Morgunblaðið - 30.05.2000, Blaðsíða 76
t;j[6 ÞRIÐJUDAGUR 30. MAÍ 2000
MORGUNBLAÐIÐ
r',-, ,) haskolabió
HASKOIABIO ■ W
wsá&k malSk aaaifllni sáMM&lkn sia*mnk 1
FYRIR
990 PUNKTA
FERDU IBÍÓ
w Perry fer á kostum
Mot>
Tákkiö ykkur inn á Milijón Dollara Hóteliö ng sjáiö
magnaöa mynd meöfrábærum lögum U2 og Bonn og hin-
um eina sanna Mel Gibson í aðalhlutverki.
gegnum VITið. Nánari
upplýsingar á
Kaupið miða í
Forðunarfræðingur
NO NAME
veitir ráðleggingar
Miðvikud. 31. maí
Oculus
Austurstræti 3
Reykjavík, kl. 12-18
Spes
Háaleitisbraut 58 60
Reykjavík, kl. 14—18
Silla Make up studio
Firðinum, Hafnarfirði
kl. 14—18
Lesendur Empire dska þess að Robin Williams fari að róa sig í væmninni og William H. Macy sjáist oftar á hvíta tjaldinu.
Lesendakönnun kvikmyndatímaritsins Empire
Burt með
væminn Willi-
ams o g ódauð-
lega óþokka
BRESKA kvikmyndatímaritið
Empire gerði á dögunum
allsherjar könnun meðal les-
enda sinna á stöðu kvikmyndanna á
mótum tveggja alda; hvað upp úr
hefur staðið á öld líðandi og hvað
standa mun upp úr á þeirri næstu,
hvað miður hefur farið og hvað má
missa sín, hvaða einstaklingar voru
og verða mikilvægastir og síðast en
ekki síst voru lesendur beðnir um að
leiðbeina ráðamönnum í Hollywood
um hvemig myndimar skulu vera
sem beðið er með mestri eftirvænt-
ingu.
Öld
Spielbergs
Að mati lesenda Empire var öldin
tuttugasta öld Stevens Spielbergs.
Hann er talinn mikilvægasti kvik-
myndaleikstjóri aldarinnar, mikil-
vægari en Hitchcock, Scorsese,
Welles og Kubrick sem koma honum
næstir. Spielberg er enn fremur tal-
inn sá einstaklingur í kvikmyndaiðn-
aðinum sem er mest ómissandi og
menn vilja helst að Indiana Jones
serían hans verði endurvakin af öll-
um seríum.
Robert De Niro er mikilvægasti
leikari tuttugustu aldar í könnuninni
og Harrison Ford kemur honum
næstur. Athygli vekur að enginn
þeirra tíu leikara sem taldir em þeir
mikilvægustu á síðustu öld er fædd-
ur á síðari helmingi aldarinnar.
Hinn kornungi Haley Joel Osment
úr Sjötta skilningarvitinu er talinn
líklegastur til að skara fram úr á öld
komandi. Edward Norton kemur
honum næstur, því næst Russell
Crowe og síðan Jude Law en þessir
fjórir heiðursmenn fengu afgerandi
kosningu. Natalie Portman er efni-
legasta leikkonan að mati Empire
lesenda og lenti í sjötta sæti á heild-
arlistanum yfir efnilegustu leikar-
ana.
Núverandi Óskarsverðlaunahafi
fyrir myndina Amerísk fegurð, Bret-
inn Sam Mendes, er talinn efnileg-
asti leikstjórinn en hann á einungis
þessa einu mynd að baki. Wach-
owski-bræður sem fengu menn til að
standa á öndinni með rússíbanaferð-
inni „The Matrix" koma næstir,
Spike Jonze, sem hefur myndina
frumlegu „Being John Malkovich"
undir belti auk fjölda tónlistar-
myndbanda, m.a. við lög Bjarkar, er
þríðji efnilegasti leikstjórinn og sá
fjórði er David Fincher, leikstjóri
„Seven“ og „Fight Club“.
í fimmta sæti er síðan Bretinn
Guy Ritchie sem gerði „Lock, Stock
and Two Smoking Barrels" en er
kunnari um þessar mundir sem mað-
urinn sem virðist ætla að tolla með
Madonnu. Lesendur Empire virðast
hins vegar litla trú hafa á kvenþjóð-
inni því enginn fulltrúi hennar er á
lista yfir tíu efnilegustu kvikmynda-
leikstjórana.
Meira af Macy en sleppa
Schwarzenegger
William H. Macy var hvorki kos-
inn kynþokkafyllsti leikarinn né
kræsilegasti kroppurinn og ekki
heldur Morgan gamli Freeman. En
samt sem áður vilja kvikmyndaunn-
endur helst sjá þessum stórleikurum
bregða oftar fyrir á hvíta tjaldinu.
Heyrirðu það Hollywood!
Hins vegar má alveg fara minna
fyrir eftirfarandi leiðu bíótuggum:
Robin Williams í væmnum hlutverk-
um á borð við „Patch Adams“ og
„What Dreams May Come“, persón-
um sem hafa óbeit hvor á annarri í
upphafi myndar en verða síðan bestu
mátar, aumingja sem stendur uppi
sem ólíklegur sigurvegar þrátt fyrir
mikið og ósanngjarnt mótlæti, atrið-
um þar sem vondi maðurinn virðist
vera dauður en er síðan lifandi eftir
allt saman og síðast en ekki síst
finnst kvikmyndaunnendum orðræð-
ur um gamlar bíómyndir orðnar ansi
þreyttar.
Síðasta hasarhetjan Schwarzen-
egger virðist eiga verulega undir
högg að sækja því lesendum Empire
þykir hann oflaunaður og alveg
mega fara að íhuga að setjast í helg-
an stein. Aðrir oflaunaðir leikarar
eru Demi Moore og Adam Sandler.
Ut með Jar Jar Binks,
inn með Chewbacca
Sú mynd sem beðið er með mestri
eftirvæntingu er annar hluti
Stjömustríðslanglokunnar og rétt
rúmur helmingur aðspurðra vill að
George Lucas leikstýri honum. Ólík-
legt þykir þó að Lucas hafi áhuga á
að setjast í stólinn og færi svo að
hann láti öðrum eftir leikstjómina þá
vilja flestir vin hans Spielberg. Af
öllum gömlu Stjörnustríðspersónun-
um bíða menn Chewbacca með
mestri eftirvæntingu en meirihluti
þeirra vill hins vegar ekki sjá Jar Jar
Binks framar. Aumingja Jar Jar!
Því er spáð að nýtt ofurmennaæði
sé innan seilingar með nýjum mynd-
um um sjálfa Súperman og Köngu-
lóarmanninn. Helst vilja menn að
Nicholas Cage bregði á sig rauðu
Súperman skikkjunni og ef ekki
hann þá Ben Affleck, sem einnig er
efstur á óskalista manna sem næsti
Köngulóarmaðurinn. Bond, James
Bond, er litlu síðra ofurmenni þótt
grímubúninginn vanti. Pierce Brosn-
an hefur lýst því yfir að hann ætli
ekki að leika njósnarann hugum-
stóra mikið lengur og vilja lesendur
Empire helst sjá breska leikarann
Jude Law taka við Martini glasinu.
Taktu eftir fröken Hollywood, þeir
sem borga launin þín hafa mælt!