Morgunblaðið - 05.05.2000, Síða 76
76 FÖSTUDAGUR 5. MAÍ 2000
9Éí
FOLKI FRETTUM
MORGUNBLAÐIÐ
Reuters
‘^Vanessa Williams (fyrir miðju) ásamt leikkonunni Chayanne
og Jane Krakowski.
Nýtt barn
í Hollywood
LEIK- og söngkonan Vanessa L. Williams
eignaðist stúlkubarn á dögunum ásamt eigin-
manni sínum, körfuknattleiksmanninum Rick
Fox. Það voru stoltir foreldrar sem fengu
Söshu Gabriellu litlu í hendurnar en stúlk-
an var stór og pattaraleg. Móðirin alsæla er
fyrrverandi Ungfrú Bandaríkin en snéri sér
síðar að söng- og leik. Sasha er fyrsta dóttir
hjónanna sem gengu í það heilaga í septem-
ber á síðasta ári. Willams, sem er 36 ára að
aldri á þó þrjú börn frá fyrra hjónabandi og
Fox, sem er þrítugur á einn son fyrir. Þarna
er því orðin til ein stór fjölskylda.
IIOYII SKÓR FYRIR KARLMENN
1 „ : — * Ný sending
DOMUS MEDICA
vift Snorrabraut - Reykjavík
Sími 551 8519
STEINAR WAAGE
KRINGLAN
Kringlunni 8-12 -
Sími 568 9212
Reykjavík
PÓSTSENDUM SAMDÆGURS - 5% STAÐGREIÐSLUAFSLÁTTUR
Bobcatdagar-----------Bobcatdagar
HJÁVÉLUM & ÞJÓNUSTU HF. AÐ JÁRNHÁLSI 2
L Alltaf skrefi framar
HlNIR ÁRLEGU BoBCATDAGAR VERÐA f HÚSAKYNNUM
VÉLA & ÞJÓNUSTU HF. AÐ JÁRNHÁLSI 2,
FÖSTUDAGINN 5 MAÍ FRÁ KL. 15 - 19 OG
LAUGARDAGINN 6 MAÍ FRÁ KL. 12 - 17.
Sýnum allt það nýjasta frá Bobcat m.a.
jfc, BOBCAT T 3093S SKOTBÓMULYFTARA.
BOBCAT 864 MOKSTURSVÉL Á BELTUM.
BOBCAT 322 „MINl“ GRÖFU MEÐ BREIKKANLEGUM UNDIRVAGNI.
BOBCAT 331E ÞRIGGJA TONNA BELTAGRÖFU MEÐ SKOTBÓMU.
BOBCAT 751, 763H, 773 MEÐ NÍJU ÚTLITI.
SÝNUM EINNIG ÚRVAL FYLGIHLUTA.
Allir VIÐSKIPTAVINIR
Véla & Þjónustu hf. og aðrir
ÁHUGASAMIR VINNUVÉLAEIGENDUR
ERU HJARTANLEGA VELKOMNIR.
VELAR&
ÞJéNUSTAhF
Þekktir fyrir þjónustu
JArnhAlsi 2 ■ 110 RevkjavIk ■ Sími: 5-800-200 ■ Fax: 5-800-220 ■ www.velar.is
ÓSEYRI IA ■ 603 AKUREYRI ■ SfMI: 561-4040 ■ FaX: 461-4044
Bjargræðis-kvartettinn skipa þau Aðalheiður Þorsteinsdóttir, Anna
Sigríður Helgadóttir, Gísli Magnason og Orn Arnarson.
Ómar piltsins
draumur
TONLIST
H1 j ó 1111 c i k a r
ÓSKALÖG LANDANS
Óskalög landans. Skemmtidagskrá
með söngtextum Omars Ragnars-
sonar í Kaffileikhúsinu, mánudag-
inn 1. maf. Bjargræðiskvartettinn
flutti.
ÓMAR Ragnarsson er án efa
einn ótrúlegasti maður sem byggt
hefur þessa blessuðu eyju. Frétta-
maður, rallýakstur, flugmannspróf,
skemmtikraftur, söngvari, þeyting-
ur um landið þvert og endilangt,
lögnám, revíur, heimspekigrúsk,
íþróttafréttir, hnefaleikar, söng- og
textasmiður. Þú bara nefnir það.
Ómai- hefur gert það allt og meira
til. Athafnagleði þessa manns er svo
mikil að undrum sætir.
Bjargræðiskvartettinn hefur nú
sett upp dagskrá í Kaffileikhúsinu
byggða á lögum sem öll bera texta
eftir Ómar. Þessi sýning er þriðja
tilbrigðið við_ skemmtidagskrárröð
sem kallast „Óskalög landans", áður
hefur kvartettinn flutt lög með text-
um Jónasar Árnasonar og staðið
fyrir jólalagaskemmtun og voru
þær skemmtanir með svipuðu sniði
og umrædd sýning.
Sviðsmyndin var þægilega lát-
laus. Flygill hægra megin sviðsins
og hin ýmsu hljóðfæri, gítarar og
dragspil, dreifð um sviðið. Kaffileik-
húsið er notalegur skemmtistaður
og áhorfendur voru í þægilegir ná-
lægð við flytjenndur á meðan á sýn-
ingu stóð.
Kvartettinn arkaði upp á sviðið
og renndi sér í dagskrána. Rögg-
samur leiðtpginn, Anna Sigga, tjáði
gestum að Ómari teldist til að hann
hefði samið hátt í 2000 texta um
daganna. Lögin sem prýddu dag-
skrána voru af ýmsum toga. Mörg
þeirra fölskvalausir gleðisöngvar,
með textum sem voru í raun og
réttu sungnir brandarar, lög eins og
„Minkurinn í hænsnakofanum",
„Jói útherji" og „Lok lok og læs“.
Sum lögin voru með öllu alvarlegi'a
yfirbragði eins og „Brú yfir boða-
föllin“ (Bridge over troubled water)
og „Þú ein“ (Love hurts). Enn önn-
ur voru einfaldir alþýðusöngvar
eins og Sumar og sól og Yor í lofti.
Ómar samdi reyndar einnig lögin
við þessi tvö lög og það kom mér á
óvart hversu haglega þau voru sam-
in og er alls óhætt að bæta „laga-
smiður" á ferilsskránna löngu hér
fyrir ofan.
Ómar er hagyrðingur góður og
ágætt alþýðuskáld. Ljóðrænan rist-
ir sjaldan djúpt og seint myndi
hann teljast vera listaskáld enda er
það varla tilgangurinn hjá Ómari.
Hafa þarf í huga að hér áður fyrr
var það móðins að snúa erlendum
textum yfir á það ylhýra en sú
íþrótt hefur verið hverfandi þáttur í
íslensku tónlistarlífi undanfarna
áratugi. Menn eins og Ómar og
Þorsteinn Eggertsson sömdu þá
texta í akkorði í gríð og erg og tím-
inn leyfði enga bið eftir því að and-
anum þóknaðist að koma í heim-
sókn. I textagerð sinni tekst Ómari
langsamlega best upp er hann setur
sig í stellingar sprelligosans en mið-
ur vel er hann setur í þær ljúfsáru.
Hnoðið sem einkennir suma textana
verður þá til muna greinilegi-a og
nálgast þeir næstum því að vera
bæði ósmekkvísir, tilgerðarlegir og
óþarflega væmnir.
Allflest lögin sem flutt voru hafa
lifað lengi með þjóðinni. Eg inn-
byrti til að mynda flest þeirra með
móðurmjólkinni. Áhorfendur voru
því eðlilega vel með á nótunum,
stundum fullvel reyndar. Kvartett-
inn komst mjög vel frá sínu. Flutn-
ingur var skemmtilegur og einlæg-
ur og meðlimir voi-u sífellt að
bregða á leik við ómælda kátínu við-
staddra. Mörg laganna voru sett í
leikrænan búning sem heppnaðist
með miklum ágætum. Maður fékk á
tilfinninguna að flytjendur hefðu
virkilega gaman af því sem þeir
voi'u að gera.
Ómæld kátína viðstaddra flóði
stundum yfir það sem eðlilegt getur
talist. Meðlimir kvartettsins máttu
varla draga augað í púng og þá
sprakk salurinn úr hlátri. Kom það
meira að segja fyrir í nokkrum al-
varlegum lögum að það gekk ófor-
vandis hláturroka yfir salinn. Þarna
fannst mér áhorfendur ekki standa
sig nógu vel og stundum fékk mað-
ur óþægilega á tilfinninguna að
maður væri staddur á einhverju
sauðdrukknu þorrablótinu! Það var
oft eins og þessi samsetning syrp-
unnar, sem var blanda af léttúð og
alvöruþninga væri ekki alls kostar
að virka. Ég er ekki viss hvort þar
sé um að kenna, áhorfendum eða
lagavali.
Að þorrablótsmartröðum undan-
skildum er sýningin hin skemmti-
lega og vel úr garði gerð. Hún er
það sem hún er og sigrar á því.
Kvartettin tók sig mátulega alvar-
lega og oft einkenndi skemmtilegt
stjórnleysi sýninguna sem gaf henni
aukið skemmtivægi. Allir á Ómar!
Arnar Eggert Thoroddsen
Nœturqatinn simi 587 6080
Hljómsveit Stefáns P. oq Péturs
Ókeypis aðgangur til kl. 24 í kvöld.
r