Morgunblaðið - 23.05.2000, Side 23

Morgunblaðið - 23.05.2000, Side 23
MORGUNBLAÐIÐ VIÐSKIPTI ÞRIÐJUDAGUR 23. MAÍ 2000 23 Úr tapi í hagnað á fyrsta ársfjórð- ungi hjá Delta Morgunblaðið/Ámi Sæberg TVG-Zimsen styrkir stöðu sína Samstarf við Frans Maas Flutningsmiðlunarfyrirtækin TVG-Zimsen hf. og Konin- klijke Frans Maas Groep N.V. hafa gengið frá samstarfs- samningi sem felur í sér að TVG-Zimsen mun nýta víð- tækt þjónustunet og fram- leiðsluskerfí Frans Maas í Evrópu. Samkvæmt upplýsingum frá TVG-Zimsen er Frans Maas leiðandi flutningsmiðlunarfyr- irtæki í Evrópu og eitt það best þekkta á Islandi þar sem það hefur verið í samstarfi um flutninga við íslensk fyrirtæki í um tvo áratugi. Höfuðstöðvar Frans Maas eru í Venlo í Hol- landi og hjá félaginu starfa um 6.000 starfsmenn í 165 starfs- stöðvum, einkum í Evrópu. Frans Maas hafði um árabil samstarf við Flutningsmiðlun- ina Jóna hf. á Islandi en í ljósi yfirtöku Samskipa á Flutn- ingsmiðluninni Jónum hf. hef- ur Frans Maas kosið að ganga til samstarfs við TVG-Zimsen. Styrkir f lutningsmiðlunar- net TVG-Zimsen enn frekar Samstarfið mun styrkja flutningsmiðlunarnet TVG- Zimsen enn frekar, einkum í sjóflutningum, en áherslur fé- lagsins hafa til þessa frekar legið í hraðflutningum, flug- frakt og sérhæfðri geymslu- og dreifingarþjónustu. Ára- langt starf Frans Maas á ís- lenska markaðinum ásamt öfl- ugu flutningakerfi þjónustumiðstöðva þeirra í Evrópu, mun styrkja þjón- ustuframboð TVG-Zimsen, en fyrir á félagið í samstarfi við öfluga samstarfsaðila, svo sem Emery Worldwide, sem er eitt stærsta flugfraktfyrirtæki heims, og UPS, stærsta hrað- sendingafyrirtæki heims. NÁNOQ# -iíftð eráðfmm,! HAGNAÐUR af rekstri Delta hf. á íyrsta ársfjórðungi var 91 milljón króna að því er kemur fram í óendur- skoðuðu hlutauppgjöri félagsins en þar af nemur söluhagnaður 15 millj- ónum króna. Þetta eru veruleg um- skipti frá því í fyrra en þá var tap ársins 59,5 milljónir króna. Afkoman á fyrsta ársfjórðungi er töluvert betri en menn áttu von á en í upphaflegri rekstaráætlun var gert ráð fyrir að hagnaðurinn í ár yrði 110 milljónir. í endurskoðaðri rekstrar- áætlun félagsins er gert ráð fyrir 162 milljóna króna hagnaði á árinu. Rekstrartekjur Delta hf. fyrstu þrjá mánuði ársins voru 500 milljónir samanborið við tæpa 1,3 milljarða allt árið í fyrra. Rekstrargjöld tíma- bilsins voru 411 milljónir króna en voru 1,24 milljarðar allt árið í fyrra. Fjármagnsliðir hafa lækkað frá fyrra ári og þá var gengisþróun fyr- irtækinu hagstæð auk þess sem fé- lagið hefur endurfjármagnað lang- tímaskuldir sínar. Eigið fé í lok tímabilsins var 1,4 milljarðar króna og hefur hækkað um 103 milljónir frá áramótum og er eiginfjárhlutfall komið í 44,5%. Avöxtun eiginfjár íyrstu þrjá mánuði ársins er liðlega 7% en gangi rekstaráætlun eftir verður ávöxtun eiginfjár á árinu í kringum 12%. Gott gengi á Þýskalandsmarkaði Um 70% af rekstrartekjum Delta á fyrsta ársfjórðungi voru af sölu á erlenda markaði en 30% af sölu á innanlandsmarkað. Sölutekjur er- lendis skiptast þannig að 75% er sala á lyfjum en 25% er sala á lyfjahug- viti. Delta hefur, samkvæmt frétta- tilkynningu, á þessu ári náð mjög sterkri stöðu á Þýskalandsmarkaði með hjartalyfið Lisinopril og má áætla að hlutdeild fyrirtæksins á samheitalyfjamarkaðinum fyrir Lis- inopril sé nú um 70% í Þýskalandi og hefur salan það sem af er árinu farið fram úr björtustu vonum. Sala á Hollandsmarkað hefur einnig gengið vel en sala á aðra markaði hefur ver- ið í samræmi við áætlanir. Fyrr á ár- inu undirrituðu stjómendur Delta hf. samstarfssamning við kanadíska lyfjafyrirtækið PharmaScience vegna þróunarverkefna fyrir Evrópumarkað og er stefnt að því að fjölga verkefnum sem unnin verða í samstarfi við erlend lyfjafyrirtæki í framtíðinni. Starfs- menn FBA fluttir ALLFLESTIR starfsmenn FBA fluttu í gær í höfuðstöðvar íslands- banka, sein nú eru höfuðstöðvar ís- landsbanka-FBA, við Kirkjusand, en formleg starfsemihins nýja fé- lags hefst 2. júní nk. í húsinu voru íyrir um þrjú hundruð manns og við bætast á annað hundrað, sem þýðir að þrengsli eru orðin tölu- verð. Til stendur að bæta úr því með því að byggja við húsið og er nú verið að skoða hvaða kostur verður tekinn í því sambandi. Hækkun byggingar- vísitölu 0,1% HAGSTOFAN hefur reiknað vísi- tölu byggingarkostnaðar eftir verð- lagi um miðjan maí 2000 og er vísi- talan 244,4 stig og hækkaði hún um 0,1% frá fyrra mánuði. Hækkun vísitölunnar síðastliðna þrjá mánuði samsvarar 9,5% hækk- un á ári, en síðastliðna tólf mánuði hækkaði byggingarvísitalan um 3,6%. Þá hefur Hagstofan reiknað út launavisitölu miðað við meðallaun í apríl. Vísitalan er 191,1 stig og hækkar hún um 0,8% frá fyrra mán- uði. Electronic Transaction i Korthafi getur veriö viss um aö hann eigi viðskipti við réttan söluaðila. Söluaðili getur verið oruggur um að korthafi sé sá sem hann segist vera: Tvöföld rafræn undirskrift á færslu. Engir óviðkomandi komast í upplýsingar um kort og korthafa. Yfirlit í skjáveski korthafa um hvað greitt er fyrir og hvenær. □ulkóðaðar upplýsingar milli kaupanda og VISA Greiðsluheimild staðfest strax SET, merki um örugg viðskipti á netinu. I samvinnu viö MíFÆ www. ritta ekn i. is ] Nýtt á íslandi, SET vottuð netverslun Örugg viðskipti á netinu Við bjóðum öruggari leið til netviðskipta. SET vottuð netverslun er rétta leiðin sem býður upp á öryggi og þjónustu. Hafið samband og við bjóðum lausn við hæfi. ^^Rittækni www.visa.is L TÖLVUÖRYGGI & HUGBÚNAÐARLAUSNIR Skipholti 50d 105 Reykjavík sími 561 5040 fax 511 2289 www.rittaekni.is

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.