Morgunblaðið - 23.05.2000, Síða 26

Morgunblaðið - 23.05.2000, Síða 26
26 ÞRIÐJUDAGUR 23. MAÍ 2000 ERLENT MORGUNBLAÐIÐ AP Liðsmaður í sérsveitum lögreglunnar á verði í Jolo í síðustu viku. Þar sprakk sprengja á markaðstorgi með þeim afleiðingum, að fjórir menn biðu bana og 39 slösuðust. Óöldin á Filippseyjum Viðbúnaður vegna sprengjutilræða Manila, Cotabato. AFP. borgarinnar. Tilræðin hafa valdið því, að gengi gjaldrniðilsins og verðbréfa hefur lækkað en flestir telja víst, að múslímskir aðskilnað- arsinnar standi að baki þeim. Lög- reglan telur þó ekki útilokað, að einhverjir hópar, sem andvígir eru Estrada forseta, hafi verið að verki. Hálfur herinn í stríði Rúmlega helmingur filippíska hersins á nú í höggi við um 15.000 skæruliða stærstu aðskilnaðarsam- taka múslíma á Mindanao en leið- togi þeirra kvaðst í gær reiðubúinn að setjast aftur að samningaborði með fulltrúum stjórnvalda. Fagnaði Estrada því en varaði samt við nýj- um árásum og sagði, að hver ein- asti ferþumlungur landsins yrði varinn. Múslímsku skæruliðarnir á Jolo- eyju, sem eru með 21 gísl, aðallega útlendinga, hafa sett tvö meginskil- yrði fyrir frelsi þeirra. Annað er, að þeir fái að stofna sitt eigið sjálf- stæða ríki á sunnanverðum Filipp- seyjum og hitt, að hafin verði rann- sókn á illu hlutskipti filippískra múslíma, sem sest hafa að í Mala- síu. í gær voru fyrirhugaðar við- ræður milli stjórnvalda og þessarar hreyfingar, sem kallast Abu Sayyaf. JOSEPH Estrada, forseti Filipps- eyja, hét í gær að bregðast hart við sprengjutilræðum í stói'verslunum í Manila, höfuðborg landsins, en kvaðst þó ekki mundu lýsa yfir neyðarástandi í landinu. Eru músl- ímskir aðskilnaðarsinnar grunaðir um tilræðin en stærstu samtök þeirra tilkynntu í gær, að þau hefðu fallist á tilboð stjórnvalda um viðræður. Onnur hreyfing, sem heldur 21 gísli, krefst þess, að stofnað verði múslímskt ríki á sunnanverðum Filippseyjum. „Við erum ekki ráðalaus," sagði Estrada á blaðamannafundi í gær þar sem hann tilkynnti, að herinn myndi grípa til ráða, sem dygðu til að uppræta hryðjuverkastarfsemi af þessu tagi. 10 sprengjur sprungu í bæjunum Buug og Malangas sl. sunnudag og þá sprakk sprengja í stærstu verslanamiðstöðinni í Man- ila og á Filippseyjum. Lést einn maður og 17 slösuðust. Sl. miðviku- dag slösuðust 13 er sprengja sprakk í verslun í fjármálahverfi • - ••• ^ - pETlT SIRAH' D0Mai^dís Selection 15 lítra er hannað fyrir kröfuharðasta víngerðarfólkið. Lögun á 23 lítrum tekur 4-6 vikur. Tilboð til l.júní: Þú velur þér tvær gerðir af 24 mögulegum og færð 30% afslátt af báðum. J5A/tf3gV0 - zvtflHS /13**' Rick Lazio tekur við af Giuliani sem andstæðingur Hillary Clinton í New York Skarpari skil á milli málefna mora Bföndunartæki með brunavöm Moraterm sígild og stflhrein. Með Moraterm er alltaf kjörhiti ( sturtunni og öryggi og þægindi f fyrirrúmi. Mora - Sænsk gæðavara Smiðjuvegi 11 • 200 Kópavogur Sími: 5641088 • Fax: 5641089 • tengi.is New York, Washington. AP, AFP. BARÁTTAN í New York vegna öld- ungadeildarkosninganna í haust breyttist mikið um helgina er full- trúadeildarþingmaðurinn Rick Lazio kom í stað Rudolphs Giulianis borgarstjóra sem keppinautur Hill- ary Clinton. Tilkynnti hann um framboð sitt á laugardaginn og réð- ist strax af hörku gegn Clinton, sem svaraði fyrir sig í sömu mynt. Demókratar telja, að möguleikar Clintons á að sigra í kosningunum hafi aukist við brotthvarf Giulianis en repúblikanar segjast vissir um, að Lazio muni vinna upp það for- skot, sem Clinton hefur nú sam- kvæmt skoðanakönnunum. Giuliani ákvað á föstudag að hætta við framboð af heilsufars- ástæðum, vegna baráttu sinnar við krabbamein í blöðruhálskirtli, og daginn eftir tilkynnti Lazio, að hann myndi taka upp merki hans í slagn- um við Hillary. Lazio sakaði Clinton strax um að vera hlynnt óheftum ríkisafskiptum og sneiddi að henni fyrir að vera ekki borin og barnfædd í New York, en Clinton og hennar fólk svaraði óðara fullum hálsi. Lýsti það Lazio sem „helsta vikapilti" Newt Ging- rich, fyrrverandi forseta fulltrúa- deildarinnar, og sagði, að á sama tíma og Clinton hefði verið að tala um málefni borgarinnar, hefði hann ekki haft annað fram að færa en óhróður. „Clinton vill fjárfesta í skólunum en Lazio studdi mesta niðurskurð til menntamála í sögunni. Clinton vill fjárfesta í heilbrigðiskerfinu en Lazio lækkaði framlögin um 270 milljarða dollara," sagði einn tals- manna Clintons. Repúblikanar bjartsýnir Almennt er búist við, að það muni bitna á Lazio hve seint hann kemur AP Rick Lazio er hann tilkynnti, að hann myndi takast á við Hillary Clinton í öldungadeildarkosningunum í New York í haust. inn í baráttuna og skoðanakönnun, sem birt var um helgina, sýnir, að Clinton nýtur nú fylgis 45,7%, en hann 32,2%. Repúblikanar eru þó ekki óhressir með þetta og benda á, að þeirri landsþekktu konu Hillary Clinton hafi aldrei tekist að komast í 50% og segjast vissir um, að Lazio muni brúa bilið og meira en það. George Pataki, ríkisstjóri í New York úr flokki repúblikana, sagði á sunnudag, að Lazio væri „fram- úrskarandi frambjóðandi“ en minnti jafnframt á, að til að sigra í haust yrði hann.að fá atkvæði einnar mil- ljónar demókrata. Talið er, að með því hafi hann verið að gefa í skyn, að íhaldssamur ferill Lazios kunni að verða honum fjötur um fót. Hreinni línur Baráttan milli Clintons og Giuli- anis snerist mikið um persónurnar sjálfar og áróður hennar um „íhalds- semi“ hans þótti ekki nógu trúverð- ugur þar sem hann er meðal frjáls- lyndustu repúblikana. Voru þau raunar sammála um margt, en öðru máli gegnir um Lazio. Hann er í hægri armi flokksins og er þegar farinn að leggja áherslu á mál, sem Giuliani var andvígur. Ólíkt Giuliani hefur Lazio þegar lýst yfir, að hann muni þiggja stuðn- ing Óháða flokksins, jafnvel þótt Patrick Buchanan verði þar í for- ystu, og hann er andvígur öllum tak- mörkunum á skammbyssueign. Stuðningsmenn Hillary Clinton hafa fagnað þessum yfirlýsingum Lazios og segja, að hér eftir verði kosn- ingabaráttan einfaldari. Nú muni hún snúast um málefni og hyggja á mikla herferð í sjónvarpi til að kynna kjósendum afstöðu Lazios til ýmissa mála á þingi. SANYL ÞAKRENNUR •RYÐGAEKKI. • PASSAIGÖMLU RENNUJÁRNIN. • STANDAST (SLENSKT VEÐURFAR. • AUDVELDARIUPPSETNINGU. • ÓDÝR OG GÓÐUR K0STUR. Fást í flestum byggingavöru- verslunum landsins. fjSt ÁiFABORG Knarrarvogi 4 • Sími 568 6755

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.