Morgunblaðið - 30.05.2000, Page 69
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 30. MAÍ 2000 69
I DAG
BRIPS
IJmsjón Guðmundnr
I’áll Arnarson
UM síðustu helgi fór fram
velglegt æfingamót lands-
liðanna vegna komandi
átaka í sumar - Vormót BSÍ
- og voru lögð að baki 110
spil á þremur dögum. Að
hinum 109 spilunum ólöst-
uðum verður að líta svo á að
eftirfarandi spil hafi sett
mestan svip á mótið:
Suður gefur; AV á hættu.
Norður
* 643
¥ DG1073
♦ G105
+ 75
Vestur
+ ÁK10975
¥ 9
♦ ÁKD986
+ -
Austur
+ DG82
¥ 642
♦ 42
* G1082
Suður
+ -
¥ ÁK85
♦ 73
+ ÁKD9643
Það er fljótséð að sex
spaðar eru borðleggjandi í
AV, en á móti kemur að NS
eiga mjög ódýra fórn í sjö
lauf eða sjö hjörtu. Spilað
var á tólf borðum og var al-
gengast að AV fengju að
spila hálfslemmu í spaða,
stundum jafnvel doblaða, en
á nokkrum borðum fundu
NS að fórna í sjö lauf. Á einu
borðinu áttust við landsliðs-
pörin Magnús Magnússon
og Þröstur Ingimarsson,
sem voru í NS, og bræðurn-
ir Anton og Sigurbjörn
Haraldssynir. Sagnir fóru
i'ólega af stað: Þröstur vakti
í suður á Standard-laufi og
Anton lét duga að stinga inn
einum spaða. Svo fór að fær-
ast fjör í leikinn:
Vestur Norður Austur Suður
Anton Magnús Sigurbjörn Þröstur
- - - llauf
lspaði Pass 2 spaðar 3spaðar
5 lauf Pass 5 tíglar 5 hjörtu
6 spaðar Dobl Pass Allirpass Pass 71auf
Þegar Anton fær spaðann
studdan ákveður hann strax
að sex spaðar séu lágmarks-
sögn, en sjö geti unnist ef
makker á hjartaás og spaða-
drottningu. En á þessu stigi
málsins hefur Þröstur líka
mikinn metnað fyrir hönd
sinna spila og krefur með
þremur spöðum ofan í lit
mótherjanna. Þá grípur
Anton til nýtísku vopns,
sem margir nota núorðið og
heitir á ensku „Voidwood".
Með stökkinu í fimm lauf er
hann að spyrja um lykilspil
fyrir utan laufið (sem þýðir
að hann er með eyðu í laufi).
Sigurbjörn neitar ás með
svarinu á fimm tíglum og
Þröstur skýtur inn hjarta-
sögn, ekki síst til að benda á
útspil. Anton fer þá í hálf-
slemmu og nú tekur Þröstur
mjög góða ákvörðun, að
fórna í sjö lauf. Hann sér að
vörnin á engan slag á lauf og
reiknar með að Anton eigi
aðeins eitt hjarta. Allt rétt.
Og ekki nóg með það; nú er
laufslagur varnarinnar far-
inn fyrir lítið, því eyðan er
upplýst og þess vegna ein-
falt mál að djúpsvína níunni.
Anton tók tvo fyrstu slagina
á ÁK í tígili, en síðan komst
Þröstur að og notaði inn-
komurnar á hjarta til að
svina fyrir GlOxx í trompi.
Ast er...
... kelerí úti í horni.
Arnað heilla
fr A ÁRA afmæli og 60 ÁRA afmæli. I dag, þriðjudaginn
O V/ 30. maí, verður fimmtug Unnur Aðalheiður Ágústs-
dóttir, aðstoðarstaðarhaldari og veitingamaður íMunaðar-
nesi og 24. júní næstkomandi verður sextugur Krislján Frí-
mann Tryggvason, staðarhaldari í Munaðarnesi. í tilefni
afmæla beggja taka þau á móti gestum frá kl. 20 laugardag-
inn 3. júní í Veitingahúsi við Vörðuás í þjónustumiðstöð
BSRB í Munaðarnesi.
Morgunblaðið/Kristinn
Þessi duglegi drengur, Hjörtur Þorgeirsson, safnaði
kr. 1.142 til styrktar Rauða kross íslands.
Ljósmynd/Aðalheiður, fréttaritari Hellu
Þessir krakkar, sem allir eiga heima í Þykkvabæ,
héldu tombólu fyrir stuttu og afhentu afraksturinn
4.018 kr. Hjálparstarfi kirkjunnar til styrktar börn-
um á Indlandi. F.v.: Glódis M. Guðmundsdóttir,
Helgi Ármannsson og fna K. Markúsdóttir.
Raddirframtíöar
Raddir notum við til að kaita á hjálp.
Ólafur Frímann, Holtaborg.
UOÐABROT
BARMAHLIÐ
Hlíðin mín fríða
hjalla meður græna,
blágresið blíða,
berjalautu væna,
á þér ástaraugu
ungur réð ég festa,
blómmóðir bezta!
Sá ég sól roða
síð um þína hjalla
og birtu boða
brúnum snemma fjalla.
Skuggi skauzt úr lautu,
skreið und gráa steina
leitandi leyna.
Blómmóðir bezta,
beztujarðargæða
gafþérfjöld flesta
faðir mildur hæða.
Hver mun svo, er sér þig,
sálar þjáður dofa,
að gleymi guð lofa?
Hlíð þér um haga
hlýr æ blási andi,
döggvi vordaga
dögg þig sifrjóvgandi!
Um þig aldrei næði,
af þér svo að kali,
vetur vindsvali!
Jón Þ. Thoroddsen.
STJÖRNUSPÆ
eltir Frances Drake
*
TVÍBURAR
Afmælisbarn dagsins:
Öryggi þitt og þinna
nánustu er þér fyrir öllu
ogþú leggur þig í framkróka
um að heimilið sé griðastað-
ur fjölskyldunnar.
Hrútur
(21. mars -19. apríl)
Gefðu þér tíma til þess að
leysa verkefni dagsins vel af
hendi. Það er betra að einhver
sitji eftir heldur en allt sé leyst
með ófullnægjandi hætti.
Naut
(20. apríl - 20. maí)
Það er ekkert að því að kveðja
fleiri til, þegar vandasöm verk
eru á döfinni. Margar hendur
vinna létt verk og einnig sjá
augu betur en auga.
Tvíburar .
(21. maí - 20. júní) AA
Það er ekkert eins vandræða-
legt og þegar reynt er að veifa
röngu tré frekar en öngvu.
Undirbúðu mál þitt vel svo
hlutur þinn verði sem beztur.
Krabbi ^
(21.júní-22. júlí)
Þú þarft alltaf að vera búinn
undir óvænt kynni, stundum
reynast þau ánægjuleg, en
stundum er það á hinn veginn.
Þá er það þolinmæðin sem
blívur.
Ljón
(23. júlí - 22. ágúst) M
Sum reynsla er mjög dýr-
keypt og vafasamt hvort það
er þess virði að sækjast eftir
henni. Leggðu málin vel niður
fyiir þér áður en þú ákveður
þig-
Meyja **
(23. ágúst - 22. sept.) <D$L
Reyndu að sýna samstarfs-
mönnum þínum skilning, þótt
ekki séu þeir jafnfullkomnir
og þú sjálfur. Þeir hafa líka
sínar góðu hliðar sem vert er
að kynnast.
Vog xrx
(23.sept.-22.okt.)
Dagurinnn á eftir að reynast
þér erfiður og engu líkari en
að þú sitjir Iöngum stundum
fastur í umferðarhnút. Haltu
ró þinni hvað sem á dynur.
Sporðdreki ^
(23. okt. - 21. nóv.) MR
Sumir dagar eru gjöfulli en
aðrir og þessi færir þér ýmis
tækifæri. Vandinn er bara að
þekkja þau, skilja, og grípa þá
gæsina, sem best er.
Bogmaður m ^
(22. nóv. - 21. des.)
Allt orkar tvímælis þá sagt er.
Reyndu samt að vanda svo mál
þitt og röksemdafærslu að
áheyrendur þurfi ekki að velkj-
ast í vafa um skoðanir þínar.
Steingeit
(22. des. -19. janúar) Jp
Það mun reyna verulega á þig
í dag, þegar beiðni um aðstoð
berst úr óvæntri átt. En vertu
bara þú sjálfur og þá stenztu
prófið með ágætum.
Vatnsberi f «
(20. jan. -18. febr.) Csot
Það gengur ekki að að drottna
einn yfir öllu, þegar um sam-
starf við aðra er að ræða.
Sýndu hinum þann skilning
sem þú vilt sjáfur njóta hjá
þeim.
Fiskar
(19. feb. - 20. mars)
Miklar breytingar liggja í loft-
inu og ef þú heldur vel á spöð-
unum, verða þær þér til fram-
dráttar. Það er tímabært að
byrja með hreinan skjöld.
Stjömuspána á að lesa sem
dægradvöl. Spár af þessu tagi
eru ekki byggðar á traustum
grunni vísindalegra staðreynda.
:
Granville
Ryðvamarlausn
v—r _ jw __
ARVIK
ÁRMÚLA 1 • SIMI 568 7222 • FAX 568 7295
Tm Wi
Gri ll-spr ay
Svart
Þolir 600*C
Rautt
Þollr 300°C
ARVIK
ÁRMÚLA 1 • SlMI 568 7222 • FAX 568 7295
Veríð velkomnar
( NÝJA VERSLUN MEÐ VANDAÐAR VÖRUR FRÁ S.©íil/e»’ ( ÞÝSKALANDI!
15% AFSLÁTTUR AF PEVSUM OG DRÖGTUM
ÞESSAVIKU.
flott- föt
Hlíðasméra 17, Kópavosi,
sími 554 7300.
Opið 10—18, lau. 10—16
Nýjar vörur f hverri viku
Verðdæmi:
Jakkar frá kr. 4.900
Pils frá kr. 2.900
Buxur frá kr. 1.690
Bolir frá kr. 1.500
Kvartbuxur kr. 2.500
Stuttbuxur og
bermudabuxur frá kr. 1.900
Alltaf sama góða verðið!
Nýbýlavegi 12, Kóp., s. 554 4433.
Léttu líf
lund
Það nær enginn kjör-
þyngd á augabragði.
Hreyfing gerir gagn.
Þú finnur fljótlega
að úthaldið eykst og
iíkaminn styrkist.
Lífið verður skemmtilegra
ef þú hreyfir þig reglulega
og borðar léttan,
hollan og góðan mat,
ávexti og grænmeti.
Ekki ofgera þér. Settu þér raunhæf markmið með skemmtilegri hreyf-
ingu. Rösk ganga í hálftíma á dag gerir mikið gagn.
Njóttu fjölbreyttrar hreyfingar í góðum félagsskap. Sundlaugarferð
með fjölskyldunni, hjólreiðatúr eða ærslaleikir með börnunum létta
lund og auka samheldnina.
Göngum 2000 skref til móts við heilbrigði og hreysti 27. maí
Landlæknisembættið
Nánari upplýsingar á www.landlaeknir.is
Fræðsluauglýsing frá Landlæknisembættinu www.landlaeknir.is
Fréttir á Netinu {mj mbl.is ALLTAf= EITTH\SAG NÝTl