Morgunblaðið - 30.05.2000, Qupperneq 4
4 ÞRIÐJUDAGUR 30. MAÍ 2000
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Samningar takast í loðnubræðslum á Norður- og Austurlandi og verkfalli frestað
Samningurinn gild-
ir út mars árið 2004
KJARASAMNINGAR milU starfs-
fólks í nokkrum fiskimjölsverksmiðj-
um á Norður- og Austurlandi og við-
semjenda þeirra tókust seint í fyrri-
nótt eftir tæplega nítján klukku-
stunda sáttafund og hefur verkfalli
félaganna sem staðið hafði í tæpa tíu
sólarhringa verið frestað til 10. júní
og kemur þá til framkvæmda ef
samningarnir verða ekki samþykktir
í atkvæðagreiðslum sem ljúka skal
fyrir 5. júní næstkomandi.
Samningarnir gilda í tæp fjögur ár
eða til marsloka árið 2004 og eru
annars vegar við verkalýðsfélögin á
Siglufirði, Raufarhöfn, Seyðisfirði og
Reyðarfirði vegna fiskimjölsverk-
smiðja SR-mjöls hf. á þessum stöð-
um og hins vegar milli Alþýðusam-
bands Austurlands fyrir hönd
nokkurra verkalýðsfélaga og við-
semjenda vegna síldarmjölsverk-
smiðjanna á Neskaupsstað, Eski-
firði, Vopnafirði, Hornafirði og
Djúpavogi.
Signý Jóhannesdóttir, formaður
verkalýðsfélagsins Vöku á Siglufirði,
sagði að miðað við stöðuna hefði ekki
verið komist lengra að þessu sinni að
hennar mati.
„Við treystum á það að síldin
gengi í lið með okkur og hún hefur
svona frekar haslað sér völl í Garða-
strætinu í þetta skiptið,“ sagði
Signý.
Hún sagði að samningurinn gilti í
rétt tæp fjögur ár, sem væri ívið
lengri samningstími en hjá Verka-
mannasambandinu. Viðsemjendurn-
ir væru að kaupa sér frið í fjórar
loðnuvertíðir.
Varðandi efnisatriði samningsins
sagði Signý að þau næðu fram nokk-
uð viðunandi ákvæðum hvað varðaði
bónus. Krafa þeirra í þeim efnum
næði fram að ganga nánast að fullu.
Örlítið vantaði á í þeirri verksmiðju
sem bræddi mest, en niðurstaðan
væri til þess að gera betri íyrir þær
verksmiðjur sem minnst bræddu, en
miðað hefði verið að í upphaflegri
kröfugerð.
Þá sagði Signý að náðst hefði inn í
samninga sjö ára starfsaldursþrep,
sem þau hefðu gjaman viljað hafa
hærra í upphafi, en krafan næðist
fram í lok samningstímans. Einnig
hefði til dæmis náðst fram krafa
vegna takmörkunar á neysluhléum.
Auk almennra hækkana eins og í
öðrum samningum væri síðan gert
ráð fyrir 0,5% prósent hækkun 1.
janúar 2004, en almennt hefði ekki
verið samið um launahækkanir á því
ári.
Signý sagði að samningurinn yrði
kynntur nú í vikunni og líklega
greidd um hann atkvæði á föstudag-
inn kemur, en talið yrði sameiginlega
á þriðjudaginn kemur hjá þeim sem
ættu aðild að samningnum vegna
verksmiðja SR-mjöls.
Tekur til níu af liðlega
tuttugu bræðslum
Arnar Sigurmundsson, formaður
Samtaka fiskvinnslustöðva, sagði að
samningamir nú tækju til níu af lið-
lega tuttugu bræðslum, en búið væri
að semja í fjórum. Eftir væru þá sjö
til átta verksmiðjur og farið yrði í að
semja við þær í framhaldinu.
Arnar sagðist vera þokkalega sátt-
ur við niðurstöðuna. Samningarnir
hefðu svipaðan kostnað í för með sér
og samningar Verkamannasam-
bandsins, sem gerðir voru um miðjan I
apríl. Um væri að ræða sömu launa-
breytingar en til viðbótar væri samið I
um eitt nýtt starfsaldursþrep og síð-
an hefði verið samið um breytingar á
vaktabónus. Kostnaðaráhi-ifin á
samningstímanum væru um 22%, en
samningstíminn væri út mars 2004
eða langleiðina til loka loðnuvertíðar
þá. Það hefði orðið til þess að leysa
deiluna að samningstíminn hefði ver-
ið lengdur aðeins og lítil áfanga-
hækkun komið í ársbyrjun þá.
Arnar sagði að þetta hefði verið
erfið kjaradeila. Verkfallið hefði
bæði skaðað fólk og fyrirtæki. Trufl- t
anir hefðu orðið á veiðum, ekki náðst
sami árangur og menn þurft að hafa
meira fyrir hlutunum en ella.
Verðlagsmál
rædd á ríkis-
stjórnar-
fundi í dag
VALGERÐUR Sverrisdóttir
viðskiptaráðherra mun leggja
minnisblað fyrir ríkisstjórnar-
fund í dag um viðræður sem
hún átti með fulltrúum Sam-
keppnisstofnunar síðastliðinn
fostudag um verðlagsmál á
matvörumarkaði. Ekki er ólík-
legt að í kjölfarið verði ákveðið
að efna til könnunar á myndun
matvöruverðs. Tilefni fundar-
ins sem viðskiptaráðherra átti
með Guðmundi Sigurðssyni,
forstöðumanni samkeppnis-
sviðs Samkeppnisstofnunar, á
fóstudag var umræða, sem
fram hefur komið, um að
heildsalar hafi tekið til sín
gengishagnað vegna lækkunar
erlendrar myntar og ekki lækk-
að verð til innlendra smásala.
Lét Davíð Oddsson forsætis-
ráðherra m.a. þau ummæli falla
að rannsaka yrði hvort inn-
flutningsfyrirtæki héldu verði
óeðlilega lágu, miðað við gengi
erlendra gjaldmiðla.
Á fundinum á föstudag fór
ráðherra yfir þessi mál með
fulltrúum Samkeppnisstofnun-
ar og m.a. var rætt um hvernig
framkvæma mætti könnun eins
og þá sem forsætisráðherra
hefur nefnt, hvaða kostnaður
yrði henni samfara o.s.frv.
Mun Valgerður í dag kynna
ríkisstjórn niðurstöður fundar-
ins og í framhaldinu verður
væntanlega tekin ákvörðun um
það hvort rétt sé að ráðast í áð-
umefnda könnun.
Morgunblaðið/Ásdís
Lokun útibúa fyrir afla frá landamærastöðvum
Vinnsla málsins er
komin vel á veg
VERIÐ er að vinna að því að hægt
verði að opna aftur svokölluð útibú
frá landamærastöðvum, eða eftirlits-
stöðvar, sem settar voru upp til að
skoða innfluttan fisk frá ríkjum utan
Evrópska efnahagssvæðisins og var
Þjónusta númer eitt!
rafmagn í rúðum nýskráður
07.09.1999 ekinn 3.000 km.
Ásett verð 1,890.000. Ath!
skipti á ódýrari.
Nánarí upplýsingar hjá Bíla-
þingi Heklu, sími 569 5500.
laugardagar kl. I2-I6
laugaiuagai rvi. \í- iu
BÍLAÞINGfEKLU
Ni/mc-k c-ÍH í nofaJuw bí/vryi/
Laugavegi 174,105 Reykjavfk, sími 569-5500
www.bilathing.is • www.bilathing.is • www.bilathing.is
lokað í lok mars. Að sögn Arndísar
Steinþórsdóttur, skrifstofustjóra í
sjávarútvegsráðuneytinu, er vinnsla
þessa máls langt komin. Hún kvaðst
vonast til að þær yrðu opnaðar aftur
sem fyrst, en ekki væri hægt að
tímasetja það.
Sex landamasrastöðvar hafa verið
settar upp á íslandi; í Reykjavík,
Hafnarfirði, á Keflavíkurflugvelli,
ísafirði, Akureyri og Eskifirði. Úti-
bú frá þeim voru sett upp í Bolungar-
vík, á Skagaströnd, Siglufirði, Húsa-
vík, Þórshöfn, Raufarhöfn og
Vopnafirði.
Arndís sagði að Evrópusambandið
hefði verið að herða mjög eftirlit á
landamærum sínum.
Vilja tryggja að matvörur
séu heilnæmar
„Það hefur orðið í kjölfar þess að
upp komu sjúkdómafár eins og kúa-
riðan og díoxínmálið á síðasta ári,“
sagði hún. „Þeir vilja reyna að
tryggja að þær matvörur, sem eru
boðnar neytendum til sölu, séu heil-
næmar. Þetta er grunnhugsunin í
öllum þessum málum; heilnæmar
vörur fyrir neytendur,“ sagði hún og
bætti við að einn angi af því væri efl-
ing landamæraeftirlitsins.
„Við erum nýbúin að taka þessar
reglur í gildi. Þær komu til fram-
kvæmda hjá okkur árið 1999 og hafa
þá þýðingu, að vörur, sem koma frá
þriðju ríkjum, eru í raun komnar í
frjálst flæði þegar þær eru komnar
inn í landið. Þær þurfa því ekki að
sæta sömu skoðun nema á landa-
mærastöðvum þegar þær eru fluttar
áfram inn til Evrópusambandsins."
Hún sagði að þetta þýddi einnig að
íslenskur útflutningur þyrfti ekki
heldur að fara í skoðun af þessu tagi
á leiðinni inn í Evrópusambandið.
Eftirlitsmenn gerðu athuga-
semdir hér og í Noregi
Arndís sagði að hingað hefðu kom-
ið eftirlitsmenn og gerðar hefðu ver-
ið athugasemdir bæði hér og í Nor-
egi. Þetta væri á nokkrum sviðum og
væri meðal annars spurning um bún-
að og túlkun reglna.
„Það stóðu allir í þeirri trú að
þetta væri í lagi,“ sagði hún. „En það
komu fram nýrri og strangari túlk-
anir á reglum og við erum að bregð-
ast við.“ Arndís vildi ekki gera mikið
úr lokun útibúanna og sagði að aðal-
atriðið væri það að farið hefði verið í
landamærasamstarfið til þess að ís-
lenskur útflutningur ætti greiða leið
inn á innri markað Evrópusam-
bandsins.
„Þá þarf íslenskur útflutningur
ekki að fara í gegnum landamæra-
stöðvar, með þeim kostnaði og töf-
um, sem því fylgja," sagði hún. „Það
kallar aftur á að við rekum hér
landamærastöðvar og að það fari
enginn innflutningur til Islands
Þökin
máluð
ÞÆR miklu endurbætur sem gerð-
ar hafa verið á Dómkirkjunni virð-
ast smita út frá sér. I gær var mál-
ari uppi á þaki á nálægu húsi að búa
þakið undir málningu. Átti hann
auðvelt með að fylgjast með því
hvað tímanum leið því klukkan á
kirkjuturninum blasti við.
Forsetinn gest-
ur hjá kana-
dískum vís-
indamönnum
FORSETI íslands, Ólafur Ragnar
Grímsson, var heiðursgestur á árs-
þingi kanadískra félagsvísinda-
manna og flutti þar aðalfyrirlestur-
inn. Þingið var haldið í Alberta
háskólanum í Edmonton í Alberta.
Meginviðfangsefni þingsins var að
fjalla um ný viðhorf og breyttar
áherslur á norðurslóðum og fjallaði
forseti íslands í fyrirlestri sínum um
þróun málefna á norðurslóðum og
hvernig ný heimsmynd hefur skapað
ríkjum í okkar heimshluta nýja stöðu
í alþjóðlegum samskiptum, að því er
fram kemur í frétt frá skrifstofii for-
seta íslands.
Rakti forsetinn þær breytingar
sem orðið hafa á norðursvæðunum
allt frá Eystrasaltsríkjunum og
Rússlandi í austri til Bandaríkjanna
og Kanada í vestri og hvernig nýj-
ungar í stjórnunarháttum og vald-
dreifingu í umhverfismálum og efna-
hagslegri samvinnu hafa skapað þörf
á nýju samstarfi fræðimanna og for-
ystusveitar í þjóðmálum.
---------------
Hringregur við
Jökulsá á Fjöllum
Lægsta
tilboð 38%
undir kostn-
aðaráætlun
ARNARFELL hf. á Akureyri átti
langlægsta tilboð í endurbyggingu
hringvegar á 17,1 kílómetra kafla frá
Hólmatungnávegi að Jökulsá á Fjöll-
um.
Kostnaðaráætlun Vegagerðarinn-
ar gerði-ráð fyrir að verkið myndi
kosta tæpar 204 milljónir kr. Arnar-
fell býðst til að vinna það fyrir tæpar
127 milljónir kr. Er tilboð fyrirtæk-
isins því 77 milljónum kr. undir áætl-
un og munar þar tæpum 38%. Sjö
önnur fyrirtæki buðu í verkið.
Verkinu á að vera lokið 15. ágúst
árið 2001.
f