Morgunblaðið - 30.05.2000, Qupperneq 29
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 30. MAÍ 2000 29
ERLENT
Fujimori nánast öruggur um að ná kjöri
Þriðjungur skilaði
ógildum kjörseðlum
Alejandro Toledo, forsetaefni stjórnarandstöðunnar í Perú, heilsar
sluöningsmönnum sínum á þaki bifreiðar í Lima á sunnudag þegar sfð-
ari umferð forsetakosninganna fór fram.
Toledo hvetur til
friðsamlegra
mótmæla gegn
forsetanum
Lima. Reuters, AP, AFP.
ÁLBERTO Fujimori, forseti Perú,
var í gær nánast öruggur um að hafa
náð kjöri í síðari umferð forseta-
kosninganna á sunnudag þótt keppi-
nautur hans, Alejandro Toledo, hefði
sniðgengið kosningamar og um
þriðjungur kjósendanna hefði gert
atkvæði sín ógild vegna ásakana um
að þær hefðu ekki verið lýðræðisleg-
ar. Toledo skoraði á stuðningsmenn
sína að reyna að koma Fujimori frá
völdum með friðsamlegum mót-
mælaaðgerðum út um allt land.
Þegar rúmur helmingur atkvæð-
anna hafði verið talinn var Fujimori
með 50,33% fylgi og Toledo 16,22%.
32,4% kjósendanna gerðu hins vegar
atkvæði sín ógild með því að skrifa
„höfnum svikum“ á kjörseðlana.
0,8% skiluðu auðu.
Kosningalöggjöf landsins kveður á
um að úrslitin teljist gild ef þriðjung-
ur greiddra atkvæða er gildur, þann-
ig að Fujimori náði kjöri samkvæmt
þessum tölum. Búist er við að loka-
tölurnar verði birtar á miðvikudag
og ólíklegt þykir að úrslitin breytist
verulega.
Hætt við eftirlit
með kosningunum
Alþjóðlegir eftirlitsmenn, sem
fylgdust með undirbúningi kosning-
anna, sögðu að því færi fjarri að þær
hefðu verið frjálsar og lýðræðisleg-
ar. Flestir þeirra ákváðu að snið-
ganga kosningarnar og talningu at-
kvæða. Samtök Ameríkuríkja
ætluðu að hafa eftirlit með kosning-
unum en hættu við það eftir að yfir-
völd í Perú neituðu að fresta þeim til
að hægt yrði að tryggja að þær færu
heiðarlega fram. M.a. var kvartað yf-
ir gölluðum tölvuforritum, sem not-
uð voru við talninguna, og hlut-
drægni fjölmiðla, auk þess sem
stjórn Fujimoris var sökuð um að
hafa notað opinbert fé í styrki handa
fátæklingum til að auka fylgi forset-
ans. Þar sem tæpur helmingur kjós-
endanna kaus Toledo eða gerði at-
kvæði sín ógild eru úrslitin talin
líkleg til að styrkja stöðu hans í bar-
áttunni fyrir því að Fujimori láti af
embætti.
Toledo skoraði fyrst á stuðnings-
menn sína að sitja heima en hvatti þá
síðan til að ógilda atkvæði sín vegna
þess að þeir sem neyta ekki atkvæð-
isréttar síns þurfa að greiða andvirði
2.500 króna, sem er mikil fjárhæð í
Perú þar sem tæpur helmingur
íbúanna býr við mjög kröpp kjör.
Samkvæmt tölum úr þeim kjördæm-
um þar sem atkvæðin höfðu verið
talin sátu 17% kjósendanna heima,
sem er svipað hlutfall og í fyrri um-
ferð kosninganna 9. apríl.
Toledo lofar að beijast
fyrir lýðræði
Toledo sagði að ríki heims myndu
ekki viðurkenna úrslit kosninganna
og varaði við því að Samtök Amer-
íkuríkja kynnu að grípa til refsiað-
gerða gegn Perú.
„Ég vil segja skýrt og tæpitungu-
laust að við búum við einræði í Perú
og ég hef ákveðið að veita ykkur for-
ystu þar til ég hef bjargað lýðræð-
inu,“ sagði Toledo við þúsundir
stuðningsmanna sinna á útifundi ná-
lægt forsetahöllinni í Lima.
Toledo lýsti kjörtölunum sem birt-
ar voru á sunnudagskvöld sem
skrípaleik og skoraði á stuðnings-
menn sína að efna til friðsamlegra
mótmæla gegn Fujimori þar til hann
neyddist til að láta af embætti.
Hundruð námsmanna meðal stuðn-
ingsmanna Toledos gengu í átt að
forsetahöllinni og beitti óeirðalög-
reglan táragasi til að stöðva þá. Um
1.000 lögreglumenn vörðu bygging-
una. Mótmælendumir kveiktu í rusli
á götunum og skemmdu hraðbanka
og almenningssímklefa.
Efnt var til götumótmæla í fleiri
borgum og tugir manna voru hand-
teknir. Hundruð námsmanna lögðu
undir sig aðaltorg borgarinnar
Cusco og reistu fána Perú í hálfa
stöng áður en lögreglan dreifði þeim.
Óeirðir blossuðu einnig upp í borg-
inni Huancayo þegar um 30.000
manns gengu um miðborgina til að
mótmæla kosningunum. Nokkrir
mótmælendanna brutu rúður í opin-
berum byggingum.
Óttast ekki
refsiaðgerðir
Fujimori kom ekki fram opinber-
lega eftir að kjörstöðum var lokað á
sunnudagskvöld. Hann sagði þegar
hann greiddi atkvæði í Lima að
kosningarnar hefðu verið frjálsar og
lýðræðislegar og kvaðst telja ólík-
legt að Bandaríkjastjórn gripi til
refsiaðgerða gegn Perú. Hann sagði
að mikilvægt væri fyrir Bandaríkin
að eiga góð samskipti við landið,
einkum vegna tilrauna stjórnvalda í
Perú til að stemma stigu við ræktun
kókarunna, en blöð þeirra eru notuð
til að vinna kókaín.
Fujimori er kominn af innflytjend-
um frá Japan. Hann var fyrst kjör-
inn forseti árið 1990 og hefur notið
mikillar hylli í landinu fyrir að rétta
efnahaginn við og uppræta hreyfing-
ar hermdarverkamanna. Hann
reiddi sig helst á stuðning fátækra
landsmanna, einkum í fátækrahverf-
um Lima þar sem hann hefur látið
leggja slitlag á götur, leggja raf-
magn, reisa skóla og skipuleggja
matargjafir handa fátækum.
Andstæðingar forsetans hafa hins
vegar sakað hann um mannréttinda-
brot og einræðistilburði og börðust
lengi gegn því að stjómarskránni
yrði breytt til að hann gæti gegnt
forsetaembættinu í þrjú kjörtímabil.
Fujimori nýtur stuðnings meirihluta
þingsins og það rak þrjá dómara
stjórnlagadómstóls landsins árið
1997 fyrir að leggjast gegn stjórnar-
skrárbreytingunni.
Toledo er kominn af fátækum ind-
íánum og smábændum í Andesfjöll-
um og nam hagfræði í Bandaríkjun-
um. Hann bauð sig fram í
forsetakosningunum árið 1995 en
lenti í fjórða sæti, langt á eftir Fuj-
imori, sem var endurkjörinn með
miklum meirihluta atkvæða.
Mjög litlu munaði að Fujimori
næði kjöri í fyrri umferð kosning-
anna í apríl þegar hann þurfti að fá
meirihluta atkvæðanna. Hann fékk
þá 49,87% fylgi og Toledo 40,24%.
Toledo sakaði yfirvöld um kosninga-
svik í fyrri umferðinni og yfirkjör-
stjóm landsins hefur ekki enn getað
útskýrt hvers vegna tala greiddra at-
kvæða reyndist um 1,4 milljónum
hærri en tala atkvæðisbærra lands-
manna.
Cohen ósammála Bush
Washingfton. Rcuters.
BILL Cohen, varnarmálaráðherra
Bandaríkjanna, kveðst ósammála
áætlun forsetaframbjóðanda
Repúblíkanaflokksins, Georges W.
Bush, um umtalsverða fækkun
kjarnorkuvopna, og bauð fram-
bjóðandanum að funda um málið
með helstu ráðamönnum í hernum.
Cohen sagði í sjónvarpsviðtali á
sunnudaginn, að ef kjarnorkuvopn-
um Bandaríkjamanna yrði fækkað
of mikið gæti það neytt þá til að
taka ákvarðanir sem stönguðust á
við varnarhagsmuni þeirra. Bush
og A1 Gore, forsetaframbjóðandi
Demókrataflokksins, ættu að fá
sömu upplýsingar ef kjarnorku-
vopnabúr Bandaríkjanna yrði að
deilumáli í kosningunum, er fram
fara í haust. Cohen er repúblíkani,
en situr í ríkisstjórn Demókrata-
flokksins.
„Ég vona að þjóðaröryggi verði
ekki að pólitísku máli vegna þess
að það er of mikilvægt til þess að á
því sé repúblíkanskur eða demó-
kratískur stimpill," sagði Cohen.
Fyrir skömmu lét Bush þau orð
falla, að hægt væri að minnka
kjarnavopnabúrið „talsvert meira“
en Bandaríkin hafa samþykkt að
gera í samræmi við Start II vopna-
sáttmálann.
Suma*-
TÖLVUNÁMSKEIÐ
Þekking í þína þágu
>
4—>
£
*
Námskeið fyrir 9-15 ára
Tölvusumarskólinn grunnur, 36 kennslustundir
ritvinnsla, teikning, vélritun, Intemetið, stýrikerfi, leikir o. fl.
Tölvusumarskólinn framh 36 kennslustundir
gagnagrunnar, vefsiöugerð, myndvinnsla, leiklr o. fi.
Almenn námskeið
Windows 95/98, 9 kennslustundir
grunnnámskelð um stýrikerfi tðlva,
Windows, Word og Excel, 22 kennslustundir
námskelð fyrir þá sem vllja gott námskeið um helstu forritin
og stýrikerfi tölva.
Word ritvinnsla, 18 kennslustundir
yfirgripsmiklð némskelð fyrir byrjendur og lengra komna.
Word II, 18 kennslustundir
námskelð fyrir notendur með mlkla reynslu af ritvinnslu
sem loklð hafa Word námskeiði.
Excel töfiureiknirinn, 22 kennsiustundir
vandað og gott námskeið um alla þsettl töflurelknisins.
Excel II, 18 kennslustundir
námskeið sem aðeins er ætlaö þeim sem kunna miklð i
Excel og hafa unnið lengi við hann.
Access gagnagrunnurínn, 22 kennsiustundir
yfirgripsmlkið némskelð fyrir þé sem vllja lœra á þennan
öfluga gagnagrunn, Kennt að smiða kerfl frá grunnl.
Outlook, 9 kennslustundir
yfirgripsmlkið némskeið um verkefnayfirilt, dagbðkar-
skrénlngu, póstsendlngar og gerð minnismlða.
PowerPoint, 13 kennslustundir
gagniegt og skemmtilegt némskeið fyrir alla sem þurfa að
útbúa kynningarefni, kenna eða halda fyririestra.
Internetið, 9 kennslustundir
bytjendanámskeið um vefinn og tölvupóst.
Vefslðugerð I, 22 kennslustundir
grunnnámskeið um vefslðugerð með FrontPage fbrritlnu.
Vefsiðugerð II, 22 kennslustundir
skemmtilegtframhaldsnámskelð úm FrontPage.
Námskeiö fyrir kennara
Netumsjón I skólum, 42 kennslustundir
netfræði, búnaður, Windows 95/98, Windows NT,
Vefsfðugerð fyrir kennara, 42 kennsiustundir
vefsiðugerð, myndvinnsla, skönnun og flelra,
Nómsefnisgerð, 42 kennsluatundlr
notkun Word og PowerPoint við némsefnisgerð.
Netumsjón og lengra nám
Windows NT 4,0 netumsb Ón, 42 kennslustundir
notfrmði, búnaður, Windows 95re8, Windows NT.
Windows 2000 eóa NT 4. 0, 50 kennslustundir
MGP némskelð á ensku fyrir þá sem vilja lengra,
V/
✓
Kerfisfræðl TV. 380 kennslustundir
eins érs yfirgripsmtkið ném hefst i september,
Netumsjón í nútfmarekstrí, 120 kennslustundir
hélfs árs nám fyrir verðandi netsérfrsgðlnga hefst i haust,
Tölvuumsjón I nútfmarekstri, 145 kennslust.
hétfs érs ném fyrtr þé sem vitja verða feertr tötvunotendur,
hefst i soptember.
Goð.tr ástosOur fyrii þvi ,rð kom.i ,i námskoið okkar
5% staðgrelðsluafsléttur ef pantað er eitt námskeiö og
þátttökugjald greitt við byrjun námskeiðs.
10% staðgrelðstuafsléttur ef pöntuð eru 2 - 4 námskeið
og þátttökugjald greitt innan 5 daga frá byrjun náms.
18% staðgrelðsluafStéttur ef pöntuð eru 5 eöa fleiri
námskeið og þátttökugjald greitt innan 20 daga frá byrjun
náms.
Rammasamnlngar eru gerðir við fyrirtæki sem kaupa 10
sæti eða fleiri.
Punktasöfnun veitir aukinn afslátt við hvert námskeiö.
SlmaaðstOð er innifalin í einn mánuð eftir námskeið.
Góð staðsstntng og nasg bttastssðt,
Öll némsgögn og vstttngar innifaldar í þátttökugjaldi.
Nánari upplýsingar á http://www.tv.is
Qrensásvegi 1 6
108 Reykjavík
Sfmi: 520 9000
Fax: 520 9009
Netfang: tvðtv.ls
EKfEI
pöntunarsími
ilmanúmer
Tölvu- og
verkfræðiþjónustan