Morgunblaðið - 23.05.2000, Síða 25
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 23. MAÍ 2000 25
ÚRVERINU
LjósmyntV Þorgeir Baldursson
Beitir NK 123 á landleið með fullfermi af kolmunna en Beitir iandaði rúmlega þúsund tonnum
af kolmunna í Vestmannaeyjum fyrir helgi.
Norsk-íslenska sfldin
enn mjög austarlega
HAFRANNSOKNASKIPIÐ Arni
Friðriksson er enn við rannsóknir
á norsk-íslenska síldarstofninum
en leiðangurssjóri er Jakob Jak-
obsson, fískifræðingur hjá Haf-
rannsóknastofnuninni.
„Það er búið að leita á mjög
stóru svæði hér í Austurdjúpi. Við
höfum leitað í Smugunni, Jan
Mayen-lögsögunni og norsku lög-
sögunni," segir Jakob. „Það hefur
sáralítið fundist vestan 0° lengdar-
baugsins en talsvert hefur hins
vegar fundist austan 1° lengdar-
baugsins þannig að sfldin er enn
mjög austarlega eða um 100 mílur
utan við íslensku lögsöguna. Það
eru 15 skip af ýmsu þjóðerni á
miðunum og voru þau farin að
veiða vel á sunnudagskvöldið. Síld-
in er ekki feit ennþá en hún er að
byrja að taka við sér.“
Jakob segir að það sé óvenjulegt
að síldin haldi sig svona austarlega
á þessum árstíma. „Venjulega er
hún komin miklu vestar á þessum
tíma. Það er mikil áta á svæðinu
vestan við síldina en það er einnig
mikil áta á svæðinu þar sem hún
er og það tefur fyrir henni en hún
er þó á hægri vesturleið." Jakob
segir að íslensku síldarskipin séu
eitt af öðru að tínast af stað og
hafði hann frétt að Sunnutindur
væri kominn langleiðina á miðin.
Þar sem síldin er enn svo langt ut-
an lögsögunnar er löng sjóleið á
miðin eða um 300 mflur.
Fyrir helgi höfðu íslensku kol-
munnaskipin landað um 76 þúsund
tonnum hérlendis en reiknað er
með að þau fari flest á síldina þeg-
ar hún hefur fært sig nær landi og
auðveldara verður að eiga við
hana.
Rannsóknaleiðangur Hafrannsóknastofnunar
Nýliðun á humri fyrir
austan kemur ekki á óvart
NÝLIÐUN á humri á suðaustur-
miðunum hefur gengið eftir sam-
kvæmt spá, að sögn Hrafnkels
Eiríkssonar, fiskifræðings hjá Haf-
rannsóknastofnun. Hins vegar eru
skilyrðin ekki nógu góð á austasta
svæðinu og gæti það skýrt tregari
veiði í Lónsdjúpi en Skeiðarárdjúpi
og Breiðamerkurdjúpi.
Hrafnkell Eiríksson hefur stýrt
humarleiðangri á hafrannsóknaskip-
inu Dröfn undanfarna daga. Rann-
sóknin var á miðunum á suðvestur-
horninu fyrstu fjóra dagana en síðan
fór skipið inn til að taka á móti nýja
hafrannsóknaskipinu Árna Friðriks-
syni. Að því loknu var haldið aftur út
og voru leiðangursmenn einn dag í
Skeiðarárdjúpi, annan í Breiða-
merkurdjúpi og voru í Lónsdjúpinu í
gær.
Sterkari árgangar
„Það hefur verið þokkalegur aflí á
austursvæðinu nema hérna austast í
Lónsdjúpinu en hér er kaldara og
skilyrðin verri,“ sagði Hrafnkell við
Morgunblaðið í gær. Hann sagði að
sennilega hefði eitthvað dregið úr
veiði í Skeiðarár- og Breiðamerkur-
dýpi miðað við það sem mest hefði
verið en gott hljóð væri í mönnum.
„Þeir árgangar, sem hafa orsakað
batnandi nýliðun fyrir austan eftir
mjög mikla lægð um miðjan áratug-
inn í kjölfar mjög mikillar veiði upp
úr 1990, hafa greinilega náð ágætis
vexti, koma vel fram í veiðinni og ég
er nokkuð sáttur við það.“
Mismunandi ástand
Hrafnkell sagði að ástandið á
austursvæðunum væri batnandi
vegna betrj árganga sem kæmu inn í
veiðina í auknum mæli en einkum er
um að ræða árganga 1990, 1991 og
1992. „Hlutfall stærri humars hefur
aukist og skiptir það verulegu máli
því að minnsta kosti elsti árgangur-
inn er kominn í 1. flokks stærð.
Vöxturinn hefur verið ágætur og er
greinilegur munur frá því í fyrra.“
Síðan fiskveiðiárið 1997 til 1998
hefur humarkvótinn verið 1.200 tonn
á ári. Björn Lúðvík Jónsson, skip-
stjóri á Hvanney SF frá Hornafirði
sagði við Morgunblaðið á dögunum
að kvótaskerðingin hefði haft mikið
að segja og ekki mætti auka kvótann
því aðalatriðið væri að fá sem mest í
1. flokk. Hrafnkell sagði of snemmt
að segja til um hvað lagt yrði til
vegna næsta fiskveiðiárs. í lok leið-
angursins færi fiskveiðiráðgjafar-
nefnd Hafrannsóknastofnunar yfir
öll gögn og þyrfti að huga að heild-
ardæminu. Mismunandi ástand væri
á vestursvæðinu og suðaustursvæð-
inu og eftir ætti að kanna vestasta
svæðið. Þrátt fyiir batnandi ástand
fyrir austan gæti ástandið haldið
áfram að versna vestast og staðan
jafnaðist því út. Með öðrum orðum
væri heildarbatinn ekki endilega
eins mikill og menn vonuðust til.
NOKIA550 22.111 kr 19.900 kr.stgr.
N0KIA 540 22.111 kr 19.900 kr.stgr.
Magnari 7w fyrir 550/650 22.111 kr. 19.900 kr.stgr.
Festingasett fyrir 550/540 16.555 kr. 14.900 kr.stgr.
HAFÐU SAMBAND HVAR SEM ÞU ERT
Háteknl
Ármúla 26 • Sími 588 5000
Umboðsmenn um land allt
Haföu samband
TILB0Q á takmörkuðum
fjölda NMT farsíma!
(Allt að 30.000 kr. afsláttur)
IMOKIA
CONNECTING PEOPLE
NOKIA650 33.222 kr 29.900 kr stgr
Fjarrænt
Multivitamin
TUi tl'frutti :./
Apótekin
eftir að kjósa
Taktu þátt í póstatkvæðagreiðslu um nýjan kjarasamning
VR og Samtaka atvinnulífsins. Atkvæðaseðilinn þarf að senda
ísíðastalagi • jnfejfg ''>.vT|fv • ^i
Hafðu samband við skrifstofu VR í síma 510 1700 ef þú hefur
ekki fengið kjörgögn send heim.
Verzlunarmannafélag Reykjavíkur