Morgunblaðið - 30.05.2000, Side 50
MORGUNBLAÐIÐ
50 ÞRIÐJUDAGUR 30. MAÍ 2000
Blóma&tofa,
Friðfhms
Suðurlandsbraut 10,
108 Reykjavík, sími 553 1099.
Opið öll kvöld
til kl. 22 - einnig um helgar.
Skreytingar fyrir öll tilefni.
Gjafavörur.
-\3
‘Kjossar á [eiði
Htyðjritt stáí - varanlegt efni
Kjossamir em jramCeiddir
úr hvítCiúðuðu, ryðjriu stáCi.
‘Minnisvarði sem endist
um ófcomna tíð.
SóOjoss m/geis(um.
riteð 100 smfrájörðu.
‘TvöjaCdur íqoss.
líœð 110 smjrájörðu.
‘Jírityið í síma 431-1075 og
jáið LitaÉœCfing.
BLIKKVERKsf.
Dalbraut 2,300 Akranesi.
Sími 431 1075, fax 431 1076
MINNINGAR
OLAFUR
JÓNSSON
+ Ólafur Jónsson
fæddist í Reylqa-
vík 10. ágúst 1921.
Hann lést á Land-
spitalanum 21. maí
síðastliðinn og fór
útför hans fram frá
Bústaðakirkju 26.
maí.
Við andlát Ólafs
Jónssonar koma upp í
hugann minningar um
góðan mann sem hafði
sérstök áhrif á um-
hverfi sitt. Vináttu-
bönd Ólafs, eftirlif-
andi konu hans Birnu og foreldra
minna náðu til okkar systkinanna
sem fengum ætíð að njóta athygli
þeirra og vináttu. Nærvera þeirra
á Unnarbrautinni var alltaf ein-
staklega gefandi. Samfylgd við
börn Ólafs og Birnu í námi og
skólastarfi styrkti enn vináttu-
böndin.
Ólafur var fagmaður af bestu
gerð og það fór ekki framhjá nein-
Varanleg
minning
er meitluð
ístein.
H S.HEifiASONHF
H STFINSMIÐJA
Skemmuveqi 48, 200 Kóp.
Sími: 557-6677 Fax: 557-8410
Netfang: sh.stone@vortex.is
Tölvur og tækni á Netinu ^mbl.is
—aluta/= enrrn\sAo ejý-n
um að þar fór einstak-
lega smekklegur mað-
ur og framkoma hans
einkenndist af hlýju
og glettni. Slíkir kost-
ir eru eftirsóknarverð-
ir enda var leitað til
Ólafs um árabil í
margskonar félags-
starfi. Við fjölskyldan
fengum ætíð að njóta
leiðbeininga hans og
hjálpsemi þegar kom-
ið var að verkefnum
sem voru á hans
sérsviði. Einlægur
áhugi fyrir okkur sem
yngri vorum komst vel til skila og
fyrir vikið skipaði hann alveg sér-
stakan sess í huga okkar. Það þarf
ekki að fara mörgum orðum um
hve mikilvægt það er fyrir ungt
fólk að eiga góða fyrirmyndir eins
og Ólafur er mér. Á kveðjustund
bið ég þess að Guð styrki fjöl-
skyldu Ölafs og blessi minningu
kærleiksríks manns.
Magnús Pálsson.
Frágangur
afmælis-
og minn-
ingar-
greina
MIKIL áhersla er lögð á, að
handrit séu vel frá gengin,
vélrituð eða tölvusett. Sé
handrit tölvusett er æskilegt,
að disklingur fylgi útprentun-
inni. Það eykur öryggi í
textameðferð og kemur í veg
fyrir tvíverknað. Þá er enn
fremur unnt að senda grein-
arnar í símbréfi (569 1115) og
í tölvupósti (minning@mbl.-
is). Nauðsynlegt er, að síma-
númer höfundar/sendanda
fyigi-
Um hvern látinn einstak-
ling birtist formáli, ein uppi-
stöðugrein af hæfilegri lengd,
en aðrar greinar um sama
einstakling takmarkast við
eina örk, A-4, miðað við með-
allínubil og hæfilega línu-
lengd, - eða 2.200 slög (um 25
dálksentimetra í blaðinu). Til-
vitnanir í sálma eða ljóð
takmarkast við eitt til þrjú
erindi. Greinarhöfundar eru
beðnir að hafa skírnarnöfn
sín en ekki stuttnefni undir
greinunum.
+
Móðir okkar, tengdamóðir, amma og lang-
amma,
ANNA SIGRÚN JÓHANNSOÓTTIR
frá Viðvík,
Hellissandi,
Vesturgötu 59,
Akranesi,
sem lést á Sjúkrahúsi Akraness föstudaginn
26. maí sl., verður jarðsungin frá Akraneskirkju föstudaginn 2. júní
kl. 14.00.
Jón Trausti Ársælsson, Ingveldur Þorbjörnsdóttir,
Jóhann Ársælsson, Guðbjörg Róbertsdóttir,
Þórður Ársælsson, Valdís Ingimundardóttir,
Guðrún Marta Ársælsdóttir, Baldur Ragnarsson,
Sigrún Ársælsdóttir, Hafsteinn Sigurðsson,
Hjörtur Ársælsson, Ester Friðriksdóttir,
Fróði Ársælsson, Hafdís Þórðardóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
KIRKJUSTARF
Selljarnarneskirkja
Safnaðarstarf
Dagur
aldraðra í
Seltjarnar-
neskirkju
UPPSTIGNINGARDAGUR er á
næsta leiti, en hann hefur verið
haldinn hátíðlegur í kirkjunni, sem
dagur aldraðra nú um nokkurra ára
skeið. í ár ber uppstigningardag
upp á 1. júní og hátíðin hefst í Sel-
tjarnarneskirkju með messu kl.
11:00 f.h.
Sr. Gylfi Jónsson héraðsprestur í
Reykjavík, sem einnig þjónar á
Hrafnistu í Hafnarfirði, mun
predika í messunni og sr. Solveig
Lára Guðmundsdóttir sóknarprest-
ur þjónar fyrir altari.
Órganisti verður Sigrún Stein-
grímsdóttir.
Að messu lokinni verður boðið
upp á mat í safnaðarheimili
kirkjunnar. Þá tökum við lagið
saman og njótum þess að vera sam-
an þar til sýning á hannyrðum eldri
borgara verður opnuð í húsi aldr-
aðra.
Allir aldraðir Seltirningar eru
hvattir til að mæta til kirkjunnar
þennan dag, en messan er um leið
lokaþáttur í vetrarstarfi safnaðar-
ins fyrir aldraða.
Dagur eldri
borgara í Graf-
arvogskirkju
Uppstigningardagur 1. júní 2000
Uppstigningardagur sem tileinkað-
ur hefur verið „eldri borgurum“ í
söfnuðum landsins, verður haldinn
hátíðlegur í kirkjum landsins.
Dagskráin hefst með hátíðar-
guðsþjónustu kl. 11:00. Séra Vigfús
Þór Árnason og séra Anna Sigríður
Pálsdóttir þjóna fyrir altari.
Ræðumaður verður sr. Ólafur
Skúlason biskup. Einsöngur: Guð-
mundur Jónsson óperusöngvari.
Básúna: Einar Jónsson. Kór Graf-
arvogskirkju syngur. Organisti:
Hörður Bragason. Eftir messu
verður opnuð sameiginleg sýning í
Bústaðakirkju á munum úr starfi
aldraðra í kirkjum Reykjavíkur-
prófastsdæma.
Sýningin verður opin fram á
sunnudag.
í þetta sinn er eldri borgurum
boðið upp á veitingar eftir messu í
Bústaðakirkju.
Ráðstefna, málþing um málefni
eldri borgara, verður haldin í Bú-
staðakirkju, sjá dagskrá í dagblöð-
um.
Sóknarnefnd, safnaðarfélag og
prestar Grafarvogskirkju.
Dagur aldraðra
í Árbæjar-
söfnuði
Hin síðari árin hefur uppstign-
ingardagur verið helgaður á vissan
hátt málefnum eldri borgaranna í
kirkjum landsins, og sviðsljósi beint
að högum þeirra og kjörum, og
framlagi þeirra til þjóðlífsins. Hinn
1. júní næstkomandi, á uppstigning-
ardag, verður guðsþjónusta í Ár-
bæjarkirkju kl. 14.00. Ath. breyttan
messutíma. Til þessarar guðsþjón-
ustu er öllum eldri borgurum í Ár-
bæjarsókn sérstaklega boðið.
Benedikt Davíðsson, formaður
Landssambands eldri borgara, flyt-
ur stólræðu, en prestar Árbæjar-
safnaðar þjóna fyrir altari. Kirkju-
kór Árbæjarkirkju syngur og Ilka
Petrova leikur á flautu. Að guðs-
þjónustu lokinni er eldra fólkinu
boðið til samveru í safnaðarheimili
kirkjunnar. Þar verður veislukaffi í
boði kvenna í Sóroptimistaklúbbi
Árbæjar, hljóðfæraleikur og al-
mennur söngur. Þennan umrædda
dag verður sýning á handavinnu
eldri borgara frá „Opna húsinu“ á
miðvikudögum á liðnum vetri.
Allir eru hjartanlega velkomnir í
Árbæjarkirkju á uppstigningardag.
Prestarnir.
Áskirkja. Opið hús fyrir alla ald-
urshópa í safnaðarheimilinu kl. 10-
14. Léttur hádegisverður fram-
reiddur. Mömmu- og pabbastund í
safnaðarheimilinu þriðjudag kl. 14-
16.
Hallgrímskirkja. Fyrirbæna-
guðsþjónusta ki. 10.30. Beðið fyrir
sjúkum.
Laugarneskirkja. Morgunbænir
í kirkjunni kl. 6.45-7.05.
Neskirkja. Litli kórinn, kór eldri
borgara, þriðjudag kl. 16.30 í um-
sjón Ingu J. Backman og Reynis
Jónassonar.
Seltjarnarneskirkja. Foreldra-
morgunn kl. 10-12.
Fríkirkjan í Reykjavík. Kyrrðar-
stund í hádeginu á morgun, mið-
vikudag, kl. 12-13 í kapellunni.
Súpa og brauð á eftir.
Breiðholtskirkja. Bænaguðs-
þjónusta með altarisgöngu kl.
18.30. Bænaefnum má koma til
sóknarprests í viðtalstímum hans.
Fella- og Hólakirkja. Foreldra-
stund kl. 10-12. Kyrrðar- og bæna-
stund kl. 12.10-12.25. Organisti
kirkjunnar leikur á orgelið frá kl.
12. Þakkar- og bænaefnum má
koma til presta og djákna kirkjunn-
ar. Starf fyrir 9-10 ára stúlkur kl.
15-16. Starf fyrir 11-12 ára stúlkur
kl. 16.30-17.30. Æskulýðsfélagið
fyrir 8. bekk kl. 20-22.
Hjaliakirkja. Bæna- og kyrrðar-
stund kl. 18.
Kópavogskirkja. Foreldramorg-
unn í safnaðarheimilinu Borgum í
dag kl. 10-12. Kyrrðar- og fyrir-
bænastund í dag kl. 12.30. Fyrir-
bænaefnum mákoma til prests eða
kirkjuvarðar.
Seljakirkja. Mömmumorgnar kl.
10-12.
Víðistaðakirkja. Aftansöngur og
fyrirbænir kl. 18.30.
Hafnarfjarðarkirkja. Opið hús
fyrir 10-12 ára börn í Vonarhöfn,
Strandbergi, kl. 17-18.30.
Fríkirkjan í Hafnarflrði. Opið
hús kl. 17-18.30 fyrir 7-9 ára börn.
Grindavíkurkirkja. Foreldra-
morgunn kl. 10-12.
Borgarneskirkja. TTT (tíu til tólf
ára starf) alla þriðjudaga kl. 17-18.
Helgistund í kirkjunni sömu daga
kl. 18.15-19.
Krossinn. Almenn samkoma kl.
20.30 í Hlíðasmára 5. Allir velkomn-
ir.
Hvammstangakirkja. Æsku-
lýðsfundur í kvöld kl. 20.30 á
prestssetrinu.
Þoriákskirkja. Mömmumorgnar
á þriðjudögum kl. 10-12.
Frelsið, kristileg miðstöð. Bibl-
íuskóli í kvöld kl. 20.