Morgunblaðið - 15.04.2000, Blaðsíða 56
56 LAUGARDAGUR 15. APRÍL 2000
MORGUNBLAÐIÐ
MINNINGAR
ttílfar Magnússon
fæddist að
Kambi í Holtum 23.
september 1922.
Hann lést á hjarta-
deild Landspítalans
5. aprfl síðastliðinn
og fór útför hans
fram frá Háteigs-
kirkju 14. aprfl.
Elsku afi minn er
búinn að kveðja eftir
erfið veikindi. Eg var
svo lánsöm að fá að al-
ast upp hjá ömmu og
afa og varð ég strax
mikil ömmu- og afastelpa. Ef ég
þurfti á afa að halda var hann alltaf
til staðar og gat miðlað mér af
reynslu sinni. Minningarnar eru
margar og góðar. Þegar ég var lítil
telpa var ég vön að kveðja afa með
kossi áður en hann fór í vinnuna og
sagði: „Afi ég pissa (kyssa) þig“.
Alltaf beið hann þolinmóður eftir
mér. Þegar ég bar út
Moggann var afi oft að
koma úr vinnu á sama
tíma og settumst við þá
gjaman saman við eld-
húsborðið, spjölluðum
og fengum okkur jóla-
köku og mjólk. Oft
íylgdist ég með afa við
baðvaskinn þar sem
hann tók góðan tíma í
að snyrta sig vel og ilm-
aði svo af rakspíra þeg-
ar hann fór að keyra.
Fjársjóðsleitin í bílnum
hjá afa var ætíð spenn-
andi, þeir voru drjúgir
allir smápeningarnir sem „kúnnarn-
ir“, þ.e. afi, misstu undir sætin.
Ógleymanlegar eru allar ferðirnar á
Eyrarbakka í Steinskot til Eyfa og í
kartöflugarðinn.
Hendumar hans afa vom stórar
og mjúkar og fylltu mann af öryggis-
kennd. Hann mátti ekkert aumt eða
minnimáttar sjá og var alltaf reiðu-
búinn að rétta öðmm hjálparhönd.
Afi var þúsundþjalasmiður með
meim og tókst yfirleitt að laga það
sem aflaga fór. Alla tíð var hann á
kafi í íþróttum og var einnig mikill
músíkunnandi og átti það til að taka
sjálfur lagið á munnhörpurnar sínar.
í maí 1998 þegar ég flutti út til
Þýskalands til Patricks var afi með
töluvert miklar áhyggjur að ég væri
að flytja erlendis til einhvers útlend-
ings sem hann hafði aðeins hitt tvisv-
ar en áhyggjurnar hurfu fljótt þegar
hann sá að ég var í góðum og örugg-
um höndum.
I byrjun árs áttum við afi langt og
gott samtal. Þá sagði ég honum hvað
ég væri þakklát fyrir allt sem hann
hefði gert fyrir mig í gegnum tíðina
og jafnframt sagði ég honum að í
mínum augum væri hann mér sem
faðir. Eg fann að hann var snortinn
yfir þessum orðum mínum.
Ég er þakklát fyrir að hafa getað
verið með afa þessa síðustu daga
sem hann lifði og það síðasta sem
hann gerði var að leggja blessun sína
yfir samband okkar Patricks. Ég á
eftir að sakna hans afa svo mikið en
ég mun varðveita allar góðu minn-
ingamar sem ég á í hjarta mínu.
Elsku amma og aðrir ástvinir,
megi Guð gefa okkur styrk í sorginni
og varðveita allar minningar í hjarta
okkar.
Eg sendi þér kæra kveðju,
nú komin er lífsins nótt
Kg umvefji blessun og bænir,
égbið að sofirrótt.
Þótt svíði sorg mitt hjarta,
þásælteraðvitaaðþví
þú laus ert úr veikinda viðjum,
þínverölderbjörtáný.
Ég þakka þau ár sem ég átti
þá auðnu að hafa þig hér.
Og það er svo margs að minnast,
svo margt sem um hug minn fer.
Þótt þú sért horfin úr heimi
ég hitti þig ekki um hríð,
þín minning er ljós sem lifir
og lýsir um ókomna tíð.
(Þórunn Sig.)
Sofðu rótt,
Þín afastelpa
Ólöf Kristdís.
Skilafrestur
minningargreina
EIGI minningargrein að birtast á útfarardegi (eða í sunnudagsblaði ef
útför er á mánudegi), er skilafrestur sem hér segir: I sunnudags- og
þriðjudagsblað þarf grein að berast fyrir hádegi á föstudag. í miðviku-
dags-, fimmtudags-, föstudags- og laugardagsblað þarf greinin að ber-
ast fyrir hádegi tveimur virkum dögum fyrir birtingardag. Berist grein
eftir að skilafrestur er útrunninn eða eftir að útför hefur farið fram, er
ekki unnt að lofa ákveðnum birtingardegi. Þar sem pláss er takmarkað
getur þurft að fresta birtingu greina, enda þótt þær berist innan hins til-
tekna skilafrests.
ÚLFAR
MAGNÚSSON
ATVIIMIMU-
AUGLÝSING AR
Smiðir
Bráðvantar vana smiði í uppslátt á Reykjavíkur-
svæðinu. Mjög mikil vinna framundan.
Upplýsingar í símum 892 4707, Árni og
896 4680, Björgvin.
Byggingar ehf.
Vantar fyrirtæki þitt
aðstoð?
Viðskiptafræðingur af markaðssviði getur
bætt við sig tímabundnum verkefnum.
Með viðbótar reynslu, m.a. af markaðsathugun-
um (erlendis), útlitshönnun vefja, skrifum o.fl.
Vinsamlega sendið tölvupóst á netfangið
markadsmal @hotmail.com.
Fótaaðgerðar-
fræðingur óskast
í hlutastarf á snyrtistofuna Hrund, Grænatúni
1, Kópavogi. Upplýsingar gefur Guðrún í síma
554 4025 eða 553 8429.
FUIMDIR/ IS/1AISINFAGISIAÐUR
Aðalfundur
Svalanna
verður haldinn á Hótel Loftleiðum, þriðjudag-
inn 2. maí kl. 19.30. Húsið opnað kl. 19.00.
Veisluhlaðborð og skemmtiatriði.
Dagskrá:
Venjuleg aðalfundarstörf.
Fjölmennum!
Stjórnin.
IMAUOUIMGARSALA
Uppboð
Framhald uppboðs á eftirfarandi eígn verður háð á skrifstofu
embættisins f Hafnarstræti 1, ísafirði, sem hér segir:
Ramóna sknr. 6471, þingl. eig. Ferðaþjónustan Grunnavík ehf., gerðar-
beiðandi Sparisjóður Árneshrepps, þriðjudaginn 18. apríl 2000 kl.
11.45.
Sýslumaðurinn á ísafirði,
14. apríl 2000.
TiL SÖLU
Ódýrt — ódýrt
Fyrir sumardaginn fyrsta
Lagerútsala
Leikföng, gjafavörur, sportskór.
Opið frá kl. 13.00—18.00 föstudaginn 14.4. og
frá kl. 11.00—16.00 laugardaginn 15.4.
Skútuvogi 13 (við hliðina á Bónus).
TILKYIMIMIIMGAR
Vorhreinsun
í kirkjugörðum
Á næstu dögum hefst árleg vorhreinsun
í Fossvogskirkjugarði, Gufuneskirkju-
garði og Suðurgötukirkjugarði. Eftir
langt snjóatímabil gefst loks tækifæri til
hreinsunar.
Þeir aðstandendur, sem settu jólaskraut
á leiði, eru hvattir til að koma í garðana
og huga að leiðum ástvina sinna og létta
undir með starfsmönnum Kirkjugarð-
anna og koma í veg fyrir að eigulegt
skraut lendi í glatkistunni.
Tökum öll höndum saman!
Garðyrkjudeild Kirkjugarðanna.
f.........
EFUNG
STÉfTMBFÉlMG
r
Uthlutun sumarhúsa
til örorku- og ellilíf-
eyrisþega
Orlofsnefnd Eflingar-stéttarfélags hefur
ákveðið að bjóða örorku- og ellilífeyr-
isþegum félagsins dvöl í sumarhúsum á
sérstöku tilboði.
Auglýst er eftir umsóknum um dvöl í
orlofshúsum félagsins fyrstu 3 vikur
orlofstímabiisins, 12. maí til 2. júní sum-
arið 2000.
Orlofshús á eftirtöldum stöðum eru í
boði: Svignaskarð, Skorradalur, Húsa-
fell, Akureyri, Kirkjubæjarklaustur,
Úthlíð og Flúðir.
Umsóknareyðublöð
Hægt er að nálgast eyðublöð og nánari
upplýsingar á skrifstofu félagsins í Skip-
holti 50d, 105 Reykjavík, fyrir 25. apríl nk.
Ekki er tekið á móti umsóknum símleiðis.
Umsóknarfrestur er til 25. apríl.
Svör verða send umsækjendum
bréfleiðis 28. apríl.
FÉLAGSLÍF
FEfíÐAFÉLAG
# ÍSLANDS
MÖRKINNI6 - SlMI 568-2533
Sunnudagur 16. apríl
Kl. 10.30 Bláfjöll - Kleifarvatn,
skíðaganga. Verð kr. 1.200.
Kl. 13.00 Krísuvíkurleið 1.
ferð, gengið frá kirkjugarðinum í
Hafnarfirði að Staki við Bláfjalla-
veg. Verð kr. 1.200.
Páskaferðir Landmannalaugar
á skíðum 20.—22. apríl og Þórs-
mörk 22.-24. apríl.
Fararstjórar muniö námskeið
um Reykjanesskagann mánu-
dagskvöldið 17. apríl kl. 20.00.
Sunnudagsferð 16. aprfl kl.
10.30
Hvammsvík — Brynjudals-
vogur. Um 4 klst. auðveld
strandganga í Hvalfirði. Margt að
sjá, m.a. minjar frá hernáminu,
vegagerð fyrri tíma og skógrækt-
arsvæði. Verð 1.500 kr. f. félaga
og 1.700 kr. f. aðra. Frítt f. börn
15 ára og yngri m. foreldrum sín-
um.
Brottför frá BSl. Miðar í farmiða-
sölu.
Sjá páskaferðir i sunnudagsblaði
og á heimasíðu: utivist.is.