Morgunblaðið - 30.05.2000, Page 47
MORGUNBLAÐIÐ
MINNINGAR
ÞRIÐJUDAGUR 30. MAÍ 2000 47-
+ Matthildur Júl-
íana Sófusdóttir
fæddist á Drangsnesi
26. ágúst 1928. Hún
lést á Sjúkrahúsi
Akraness 24. maí síð-
astliðinn. Foreldrar
hennar voru Sófus
Magnússon smiður
og Sigurey Guðrún
Júlíusdóttir. Systur
Matthildar eru þrjár,
Ósk, húsmóðir í
Reykjavík, Jóhanna,
húsmóðir á Akranesi,
og Laufey, húsmóðir
í Reykjavík.
Matthildur ólst upp á Drangs-
nesi hjá foreldrum sínum. Hún
giftist Magnúsi Bakkmann And-
réssyni verkamanni 6. desember
1947. Þau bjuggu fyrstu fímm ár-
in að Finnbogastöðum í Trékyllis-
vík. Þaðan fluttu þau að Drangs-
nesi og áttu þar heima þangað til
þau fluttu til Akraness um miðjan
janúar 1969. Þar bjuggu þau að
Heiðargerði 12 frá 1971-1981, en
fluttu þá að Suður-
götu 121 og áttu þar
heima upp frá því.
Fyrst eftir að Matt-
liildur kom til Akra-
ness var hún í fisk-
vinnslu hjá Þórði
Óskarssyni, en
lengst starfaði hún
hjá Pósti og síma,
samfleytt í 24 ár.
Matthildur og
Magnús eiga tvo
syni: 1) Sófus, bif-
reiðastjóri, búsettur
á Isafírði, f. 8. mars
1956, maki Gunn-
fríður Magnúsdóttir. Börn Sófus-
ar eru fjögur og tvö barnabörn. 2)
Andrés, sjómaður, býr á Akra-
nesi, f. 20. nóvember 1958, maki
Súsanna Ernudóttir. Þau eiga
þrjú böm.
Matthildur var mjög félagslynd
og starfaði mikið að félagsmálum.
Utför Matthildar verður gerð
frá Akraneskirkju í dag og hefst
athöfnin klukkan 14.
kirkjukórnum lengst af þess tíma
sem ég þjónaði þar. Hún starfaði
mikið í góðtemplarareglunni og var
meðal hinna traustu starfskrafta í
stúkunni Akurblóm. Þar mætti hún á
flesta fundi og var alltaf reiðubúin til
að gera það sem gera þurfti og láta
gott af sér leiða. Þegar kór eldri
borgara var stofnaður á Akranesi
gekk hún strax til liðs við hann og
sæti átti hún í stjórn FEBAN, Fé-
lags eldri borgara á Akranesi.
Mikla ræktarsemi, umhyggju og
kærleika sýndi Matthildur börnum
sínum og bamabömum. Barnastarf
kirkjunnar rækti hún með þeim og
vildi þannig vísa þeim á þann veg,
sem hún sjálf vissi mesta gæfuveg-
inn. Matthildur var bæði vel gerð og
vel gefin kona. í lífinu leitaðist hún
við að láta gott af sér leiða og vildi
umfram alit verða þeim, sem hún átti
samleið með, til gæfu og blessunar.
Þetta tókst henni. Þess vegna gróa
fögur blóm í þeim sporum sem hún
steig okkar á meðal, blóm sem minna
okkur á birtuna og vorið, sem hún
elskaði sjálf og vakti í hjörtum okk-
ar.
Eftirlifandi eiginmanni hennar,
sonum þeirra, bamabörnum og öðr-
um ástvinum sendi ég innilegar sam-
úðarkveðjur og bið góðan Guð að
veita þeim huggun og hugarstyrk við
blessunarlindir bjartra minninga.
Bjöm Jónsson.
MATTHILDUR
JÚLÍANA
SÓFUSDÓTTIR
+
SIGURÐUR SIGURÐSSON
húsasmíðameistari,
Hvassaleiti 20,
lést á líknardeild Landspítalans sunnudaginn
28. maí.
Gunnhildur Guðmundsdóttir,
Guðmundur Sigurðsson, Valgerður Marinósdóttir,
María Sigurðardóttir, Einar Loftsson,
Áslaug Sigurðardóttir, Sveinn Hannesson,
Hrefna Sigurðardóttir, Haukur Valdimarsson,
Sigurður Sigurðarson,
Ingibjörg Sigurðardóttir, Bjami Einarsson
og aðrir aðstandendur.
+
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengda-
faðir og afi,
HAUKUR S. DANÍELSSON
frá fsafirði,
Vallargerði 28,
Kópavogi,
lést aðfaranótt sunnudagsins 28. maí sl.
Jarðarförin auglýst síðar.
Mig langar að skrifa nokkur minn-
ingarorð um ömmu mína eða Möttu
ömmu eins og eldri dóttir mín sagði
alltaf. Ég er elsta barnabam þeirra
ömmu og afa. Foreldrar mínir
bjuggu á Eystra-Miðfelli þegar ég
fæddist og þaðan em mínar fyrstu
minningar um Möttu ömmu. Hún
kom oft til okkar og henni þótti voða-
lega vænt um alla Miðfells fjölskyld-
una og biðja þau amma mín og afi frá
Miðfelli fyrir kveðju og kærar þakkir
fyrir góð kynni.
Þegar við fluttum frá Miðfelli fór
ég að vera mikið hjá Möttu ömmu og
Magga afa og var það eins og mitt
annað heimili því þar gat ég oft verið
svo vikum skipti. Svo fór ég að búa
með mínum manni, sem er Jón
Brandsson, og ákváðum við að trú-
lofa okkur á afmælisdegi ömmu, 26.
ágúst 1994, og það gladdi hana mik-
ið.
Stelpumar okkar, þær Hafdís og
Guðný, dýrkuðu hana mikið og hún
þær ekki síður. Hún var alltaf að
gera eitthvað fyrir þær, hún var mik-
il handavinnukona og gaf nánast allt
það sem hún gerði og stelpurnar
okkar fengu stóran hlut af því. Fyrir
utan það að á hverjum laugardegi fór
hún með Hafdísi í kirkjuskólann og
er það eitt af því sem hún byrjaði á
þegar ég var lítil og þótti mér það
voðalega gaman. Þetta hefur verið
hefð hjá henni síðan. Hún hefur farið
með flest öll bamabömin í kirkju-
skólann og nú höfðu langömmubörn-
in tekið við.
Foreldrar ömmu bjuggu hjá þeim
afa í mörg ár og man ég vel hvað hún
hugsaði vel um þau fram á síðasta
dag og var alltaf með hugann hjá
leiðunum þeirra, sem em fyrir norð-
an, og hvernig þau litu nú út.
Alltaf ef hún vissi um einhvern
sem átti um sárt að binda var hún
boðin og búin að gera allt sem hún
gat þótt hún væri nú ekki heilsu-
hraust undir það síðasta. Alltaf fór
hún á allar samkomur sem hún
mögulega gat og þótti mér ákaflega
vænt um að geta farið með hana í
kaffi hjá Strandamannafélaginu 21.
maí síðastliðinn, en það kvöld var
hún lögð inn á sjúkrahús þar sem
hún lést tveim dögum síðar.
Ég kveð mína ömmu af einlægri ást
öll hennar kynni mér geymast
Umhyggja hennar mér aldrei brást,
atorkan engum mun gleymast.
Hún rétti þeim bágstöddu bróðurhönd,
brjóstið oft þrungið trega.
Hún elskaði óspart sín æskulönd
og ættlandið yndislega.
Blessuð sé minning hennar.
Bergný Dögg Súfusdóttir.
Vel er mér kunnugt um að Matt-
hildur Sófusdóttir átti við erfiðan
sjúkdóm að stríða, þó að lítt léti hún
á því bera. Með allt að því glaðværri
hetjulund bar hún þá sjúkdóms-
byrði, sem á hana var lögð síðustu
árin. Það eru ekki nema nokkrir dag-
ar síðan við hittumst á götu og spjöll-
uðum saman í léttum og gamansöm-
um tón. Við ræddum um gróanda
vorsins og hækkandi sól að enduðum
óvenju ströngum og erfiðum vetri.
Matthildur var í sannleika vorsins
bam og í einlægum fögnuði horfði
hún fram til þeirrar áttlausu vor-
aldar veraldar sem við fáum svo oft
að njóta á þeim árstíma, sem nú er að
fara í hönd. En skjótt skipast veður í
lofti. Fyrr en varði var hún kvödd til
þeirrar ferðar sem eitt sinn bíður
okkar allra. Sjálf var hún ekki í
nokkrum vafa um hvert sú ferð
stefndi. Inn í eilífa vordýrð vissi hún
sig kvadda, þar sem bjartar byggðir
biðu hennar á bak við heljarstrauma.
Þangað lá leiðin til móts við hann,
sem eitt sinn sagði og segir enn við
vini sína: „Ég er upprisan og lífið. Ég
lifi og þér munuð lifa.“ Þetta var
hennar sannfæring og lifandi trú.
Við Matthildur áttum mikla og
góða samleið á Akranesi. Hún söng í
Kveðja frá sjúkravinadeild
Rauða kross Akraness
Orða er vant. í dag kveðjum við
góðan vin og félaga, Matthildi Júl-
íönu Sófusdóttur. Ekki grunaði okk-
ur þegar við komum saman fyrir 3
vikum að hún Matta yrði ekki með
okkur framar. Matta var virkur fé-
lagi í sjúkravinadeildinni hér á Akra-
nesi og alltaf tilbúin af alúð og hlýju
að sinna þeim störfum sem hún var
beðin um. Við sjúkravinir þökkum
Matthildi innilega fyrir samstarfið
og störf sín í þágu þeirra sem minna
mega sín og sendum eiginmanni,
sonum og fjölskyldum og öðrum ætt-
ingjum innilegar samúðarkveðjur.
Mörgum þykir vel sé veitt,
viimistgulliðbjarta
látabúksorgæfieytt
árgimdinni skarta.
En þeir flytja ekki neitt
yfir djúpið svarta.
Þangað fylgir aðeins eitt
ástfrávinarþjarta.
(Öm Amar.)
+
Elskuleg mó.öir okkar, tengdamóðir, amma og
langamma,
HALLA SIGURÐARDÓTTIR,
Skúlagötu 80,
Reykjavík,
síðast til heimilis í Furugerði 1,
lést á hjartadeild Landspítalans Fossvogi
sunnudaginn 28. maí.
Guðmundur Guðbrandsson, Sigrún Grfmsdóttir,
Þorbjörg Guðbrandsdóttir,
Guðný Pálsdóttir, Sigurður Ingi Svavarsson,
Kolbrún Pálsdóttir, Arnar Ólason,
Páll Pálsson, Agnes Hrafnsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
+
Kæru vinir.
Hugheilar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlý-
hug við andlát og útför eiginmanns míns, föður
okkar, tengdaföður og afa,
sr. HEIMIS STEINSSONAR,
Þingvöllum.
Guð blessi ykkur öll.
Dóra Eria Þórhallsdóttir,
Þórhallur Heimisson, Ingileif Malmberg,
Arnþrúður Heimisdóttir, Þorlákur Sigurbjörnsson,
Dóra Erla, Rakel, Hlín og Heimir.
Valgerður Jakobsdóttir,
Ari Daníel Hauksson, Aud Hauksson,
Helgi Hauksson,
Kjartan J. Hauksson, Claudia Vennemann,
Soffía Hauksdóttir, Bergur Karlsson,
Eyþór Páll Hauksson, Sigrún Edda Eðvarðsdóttir
og barnabörn
+
Ástkær eiginkona mín, móðir okkar, tengda-
móðir, amma og langamma,
ÁSTA JÓNSDÓTTIR,
Efstaleiti 14,
Reykjavík,
andaðist á Landspítalanum við Hringbraut
föstudaginn 26. maí.
Árni Gestsson,
Jónína Árnadóttir,
Gestur Árnason, Judith Hampshire,
Börkur Árnason, Lisa Lotta Reynis-Andersen,
Ásta Árnadóttir, Jón Grétar Margeirsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
+
Elskulegur sambýlismaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir, afi og langafi,
JÓN GUÐNI HAFDAL,
Gyðufelli 16,
Reykjavík,
sem lést á Landspítalanum þriðjudaginn
23. maí, verður jarösunginn frá Þjóðkirkjunni í
Hafnarfirði miðvikudaginn 31. maí kl. 15.00.
Sigurbjörg Pétursdóttir,
Jón Þórir Jónsson, Lilja Matthfasdóttir,
Ellert Högni Jónsson,
Vigdís Helga Jónsdóttir,
Hafþór Hafdal Jónsson,
Katrín Sigríður Jónsdóttir,
Svanhvít Jóhanna Jónsdóttir, Jón Ingi Hjálmarsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
Sigurður Hauksson,
Margrét Gunnarsdóttir,
Þór Karlsson,
1, •
+
Elskuleg eiginkona mín, móðir og dóttir,
BRYNDÍS ERNA GARÐARSDÓTTIR,
Frostafold 131,
lést á Landspítalanum Fossvogi þriðjudaginn
23. maí síðastiiðinn.
Jarðarför hennar verður gerð frá Fossvogskirkju
miðvikudaginn 31. maí kl. 13.30.
Fyrir hönd ættingja og vina,
Gennady Tereshenko,
Magnús Þór Guðjónsson,
Guðrún Magnúsdóttir.