Morgunblaðið - 30.05.2000, Síða 28
28 ÞRIÐJUDAGUR 30. MAÍ 2000
MORGUNBLAÐIÐ
VERIÐ
Perúskt sjávarútvegsfyrirtæki vill samstarf við Islendinga
Hefur aðgang að veru-
legum aflaheimildum
PERÚSKA sjávarútvegsfyrirtækið
CopeMar S.A.C. hefur óskað eftir
samstarfi við íslensk sjávarútvegs-
fyrirtæki um veiðar og vinnslu sjáv-
arafla í Perú. Fyrirtækið hefur að-
gang að verulegum aflaheimildum í
Perú.
CopeMar er 5 ára gamalt fyrir-
tæki en hóf að leita alþjóðlegra
samstarfsaðila fyrir einu ári þegar
gerðar voru breytingar á fiskveiði-
stjórnarlögum í Perú sem hafa
skapað samkeppnisumhverfi sem
gerir þarlendum sjávarútvegsfyrir-
tækjum kleift að leita samstarfs við
erlenda aðila. CopeMar hefur yfir
að ráða umtalsverðum veiðiheimild-
um í fiskveiðilandhelgi Perú, s.s.
300 þúsund tonnum af hvítfiski, 240
þúsund tonnum af smokkfiski, auk
túnfiskveiðiheimilda. Fyrirtækið
hefur einnig aðgang að veiðileyfum
á sardínu, ansjósu, tannfiski o.fl.
tegundum. Við Perú eru þekktar
um 700 fiskitegundir en þar af eru
aðeins 70 þeirra nýttar. Auk þess er
þar að finna um 400 skelfiskteg-
undir.
Fulltrúar CopeMar eru nú stadd-
ir hér á landi í því skyni að afla sam-
banda við íslenska aðila um veiðar
og vinnslu á fiski í Perú. Þeir sögðu
ísland hafa orðið fyrir valinu vegna
þess að hér væri rík fiskveiðihefð og
Islendingar væru þekktir fyrir að
stunda hagkvæmar veiðar. Þá væri
hérlendis gott viðskiptaumhverfi,
auk þess sem landið væri heppilega
staðsett í því viðskiptaneti sem
CopeMar hyggst byggja upp í
framtíðinni en fyrirtækið er með
samstarfsaðila bæði í Bandaríkjun-
um og Noregi. Þannig munu tvö
norsk skip hefja veiða við Perú á
vegum CopeMar innan skamms.
Hafstraumar hafa áhrif á vöxt
og viðgang fiskistofna
Á kynningarfundi sem haldin var
í gær kom fram að CopeMar er
einkum að leita eftir samstarfi við
útgerðir sem geta sent skip til veiða
við Perú og getur fyrirtækið haft
milligöngu um að kaup á veiðileyf-
um fyrir skipin, bæði af stjórnvöld-
um sem og innlendum fiskimönn-
um. Að sögn Bernt Askildsen,
talsmanns CopeMar, eru veiðileyfi
við Perú gefin út til veiða á ákveðnu
magni sem meðal annars er miðað
við stærð skipanna og veiðigetu
þeirra. Hann segir CopeMar þegar
hafa aðgang að fjölda veiðileyfa og
skip samstarfsaðila ættu því að geta
hafið veiðar við Perú mjög fljótlega.
„Þar sem leyfin eru aðeins gefin út
til skamms tíma í senn er hentugast
fyrir skipin að hafa leyfi til veiða á
mörgum tegundum. Þannig má líka
koma í veg fyrir brottkast á afla.
Hámarksafli með hverju leyfi fer
eftir leyfilegum heildarafla á ein-
stakri tegund en hann er breytileg-
ur frá ári til árs. Það fer meðal ann-
Fleiri
í sildina
í GÆR voru 22 íslensk síldarskip á
veiðum i SQdarsmugunni við lög-
sögu Jan Mayen. SQdin var frekar
stygg en að sögn Alberts Sveins-
sonar, stýrimanns á Víkingi AK,
var veiðin að glæðast.
Víkingur lagði af stað heimleiðis
með um 1.200 tonn í gærmorgun og
er væntanlegur til Akraness um
eða upp úr miðnætti á morgun,
miðvikudag. Albert segir að veiðin
hafi einkum verið um eina gráðu
austan við 70. breiddargráðuna.
„Þetta er stór og fín sQd en full af
átu,“ segir hann.
GRÆNLAND
4VV
<gý) 1 /
Jd-
Veiðisvæði
síldarskipa
'gær
y. ■
V / ‘\NORfitíSHAf
<ÍSLAND: ' U'
FÆREYJAR ; *
' // o d
i\ *
10°V/
________________°j________
OC
ars eftir áhrifum hafstraumanna E1
Nino og La Nina, sem mætast fyrir
ströndum Perú og hafa veruleg
áhrif á vöxt og viðgang fiskistofna
við Perú. Stjórnvöld gefa aðeins út
veiðileyfi til skamms tíma í senn,
meðal annsars vegna sveiflna í veiði
sem verða vegna þessara haf-
strauma," segir Askildsen.
Hann segir að skrá þurfi öll skip
sem veiði innan landhelgi Perú und-
ir perúskan fána og þau verði auk
þess að sigla undir merkjum Cope-
Mar. Landa verði öllum afla í Perú
og stjórnvöld hafi eftirlit með
magni og gæðum aflans. Þá mun
CopeMar einnig sjá um alla þjón-
Morgunblaðið/Þorkell
Maybelle Helmersen, yfirmaður alþjóðadeildar sjávarútvegsíyrirtækis-
ins CopeMar S.A.C. í Perú, á kynningarfundi um fyrirtækið í gær.
ustu við skipin í landi. Fyrirtækið
hyggst einnig aðstoða samstarfsað-
ila sína við uppsetningu fiskvinnslu
í Perú sé áhugi fyrir því.
Talsverð ólga ríkir nú í Perú
vegna forsetakosninga í landinu.
Maybelle Helmersen, yfirmaður al-
þjóðadeildar CopeMar, sagði á
fundinum að niðurstaða kosning-
anna myndi að öllum líkindum eng-
in áhrif hafa á fiskveiðistjórnun í
landinu þar sem báðir frambjóð-
endurnir hefðu áþekkar áherslur í
þeim efnum.
Tveir nýir ísfísktogarar smíðaðir í Kína
Fyrstu ísfisktogarar-
nir í rúmlega 20 ár
GUÐMUNDUR Runólfsson hf. á
Grundarfirði og Gullberg ehf. á Seyð-
isfirði hafa gert samning við kín-
verska skipasmíðastöð um smíði á
tveimur 52 metra löngum ísfisktogur-
um sem hannaðir eru af Skipatækni.
Helgi Kristjánsson, markaðsstjóri
Skipatækni, segir að skipin sem um
ræðir séu fyrstu ísfisktogaramir sem
smíðaðir eru fyrir íslenskar útgerðir i
rúmlega tuttugu ár.’ „Skipin eru breið
þannig að þau eiga að vera góð sjó-
skip,“ segir Helgi. „Þau verða með
sex grandaravindum og tveimur
togvindum en möguleika á þeirri
þriðju. Skipin eru byggð íyrir átján
manna áhöfn og verður aðstaðan fyr-
ir áhöfnina eins og best verður á kos-
ið. Það verða klósett og sturta í hverj-
um klefa, það verður gufubað,
líkamsræktaraðstaða og öll önnur nú-
tímaþægindi."
Höfuðáhersla á fískgæði
Helgi segir að millidekkið í skipun-
um verði tiltölulega stórt og þar verði
gott pláss fyrir aðgerð og flokkun.
„Eins er reiknað með plássi í sjávar-
ísframleiðslu sem síðan er hægt að
breyta í krapa og er ætlunin að kæla
fiskinn með krapa strax og losað
verður úr vörpunni og halda honum
síðan köldum alveg ofan í lest. Frá
byrjun hönnunar á skipunum hefur
verið lögð höfuðáhersla á fiskgæði og
eiga allir þættir skipsins að stuðla að
þeim, jafnt frá byrjun tQ enda.“
Kostnaður við gerð skipanna er
ekki gefinn upp að sinni en Helgi seg-
ir að smíðin hafi verið boðin út til
nokkurra landa og hafi Kínverjar
verið með lægsta tQboðið. Gerður var
samingur upp á smíði tveggja skipa
nú en jafnframt var undirrituð vilja-
yfirlýsing milli Skipatækni og skipa-
smíðastöðvarinnar um smíði á þrem-
ur skipum í viðbót eftir sömu
teikningum. Upphaflega lögðu fimm
útgerðir af stað til að skoða hugsan-
lega smíði en þrjár þeirra ákváðu að
halda að sér höndum í bili en eiga eft-
ir sem áður möguleika á smíði vegna
vfijayfirlýsingarinnar.
Guðmundur Runólfsson hf. var
annað íyrirtækjanna sem gerði
samning um smíði og var samningur-
inn gerður með þeim fyrirvara að
samþykki stjórnar liggi fyrir kaupun-
um og fjármögnun verksins gangi
eftir. Guðmundur S. Guðmundsson
framkvæmdastjóri segir að ef allt
gangi eftir geti smíði hafist eftir einn
til tvo mánuði. „Megintilgangurinn
með þessu er að fá nýtt og öflugt skip
í stað þeirra gömlu en ætlunin er að
selja bæði Hring SH og Heiðrúnu GK
enda eru þau bæði komin tfi ára
sinna. Þetta er tveggja ára ferli þar
sem áætluð afhending er í lok árs
2011 og því þótti okkur rétt að huga
að þessu nú þar sem við gerum ekki
endalaust út gömul skip.“
„Þetta nýja skip kemur tfi með að
verða tfi talsverðrar hagræðingar og
bjóða upp á nýja möguleika. Það er
mjög stórt í því millidekkið og er það
ætlun okkar að koma þar fyrir flokk-
unarbúnaði og flokka megnið af afl-
anum um borð. Eins eru líka hug-
myndir uppi um að pakka hluta af
aflanum ferskum um borð,“ segir
Guðmundur. „Það er orðið talsvert
langt síðan skrifað var undir smíði á
ísfisktogara hér á landi og við höfum
ákveðið að veðja á það og teljum að
það sé ekki síðri kostur en frystitog-
ari, annars værum við ekki að þessu.“
Kolmunna
landað ytra
HÓLMABORG SU og Jón Kjart-
ansson SU lönduðu fullfermi af kol-
munna í Noregi í gær en Börkur NK
var líka með fullfermi og landaði á
Hjaltlandi á sunnudag.
Öll þessi skip voru á „svarta listan-
um“ svonefnda, en skip á þeim lista
máttu ekki, að mati stéttarfélaganna
sem stóðu að verkfalli í fiskimjöls-
verksmiðjum á Norður- og Austur-
landi, landa meðan á verkfalli stóð.
í gær voru átta kolmunnaskip í
Rósagarðinum suðaustur af landinu
og þrjú á ferðinni en skrifað var und-
ir samninga við fyrrnefnd stéttarfé-
lög í fyrrinótt. Emil Thorarensen,
útgerðarstjóri Hraðfrystihúss Eski-
fjarðar hf., segir að mikil veiði sé á
miðunum en verkalýðshreyfmgin
hafi valdið miklu tjóni „með þessum
ólögmætu aðgerðum í formi útgáfu á
svörtum lista“. Hann segir að vegna
sjómannadagsins nk. sunnudag sé
skyldustopp í 72 tíma og því lítill tími
til annars hjá Hólmaborg og Jóni
Kjartanssyni en að koma heim.
Tvö skip SQdarvinnslunnar í Nes-
kaupstað lönduðu um helgina. Börk-
ur landaði um 1.300 tonnum á sunnu-
dag og hélt síðan aftur á miðin en
Beitir NK. landaði um 1.050 tonnum
í Grindavík.