Morgunblaðið - 30.05.2000, Síða 57
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 30. MAÍ 2000 57 r
UMRÆÐAN
FRJÁLS samkeppni
er einn helsti driíkraft-
ur atvinnulífsins og um
leið forsenda aukins
hagvaxtar, nýsköpunar
í atvinnulífinu og
bættra lífskjara al-
mennings. Sú hætta er
þó ætíð fyrir hendi að
hörð samkeppni á
markaði geti á skömm-
um tíma snúist í and-
hverfu sína og leitt af
sér verðsamráð hinna
sterku með hækkandi
vöruverði og versnandi
þjónustu. Það er kunn-
ara en frá þurfi að segja
að markaðsráðandi fyr-
irtæki hafa tilhneigingu til að hækka
verð og nýta aðstöðu sína til að auka
hagnað. Afleiðingarnar eru vaxandi
óhagræði í rekstri og léleg nýting
framleiðsluþátta samfélagsins. Af
þessum orsökum er nauðsynlegt að
setja fyrirtækjum á markaði ákveð-
inn ramma eða samkeppnisreglur til
að tryggja samkeppni og heilbrigða
viðskiptahætti. Þetta er viðfangsefni
samkeppnisyfirvalda í helstu iðnríkj-
um heims.
Túnabær endurskoðun
samkeppnislöggjafar
íslenska samkeppnislöggjöfin,
sem gilt hefur frá árinu 1993, hefur
að mörgu leyti reynst vel og stuðlað
að heilbrigðum viðskiptaháttum.
Nokkuð skortir þó á að hún dugi til
að tryggja fjölbreytt og öflugt at-
vinnulíf við nýjar og síbreytilegar að-
stæður. Samtök versl-
unarinnar fagna því
nýafstaðinni endur-
skoðun samkeppnis-
löggjafar og eru í öllum
aðalatriðum samþykk
nýjum samkeppnislög-
um sem afgreidd voru á
síðustu starfsdögum
Alþingis íyrir sumarhlé
og öðlast munu gildi
undir lok þessa árs. Það
er ekki síst með hags-
muni lítilla og meðal-
stórra fyrirtækja að
leiðarljósi sem samtök-
in fagna þeim breyting-
um sem eru í nýju lög-
unum. Með lögunum er
gengið mun lengra en áður við að
banna starfsaðferðir á markaði sem
geta haft samkeppnishamlandi áhrif.
Þá eru íslenskar samkeppnisreglur
lagaðar enn frekar að evrópskum
reglum á þessu sviði sem er mikil-
vægt vegna náinna viðskiptasam-
banda við Evrópuþjóðir.
Microsoft - Dæmið
frá Bandaríkjunum
Nýlega bárust fréttir frá Banda-
rOqunum um kröfu þarlendra dóm-
stóla þess efnis að stórfyrirtækinu
MicroSoft verði skipt upp í tvö aðskil-
in fyrirtæki. Það er fyTst og fremst
vegna samkeppnisreglna þar í landi
sem þessa er lú-afist. Þessi ákvörðun
hlýtur að vekja menn til umhugsun-
ar. Þama er um að ræða stórt og
glæsilegt bandarískt íyrirtæki sem
náð hefur ótrúlegum árangri í sínum
Samkeppnismál
Þrátt fyrir margvíslega
réttarbót í nýju lögun-
um, segir Stefán S.
Guðjónsson, eru sam-
keppnisreglur hérlendis
enn að ýmsu leyti veik-
ari en annars staðar
á Vesturlöndum.
rekstri. Hér er fyrirtæki sem ætti að
vekja upp þjóðarstolt allra Banda-
ríkjamanna líkt og Volvo hjá Svíum
og Nokia hjá Finnum. Engu að síður
fara bandarísk samkeppnisyfirvöld
fram á að fyrirtækinu verði skipt
upp. Það er fyrst og síðast vegna
þeirrar ofuráherslu sem Bandaríkja-
menn leggja á virk samkeppnislög
sem tryggi jöfn samkeppnisskilyrði
miili fyrirtækja og möguleika nýrra
fyrirtækja á að komast inn á markað-
inn sem þessi niðurstaða er fengin.
Mikilvægt
bannákvæði
I eldri lögum er tiltölulega tak-
markað bann lagt við samkeppnis-
hamlandi samstarfi milli fyrirtækja
og í raun er misnotkun þeirra á
markaðsráðandi stöðu ekki bönnuð.
Samkeppnisyfirvöld geta því einung-
is bannað háttsemi eða hegðun, sem
felur í sér misbeitingu á markaðsyfir-
ráðum, eftir á. Þetta hefur leitt til
þess að samkeppnisyfirvöld geta lítt
eða ekki gripið í taumana þótt sam-
runi markaðsráðandi fyrirtækja leiði
til aukinnar fákeppni og dragi úr
samkeppni.
í nýsamþykktum lögum er í meg-
inatriðum horfið frá blönduðu kerfi
bann- og misbeitingarreglna og tekn-
ar upp bannreglur í samræmi við er-
lendar fyrirmyndir. Samkeppnislög-
in eru þannig á margan hátt gerð
skýrari en áður og þannig ættu menn
síður að velkjast í vafa um það fyrir-
fram hvort fyrirhugaðar aðgerðir
þeirra séu leyfilegar eða ekki. Er-
lendir fjárfestar á íslandi geta því
gengið að því vísu að á íslandi gilda
svipaðar samkeppnisreglur og í öðr-
um vestrænum ríkjum.
Efla þarf
Samkeppnisstofnun
Skoðanaskipti um samkeppnismál
og örar breytingar í íslensku við-
skiptalífi sýna að á næstunni mun
reyna verulega á vilja og styrk
stjórnvalda, ekki síst samkeppnisyf-
irvalda, í þessum mikilvæga mála-
flokki.
í Ijósi þess hversu stutt er síðan
samkeppnislög voru sett hér í fyrsta
sinn hefur enn ekki myndast sú hefð
eða dómafordæmi sem aðrar þjóðir
búa að. Segja má að það vanti að
sumu leyti hinar óskrifuðu reglur
samkeppnismálanna. Því er brýnt að
búa vel að Samkeppnisstofnun og
tryggja henni hæft og vel menntað
starfsfólk með sérþekkingu á sviði
samkeppnismála. Þá þarf að auka
samskipti stofnunarinnar við sam-
keppnisyfirvöld austan hafs og vest-
an.
Betur má
ef duga skal
Nýju lögin eru stórt skref í rétta
átt og munu væntanlega skila neyt-
endum góðum ávinningi. Löggjafinn
Samkeppni styrkt
til framtíðar
Stefán S.
Guðjónsson
hefði þó mátt ganga lengra í ýmsum
mikilvægum atriðum, t.d. við að
styrkja heimildir samkeppnisyfir-
valda til að skipta upp markaðsráð-
andi fyrirtækjum sem hafa skaðleg <
áhrif á samkeppni. Staðreyndin er sú
að þrátt fyrir margvíslega réttarbót
eru samkeppnisreglur hérlendis enn
að ýmsu leyti veikari en annars stað-
ar á Vesturlöndum. Sérstaða íslenska
markaðarins, sem felst í smæð hans
og einangrun, ætti hins vegar að
mæla með því að samkeppnisreglur
hér væru harðari og víðtækari en er-
lendis. Það er von Samtaka verslun-
arinnai- að nýja samkeppnislöggjöfin
dugi til að koma á og viðhalda heil-
brigðum viðskiptaháttum á Islandi
en takist það ekki er ljóst að enn
frekari endurskoðunar er þörf.
Höfundur er framkv.slj.
Samtaka verslunarinnar,
félags ísl. stórkaupmanna.
\hreinsunin
gsm 897 3634
Þrif á rimlagluggatjöldum.
SKIPAPLOTUR - INNRETTINGAR
PLÖTUR í LESTAR
J| , |Jj SERVANT PLÖTUR
pp
&CO
SALERNISHOLF
BAÐPIUUR
ELDSHUSBORÐPLÖTUR
Á LAGER-NORSK
HÁGÆÐAVARA
Þ.ÞORGRÍMSSON & CO
ÁRMÚLA 29 S: 553 8640 8 568 6100
LAUGAVEGI - KRINGLUNNI