tilkynnt um könnunina fyrr en
búið var að renna vörunum í
gegnum kassann. Með þessum
hætti segir hún að vöruverð end-
urspeglist best í verslununum á
þeim tíma sem könnunin er gerð
og komi í veg fyrir allt misferli.
Morgunblaðið/Kristinn Ingvarsson
Samstarfsverkefni NS- og ASÍ-
félaga á höfuðborgarsvæðinu
mun leita næst til tollayfirvalda
til að fá upp gefið verð á bflum
án gjalda.
einn af lykilsamkeppnisþáttum
hvers fyrirtækis. „Ég get ekki séð að
hægt sé að fletta upp álagningu
flugfarseðla, matvöru eða fatnaðar.
Það sem skiptir máli fyrir neytendur
er að það sé samkeppnishæft verð
sem býðst miðað við aðra valkosti. Á
bílamarkaðinum hérlendis ríkir virk
samkeppni og það er engin ástæða til
að bílgreinin fari að gefa upp álagn-
ingu sína sem eflaust er afar mis-
munandi eftir framleiðanda og lönd-
um sem bílamir koma frá.“
N Y SENDING
.jiχileat
ÚRVAL
LEÐURSDFAS ETT A
Á G □ Ð U VERÐI
11.
3 + 1 -f 1
uu
WU
ÍTALSKT
LEOURSÓFABETT
iNTtRAL
;T UC
II f t
• BVART
• VÍNRAUTT
• BRLJNT
TM - HÚSGÖGN