Morgunblaðið - 23.05.2000, Síða 28
28 ÞRIÐJUDAGUR 23. MAÍ 2000
ERLENT
MORGUNBLAÐIÐ
Átökin í Austur-Afríku
Himdruð þús-
unda óbreyttra
borgara á flótta
Samcinuðu þjóðunum, Asmara, Addis Ababa, Khartoum. AP, AFP.
AP
Uni 150 Eritreumenn, búsettir í Svíþjóð, gerðu í gær tilraun til að loka
inngangi sænska þingsins, Riksdagen, í Stokkhólmi til að mótmæla því
sem fólkið kallaði sinnuleysi heimsins gagnvart innrás Eþíópíu. Lög-
regla fjarlægði mótmælendur.
Aukin
tengsl
við ESB
samþykkt
í Sviss
KJÓSENDUR í Sviss lýstu yfír
stuðningi við nánari tengsl við
Evrópusambandið í þjóðar-
atkvæðagreiðslu um helgina
þegar þeir samþykktu við-
skiptasamninga svissnesku
stjómarinnar við sambandið.
Svissnesk dagblöð túlkuðu úrslit
atkvæðagreiðslunnar sem auk-
inn stuðning við Evrópusam-
runann eftir að Svisslendingar
höfnuðu aðild að Evrópska efna-
hagssvæðinu, EES, með mikl-
um meirihluta árið 1992. Jospeh
Deiss, utanríkisráðherra lands-
ins, sagði þó að ólíldegt væri að
viðræður hæfust um aðild Sviss
að Evrópusambandinu íyn- en
árið2004.
Norðmenn
hefja friðar-
viðræður á
Sri Lanka
RAYMOND Johansen, aðstoð-
arutanríkisráðherra Noregs,
ræddi í gær við ráðamenn á Sri
Lanka um leiðir til að binda
enda á stríðið í landinu sem hef-
ur kostað 62.000 manns lífið á
sautján árum. I fylgdarliði
Johansens var Erik Solheim,
sérlegur sendimaður norsku
stjómarinnar, sem er talinn
vera í sambandi við leiðtoga
skæruliðanna.
Flugher landsins réðist í gær
á stöðvar skæruliðanna á
Jaffna-skaga og stjómin sagði
að þeir hefðu orðið fyrir miklu
mannfalli.
Lýst yfír
stuðningi við
Mugabe
PAKALITHA Mosisili, forsæt-
isráðhema Lesotho, fór í opin-
bera heimsókn til Zimbabwe í
gær til að lýsa yfir stuðningi við
Robert Mugabe forseta í deilu
hans við Breta um jarðanámið í
landinu. Mosisili sagði að öll rík-
in í sunnanverðri Afríku styddu
Mugabe og aðgerðir blökku-
manna í Zimbabwe sem hafa
lagt hundrað búgarða hvítra
bænda undir sig og orðið a.m.k.
25 manns að bana. Stjóm Suð-
ur-Afríku hefur sakað bresk
stjómvöld um að bera ábyrgð á
blóðsúthellingunum þar sem
hún hafi ekki staðið við loforð
um að leggja fram fé til að kaupa
búgarðanna og úthluta fátækum
blökkumönnum jörðunum.
Gulldeila
Tékka og
Slóvaka leyst
MILOS Zeman, forsætisráð-
herra Tékklands, afhenti í gær
Mikulas Dzurinda, forsætisráð-
herra Slóvakíu, 14 kg gullstöng
við táknræna athöfn í tilefni
þess að samkomulag hefur
náðst í deilu ríkjanna um 4,1
tonn af gulli sem tékknesk yfir-
völd neituðu að afhenda Slóvök-
um eftir að Tékkóslóvakía leyst-
ist upp í tvö ríki 1. janúar 1993.
Gullið er metið á andvirði 49
milljarða króna og var flutt með
leynd til Slóvakíu af öryggis-
ástæðum.
EVRÓPUSAMBANDIÐ (ESB)
reynir nú að miðla málum milli
Austur-Afríkuríkjanna Eþíópíu og
Erítreu en sókn eþíópíska hersins
nær sífellt lengra inn í nágranna-
ríkið. Reno Serri, sérlegur sendi-
fulltrúi Evrópusambandsins (ESB),
kom í gær til Addis Ababa, höfuð-
borgar Eþíópíu, til að ræða við yfir-
völd þar um stríð ríkjanna. Hann
hefur síðustu daga átt í viðræðum
við stjórnvöld í Eritreu og sagðist í
gær eiga von á því að geta snúið
aftur til Asmara, höfuðborgar Erit-
reu, í dag. Serri vildi ekki tjá sig
efnislega um viðræðurnar en sagði
að mikið verk væri óunnið.
Hersveitir Eþíópíustjórnar náðu í
síðustu viku borginni Barentu, sem
er langt innan við landamæri Erít-
reu í vestri, á sitt vald og viður-
kenndu erítreísk stjórnvöld að her-
sveitir sínar hefðu hörfað þaðan
ásamt íbúum borgarinnar. Að
minnsta kosti 550.000 óbreyttir
borgarar hafa yfirgefið heimili sín á
átakasvæðunum og era nú á flótta
undan framsókn Eþíópíumanna.
Tugir þúsunda hermanna hafa látið
lífið frá því að átökin hófust 12. maí
síðastliðinn.
BARBARA Cartland, afkastamesti
rithöfundur heims og „drottning
ástarsagnanna", lést í svefni á heim-
ili sínu í Bretlandi á sunnudag, 98
ára að aldri.
Cartland skrifaði 723 bækur, sem
vora þýddar á 36 tungumál og áætl-
að er að þær hafi verið seldar í millj;
arði eintaka út um allan heim. I
heimsmetabók Guinness er hún
sögð söluhæsti rithöfundur heims.
Hver bók seldist í um milljón ein-
taka og hún skrifaði tvær bækur á
mánuði síðustu tvo áratugina, að
minnsta kosti 600 orð á dag. Að
meðaltali gaf hún út 23 bækur á ári í
átján ár.
Skrifaði um ástir án kynlífs
Cartland skrifaði fyrstu bókina 21
árs að aldri og hún sérhæfði sig í
rómantískum skáldsögum þar sem
ungar, fallegar og saklausar kven-
hetjur verða ástfangnar af hávöxn-
um, myndarlegum og efnuðum karl-
mönnum. í bókunum era engar
kynlífslýsingar, kvenhetjurnar eru
allar hreinar meyjar þar til þær gift-
ast og sögunum lýkur alltaf með
hamingjusömu hjónabandi.
„Englendingar ættu alltaf að vera
heiðursmenn, kirkjan ætti ætíð að
vera í fararbroddi í siðferðismálum
og ungt fólk ætti alltaf að alast upp í
hamingjusömu fjölskylduumhverfi
þar sem eiginkonan vinnur ekki úti,“
sagði hún eitt sinn um lífsskoðanir
sínar. „Ástæða þess að bækur mínar
seljast svo vel er að skortur er á feg-
urð í heiminum.“
„Sjálf vil ég vera elskuð, dáð,
dýrkuð, dekrað og vernduð,“ sagði
hún árið 1977. „Af uppgangi ástar-
sagnanna að dæma er þetta það sem
konur út um allan heim vilja líka.“
Cartland bjó í gömlu höfðingja-
setri í Hatfield í Hertfordshire og
lýsti því sem „verksmiðju“. Þar
starfaði hún með sex riturum og
Stjómarerindrekar í Eþíópíu
hafa lýst því yfir að með hertöku
Barentu væri stríðinu á vestur-
landamærum ríkjanna senn lokið.
Óvíst er þó hvað fyrir herdeildum
Eþíópíumanna vakir og telja sumir
að þær stefni að því að ná á sitt
vald hafnarborgum á austurströnd
Erítreu.
Ríkisstjórn nágrannaríkisins
Súdan óttast mjög að ófriðurinn á
svæðinu kunni að leiða til straums
flóttamanna inn á þeirra landsvæði
og í gær báðu stjórnvöld í Khar-
toum alþjóðasamfélagið um aðstoð
við að standa straum af kostnaði
vegna aðstoðar við flóttafólk. Að
sögn blaðsins Al-Ayam, fór Ibrahim
Mahmoud Hamid, fylkisstjóri í
Kassala, sem liggur á landamærum
Súdan og Erítreu, þess á leit við
Flóttamannastofnun Sameinuðu
þjóðanna (UNHCR) að hún gerði
nauðsynlegar neyðarráðstafanir þar
eð Súdan myndi ekki ráða eitt við
kostnað af aðstoð við flóttamenn.
Vopnasölubann samþykkt
Öryggisráð Sameinuðu þjóðanna
samþykkti í síðustu viku einróma
ályktun um bann við allri vopnasölu
lagðist yfirleitt upp í sófa meðan hún
las ástarsögurnar fyrir. „Ég legg
alltaf hart að mér og þegar ég þarf
nýjan söguþráð bið ég til guðs og
hann sendir mér söguþráð innan sól-
arhrings."
Sá blöðunum fyrir fréttum
af fræga fólkinu
Mary Barbara Hamilton Cartland
fæddist í Birmingham 9. júlí 1901 og
var af breskum aðalsmönnum kom-
in. Afi hennar svipti sig lífi þegar
hann varð gjaldþrota ári eftir fæð-
ingu hennar og faðir hennar féll í
fyrri heimsstyrjöldinni.
Móðir hennar fluttist til London
og stofnaði fataverslun í Kensington
til að framfleyta sér og þremur
börnum sínum.
Þegar Cartland var 22 ára skrif-
aði hún greinar í dagblað um félags-
líf unga og fræga fólksins í London,
veislur þess og klæðaburð. Áður
hafði hún séð fyrir sér með því að út-
vega blaðamönnum slúðurdálka-
til Eþíópíu og Erítreu uns ríkin
hafa samið um frið sín í milli. í
ályktun öryggisráðsins sagði að
landamærastríðið sem staðið hefur í
tvö ár, ógnaði friði og öryggi svæð-
isins og er þess jafnframt krafist að
samið verði um frið án tafar.
„Ég er þeirrar skoðunar að þetta
sendi ótvíræð og sterk skilaboð til
striðandi aðila um að binda enda á
átökin," sagði Nancy Soderberg,
aðstoðarsendiherra Bandaríkjanna
hjá SÞ. Öll þau fimmtán ríki sem í
ráðinu sitja greiddu ályktuninni at-
kvæði sitt.
Samkvæmt ályktuninni er öllum
aðilum, hvort sem um ríkisstjórnir
eða einkaaðila er að ræða, bannað
að selja eða útvega vopn, skotfæri,
fréttfr af fræga fólkinu gegn
greiðslu.
Fékk 49 bónorð og
giftist tvisvar
Ástalíf hennar sjálfrar var all-
skrautlegt. Hún þótti mjög glæsileg
á sínum yngri árum og sagðist hafa
fengið 49 bónorð áður en hún giftist
auðugum Skota, Alexander
McQorquodale, árið 1927. Hjóna-
band þeirra var þó ekki hamingju-
samt eins og í ástarsögunum því þau
skildu sex árum síðar.
Cartland hélt áfram að skrifa
greinar í dagblöð og skáldsögur og
árið 1936 giftist hún Hugh
McQorquodale, frænda eiginmanns-
ins fyrrverandi. Þau eignuðust tvo
syni, Ian og Glen. Seinni eiginmað-
urinn lést árið 1963.
Dóttir hennar af fyrra hjóna-
bandi, Raine, giftist föður Díönu
prinsessu, Spencer jarli. Cartland
tók málstað prinsessunnar þegar
hjónaband hennar og Karls Breta-
herfarartæki og annan búnað til
Eþíópíu og Erítreu. Munu þessi
ákvæði verða í gildi þar til Kofi
Annan, framkvæmdastjóri SÞ, vott-
ar að samkomulagi um varanlegan
frið hafi verið náð. Að öðram kosti
verður bannið í gildi næstu tólf
mánuði, með möguleikum á fram-
lengingu.
Rússar hafa á undanförnum ár-
um selt ríkjunum tveim mikið magn
vopna og voru í upphafi andsnúnir
tillögum Bandaríkjamanna og
Breta um vopnasölubann. Þeir létu
þó af andstöðu sinni í byrjun síð-
ustu viku en lögðu hins vegar
áherslu á, líkt og Frakkar, að bann-
ið yrði skilyrt í tíma.
prins fór út um þúfur. Eftir að Díana
lést í bílslysi í París árið 1997 skrif-
aði Cartland bróður hennar og sak-
aði hann um að gera sér dauða prin-
sessunnar að féþúfu. „Sú hugmynd
að selja þeim miða sem vilja skoða
gröf hennar er skelfileg," sagði hún.
Þekkt fyrir sérkenni-
legan klæðaburð
Cartland vakti mikla athygli í
samkvæmislífinu í London í síðari
heimsstyrjöldinni og fékk þá breska
varnarmálaráðuneytið til að leggja
fram fé til að konur, sem gegndu
herþjónustu, gætu klæðst silkinær-
fatnaði. Markmiðið var að efla bar-
áttuandann innan hersins.
Cartland tók að þróa mjög sér-
kennilegan fatastíl upp úr fimmt-
ugu, þótti glysgjörn og kvenleg í
klæðaburði. Hún hafði mikið dálæti
á bleikum fatnaði, hvítum loðfeldum
og gimsteinum og var alltaf með
fölsk augnhár. Hún virtist þó ekki
taka ímynd sína mjög alvarlega. „Ég
nota alltaf skóbón á augnhárin
vegna þess að ég er tilfinningarík
kona og það rennur ekki af þegar ég
græt,“ sagði hún eitt sinn í viðtali við
Sunday Telegraph.
Beitti sér í þágu sigauna
Cartland haslaði sér einnig völl í
stjórnmálunum og varð bæjarfull-
trúi íhaldsflokksins. Hún beitti sér
m.a. fyrir því að sígaunum yrði gert
kleift að taka sér fasta búsetu, barð-
ist fyrir hagsmunum hjúkrunar-
kvenna og launum fyrir mæður.
Hún var einnig þekkt fyrir andstöðu
sína við feminisma.
Auk skáldsagnanna skrifaði Cart-
land nokkrar bækur um ævi kónga-
fólks í Evrópu, rit um samfélagsmál,
sjálfsævisögur og bækur um heilsu-
samlegt mataræði. Hún hafði mikla
trú á fæðubótarefnum og tók inn
tugi vítamíntaflna á hverjum degi.
Barbara Cartland, „drottning ástarsagnanna“, látin
Skrifaði 723 bækur sem
seldust í milljarði eintaka
London. Reuters, AP, AFP, The Daily Telegraph.
AP
Cartland ásamt syni sfnum, Ian McCorquodale, fyrir tveimur árum.