Morgunblaðið - 05.05.2000, Page 23
MORGUNBLAÐIÐ
ERLENT
John O’Connor kardináli látinn
Mikilhæfur mað-
ur en umdeildur
New York. AP.
JOHN O’Connor, kardináli og
biskup kaþólskra manna í New
York, lést í fyrradag áttræður að
aldri. Hefur hans verið minnst sem
mikilhæfs manns en hann var alla
tíð mjög umdeildur fyrir skoðanir
sínar. O’Connor vari enstrengings-
legur í trúarefnum en samt frjáls-
lyndur í þjóðfélagsmálum.
O’Connor var elsti starfandi
biskup í Bandaríkjunum er hann
lést og einn af áhrifamestu mönn-
um innan kaþólsku kirkjunnar. I
New York naut hann almennt mik-
illar hylli meðal borgarbúa en hann
kom líka af stað heitum deilum með
afdráttarlausum stuðningi sínum
við stefnu Páfagarðs í stóru sem
smáu. Hann lagði t.d. til, að ka-
þólskir stjórnmálamenn, sem
styddu fóstureyðingar, yrðu teknir
út af sakramentinu og 1990 lýsti
hann því yfír, að það jafngilti því að
„styðja Satan sjálfan" að hlusta á
sum rokklög.
O’Connor fór einnig fremstur í
flokki í baráttunni gegn nýjum lög-
um um réttindi samkynhneigðra og
neitaði að fara eftir þeim fyrirmæl-
um Ed Kochs, fyrrverandi borgar-
stjóra, að hjálpar- og þjónustu-
stofnanir, þar á meðal þær, sem
kirkjan rak, skyldu sinna kyn-
hverfum með sama hætti og öðrum.
Mikill verkalýdssinni
John O’Connor ólst upp við
fremur kröpp kjör í Fíladelfíu þar
sem faðir hans var málari, mikill
verkalýðssinni og jafnframt góður
trúmaður. Setti það sitt mark á
O’Connor, sem sagðist eitt sinn
helst vilja næla merki verkalýðsfé-
lagsins í biskupshúfuna. Beitti
hann sér m.a. gegn því, að kirkjan
réði í þjónustu sína aðra en þá, sem
væru félagar í verkalýðsfélögum.
AP
John O’Connor kardináli með
gullhring sem Jóhannes Páll
páfi II gaf honum. Myndin var
tekin í mars 1994.
O’Connor gerðist prestur í sjó-
hernum í Kóreustríðinu 1952, og
þegar hann sagði skilið við herinn
27 árum síðar var hann orðinn
flotaforingi og yfirmaður prest-
anna í flotanum.
O’Connor sagði einu sinni um
sjálfan sig, að hann væri „ósveigj-
anlegur hvað varðaði kenningu
kirkjunnar en - guð hjálpi mér -
frjálslyndur í þjóðfélagsmálum".
Um hann hefur þó verið sagt, að
hann hafi skort skilning á hinum
flóknu tilbrigðum mannlegs lífs og
aðeins séð veröldina í svörtu og
hvítu.
John ÓConnor var valdamikill
maður í bandarísku samfélagi en
lét þó vald sitt og virðingu aldrei
stíga sér til höfuðs. Hann var
sæmdur Gullorðu Bandaríkjaþings,
æðstu borgaralegu orðunni, í mars
sl. en sjálfur vildi hann, að eftir-
mælin um sig, grafskriftin, yrði
þessi: „Hann var góður prestur.“
FÖSTUDAGUR 5. MAÍ 2000 23
ÓlMfur ti. SlepHijnsen og
Híilidorn Traustadóttir
Fundu’
i Hlíd
álar og skreytir Míru
H !j
li
|
|
Í: 1
■
m •i 'SBJW, t i
Komdu skoðun þinni á framfæri
á mbl.is
Á mbl.js.er velt upp spurningum um allt það
markverðasta í Formúlu-1 kappakstrinum.
Vinnur McLaren
tvöfalt þriðja árið
í röð í Barcelona?
Já
Nei
511-47,6%
—
___________________
563 - 52,4&
Niðurstöður fimmtudaginn 04.05. kl. 16.00.
Hver er þín skoðun?
F0RMÚLAN Á
mbl.is
COTT FÓLK McCANN ERICKSON ■ S(A 9648