Morgunblaðið - 30.05.2000, Page 59
MORGUNBLAÐIÐ
UMRÆÐAN
ÞRIÐJUDAGUR 30. MAÍ 2000 59
Ekki skjóta mig, ég er
bara píanóleikarinn!
EN Elton John
syngur líka og semur
afbragðs góð lög, sem
allir þekkja. Fyrir-
sögnin er sótt í smiðju
hans sjálfs og reyndar
Bernie Taupin, sem
lengst af hefur samið
texta við lögin hans
Eltons. Allir þekkja
lagið Candle In the
Wind, sem öðlaðist
nýtt líf með breyttum
texta, þegar Elton
John ákvað að minn-
ast Díönu prinsessu.
Eldri textinn fjallaði
um aðra prinsessu eða
öllu heldur drottningu
ef svo má að orði komast. En það
var kvikmyndaleikkonan og kyn-
táknið Marilyn Monroe, sem átti
fremur óhamingjusama ævi og lézt
sviplega. Lagið er orðið hans fræg-
asta og hefur í heildina selzt í tug-
um milljóna eintaka um allan heim.
Skoði menn feril þessa stórgóða
söngvara, píanóleikara og lagahöf-
undar opnast áhugamönnum um
rokk og popptónlist mikill fjársjóð-
ur, enda hefur Elton John verið af-
kastamikill og iðinn við kolann.
En hver er Elton John? Hann
fæddist 25. marz 1947 í einu út-
hverfa London, sem heitir Pinner.
Hann heitir Reginald Kenneth
Dwight og það var rækilega gert
lýðum kunnugt þegar Elísabet II
Englandsdrottning aðlaði hann
1997 og hann fékk titilinn Sir fyrir
framan skírnarnafnið. Það með
komst hann í fámennan hóp ann-
arra vinsælla tónlistarmanna,
þeirra Cliff Richards og Paul
McCartney. Tónlistarferilinn hófst
snemma. Píanónámið hófst þegar
hann var fjögurra ára og seinna
stundaði hann nám við the Royal
Academy of Music. Sá skóli var
ætlaður hæfileikaríkum börnum.
Fyrsta hljómsveitin hans mun
hafa verið Bluesology. Þrátt fyrir
að hljómsveitin næði ekki neinum
yfirburðavinsældum var hún vís-
bending um það sem koma skyldi.
Hún var stofnuð 1965. Einn liðs-
manna hennar var sá ágæti söngv-
ari og Islandsvinur Long John
Baldry, sem söng á fyrstu plötu
Stuðmanna lagið She Broke My
Heart 10 árum síðar, 1975. Nafnið
Elton John er þannig til komið, að
Elton var tekið frá einum liðs-
manna Bluesology. Sá hét Elton
Dean og síðari hlutinn kom frá
Long John Baldry.
Elton hóf snemma að semja lög í
samvinnu við Bernie Taupin, sem
lagði til textana. Fyrsta lag Eltons,
sem undirritaður man eftir var
Lady Samantha frá 1968. Annað
var lagið Bad Side Of the Moon,
sem hljómsveitin Toe
Fat sendi frá sér 1969.
Það kom síðar út í
flutningi hans sjálfs,
sem b-hlið Border
Song árið 1970.
Vinsældir hans hafa
verið ótrúlegar enda
hefur hann átt lög á
topp 40 vinsældalist-
um samfleytt síðustu
30 árin eða frá 1970
þegar Your Song kom
út. Crocodile Rock
náði fyrsta sæti í
Bandaríkjunum 1972.
Hins vegar mun hann
ekki hafa náð fyrsta
sæti á smáskífulista í
Bretlandi fyrr en 1989 með laginu
Sacrifíce. En hann hefur gefið út
smáskífur, oftast margar á hverju
ári, síðan 1968. Nægir að nefna lög
sem allir þekkja eins og: Rocket
Man ( I Think Iís Going To Be A
Long Long Time) 1972, Daniel,
Saturday Nights Alright (for
Fighting) og Goodbye Yellow Brick
Road, öll frá 1973, Candle In The
Wind, Bennie And The Jets ( kom
aftur út, og þá sem A hlið, 1976) ,
Dont let The Sun Go Down On Me
og Bítlalagið Lucy In The Sky
With Dimonds, öll frá 1974. Frá ár-
inu 1975 eru lögin Someone Saved
My Life Tonight og Island Girl.
Árið eftir kom út lagið Pinball
Wizard. Það lag söng Elton í upp-
færslunni á poppóperunni Tommy,
eftir Pete Townshend úr the Who.
Þá kom einnig dúettinn með Kiki
Dee, sem hann hafði gert samning
við fyrir hönd nýstofnaðs plötufyr-
irtækis síns Rocket Records, Don’t
Go Breaking My Heart, auk Benn-
ie And The Jets og hins stórgóða
Sorry Seems To Be The Hardest
Word.
Tónlist
Ferill Elton John er nú
á uppleið o g hann á
leiðinni til Islands til að
skemmta landanum,
skrifar Ólafur Helgi
Kjartansson. Fyrir þá
sem hafa áhuga á rokki
og poppi er þetta tæki-
færi sem enginn ætti
að láta sér úr greipum
ganga.
Árið 1980 komu út þrjú lög á
smáskífu, samsöngur með John
Lennon af tónleikum. Þetta voru
lögin, I Saw Her Standing There,
Whatever Gets You Through The
Night og Lucy In The Sky With
Dimonds. Frá árinu 1982 er hið
frábæra og ljúfa lag Blue Eyes og
ári seinna komu I Guess Thats
Why They Call It The Blues og ím
Still Standing og 1984 Sad Songs
(Say so Much) og 1985 Nikita, um
rússnesku stúlkuna sem textahöf-
undurinn verður hrifinn af, en veit
þó að hann mun ekki njóta hennar.
Sum þessara laga hafa komið út
aftur og í öðrum útgáfum en 1991
kom út lagið Doht Let The Sun Go
Down On Me og ári síðar í tón-
leikaútgáfu með samsöng þeirra
George Michaels og 1994 Can You
Feel The Love Tonight. Að lokum
er rétt að nefna á ný endurútgáf-
una á Candle In The Wind, sem
fyrr var nefnd.
Maestro
ÞITT FE
HVARSEM
ÞÚ ERT
Ólafur Helgi
Kjartansson
Stórar plötur Elton John eru um
40 ef ekki eru taldar endurútgáfur
og ýmiss konar safnplötur. Á
hverju ári frá 1970 hefur komið út
að minnsta kosti ein plata á ári og
sum árin þrjár, eins og raunin var
1970 og 1971. Önnur árin hafa
komið út tvær eins var á árunum
1973 til og með 1976. Alltof langt
mál yrði að telja upp allar stórskíf-
urnar, en nefna má þá sem lagði til
fyrirsögnina og Goodbye Yellow
Brick Road, sem sækir nafnið í
kvikmyndina um galdrakarlinn frá
Oz. Rétt er þó að nefna nokkrar
sem skera sig úr. Árið 1987 kom út
Live In Australia With The Mel-
bourne Symphony Orchestra, 1993
tvísöngsplatan Duets, en þar kom
meðal annarra við sögu Eric Clapt-
on og 1994 The Lion King Sound-
track og 1999 Elton John and Tim
Ricés Aida.
Ferill Elton John hefur verið
skrautlegur og afköstin með ólík-
indum. Lengi var hann á báðum
áttum með það hvert hann stefndi í
einkalífinu. Á árum áður var hann
þekktur fyrir skrautlega búninga
og sérstaklega fyrir skósafn sitt.
En af öllu öðru bar þó merkilegt
gleraugnasafn hans. Hann gekk
meðal annars með nokkur gler-
augu, sem á höfðu verið settar eins
konar rúðuþurrkur. En það sem
stendur upp úr er óslitinn frægðar-
ferill, stöðugar vinsældir í þrjá ára-
tugi. Það er afrek í heimi þar sem
flestir listamenn, sem til vinsælda
komast eru gleymdir að nokkrum
árum liðnum. Ferill Elton John er
nú á uppleið og hann á leiðinni til
íslands til að skemmta landanum.
Fyrir þá sem hafa áhuga á rokki og
poppi er þetta tækifæri sem enginn
ætti að láta sér úr greipum ganga.
Það er ekki á hverjum degi, sem
Lávarður kemur til Islands til tón-
leikahalds, hvað þá með svo glæsi-
legan feril að baki sem raunin er
með Sir Reginald, sem við þekkj-
um betur undir nafninu Elton
John.
Að lokum skal þess getið fyrir þá
sem vilja kynna sér tónlistarferil-
inn að til er fyrirtaks fjögurra
plötu kassi, sem kom út árið 1991
undir heitinu To Be Continued...
Kjarni málsins er þó sá, að allir
þekkja lögin hans og geta sungið
með. Uppstigningardagur 1. júni
2000 verður því góður þeim sem
fara og hlusta á Elton John á
Laugardalsvellinum og einstakt
tækifæri fjrrir áhugamenn um tón-
list.
Höfundur er sýslumaður og
áhugamaður um dægurtónlist.
Tilkynning um viöauka viö útboðslýsingu
íslenska Hugbúnaöarsjóösins hf.
íslenski Hugbúnaðarsjóðurinn hf.
Viðauki við útboðslýsingu
Nú stendur yfir útboð á nýju hlutafé í íslenska
Hugbúnaðarsjóðnum hf. að fjárhæð allt að
117.550.836 kr. að nafnverði.
Útboðið hófst þann 19. maí sl. og stendur til 2. júní
næstkomandi.
Vegna fjárfestinga félagsins sem átt hafa sér stað á útboðs-
tímabilinu hefur verið birtur viðauki viö áður birta útboðs-
lýsingu. Líta skal á viðaukann sem hluta af útboöslýsingu.
Viðaukinn veröur sendur forgangsréttarhöfum og þingaðilum
en einnig er hægt aö nálgast hann hjá viöskiptastofu
Landsbanka íslands hf. og á vefsíöunum www.ishug.is og
www.landsbanki.is.
VTTAMIN <
tr.
vega
Vega kemur þér beint að efninu!
í Vega fæðubótarefnum er hvorki
matarlím (gelatína) nétilbúin
aukefni, litarefni, bragðefni eða
rotvarnarefni. Ennfremur
innihalda þau ekki korn, hveiti,
glúten, sykur, sterkju, salt, ger eða
mjólkurafurðir.
ICIIINAUA
1 ■S'HÍTHVBU
I
ííinkc;o
CÍINStNG
ÓIWklAM
* MWBJUÍBZ&
, tviíNiNc; „
fKIMKOSI: OH
1 flttjgQggy^''
SOVA LKTIHIN
7„„/.
I ÍLÍÍXSÁSSHSl
Sólhattur Súrefni. Stress Kvöldvorrósarolia Blóð Andoxun
Styrkur Háræðar. Höfuð. Einbeiting Húð. Liðir Taugar Tannhold
Vörn Útlimir. Minni Breytingaskeið Upptakajárns
Vega dagur í Lyfju Lágmúla -
Ráðgjöf frá kl. 14-17 í dag
tm p
hjálpartil við að ná kjörþyngd.
Kelp eru þaratöflur sem innihalda m.a.
spirulina, chlorella og graent te.
Einstök samsetning, auðug af
vítamínum og steinefnum, sérstaklega
gott fyrir húð og hár.
P LYFJA
Lyf á lágmarksverði
Lyfja Lágmúla • Lyfja Hamraborg*
Lyfja Setbergi • Útibú Grindavík®
____________________________/