Morgunblaðið - 23.05.2000, Blaðsíða 29
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 23. MAÍ 2000 29
LISTIR
Lokahnykkurinn
MYNDLIST
Kjarvalsstaðir
VEG(G)IR
RAGNHEIÐUR
JÓNSDÓTTIR
Sýningaverkefni lokið.
FIMMTUDAGINN 18. þessa
mánaðar áttu sér stað lok sýninga-
verkefnis að Kjarvalsstöðum er fékk
heitið, Veg(g)ir, og blasað hefur við
gestum undanfarna mánuði. Lista-
mennirnir unnu það á staðnum,
þannig að mögulegt var að fylgjast
með ferlinu hjá hverjum einum frá
upphafi til loka, heimtur reynslunnar
því dýrmætar, en mesta agnúann má
teija að málað var yfir verkin eftir
starfslok hverju sinni og gestum ekki
gefið tækifæri til að virða árangurinn
fyrir sér í nokkra daga. Að vísu luku
einhverjir sínum hlut íyrir tímann en
það var naumast í kórréttum anda
verkefnisins. Auðvitað má segja að
yfirmálunin hafi verið hluti af hug-
myndinni, en fáeinir dagar hefðu
hvorki gert til né frá og einungis til
ávinnings og áframhaldandi sam-
ræðu. Þá var erfitt að spá í sum verk-
anna á meðan þau voru í smíðum og
þannig var það ekki fyrr en í lokin að
framlag Gunnars Arnars sýndi rétt-
an styrk sinn, og enn frekar varðandi
Ragnheiði Jónsdóttur, en verk henn-
ar virkaði alla tíð frekar dauft undir
plastinu sem huldi það og verndaði
þau skipti sem ég átti leið um. Ragn-
heiður vann það með koli, sem er
mjög viðkvæmt og ekki mögulegt að
koma við fixeringu fyrr en í lokin þar
sem illkleift er að vinna áfram í teikn-
inguna eftir það. Fixeringin skiptir
líka miklu máli því þá fyrst öðlast
ýmsir hinna veikari tóna dýpt sína og
dökkar útlínur verða harðari og það
virðist einnig hafa gerst í þetta sinn,
hins vegar getur röng fixering haft
háskalegar afleiðingar. Sumir lista-
menn hafa útilokað alla fixeringu því
að við það haldast tónarnir mýkri og
opnari ásmt því að ljósnæmið verður
meira, en það rýrir mjög endingar-
gildi þeirra og sitthvað ófyrirsjánlegt
getur komið fyrir sem raskar heild-
armyndinni. Nú veit ég ekki hvort
mynd Ragnheiðar hafi verið fixeruð,
láðist að grennslast fyrir um það, en
hins vegar undraðist ég mjög um-
skiptin frá því nokkrum dögum áður.
I ljós kom mjög heildstætt verk,
gætt mjúkum og íínlegum hrynjandi
ásamt margs konar tilbrigðum sem
ekki voru greinanleg áður, og átti ég
afar erfitt með að sætta mig við þá
staðreynd að verkið yrði horfið dag-
inn eftir. Málið er að það féll mjög vel
að staðháttum og hefði átt að sann-
færa einhverja um að slík vinnu-
brögð eiga fullan rétt á sér við lýs-
ingu veggja, eru jafngild og dýrari
efni til að mynda mósaik eða oh'a, því
það er árangurinn sem skiptir höfuð-
máli en ekki efnið né umbúðirnar.
Menn hafa velt því fyrir sér hvort
þetta hafi verið stærsta teikning, eða
öllu frekar myndriss, sem gert hefur
verið á íslandi, en stærðin ein skiptir
heldur ekki meginmáli þótt í sjálfu
sér geri hún verkin rismeiri, gæði
þau „monumentalitet" eins og það er
nefnt og má heimfæra við minjagildi
er beri í sér mikilleika. Það hefði ver-
ið full ástæða að vera með meiri
kynningu á staðnum, því þótt þetta
allt eigi eftir að birtast í bók verða
áhrifin aldrei söm og geta í sumum
tilvikum verið villandi, rýmið og and-
rúmið ekki til staðar. Þar sem ég var
erlendis á meðan Daði Guðbjömsson
var að ljúka sínu verki og verk Ráð-
hildar Ingadóttur fór illu heilli fram-
hjá mér fæ ég aldrei réttan saman-
burð, en þó tel ég að mér sé óhætt að
staðhæfa að síðustu tvö verkin hafi
verið í mesta samræmi við rýmið og
arkitektúrinn í samanlögðu húsinu.
Nú er að bíða útkomu bókarinnar, en
í heild sinni tel ég að menn megi vel
við una og framningurinn kunni að
hafa meiri þýðingu til lengri tíma lit-
ið en í fljóti bragði verður greint.
Bragi Asgeirsson
Ljósmynd/Bragi Ásgeirsson
Hluti af veggverki Ragnheiðar Jónsdottur.
Nýtt nám í form-
og vöruhönnun
í Listaháskólanum
NÆSTA haust hefst í Listaháskóla
Islands nám í form- og vöruhönnun.
Námið tekur þrjú ár og lýkur með
BA-gráðu og er þetta í fyrsta sinn
sem nám á háskólastigi í faginu er í
boði. Umsóknarfrestur rennur út
fostudaginn 2. júní nk.
Katrín Pétursdóttir iðnhönnuður
hefur umsjón með fyrsta ári náms-
ins. Aðspurð um inntak námsins seg-
ir hún að á erlendum tungumálum
myndi það vera kallað „product de-
sign“ - eða vöruhönnun. „En þar
sem þessi grein er svo stutt á veg
komin hér á landi getur verið svolítið
erfitt að finna réttu skilgreiningarn-
ar. Innan námsins rúmast hönnun
nytjahluta, vöruhönnun og iðnhönn-
un. Við erum að fara inn á þetta þrí-
víða svið sem er kennt við alla lista-
háskóla erlendis og raunar veit ég
ekki um nokkra aðra slíka stofnun
sem býður ekki upp á þetta nám, svo
það var alveg tími til kominn að
koma því á fót hér á landi,“ segir
Katrín.
Vonandi opnast nýjar
dyr í íslenskum iðnaði
Á fyrsta árinu sitja saman í alhliða
hönnun nemendur í grafískri hönn-
un, textíl og vöruhönnun, en upp úr
því hefst sérhæfingin. Katrín segir
að mikil áhersla verði lögð á hug-
myndafræði og rannsóknavinnu, þá
verði tekin fyrir hönnun sem að-
ferðafræði, farið í hönnunarferilinn
og hann settur í samhengi við fram-
leiðslu og markaðssetningu.
„Þetta er mjög stórt og mjög já-
kvætt skref sem nú er verið að taka
og er til marks um nýja tíma og nýj-
ar áherslur. Um leið og farið er að
kenna fag eins og þrívíða vöruhönn-
un eða iðnhönnun hér á Islandi á ég
von á að þáð muni verða fljótt að
smitast út í þjóðfélagið," segir Kat-
rín, sem kveðst ætla að reyna að fá
iðnaðinn til liðs við sig. „Vonandi
opnast með þessu nýjar dyr í iðnaði
hérna heima - það er draumurinn.“
Ferskur nútímastfll.
[ ▼ Ýmsar útfærslur.
Á tilboðsverói í maí.
mU Háteigsvegi 7 Sími 511 1100
V'A máhm HfpttMOi*,
ekki UUhh
Hvernig kemur bíllinn þinn undan vetri?
Við gerum við rispurnar og sjóum um blettanir með efni
sem gerir galdurinn. Þú sparar peninga og bíllinn er
tilbúinn samdægurs. Fróbær útkoma og varanleg.
Sjón ersögu ríkari
AK GUÐBERG EHF
Sími: 567 7523
Netfang: akchips@mmedia.is - Bíldshöfða 14 Reykjavík
.......................................
>/
✓
cSumar-
TÖLVUNÁMSKEIO
Þekking í þína þágu
Námskeið fyrir 9-15 ára
Tölvusumarskólinn grunnur, 36kennsiustundir
ritvinnsia, teikning, vélritun, Intemetið, stýrikerfi, leikir o. fl.
Tölvusumarskólinn framh., 36 kennsiustundir
gagnagrunnar, vefsíðugerð, myndvinnsla, leikir o. fl.
Almenn námskeið
Windows 95/98, 9 kennslustundir
grunnnámskeið um stýrikerfi tðlva.
Windows, Word og Excel, 22 kennslustundir
námskeið fyrir þá sem vilja gott námskeið um heistu fbrritin
og stýrikerfi tölva.
Word ritvinnsla, 18kennslustundir
yfirgripsmikið námskeið fyrir byrjendur og lengra komna.
Word II, 18 kennslustundir
námskeið fýrir notendur með mikla reynslu af ritvinnslu
sem lokið hafa Word námskeiði.
Excel töflureiknirinn, 22 kennslustundir
vandað og gott námskeiö um alla þætti töflureiknisins.
Excel II, 18 kennslustundir
námskeið sem aðeins er ætiað þeim sem kunna mikið í
Excel og hafa unnið lengi við hann.
Access gagnagrunnurinn, 22 kennsiustundir
yfirgripsmikið námskeið fýrir þá sem vilja iæra á þennan
öfluga gagnagrunn. Kennt að smiða kerfi frá grunni.
ÖUtlOOk, 9 kennslustundir
yfirgripsmikið námskeið um verkefnayfirtit, dagbókar-
skráningu, póstsendingar og gerð minnismiða.
POWerPoínt, 13 kennslustundir
gagnlegt og skemmtilegt námskeið fýrir alla sem þurfa að
útbúa kynningarefrii, kenna eða haida fyrirlestra.
Internetið, 9 kennslustundir
byrjendanámskeið um vefinn og tölvupóst
Vefsíðugerð I, 22 kennslustundir
grunnnámskeið um vefsiðugerð með FrontPage forritinu.
Vefsíðugerð II, 22 kennslustundir
skemmtilegt framhaldsnámskeið um FrontPage.
Námskeið fyrir kennara
Netumsjón í skólum, 42 kennslustundir
netfræði, búnaður, Windows 95/98, Windows NT.
Vefsíðugerð fyrir kennara, 42 kennsiustundir
vefeíðugerð, myndvinnsla, skönnun og fieira.
Námsefnisgerð, 42 kennslustundir
notkun Word og PowerPoint við námsefnisgerð.
Netumsjón og lengra nám
Windows NT4.0 netumsjón, 42 kennslustundir
netfræði, búnaður, Windows 95/98, Windows NT.
Windows 2000 eða NT 4.0, 50 kennslustundir
MCP námskeið á ensku fýrir þá sem vilja lengra.
Kerfisfræði TV, 380 kennslustundir
eins árs yfirgripsmikiö nám hefet í september.
Netumsjón í nútímarekstri, 120 kennsiustundir
hátfe árs nám fyrir verðandi netsérfrasðinga hefet i haust.
Tölvuumsjón í nútímarekstri, 145 kennsiust.
hálfe árs nám fýrir þá sem vilja verða færir tölvunotendur,
hefet i september.
Gódar ástæður fyrir þvi að koma á námskeid okkar
5% staögreiðsluafsláttur ef pantað er eitt námskeiö og
þátttökugjald greitt við byrjun námskeiðs.
10% staðgreiðsluafsláttur ef pöntuð em 2 - 4 námskeið
og þátttökugjald greitt innan 5 daga frá byrjun náms.
15% staðgreiðstuafsláttur ef pöntuð eru 5 eða fleiri
námskeið og þátttökugjald greitt innan 20 daga frá byrjun
náms.
Rammasamningar em gerðir við fyrirtæki sem kaupa 10
sæti eða fleiri.
Punktasöfnun veitir aukinn afslátt við hvert námskeiö.
Sfmaaðstoö er innifalin í einn mánuð eftir námskeið.
Góö staðsetning og næg bílastæði.
öll námsgögnog veitlngarinnifaldar i þátttökugjaldi.
Nánari upplýsingar á http://www.tv.is
Granaásvegi 16
108 Reykjavík
Sfmi: 520 9000
Fax: 520 9009
Netfang: tv@tv.le
EBDB
pöntunarsími