Morgunblaðið - 30.05.2000, Síða 13

Morgunblaðið - 30.05.2000, Síða 13
MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Morgunblaðið/Jón Svavarsson 169 brautskráðir frá V er slunar skóla Islands 169 STÚDENTAR voru brautskráð- ir frá Verslunarskóla íslands á laug- ardag. Við athöfnina, sem fram fór í Þjóðleikhúsinu, var fjölda nemenda veitt verðlaun fyrir góðan námsár- angur í einstaka námsgreinum. Dúx skólans er Valgerður Rós Sig- urðardóttir sem hlaut aðaleinkunn- ina 9,5 og semidúx er Sesselja Sig- urðardóttir sem hlaut aðaleinkunn- ina9,4. í ræðu sinni sagði Þorvarður El- íasson skólastjóri frá því að fjórir úr hópi elstu kennara skólans myndu láta af kennslu. Hann sagðist við þetta tækifæri vilja færa þeim þakkir fyrir þeirra miklu og giftudrjúgu störf, enda þótt starfstími þeirra væri ekki með öllu útrunninn. Kennararn- ir sem láta af störfum eru Lýður Björnsson sagnfræðingur, sem kennt hefur sögu og stærðfræði frá 1964, Úlfar Kristmundsson guðfræðingur, sem kennt hefur stærðfræði frá 1963, Þórunn Felixdóttir sem hefur kennt vélritun frá 1962 og Valdimar Her- geirsson sem hefur verið yfirkennari við skólann í 40 ár. Þorvarður greindi frá því að Ingi Ólafsson eðlisfræði- kennari hefði verið ráðinn aðstoðar- skólastjóri frá 1. ágúst. Samkomulag um skilgreiningu náms í ræðu sinni minntist Þorvarður meðal annars á þær opinberu um- ræður sem urðu í vetrn- um námskrá og hlutverk VÍ. Nemendur hefðu ekki verið sáttir við þá stefnu sem umræðumar höfðu tekið og létu mál- ið til sín taka þannig að samkomulag hefði verið gert milli skólans og menntamálaráðuneytisins um skil- greiningu náms. Þorvarður sagði að svo vel hefði verið komið til móts við óskir skólans og nemenda að skóla- nefnd hefði séð ástæðu til að færa Bimi Bjamasyni sérstakar þakkir fyrir aðkomu hans að málinu. Einnig hefði þótt ástæða til að færa nemend- um og þá sérstaklega stjóm Nem- endafélagsins þakkir fyrir þá miklu og árangursríku vinnu sem þeir lögðu á sig til að kalla fram heppilega lausn. Þessar þakkir sagðist skóla- stjóri viija ítreka. Aðrir sem ávörpuðu samkomuna vora Ingólfur Snorri Bjamason, frá- farandi forseti Nemendafélags VÍ, fyrir hönd nýstúdenta, Gunnar Helgi Hálfdanarson, formaður skólanefnd- ar, og Guðmundur H. Garðarsson fyrir hönd 50 ára stúdenta. Morgunblaðið/Ásdís 158 braut- skráðir frá MH 158 STÚDENTAR af átta náms- brautum voru brautskráðir frá Menntaskólanum við Hamrahlíð á laugardag. Stúdentar af listdans- braut vora brautskráðir í fyrsta sinn sem og stúdentar af náms- braut til alþjóðlegs stúdentsprófs. Indriði Einarsson, stúdent af eðlisfræðibraut, var dúx skólans og semidúx var Sigurmundur Guð- jónsson, stúdent af eðlisfræði- og náttúrufræðibraut. Óttar Martin Norðfjörð, stúdent af eðlisfræði- og náttúrufræðibraut, lauk flestum námseiningum, 207 alls, og hlaut hann verðlaun úr minningarsjóði um Sverri S. Einarsson rektor fyr- ir að hafa nýtt sér möguleika áfangakerfis skólans á framúrskar- andi hátt, en þetta var í fyrsta sinn sem veitt var úr sjóðnum. í ræðu sinni fjallaði Láras H. Bjarnason meðal annars um nýja námskrá framhaldsskóla og vakti hann athygli á litlu vægi stærð- fræðinnar í kjarna námsbrautanna þriggja sem koma í stað eldri námsbrauta til stúdentsprófs. Hann sagðist óttast langtímaáhrif- in sem gætu orðið af fækkun fólks með háskólapróf í raunvísindum og tæknigreinum, en háu menntunar- stigi í þessum greinum fylgdi yfir- leitt efnahagsleg velgengni. Hann minnti einnig á þann hörgul sem þegar væri á kennuram sem hefðu sérmenntun í stærðfræði og raungreinum. í kveðjuorðum sínum til stúd- enta hvatti rektor til varfærni í samneyti við náttúruna og vitnaði til orða Jónasar Hallgrímssonar um mikilvægi hófsemdarinnar; Það sé þá vor höfuðregla: Aldrei að gjöra eftirsókn nokkurra jarð- neskra muna að lífsins höfuðaugna- miði. Tryggvi Baldursson flutti ávarp fyrir hönd nýstúdenta og fulltrúar 25 ára og 30 ára stúdenta, þau Sig- ríður Guðmundsdóttir og Páll Torfi Önundarson, fluttu einnig ávörp. Þá fluttu nemendur tónlist, fjórir nemendur léku á strengjahljóðfæri og kór skólans söng undir stjórn Þorgerðar Ingólfsdóttur. Stúdentar setja eink- unnaskil á Netið STÚDENTARÁÐ hefur tekið í notkun nýja heimasíðu þar sem finna má einkunnaskil í öllum nám- skeiðum í háskólanum. Ástæða heimasíðunnar, að sögn Eiríks Jóns- sonar formanns Stúdentaráðs, er óánægja stúdenta með það hve margir kennarar Háskóla íslands draga að skila einkunnum. „Þótt skýrlega sé kveðið á um það í reglu- gerð HÍ að það skuli gert innan þriggja vikna frá því að próf fór fram. Margir kennarar virða ekki reglumar og háskólayfirvöld hafa ekki sýnt þeim nógu mikið aðhald," segir hann. A heimasíðunni má finna upplýs- ingar um öll próf á vormisseri 2000, hvenær prófið var lagt fyrir, hversu margir tóku það og hversu lengi kennarinn er að fara yfir prófið. Þau próf sem komin era fram yfir þrjár vikurnar era rauðletrað og einnig er hægt að sjá áætlun á þvi hve marga klukkutíma kennari var að fara yfir hver prófeintak. Þá er birtur topp tíu listi yfir þau próf sem lengst era komin fram yfir frestinn. „Ástandið er í mörgum tilfellum ótrúlega slæmt og við fyrstu sýn virðist sem það sé verst í lækna- og lagadeild. Skil í einni greininni era komin 32 daga fram yfir, en annars era skil á topp tíu listanum komin 10-13 daga fram yfir skilafrest,“ segir Eiríkur. Eiríkur segir ætlunina með heimasíðunni vera að setja aukinn þrýsting á kennara til að skila eink- unnum, enda séu nemendur orðnir langþreyttir á því hvað það vill dragast óhóflega. „Nemendur eiga mikið undir því að einkunnum sé skilað á réttum tíma, m.a. fjárhags- lega afkomu sína, þar sem LIN greiðir ekkert út fyrr en allar eink- unnir era komnar," segir hann. ÞRIÐJUDAGUR 30. MAÍ 2000 1 3 /TIGF^ Útsölustaðir um allt land Landsþekkt varahlutaþjónusta VETRARSOL HAMRABORG 1-3 • Sími 564 1864 • Nolendnvænar • Morgor gerðir Helgarferðir iii London í maí og júní frá kr. 27 >990 Heimsferðir bjóða þér einstakt tilboð til London allar helgar í maí og júní, þar sem þú getur notið hins besta í heimsborginni á hreint frábærum kjörum. Við höfum nú fengið nokkur herbergi á sértilboði á De Vere hótelinu f hjarta London. Öll herbergi H QAA með baði, sjónvarpi, síma, móttöku, bar Verðkr. / <7W 0g veitingastað. Bókaðu strax og tryggðu Flugsæti önnur leiðin til London þér sæti meðan enn cr laust. 27.990 Verð kr.________________ Flug fram og til baka, gisting með morgunverði í 4 nætur í 2ja manna herbergi, skattar. Austurstræti 17, 2. hæð, sími 595 1000. www.heimsferdir.is Léttur og meðfærilegur GSM posi ineð iniibyggðuin prentara Les allar tegundir greiðslukorta 0point [ sem notuð eru á íslandi. Hiíðasmára 10 [ Er með lesara fyrir Sími 544 5060 [ snjallkort og segulrandarkort. Fax 544 5061 ^■■■■■■■■■■■■■■■■i __________f" Hraðvirkur hljóðlátur prentari.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.