Morgunblaðið - 30.05.2000, Side 1
STOFNAÐ 1913
123. TBL. 88. ÁRG.
ÞRIÐJUDAGUR 30. MAÍ 2000 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
Reuters
Skólabörn í Freetown í Vestur-Afríkuríkinu Sierra Leone taka á móti
breskum hermönnum er færðu þeim mat og önnur hjálpargögn í gær.
Sankoh verður
komið úr landi
Freetown, Abuja. Reuters.
LEIÐTOGAR Vestur-Afríkuríkja
náðu samkomulagi í gær um að
senda fleiri hermenn til Sierra Le-
one og að koma skæruliðaleiðtog-
anum Foday Sankoh út úr landinu til
að tryggja öryggi hans. Sveitir
Sankohs, sem hefur verið í haldi
stjómarinnar í Freetown, leystu síð-
ustu friðargæsluliða Sameinuðu
þjóðanna úr haldi á sunnudag og
lýstu samtökin því yfir í gær að þau
hygðust koma á fullri friðargæslu á
ný og afvopna stríðandi íylkingar.
Ekki er enn ljóst hvort Sankoh
hefur verið færður úr landinu en tal-
ið er að ákvörðunin um að koma hon-
um undan sé málamiðlun milli þeirra
ríkja sem vilja að hann verði dreginn
fyrir stríðsglæpadómstól og hinna er
óttast að slík réttarhöld kunni að
grafa undan friðarsamkomulagi því
sem gert var á síðasta ári og miðaði
að því að binda enda á níu ára borg-
arastríð í Sierra Leone.
Hersveitir hliðhollar stjómvöld-
um í Freetown gerðu í gær áhlaup á
bæinn Lunsai' fyrir norðan höfuð-
borgina og náðu honum á sitt vald og
hröktu skæruliða á flótta. Er stjórn-
arherinn nú sagður halda til norður-
hluta landsins þar sem skæruliðar
ráða ríkjum og afar verðmætar dem-
antanámur era.
I yfirlýsingu leiðtoga sextán ríkja í
Efnahagsbandalagi Vestur-Afríku-
ríkja (ECOWAS) var farið fram á að
í stað friðargæslu myndu hersveitir
SÞ „framfylgja friði“ í Sierra Leone
og þar með hafa aukið umboð til að-
gerða. Þá var farið fram á að yfir-
stjórn herliðsins yrði í höndum her-
foringja eins af Afríkuríkjunum og
svipar þessum tillögum til krafna
Nígeríustjórnar um meiri völd.
Spenna á landamærum fsraels og Líbanons eftir óeirðir
Líbanonher hindrar
ferðir mótmælenda
Beirút, Rmaish, Metulla. Reuters, AFP.
HERSVEITIR Líbanons og Hizbollah-skæruliðar hertu í gær öryggis-
ráðstafanir í suðurhluta Líbanons til að koma í veg fyrir frekari óeirðir
við landamæri Israels. Þá hvatti Terje Röd-Larsen, sérlegur sendifull-
trúi Sameinuðu þjóðanna á svæðinu, bæði Líbana og ísraelsmenn til að
sýna stillingu og gera allt sem í þeirra valdi stæði til að koma í veg fyrir
mótmæli á landamærunum sem leitt gætu til „alþjóðlegrar deilu“. Terje
Röd-Larsen hefur undanfarna daga farið á milli Líbana og ísraela og
reynt að fá hvora tveggju til að sýna ýtrustu varkárni uns komið hafi ver-
ið á fullri stjórn Líbanonsstjórnar á fyrrverandi öryggissvæði ísraels.
Reuters
Stuðningsmenn Hizbollah gerðu í gærmorgun harða hríð að ísraelskum
hermönnum og þeyttu grjóti yfir landamæri Líbanons og ísraels.
Hvatti hann Ehud Barak, forsætis-
ráðherra Israels, til að gera sitt til að
koma í veg fyrir að upp úr syði og
mæltist til þess við ráðamenn í Beir-
út að hömlur yrðu settar á ferðh-
Líbana til svæðisins svo koma mætti
í veg fyrir uppþot. „Mál- og funda-
frelsi era lágmarksréttindi. Jafn-
framt er afar mikilvægt að allir hlut-
aðeigandi aðilar einbeiti sér að því að
koma í veg fyrir atvik sem valdið
geta alþjóðlegum deilum þegar þess-
um réttindum er beitt.“
Vegatálmum komið fyrir
Líbanskir hermenn komu í gær
fyrir tálmum á helstu vegum til suð-
urhluta landsins og beindu öllum
nema fréttamönnum og íbúum svæð-
isins frá fyrrverandi öryggissvæði
Israela. Um helgina höfðu tugþús-
undir Líbana streymt til svæðisins,
flestir til að berja það augum í fyrsta
sinn, en aðrir héldu til landamær-
anna og mótmæltu veru ísraelskra
hermanna þar og skapaði það mikla
spennu. Gengu mótmælin svo langt á
sunnudag að nokkrir þeirra héldu
inn fyrir landamæri ísraels og svör-
uðu hermenn þá fyrir sig með skot-
hríð og særðu fjóra. Flest hélt fólkið
kyrra fyrir yfir nóttina og hóf að
kasta grjóti og gera hróp að ísraelsk-
um hermönnum í gærmorgun en var
látið óáreitt.
ísraelsstjórn lét dreifa vopnum
meðal þeirra íbúa landsins er búa
næst landamæranum og sprengdi í
loft upp herstöðvar sínar sem liggja
við landamærin. Var hermönnum
skipað að skjóta ekki yfir landamær-
in jafnvel þótt mótmælendur handan
þeirra létu grjóti rigna yfir þá.
Nýr forseti ísraels kjörinn í sumar
Shimon Peres hlýt-
ur stuðning Baraks
Ráðist á flu g-
völlinn í Asmara
Asmara, Addis Ababa, Algeirsborg. AFP, Reuters.
S
Urvalsher-
menn án
landakorts
ÍTÖLSK úrvalsherdeild, á leið til
heræfinga NATO í Noregi, lenti í
ógöngum á laugardag er sveitinni
láðist að athuga landakort fyrir
ferðina og lenti í Svíþjóð, þarlend-
um yfirvöldum að óvörum.
Ráðgert var að halda með her-
menn úrvalsdeildar ítölsku alpa-
hersveitanna til Kristiansand í Nor-
egi en er þeir stigu út úr flugvél
sinni biðu þeirra forviða tollverðir
Kristianstad-flugvallar f Svíþjóð, að
sögn The Times. „Svo virðist sem
engum hafi dottið í hug að Svíþjóð
er ekki aðili að NATO. Kristian-
sand hljómar ótrúlega svipað og
Kristianstad en það er samt engin
afsökun fyrir því að ráðast inn í Sví-
þjóð,“ sagði ítalska blaðið Corriera
della Sera. Talsmenn hersins sögðu
að við flugmenn vélarinnar sem
leigð var væri að sakast en talsmað-
ur flugfélagsins sagði hins vegar að
það ætti ekki að koma á óvart að
flugmaðurinn hefði villst, því auk
Kristiansand og Kristianstad væri
Kristiansund nærri Þrándhcimi.
EHUD Barak,
forsætisráðherra
ísraels, sagðist í
gær veita forseta-
framboði Shim-
ons Peres, hand-
hafa friðarverð-
launa Nóbels og
fyrirrennara síns
í starfi, pólitískan
stuðning sinn eft- Weizman
ir að Ezer Weizman, forseti Israels,
lýsti því yfir á sunnudag að hann
myndi segja af sér í júlí nk., þremur
áram áður en kjörtímabil hans renn-
ur út.
Weizman hefur verið undir mikl-
um þrýstingi um að segja af sér emb-
ætti eftir að hafa verið sakaður um
að hafa þegið fé af franska milljóna-
mæringnum Edouard Saroussi og
síðar svikið undan skatti. Á miðviku-
dag slapp hann naumlega við mál-
sókn skattyfirvalda eftir atkvæða-
greiðslu á ísraelska þinginu og kom
því ákvörðunin ekki á óvart.
„Ég er þess fullviss að vinur okkar
Shimon Peres er rétti maðurinn til
að verða næsti forseti,“ sagði Barak í
gær. „Ég veit að hann verður fram-
úrskarandi forseti og ég mun starfa
að því að fá hann kjörinn.“
Peres lýsti yfir áhuga sínum á for-
setaframboði í gær og sagði að sem
forseti myndi hann „sameina" ísra-
elskt samfélag, bæði gyðinga og
minnihluta ísraelskra araba. Eini
mótframbjóðandi Peres sem fram
hefur komið til þessa er Moshe Kats-
av, framjóðandi Likud-flokksins.
Peres varð forsætisráðherra árið
1995 eftir morðið á Yitzhak Rabin en
tapaði fyrir Benjamin Netanyahu,
formanni Likud-flokksins, í kosning-
um árið eftir. I kjölfar ósigurs Peres
tók Barak við formennsku Verka-
mannaflokksins.
ísraelska þingið mun kjósa um
næsta forseta Israels í leynilegum
kosningum hinn 31. júlí nk. og verð-
ur sigurvegarinn settur formlega í
embættið daginn eftir.
FLUGSVEITIR Eþíópíuhers gerðu
í gær árásir á alþjóðlega flugvöllinn
við Asmara, höfuðborg Erítreu, í
fyrsta sinn í þau tvö ár, sem linnulitlir
bardagar nágrannaríkjanna hafa
staðið. Var árásin gerð sama dag og
óformlegar friðarviðræður Einingar-
samtaka Afríkuríkja, milli ríkis-
stjórna Eþíópíu og Erítreu, áttu að
hefjast í Algeirsborg.
Éþíópíuher réðst til atlögu þegar
verið var að flytja hjálpargögn úr
flugvél á vegum alþjóðaráðs Rauða
krossins, sem ætluð era tugþúsund-
um manna er hafa flúið heimkynni
sín vegna átakanna. Árásunum var
beint að mannvirkjum flughers
Erítreu og náðu eþíópsku vélamar að
eyðileggja flugskýli, vegi og vatnsæð
sem liggur til Asmara, en ekki var
ráðist á höfuðborgina sjálfa.
„Við verðum að gera flugsveitir
Erítreu óvígar og árásin var gerð
með það að markmiði,“ sagði Tsadk-
an Gebre-Tensae, höfuðsmaður í
Eþíópíuher, í Addis Ababa i gær.
Sagði hann að hersveitir sínar myndu
halda baráttunni gegn Erítreuher
áfram og ná undir sig landsvæðum á
valdi Erítreustjómar. „Bardagar
munu halda áfram og mitt verk er að
ná aftur landsvæði okkar en það era
enn svæði undir þeirra stjórn.“
Seyoum Mesfin, utanríkisráðherra
Eþíópíu, kom í gærkvöld til Algeirs-
borgar til viðræðna við starfsbróður
sinn frá Erítreu og staðfesti við kom-
una að landar hans myndu halda
átökunum til streitu þar til Eríutreu-
menn hörfuðu frá svæði því sem bæði
ríkin gera tilkall til. Hvatti hann jafn-
framt stjómvöld í Asmara til að frið-
mælast og sagði: „Ég vil fullvissa al-
þjóðasamfélagið, sérstaklega Afríku,
íbúa Erítreu og Eþíópíu, um að við
eram i raun að leitast við að finna
friðsamlega leið út úr átökunum.“
MORGUNBLAÐIÐ 30. MAÍ 2000