Morgunblaðið - 30.05.2000, Side 74

Morgunblaðið - 30.05.2000, Side 74
ÞRIÐJUDAGUR 30. MAÍ 2000 MORGUNBLAÐIÐ FOLKI FRETTUM ERLENDAR ★★★ Sigurður Sverrisson báru- járnssérfræðingur skrifar um nýjustu plötu Iron Maiden, „Brave New World". Martröðin á enda því Bruce er mættur á ný Iron Maiden. Ginkgo Biloba Eykur blóðstreymið út í fínustu æðarnar .Éh eilsuhúsið Skðlavöröustíg, Kringlunni, Smáratorgi - „Hvar er draumurinn?" spyr Stef- án Hilmarsson í frægu lagi með Sál- inni. Þessarar sömu spurningar hafa aðdáendur Iron Maiden spurt sig allt frá þeim degi er Bruce Dickinson sagði skilið við sveitina. A gullskeiði hennar var Maiden sann- arlega draumur þungarokksun- nandans. Brokkandi bassaleikur Steve Harris og snarpur trommu- leikur Nicko McBrain kyntu undir leiftrandi gítarleik þeirra Dave Murray og Adrian Smith og í fremstu víglínu stóð Bruce Dickin- son og söng eins og skrattinn væri á hælum hans. Reiðskólinn Hrauni Grímsnesi sumarið 2000 ...þar sem hestamennskan hefst! Námsk. Tímabil Stig 1. 5. júní - 11. júní 2. 15. júní - 21. júní 3. 27. júní - 3. júlí 4. 5. 6. 7. Il.júlí- 17. júlí 20. júlí - 26. júlí 29. júlí - 4. ág. 9. ág. - 15. ág. I. I. og II. I. I. og II. I. I. og III. II. og III. stig eru fyrir nemendur sem lokið hafa I. stigi. Símar 567 1631 og 897 1992 Netfang: rh@mi.is £2 Töltheimar gefa öllum I nemendum I heTmar I gjöf! Guinot kynnir Brún án sólar! • Komdu og prófaðu, berum á þig á morgun frá kl. 13—18, frítt. # Kynnum einnig nýjungar frá Guinot. f Glaðningur fylgir GuiNOT vörum. Öny/ttistojan ‘x^Stimd Grænatúni, Kópavogi. Þegar Blayze Bayley tók hins vegar við hljóðnemanum af Dickin- son upphófst skeið sem líkja má við martröð af verstu gerð. Og í raun má það heita kraftaverk að Iron Maiden skuli hafa þrifist í tæpan áratug með þennan handónýta söngvara. Hundalíf var það reynd- ar. En martröðin er á enda — Bruce er mættur á ný! Til að bæta enn um betur státar flokkurinn nú af þrem- ur gítarleikurum því Janick Gers hélt stöðu sinni þrátt fyrir endur- komu Adrian Smith, sem Gers leysti á sínum tíma af hólmi. Maiden er því orðin sextett. Nærvera Dickinson leynir sér ekki á Brave New World. Þótt hann sé ekki skráður fyrir hlut nema í fjórum laganna, The Wicker Man, Ghost Of The Navigator, Brave New World og Out Of The Silent Planet, mynda þau sterkasta hluta disksins ásamt The Nomad. Bruce hefur næmt eyra fyrir grípandi við- lögum eins og hann sýndi svo ítrek- að á sólóferli sínum og þau færa lög- unum hér yfirbragð sem sárt hefur verið saknað um margra ára skeið. Og hvað sönginn áhrærir hefur þessi Eiríkur Hauksson Englands engu gleymt. Staðreyndirnar tala líka sínu máli; án Dickinson er Mai- den hvorki fugl né fiskur. Brave New World er í raun eins dæmigerður diskur frá Maiden og nokkur getur vænst. Lögin eru öll löng (ekkert styttra en 4 mínútur, tvö yfir 9 mínútur að lengd og fimm til viðbótar lengri en 6 mínútur!) og diskurinn spannar tæplega 67 mín- útur í heildina. Ef Metallica er und- anskilin tekst engri sveit jafn vel upp í löngum, kaflaskiptum rokk- lögum og Maiden. Iron Maiden fetar á þessum nýja diski í fótspor AC/DC, þ.e. leitar aftur til gulláranna í þeirri viðleitni sinni að endurvekja forna frægð. Angusi Young og félögum tekst frá- bærlega upp á Stiff Upper Lip en Maiden nær ekki alveg eins góðum árangri. Brave New World er þó tvi- mælalaust besta verk þessara merkisbera hinnar svokölluðu nýju, bresku þungarokksbylgju í 15 ár - allt frá því meistarastykkið Powerslave kom út 1985. Powerslave-áhrifanna gætir víða á Brave New World. Ekki einasta er titill lagsins Ghost Of The Navigat- or stæling á Sæfararímum (Rime Of The Ancient Mariner) heldur má vel heyra litla hluta þess snilldarverks hér og þar á nýja diskinum. Hann stenst þó ekki fyllilega samanburð við Powerslave, aðallega vegna þess að snöggu blettirnir eru hér fleiri en þar. Brave New World er engu að síður eigulegur gripur fyrir rokk- hunda af gamla skólanum (og jafn- vel einhverja yngri líka!). Vandaður 20 síðna pési er að baki myndinni sem prýðir hulstrið og þar má glöggt sjá hversu stórt hlutverk óbermið Eddie hefur leikið í ímynd- arsköpun Maiden. Þetta hugarfóst- ur Derek Riggs lætur ekkert á sjá þótt allir í kringum hann eldist og Eddie tekur stöðugt á sig nýjar hryllingsmyndir. Og þótt tónlist Maiden grípi Korn-kynslóðina kannski ekki heljartökum í einu vet- fangi er ég illa svikinn ef óbermið á ekki greiðan aðgang að þeim hópi úr því furðufígúrur á borð við Marilyn Manson og Slipknot-gengið ríða þar húsum. Þegar öllu er á botninn hvolft er Brave New World diskur sem stendur vel undir væntingum. Haldi sextettinn uppteknum hætti geta aðdáendur gert sér vonir um að fyrri frægð verði endanlega endur- heimt með næsta diski. MYNPBOND Sannkölluð fjölskyldu- mynd JÁRNRISINN (The Iron Giant) Teiknimynd ★★★ Leikstjórn og handrit: Brid Bird. Leikraddir: Hilmir Snær Guðnason, Atli Rafn Sigurðarson. (87 mín.) Bandaríkin _1999. Sam-myndbönd. Öllum leyfð. JARNRISINN er sannkölluð mynd fyrir alla fjölskylduna. Það er nokkur sem rétt er að taka fram strax. Fyrir utan að vera einkar smellin fyrir börn höfðar hún ef eitthvað er frekar til barnanna í fullorðnum heldur en margar Disn- ey-myndanna. Það er kannski helst vegna þess að þrátt fyrir ævin- týralegan for- grunn er baksvið sögunnar sem hér er sögð í frekari tengslum við raunveruleikann en oft áður. Skír- skotanir í mann- kynssöguna, þ.e. hræðsla fólks við kjarnorkuvána þegar kalda stríðið var í algleym- ingi undir lok sjötta áratugarins, og hvernig hún er fléttuð saman við sjálft ævintýrið eru afar skemmtilega útfærðar og gefa myndinni aukna vigt, án þess þó að skemmtanagildinu sé á nokkurn hátt stefnt í voða. Þessi hlið mynd- arinnar ætti að höfða sérstaklega til hinna fullorðnu en börnin sjá hana síðan með allt öðrum augum og skemmta sér lítið síður. Það vottaði tíu ára gömul mágkona mín sem var svo góð að skoða hana með mér. Því sá hún heldur ekki eftir og bæði hlógum við margoft upphátt yfir þessari skemmtilegu og hlýlegu teiknimynd sem fær okkar bestu meðmæli. Skarphéðinn Guðmundsson Rokkað í Detroit Allt í botni (Full Blast) Spennnmynd ★★ Leiksljórn og handrit: E.S. Mintz. Aðalhlutverk: Traci Lords, David Carradine og Michael Wylie. (90 mín) Bandaríkin, 1997. Skífan. Bönnuð innan 16 ára. C-VÆSnin * T SnckciM ls - r- .- Oftjr&n Apótekin "Allir á völlirml" l.júni klukkan 18:00 ISLANDSBANKI dagar í Elton John Miðasala í hraðbönkum í útibúum Islandsbanka SÍMINNlnternet’ |§ 07 í upphafi virðist sem hér sé áferð- inni enn ein Tarantino-eftirherman en myndin skiptir fljótlega um gír og reynist fjalla um óháða tónlistargeir- ann í Detroit, þó frásögnin sé einnig skreytt undarleg- um aukapersónum í anda Tarantinos. Byrjendabragur einkennir alla fleti myndarinnar og því er ekki beinlínis hægt að mæla með Allt I botni, en hún er þó forvitnileg fyrir ýmsar sakir. Sem augljóst byrjendaverk hefur hún yfir sér ákveðinn sjarma og gam- an er að fylgjast með aðalleikurunum tveimur, þeim David Carradine og Traci Lords, sem án efa voru ráðin sökum þess að nöfn þeirra eru frekar þekkt en launakröfur lágar. Carradi- ne tilheyrir hinni þekktu leikarafjöl- skyldu og er sjálfur þaulvanur B- mynda leikari. Á hinn bóginn er Lords best þekkt sem klámmyndast- jarna en hefur nú snúið við blaðinu. Hvorugt getur í raun leikið en bæði hafa ákveðna viðveru sem gerir frammistöðu þeirra áhorfanlega. Tónlistin er síðan það sem sameinar allar hinar ólíku persónur frásagnar- innar en myndin er öðrum þræði óð- ur til rokkborgarinnar Detroit. Heiða Jóhannsdóttir

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.