Morgunblaðið - 23.05.2000, Page 1
STOFNAÐ 1913
117. TBL. 88. ÁRG.
ÞRIÐJUDAGUR 23. MAÍ 2000 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
Moskvusljórnin
Hdtað
árásum
á Afgan-
istan
Moskvu. AFP.
TALSMAÐUR rússneskra stjórn-
valda, Sergei Jastrzhembskí, sagði í
gær að til greina kæmi að gera loft-
árásir á staði í Afganistan þar sem
talið væri að þjálfaðir væru liðsmenn
íslamskra skæruliða. Myndi Mosk-
vustjórnin ekki hika við að grípa til
slíkra aðgerða ef talið væri að um
væri að ræða ógn við mikilvæga
þjóðarhagsmuni Rússa.
Talsmaðurinn sakaði Talebana-
stjórnina í Afganistan um að styðja
uppreisnarmenn í Tsjetsjníu með
vopnum og mannskap. Að sögn
Rússa áttu fulltrúar Talebana ný-
lega leynilegan fund með Osama bin
Laden, auðugum Saudi-Araba, sem
Bandaríkjamenn álíta að hafi staðið
að baki mannskæðum sprengjutil-
ræðum gegn sendiráðum þeirra í
Austur-Afríku 1998. Hafi á fundin-
um verið samþykkt að veita Tsjet-
sjenum aðstoð. Bin Laden dvelst í
Afganistan en Bandaríkjamenn
gerðu á sínum tíma flugskeytaárásir
á skæruliðabúðir í Afganistan til að
hefna fyrir tilræðin.
Barist var af hörku sunnarlega í
Tsjetsjníu í gær og fullyrtu Tsjet-
sjenear að þeir hefðu fellt yfir 20
Rússa í bardögum um bæinn Zhani-
Vedeno. Rússar vísuðu fullyrðingun-
um um mannfallið þegar á bug.
Morgunblaðið/Halldór Kolbeins
Björk valin besta leikkonan
Björk Guðmundsdóttir var kjörin besta leikkon-
an á kvikmyndahátíðinni í Cannes í gær fyrir
hlutverk sitt í mynd Danans Lars Von Triers,
Dancer in the Dark. Myndin hlaut Gullpálmann á
hátíðinni. Björk sagði á blaðamannafundi að eft-
ir Ijóra mánuði af tökum hefði sér liðið „eins og
fiski á þurru landi, vegna þess að ég hafði verið
of lengi í heimi orða, en of lítið í heimi söngva".
Á hinn bóginn gæti hún nú gleymt öllum erfíðu
dögunum og væri mjög hamingjusöm. Á mynd-
inni sést Björk á leið upp á sviðið er búið var að
skýra frá valinu, lengst til hægri er Von Trier.
■ Takk, Björk/20
■ Verðlaunin til/37
Sir John Gielgud látinn í Bretlandi
Einn
fremsti
leikari
aldarinnar
EINN fremsti skapgerðarleikari
heims, Bretinn Sir John Gielgud,
lést í gær á heimili sínu í Ayles-
bury, norðvestan við London, 96
ára að aldri. Hann var meðal ann-
ars þekktur fyrir túlkun sína á
Hamlet Danaprins, Lé konungi og
fleiri persónum í leikritum Shake-
speares en einnig lék hann í fjölda
kvikmynda og sjónvarpsþátta.
Hlaut hann Óskarsverðlaun fyrir
leik sinn í gamanmynd Dudley
Moore, Aithur, árið 1981.
Gielgud var virkur listamaður
fram á síðustu ár. Trevor Nunn,
sem stjómar breska þjóðleikhús-
inu, sagði að með andláti Gielguds
yrðu þáttaskil í leikhússögunni og
leikkonan og þingmaðurinn
Glenda Jackson sagði hann hafa
verið „einstakan mann og þar að
auki frábæran leikara“.
Gielgud þótti hafa einstaklega
hrífandi framburð, röddin var í
senn myndug og fáguð. Honum
tókst vel upp í túlkun sinni á bresk-
um hefðarmönnum í kvikmyndum
og var oft senuþjófur í smáhlut-
verkum. Gielgud lék Prosperó í
AP
Gielgud í hlutverki Hamlets á
Broadway 1936.
kvikmynd sem byggðist á Ofviðr-
inu og kom þá fram allsnakinn, en
hann var þá 87 ára gamall.
A sviði varð hann aftur á móti
frægastur fyrir Hamlet. „Ég held
að Gielgud muni ávallt verða talinn
hinn eini, sanni Hamlet,“ sagði
Ned Sherrin, sem ritað hefur mik-
ið um breskt leikhúslíf. „Hann var
fremstur allra leikara og líf hans
var í reynd saga breskrar leiklistar
á öldinni.“
Árið 1994 var Globe-leikhúsið í
London nefnt í höfuðið á lista-
manninum og þar voru Ijós slökkt í
þijár mínútur til minningar um
leikarann í gærkvöld. Tólf leikhús í
eigu Sir Andrews Lloyds Webbers
heiðruðu Gielgud með sama hætti.
Gielgud kom fyrst fram á sviði
1921 og er hann var 25 ára hafði
hann þegar leikið Makbeð.
Hizbollah-liðar endurheimta hernumin svæði í Líbanon
Israelar við landa-
mærin sendir í byrgi
SÞ, Kiryat Shemona í ísrael, Kafar Kila f Lfban
UPPLAUSN ríkti á hernámssvæði
Israela í suðurhluta Líbanons í gær
og fyrradag er skæruliðar úr röð-
um Hizbollah og Amal-shíta réðust
inn á svæðið sem ákveðið hefur
verið að ísraelsher yfirgefi 7. júní.
Vitað er að tveir óbreyttir borgarar
féllu og nokkrir særðust er ísra-
elskir hermenn skutu á skærulið-
ana á hernumda svæðinu. Víða var
ákaft fagnað á svæðinu er skæru-
liðarnir sóttu fram, óbreyttir borg-
arar héldu í fótspor þeirra á bílum
og fótgangandi, að sögn netútgáfu
BBC-sjónvarpsstöðvarinnar.
Tugþúsundir íbúa í nyrsta hluta
Israels, sem óttast að átökin í Suð-
ur-Líbanon geti breiðst út með
hefndarárásum af hálfu skæruliða-
hópanna suður á bóginn hlýddu
fyrirmælum stjórnvalda um að
koma sér fyrir með börnum sínum í
neðanjarðarbyrgjum.
Skæruliðar og stuðningsmenn
þeirra endurheimtu sex hernumin
þorp á sunnudag og önnur sex í
gær. í fyrstu fór allt friðsamlega
fram en síðar kom til átaka við
ísraela og bandamenn þeirra.
i. AP, AFP, Reuters.
Skæruliðahóparnir námu staðar við
ísraelsku landamærin og höfðu þá
klofið hernámssvæðið í tvennt.
Kröfur heyrðust í Jerúsalem um að
ísraelar ættu að flýta áætlunum
um að draga allan herinn á brott
frá Líbanon en svæðið norðan við
landamærin hafa þeir hersetið í 22
ár.
Dennis Ross, sáttasemjari
Bandaríkjastjórnar í Miðaustur-
löndum, sagði í gær að arabar ættu
að gefa ísraelum ráðrúm til að
hverfa frá Suður-Líbanon í friði.
Kofi Annan, framkvæmdastjóri
Sameinuðu þjóðanna, bað í gær ör-
yggisráðið að fjölga í gæsluliði
samtakanna í Líbanon úr rúmlega
4.500 manns í tæp átta þúsund.
Hann lagði áherslu á að Israelar og
vopnaðir stuðningsmenn þeirra úr
samtökunum Suður-Líbanska
hernum, SLA, yrðu að hverfa að
fullu á brott frá hernumda svæð-
inu.
ísraelar og SLA-liðar á her-
numda svæðinu reyndu að tefja för
skæruliða með stórskotaliði en
margir SLA-menn gáfust þó upp
baráttulaust fyrir skæruliðunum.
Rætt hefur verið um að veita öllum
SLA-mönnum og skylduliði þeirra
landvist í Israel.
ísraelar hafa þegar styrkt mjög
varnirnar á norðurlandamærum
sínum. Lestir með skriðdreka sáust
á leiðinni þangað í gærkvöldi. Tals-
menn hersins sögðu að yrðu gerðar
skæruliðaárásir á Israelsher á
þessum slóðum eða byggðirnar við
landamærin yrði þeim svarað af
mikilli hörku og ekki látið nægja að
gera árásir á átakasvæðin í Suður-
Líbanon.
Ehud Barak, forsætisráðherra
ísraels, sagði að Hizbollah-skæru-
liðar, sem hafa árum saman gert
árásir á hernámsliðið, vildu með
innrásinni reyna að fá almenning
til að halda að þeir hefðu rekið
ísraela á brott.
MORGUNBLAÐHD 23. MAÍ 2000