Morgunblaðið - 30.05.2000, Síða 15
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 30. MAÍ 2000 15
FRÉTTIR
Skólastarf eflt
með færanlegu
tölvuveri
Morgunblaðið/Ásdía
Þorsteinn Sæberg, skólastjóri Árbæjarskóla, og Frosti Sigurjónsson,
forstjóri Nýherja, fylgjast með Hrund Ólafsdóttur, nemanda í níunda
bekk, vafra um á Netinu á tölvu, sem er hluti af færanlegu tölvuveri, er
nú á að taka í notkun í skólanum. Til hliðar við þau situr Halldóra Ólafs-
dóttir, sem einnig er að klára níunda bekk, og skoðar vefsíðu.
ÁRBÆJARSKÓLI kynnti nýverið
nýjung í skólastarfi, færanlegt tölvu-
ver, sem hægt verður að flytja milli
stofa og ákveðið hefur verið að verði
notað við hefðbundna kennslu. I ver-
inu eru sextán tölvur og munu verða
tveir nemendur um hverja. Þegar
búnaðurinn, sem settur er saman í
samvinnu við Nýheija, var prófaður í
gær voru sex nemendur, sem eru að
ljúka níunda bekk, mættir tii leiks og
virtust allir fagna þessari nýbreytni.
Andrés Þorleifsson nemandi var
ekki lengi að fara inn á Vísindavefinn
þegar hann hafði kveikt á tölvunni
sinni og kvaðst búast við að tölvuver-
ið myndi lífga upp á kennsluna. Hann
sagðist nota tölvur og Netið mikið.
„Mér líst vel á þetta og er ánægður
með hraðann,“ sagði Viðar Jónsson
nemandi og sýndi hvernig vefsíða
með teiknimyndakettinum Gretti
birtist á augabragði á skjánum.
Hrund Olafsdóttir kvaðst vera
ánægð með nýja kerfið þar sem hún
sat og var að grúska á Netinu. Hún
sagðist nota Netið talsvert, til dæmis
til að skrifa ritgerðir.
Nemendur ánægðir
með framtakið
Nemendurnir Bjöm Þór Gunnars-
son, sem var að skoða stöðuna hjá
Fylki í fótboltanum, og Andri Stef-
ánsson tóku vel í þá hugmynd að
nota tölvur til kennslu í öllum fögum
með þessum hætti. Halldóra Ólafs-
dóttir nemandi, sem hafði notað
tækifærið til að fara rakleiðis inn á
heimasíðu Vals, sagði að hún væri
ánægð með þetta framtak.
í tölvuverinu eru sextán 400
megariða tölvur gerðinni IBM
ThinkPad. Gagnaflutningshraðinn
er 11 megabit og tenging er þráðlaus
við senditæki ofan á vagninum, sem
þær eru geymdar í. Þeim er komið
fyrir í vagni, sem hægt er að fara
með milli kennslu. Gert er ráð fyrir
því að á tölvunum verði hægt að
keyra valin kennsluforrit, sem kenn-
ari hefur ákveðið að vinna eigi í, eða
fara á netið.
Á blaðamannafundi í Árbæjar-
skóla sagði Þorsteinn Sæberg skóla-
stjóri að flytjanlega tölvuverið hefði
orðið niðurstaðan þegar farið var að
leita nýrra leiða til að koma tölvum
inn í hefðbundið kennslustarf í stað
þess að einskorða tölvunotkun nem-
enda innan skólans við tölvukennslu.
Árbæjarskóli hefur nú í rúmt ár
verið þróunarskóli menntamálaráðu-
neytis og Reykjavíkur í upplýsinga-
tækni. A þessum tíma hefur verið
unnið markvisst að skipulagi aukinn-
ar kennslu í upplýsingatækni á öllum
aldursstigum skólans og áhersla lögð
á menntun kennara og eflingu tækja-
kosts í skólanum. Meðal annars er
nemendum 10. bekkjar í Árbæjar-
skóla nú boðið upp á að Ijúka 1.
áfanga á framhaldsskólastigi í tölvu-
kennslu. Þorsteinn kvaðst telja að
tvo vagna þyrfti í Árbæjarskóla til að
mæta þörftim nemenda.
Kostnaður um
2,3 milljónir
Frosti Siguijónsson, forstjóri
Nýheija, sagði að þetta væri áhuga-
vert verkefni og kvaðst telja að hér
hefði tekist vel að nýta þá möguleika,
sem lægju í tölvum. Hann benti jafn-
framt á að með þessu fyrirkomulagi
mætti spara fjöldann allan af tölvu-
stofum vegna þess að nota mætti
tölvurnar í öllum kennslustofum og
jafnframt tryggja betri nýtingu
hverrar tölvu.
Frosti sagði að tölvuver af þessu
tagi gæti orðið lyftistöng fyrir alla
skóla og fljótlegt væri að setja þau
upp og samstundis hægt að byija að
nota þau. Eitt tölvuver kostaði senni-
lega um 2,3 milljónir og mætti líta
svo á að það kæmi í stað sérútbúinn-
ar kennslustofu með tölvum.
Þorsteinn sagði að þátttakan í þró-
unarverkefninu væri þegar farin að
skila árangri og nú væri vímuvarnar-
vefur, sem 22 nemendur skólans
hefðu hannað á þemadögum, kominn
í 10 vefja úrslit í keppni, sem haldin
er í Svíþjóð.
Gijótháls 1
Sfmi 5751200
Söludeild 575 1220
Laguna Nevada - meiri búnaður, meira pláss
I Renault Laguna Nevada er meira pláss fyrir ökumann ög farþega en gengur og gerist
í fólksbílum. Nevada er með 520 lítra farangursrými og svo ríkulega búinn að það er hrein
unun að keyra hann. Hann fæst iíka í Evolution útgáfu með sjálfskiptingu, „cruise control“,
álfeigum o.fl. o.fl. Komdu og prófaðu meiri búnað og meira pláss í Renault Laguna Nevada.
RENAULT