Morgunblaðið - 23.05.2000, Side 50
50 ÞRIÐJUDAGUR 23. MAÍ 2000
MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ
MARIA GUÐNÝ
* ÁSTMARSDÓTTIR
+ María Guðný
Ástmarsdóttir
var fædd á ísafírði 3.
mars 1904 og ólst þar
upp. Hún lést á
Sjúkrahúsi Suður-
lands á Selfossi 10.
maí síðastliðinn. For-
eldrar hennar voru
Rósamunda Guð-
mundsdóttir og Ást-
mar Benediktsson.
% Systkini hennar voru
- Magnús Ástmarsson,
prentsmiðjusljóri í
Gutenbergprent-
srniðju, séra Ingólfur
Ástmarsson, lengst prestur á Mos-
felli í Grímsnesi, og Elín Ástmars-
dóttir verslunarkona, sem öll eru
látin.
Hinn 27. apríl 1941 giftist María
Aðalsteijii Guðjóni Guðbjartssyni,
f. 27.4.1899, d. 26.9.1973, en hann
var úr Grunnavíkurhreppi, sonur
Kristjönu Kristjánsdóttur, yós-
móður, og Guðbjarts Péturssonar,
sjómanns. María og
Aðalsteinn eignuðust
þijú börn: Rósu, f.
1941, sem er gift Úlf-
ari Brynjólfssyni,
bónda í Stóru-Mörk
og eiga þau sjö böm
og tíu bamabörn;
Sigrúnu, f. 1944, d.
1975, en hún var gift
Eyjólfí Haraldssyni,
lækni. og voru þau
barnlaus, og Aðal-
stein Ómar, en hann
er kvæntur Sigur-
laugu Á. Guðlaugs-
dóttur og eiga þau
þrjá syni og fimm bamaböm.
María bjó lengst af að Einarsnesi
38, en var þjá dóttur sinni í' Stóm-
Mörk siðustu ár, að undanskildum
seinustu fjórum mánuðunum, sem
hún var vistmaður á Hjúkmnar-
heimilinu Lundi á Hellu.
Utför Maríu fer fram frá Foss-
vogskirkju í dag og hefst athöfnin
klukkan 13.30.
Nú hefur mamma fengið hvfld.
Mig langar að láta fylgja þessari
— íiveðju hluta af ljóði, sem hún fékk
frá mér, þegar hún varð 85 ára:
Þú gladdist alltaf með mér
og gleði þín var mikil,
og gleði þín var stór,
er umvafðir þú hópinn minn
með ömmuhöndum þínum
svo allt að vonum fór.
Er rökkva tók á kvöldin
og ró að færast yfír
þitt ráð var sérhvem dag
að leggja saman hendur
og biðja Guð að blessa
og bæta okkar hag.
En þegar að því kemur
aðeigumviðaðkveðjast
en aðeins skamma stund -
þávildiégmegahalda
í hendi þér á meðan
og hugsa um næsta fund.
Þá ósk, sem kemur fram í síðasta
erindinu, fékk ég uppfyllta, því ég
fékk að halda í höndina hennar síð-
ustu stundirnar.
Þakklæti okkar og blessun fylgi
henni til endurfunda við ástvinina í
Guðsríki.
Rósa.
Þú hafðir fagnað með gróandi grösum
og grátið hvert blóm sem dó.
Og þér hafði lærst að hlusta uns hjarta
í hverjum steini sló.
Og hvemig sem syrti, í sálu þinni
lék sumarið öll sín ljóð
og þér fannst vorið vera svo fagurt
og veröldin ljúf og góð.
Og dagurinn leið í djúpið vestur
og Dauðinn kom inn til þín.
Þú lokaðir augunum - andartak
sem ofbirta glepti þér sýn.
Og um varir þér brá fyrir brosi þeirra
sem bíða í myrkrinu og þrá
daginn - og sólina allt í einu
í austrinu rísa sjá.
Og Dauðinn þig leiddi í höll sína heim
þar sem hvelfingin víð og blá
reis úr húmi hnígandi nætur
með hækkandi dag yfir brá.
Þar stigu draumar þíns liðna lífs
í loftinu mjúkan dans.
Og drottinn brosti, hver bæn þin var orð-
in
að blómum við fótskör hans.
(Tómas Guðm.)
Elsku amma Maja, nú ertu loks-
ins komin til afa og Sigrúnar. Eg
veit að þú gleðst yfir því og þess
vegna verðum við sem eftir erum að
ÚTFARARÞJÓNUSTAN
Persónuleg þjónusta
Höfum undirbúið og séð um útfarir á höfuðborgar-
svæðinu sem og þjónustu við landsbyggðina í 10 ár
og erum samkvæmt verðkönnun Mbl. með lægsta
verð allra á líkkistum og þjónustu við útfarir.
Sfmi 567 9110 & 893 8638
www.utfarir.is utfarir@itn.is_____
Rúnar Geirmundsson Sigurður Rúnarsson
útfararstjóri útfararstjóri
ÚTFARARSTOFAISLANDS
Sjáum um alla þá þætti sem hafa ber í huga
er andlát verður
Útfararstjórar okkar búa yfir áratuga reynslu af störfum við
útfararþjónustu.
Sjáum um útfarir á allri landsbyggðinni.
Sverrir
Einarsson
útfararstjóri,
sími 896 8242
Sverrir
Olsen
útfararstjóri.
Baldur
Frederiksen
útfararstjóri,
sími 895 9199
Útfararstofa íslands, Suðurhlíð 35, Fossvogi.
Sími 581 3300. Þjónusta allan sólarhringinn.
www.utfararstofa.ehf.is
reyna að skyggja ekki á þá gleði
með of miklum söknuði. Það er nú
samt ósköp erfitt að hemja slíkt.
Einhverjar fyrstu minningarnar
sem ég á, eru frá því að heimsækja
ykkur afa í Skerjafjörðinn. Eg bað
þig alltaf að elda handa mér kjöt-
rönd með baunum og karamellu-
búðing og það brást aldrei að þú
hefðir það til handa mér. Það var
alltaf jafn spennandi að koma til
ykkar þegar ég var barn, líka fyrir
lítinn heimalning eins og mig. Alltaf
voruð þið afi svo hlý og góð og sam-
band ykkar svo náið að ég held að
ég hafi alltaf litið á ykkur sem eitt
meðan ég var ung.
Svo eltist ég og afi dó. Það hélt
áfram að vera gott að koma til þín í
Skerjafjörðinn og aldrei þreyttist
þú á að segja sögur og syngja fyrir
okkur systkinin og leyfa okkur að
glamra á orgelið þitt.
Þegar þú varst heima hjá okkur í
sveitinni þá varstu svo mikil amma
að þú varst ekki einungis amma
okkar systkinanna heldur allra
barna í nágrenninu líka. Ég man
ekki eftir neinum á nálægum bæj-
um sem ekki kallaði þig ömmu
Maju.
Svo varð ég unglingur og var
send til Reykjavíkur í skóla og bjó
þá hjá þér. Það hefur ekki verið þér
auðvelt því ég var ekki þægileg í
umgengni frekar en margir aðrir
unglingar. Oft reyndi ég á þolrifin í
þér en þú varst mér alltaf jafn góð
og þolinmóð, hvað sem á gekk.
Meðan þú stóðst enn fyrir heimili í
Skerjafirðinum voru alltaf allir vel-
komnir þangað. Allir vinir mínir
voru velkomnir og þau fundu það
líka.
Ég man svo vel eftir því þegar ég
kom í fyrsta skipti heim með Jóa og
þú dróst mig til hliðar til að segja
mér hvað þér litist vel á piltinn
minn því hann hefði svo indælt
bros. Það entist líka út ævina því
alltaf voruð þið jafn góðir vinir og
gátuð hlegið og gert að gamni ykk-
ar saman.
Þú gladdist líka svo innilega þeg-
ar Samúel litli fæddist og ég held að
veturinn sem ég bjó hjá þér með
hann lítinn hafi verið okkur báðum
dýrmætur.
Það besta sem hægt var að gera
fyrir þig var að koma með börnin til
þín. Börnin mín elskuðu langömmu
sína og vildu alltaf komast til þín,
því jafnvel þó þú værir orðin gömul
og þreytt varstu aldrei of þreytt til
að spila við lítinn strák eða raula
fyrir hann barnagælu.
Síðustu árin meðan þú bjóst í
Stóru-Mörk varstu alltaf jafn glöð
að sjá okkur. Þú gast alltaf gantast
við Jóa og haft gaman af því sem í
kringum þig var og aldrei, hvorki
fyrr né síðar, hef ég kynnst nokkr-
um sem átti jafn auðvelt og þú með
að sjá skoplegu hliðina á sjálfum
sér og hlæja að því sem fyrir þig
kom. Því jafn glaðlynd og létt sem
þú varst þá hlóst þú aldrei á ann-
arra kossnað. Það hefði aldrei
hvarflað að þér, en að sjálfri þér,
það var annað mál.
Elsku amma mín ég er svo þakk-
lát fyrir að hafa fengið að kynnast
þér og hafa þig nálægt mér í svona
jiiimiiiiTrmT;
H
H
H
H
H
H
H
H
H
H
H
H
H
H
Erfisdrykkjur
P E R L A N
Sími 562 0200
XXXXXTIX X J TTTITÍl
langan tíma. Ég veit að síðustu árin
voru þér erfið og það tók mikið á
þig að finna að þú varst að tapa
minninu og missa tökin á umhverf-
inu. Þess vegna veit ég að þú ert
fegin að vera nú loks komin aftur
heim í Skerjafjörðinn með afa og
okkur öllum.
Kristur minn ég kalla á þig,
komdu að rúmi mínu.
Gerðu svo vel og geymdu mig,
Guð, í skjóli þínu.
Hvfldu í friði amma mín, við hitt-
umst aftur síðar.
Guðlaug.
í dag verður jarðsett amma mín,
María Astmarsdóttir, og mig langar
til að minnast hennar með nokkrum
orðum.
Amma var fædd árið 1904 og var
því af kynslóð, sem upplifði miklar
breytingar, allt frá torfbæjum til
tölvualdar.
Amma var stórmerkileg kona og
átti ekki marga sína líka. Ég fékk
oft að vera hjá henni og afa, í
Skerjafirðinum, þegar ég var lítil
og eru það ógleymanlegir tímar.
Hún var yndisleg amma, af þeirri
gerðinni, sem alltaf hafði tíma fyrir
barnabörnin, að spila við okkur,
syngja og segja sögur. Þær voru
margar, stundirnar, sem við amma
sátum saman og hún sagði mér sög-
ur frá ísafirði í gamla daga, og frá
því, þegar hún var í Noregi í tvö og
hálft ár, að ógleymdri ástarsögunni
hennar og afa. Hvernig hún varð
skotin í honum, þegar hún var 11
ára og beið eftir honum, þangað til
hún var 37 ára, að þau giftust. Það
var mikið gæfuspor, því betra og
fallegra hjónaband er vandfundið.
Amma var ein besta vinkona mín,
og þegar ég bjó hjá henni í nokkra
vetur, komu vinkonur mína oft í
heimsókn og við sátum allar saman
í eldhúsinu hjá ömmu, með te og
hrökkbrauð og spjölluðum. Amma
var trúuð kona og glaðlynd. Það er
yndislegt, að fá hláturskast með
ömmu sinni. Mest gat hún hlegið að
sjálfri sér, og sá spaugilegu hliðina
á ýmsum málum.
Mér fannst stundum svolítið
stress í henni, ef maður missti af
strætó, eða önnur veraldleg smá-
atvik komu uppá, en þegar eitthvað
alvarlegt kom fyrir, þá stóð amma
keik og sterk og huggaði hina.
Þannig var hún, þegar afi dó 1973,
og þegar hún missti Sigrúnu, dóttur
sína, hálfu öðru ári seinna. Þetta
voru mikil áföll, en hún hafði trú og
styrk sem hjálpuðu henni gegnum
þessa tíma.
Við fráfall afa varð móðir mín,
Rósa, sú stoð og stytta, sem amma
treysti á æ síðan. Sex af okkur syst-
kinunum höfum búið hjá henni í
lengri eða skemmri tíma, og það
var góður skóli.
Síðustu árin bjó hún hjá mömmu
og pabba í Stóru-Mörk. Elsku
mamma, takk fyrir allt þitt. Mig
langar líka að þakka systkinum
mínum fyrir allt, sem þau gerðu
fyrir ömmu, sérstaklega Ellu Rós,
sem er búin að vera henni ómetan-
leg hjálp, síðan hún var unglingur.
LEGSTEINAR
Qraníf
HELLUHRAUN 14
220 HAFNARFJÖRÐUR
SÍMI: 565 2707 FAX: 565 2629
HEIMASÍÐA: www.granit.is
Nú hefur amma fengið langþráða
hvíld, og ég þakka fyrir allt.
María Úlfarsddttir.
Elsku amma. Mig langar í örfá-
um orðum að minnast þín, og þakka
þér fyrir allt það góða, sem þú
gerðir fyrir okkur öll systkinin og
alla okkar vini.
Ég var ein af þeim, sem var svo
heppin að fá að búa hjá þér, bæði
þegar ég var í skóla og svo seinna
þegar ég fór að vinna, en þá var þitt
heimili alltaf opið fyrir okkur öll.
Það var svo gott að búa hjá þér, þú
varst alltaf svo góð og þakklát, al-
veg sama hvað það var lítið sem
maður gerði fyrir þig. Bara það að
greiða hárið þitt eða fara út í búð
fyrir þig. Alltaf voru tárvot augun
af þakklæti, sem tóku á móti manni.
Þú þakkaðir Guði alltaf fyrir hvað
við værum góð við þig og hvað þú
værir heppin. „Guð launar ykkur,“
sagðir þú. Hann gerði það með því
að leyfa okkur að vera svona mikið
með þér, því við lærðum svo margt
af þér.
Svo þegar minnið þitt var ekki
eins gott og áður, þá runnu stund-
um saman draumar, sjónvarpið og
ýmislegt annað við raunveruleikann
og út komu hinar skondnustu yfir-
lýsingar eða sögur. En oftast þegar
maður var búinn að leiðrétta það,
þá gastu hlegið svo dátt, að þú
stóðst varla. Svo sagðir þú: „Mikið
var nú gott að hlæja svona.“
Það var alltaf svo gott hvað þú
varst létt, kát, þolinmóð og þakklát
fyrir allt, smátt jafnt og stórt.
Elsku amma, ég á þér svo margt
að þakka, en bestu minningarnar
um þig geymi ég alltaf í hjarta
mínu. Ég segi hér eins og bróðir
minn sagði, að ef að það er einhver
betri staður til, þá ert þú þar núna,
hjá afa og Sigrúnu dóttur þinni. Þú
trúðir því og við trúum því líka.
Þín
Elín Rds.
í hljóði og tómi ég hugsa til þín,
sem horfin ert vorri jarðarsýn.
Þú varst að hverfa frá atóm öld
inn um himinsins gullnu tjöld.
Frá dauða til lífsins er döpur stund,
uns Drottins kemur á náðarfund.
í heiminum aldur var orðinn hár
en eilífðin þerrar sorgartár.
Eg man þín augu svo, ung og skær
og yfir þér hárra fjalla blær.
Og hárið þitt dökka, þykkt og þétt,
og þú varst í spori, grönn og létt.
Þú elskaðir heitt, í öllu traust,
hvort æska var, eða komið haust.
Þinn unnusti fór öll heimsins höf
en heim til þín kom, sem lífsins gjöf.
Hann fór ungur og höfin kaus
hermannlegur og óttalaus.
Entust í lífi ykkar bönd.
Ekkert sleit nema dauðans hönd.
Þú lífsins ártíðir allar fékkst
og allra síðast um vetur gekkst.
Þótt rósin fólni er fellur snær
úr frostinu rís hún aftur skær.
Öll böm þín á höndum barstu þér,
þau báru þig aftur á höndum sér
þig öll þín barnaböm elska heitt
þeim öllum hefur þú kærleik veitt.
Þú áttir þér gleði - en einnig sorg.
Þú einmana stundum gekkst um torg,
er dáin var önnur dóttir þín.
Hjá Drottni muntu nú sjá hún skín.
Hve áttu þar vísan fegins fund
þótt fyndir þú áður blæða und.
En Frelsarinn lofar að lækna sár,
hann lætur nú skína gleðitár.
Hann brýtur ei loforð, hann brýtur ei
reyr
og blaktandi skarið ekki deyr.
Frá löngum degi er dauðinn kær,
hjá Drottni því lífið aftur grær.
Að dánir hittast er Drottins ráð
og dásamleg elska hans og náð.
Með lífi sínu hann leysti önd
og lífið er allt í Drottins hönd.
Rósa B. Blöndals.