Morgunblaðið - 09.07.2000, Page 4
4 SUNNUDAGUR 9. JÚLÍ 2000
FRETTIR
MORGUNBLAÐIÐ
VIKAN2/7-8/7
► Ari Skúlason, fram-
kvæmdastjóri ASI, segir að
sér sýnist allt benda til
þess að uppsagnarákvæði
kjarasamninga verði virkt
vegna verðlagsþróunar
undanfarið. Hann segir
þurfa nánast kraftaverk tU
að verðlagsforsendur
kjarasamninga bresti ekki
um áramót, í kjölfar verð-
hækkana undanfarið.
► Landsmót hestamanna
stendur nú yfir í Víðidal í
Reykjavík. Þetta er í fyrsta
sinn sem mótið er haldið í
höfuðborginni.
► Sljórnvöld hafa ákveðið
að veita 75 milljónir til
byggingar vistmenningar-
húss í Sólheimum í Gríms-
nesi. I vikunni var haldið
upp á 70 ára afmæli Sól-
heima að viðstöddu fjöl-
menni og við það tækifæri
var Inguhús formlega tek-
ið í notkun.
► Héraðsdómur Reykja-
víkur dæmdi ellefu menn í
fangelsi í vikunni, fyrir að
smygla 4000 e-töflum til
landsins, dreifa þeim og
selja. Sá sem þyngstan
dóminn hlaut var dæmdur í
sjö ára fangelsi.
► Til stendur að sameina
Isfélag Vestmannaeyja hf.
og Vinnslustöðina hf. í
Vestmannaeyjum og mun
hið nýja félag bera nafnið
Isfélag Vestmannaeyja.
Aflaheimildir þess eru um
22 þúsund tonn í þorsk-
ígildum, en verðmæti þess
er um 22 milljarðar króna.
Með þessu verður til eitt
stærsta útgerðar- og fisk-
vinnslufyrirtæki landsins.
Sjóvá-Almennar
hækka bflatryggingar
um 29%
Iðgjöld á lögboðnum ökutækjatrygg-
ingum hjá Sjóvá-Almennum hækkuðu
um 29% að meðaltali í vikunni og Kas-
kótryggingar um 15%. Einar Sveins-
son framkvæmdastjóri Sjóvár-Al-
mennra segir að hækkunina megi
rekja til stóraukinnar tjónatíðni auk
þess sem kostnaður við hvert tjón hafi
aukist talsvert. Hækkanir á iðgjöldum
eru fyrirhugaðar hjá öðrum trygg-
ingafélögum.
Ari Skúlason framkvæmdastjóri
ASÍ segir boðaða hækkun þessara
trygginga vond skilaboð frá aðila inn-
an Samtaka atvinnulífsins.
36% hækkun á
flugvélabensíni
Flugvélabensín hækkaði um 36% í
verði um mánaðamótin. Að sögn Krist-
ins Björnssonar forstjóra Skeljungs er
um að ræða hækkun á flugvélabensíni
sem fyrst og fremst er sett á einka-
flugvélar en ekki vélar í millilanda- og
innanlandsflugi.
Hjartaþræðingartæki
keypt fyrir framlag
Jónínu S. Gísladóttur
Jónína S. Gísladóttir hefur lagt fram
200 milljónir króna sem stofnfé í gjafa-
og styrktarsjóð sem ber nafn hennar.
Sjóðurinn hefur það meginhlutverk að
efla hjartalækningar á Landspítala
-háskólasjúkrahúsi og styrkja og
vinna að velferð hjartasjúklinga.
Akveðið hefur verið að kaupa nýtt og
fullkomið hjartaþræðingartæki fyrir
fyrsta framlag úr sjóðnum.
Nýr forseti Mexíkó
MEIRA en sjö áratuga einræði PRI-
flokksins í Mexíkó lauk í vikunni er
frambjóðandi íhaldsflokksins, Vicente
Fox, bar sigur úr býtum í forsetakosn-
ingum í landinu. Sigraði Fox með um
38% atkvæða en aðalandstæðingur
hans, PRI-liðsmaðurinn Francisco
Labastida, hlaut um 35% atkvæða.
Eru úrslitin talin vera jafn afdrifarík
þáttaskil í sögu Mexíkó og hrun
kommúnismans var fyrir Rússa.
Stuðningsmenn Fox fögnuðu úrslit-
unum ákaft og innilega á götum úti á
mánudag og markaðir hafa tekið
fregnum af sigri Fox afar vel og alla
vikuna hækkaði gengi hlutabréfa.
Fox hefur lofað nýju efnahagsundri
og kveðst ætla að stuðla að 7% hag-
vexti, koma verðbólgunni í 2% og
skapa 1,3 milljónir nýrra starfa. Þá
hefur hann heitið því að uppræta land-
læga spillingu innan mexíkóska
stjómkerfisins, bæta kjör hinna fá-
tæku og stuðla að réttlátri skiptingu
þjóðarauðsins.
Friðarfundur ísraela
og Palestínumanna
BILL Clinton Bandaríkjaforseti til-
kynnti á miðvikudag að leiðtogar ísra-
els og Palestínumanna myndu koma til
fundar til sfn í Camp David í Banda-
ríkjunum í næstu viku í því skyni að
greiða fyrir því að endanlegt sam-
komulag næðist fyrir botni Miðjarðar-
hafs fyrir miðjan september nk.
Frelsissamtök Palestínu (PLO)
lýstu því yfir á þriðjudag að Palestínu-
menn myndu lýsa yfir stofnun sjálf-
stæðs palestínsks ríkis þann 13. sept-
ember nk. ísraelsmenn brugðust
ókvæða við yfirlýsingu Palestínu-
manna og sagði David Levy utanríkis-
ráðherra að sjálfstæðisyfirlýsing
þýddi að friðarferlið væri úr sögunni.
► JÚGÓSLAVNESKA
þingið samþykkti á fímmtu-
dag breytingar á sljómar-
skrá landsins sem gera
munu Slobodan Milosevic
forseta kleift að silja tvö
kjörtímabil til viðbótar. Þá
var ennfremur samþykkt
að breyta tilhögun þing-
kosninga sem leiða mun til
þess að fulltrúar Svart-
ljallalands, annars sam-
bandsrfkis Júgóslaviu, hafí
minna vægi en áður. Svart-
fellingar telja að verið sé að
vega að þeim og samþykkti
þing landsins á föstudag að
hafna breytingum á júgó-
slavnesku stjórnarskránni.
► HELMUT Kohl, fyrrver-
andi kanslari Þýskalands,
bauð sérskipaðri rannsókn-
arnefnd þýska þingsins
birginn á fimmtudag er
hann bar öðm sinni vitni
fyrir henni um fjármála-
hneyksli innan fíokks síns,
Kristilegra Demókrata.
ítrekaði hann að hann hefði
alls ekki í hyggju að greina
frá nöfnum þeirra er
greiddu í ólöglega kosn-
ingasjóði flokksins.
► BANDARÍSK hermála-
yfírvöld gerðu á aðfaranótt
laugardags tilraun sem
ráðið getur úrslitum um
hvort Bandaríkjasljóm láti
verða af fyrirætlunum sín-
um um að reisa eldflauga-
vamakerfí til að veijast
hugsanlegum árásum „út-
lagaríkja". Var tilraunin
talin afar mikilvæg fyrir
framvindu málsins, sem
hlotið hefur mikla gagn-
rýni að undanförnu. Sams
konar tilraun mistókst í
janúar.
Geir á markaðnum fyllir körin af ís. Morgunblaðið/Kristínn
Kerin gerð klár
Nú nota menn ekki lengur skóflur
við að ísa fisk, a.m.k. ekki á
fiskmarkaðinum við Faxagarð í
Reykjavík.
Þau gömlu sannindi að vinnan
sé besta leikfimin virðast óðum
vera að missa gildi sitt. Gömlu
handtökin víkja fyrir nútímaþæg-
indum á flestum sviðum, en það er
þá alltaf hægt að komast í líkams-
ræktarstöðvarnar til að hreyfa
sig.
Skortur á innlendu vinnuafli í byggingariðnaði
Yfir þrjátíu erlcndir
verkamenn hjá Istaki
VERKTAKAR í byggingariðnaði
hafa í sumar þurft að leita út fyrir
landsteinana eftir erlendum starfs-
mönnum vegna skorts á íslensku
vinnuafli. Eru yfir 30 verka- og iðn-
aðarmenn frá ýmsum Evrópulönd-
um starfandi hjá Istaki hf. í sumar.
Loftur Árnason, yfirverkfræðing-
ur hjá ístaki hf., segir að fyrirtækið
hafi síðustu tvö ár haft um þrjátíu er-
lenda verka- og iðnaðaiTnenn í vinnu.
„í sumar höfum við 15 portú-
galska smiði, 12 smiði frá Svíþjóð og
fjóra almenna verkamenn frá Pól-
landi í vinnu hjá okkur. Einnig erum
við með fímm verkamenn sem koma
annarstaðar að úr Evrópu."
Að sögn Lofts er auðveldara að fá
vinnuafl inn í landið frá þjóðum sem
eru aðilar að Evrópusambandinu.
„Sumir mannanna sem störfuðu hjá
okkur í fyrra sumar hafa komið aftur
í ár,“ sagði hann. „Með því að vinna
hér um tíma geta þeir aukið tekjur
sínar, en laun eru oftast hærri hér,
og þeir fá meira fyrir krónuna í
heimalandinu," sagði Loftur, en er-
lendir verka- og iðnaðarmenn hljóta
sambærileg laun hér og innlendir
stéttarbræður þeirra.
Aðspurður um ástæðuna fyrir
þessum skorti á vinnuafli í sumar,
sagðist Loftur halda að góðærið
hefði mikið um það að segja. „Það
eru miklar framkvæmdir í gangi í
sumar. Einnig hefur það mikið að
segja að iðnaðarmenn í landinu hafa
meiri peninga á milli handanna en
oft áður og taka þá frekar sumarfrí,
sem er alveg skiljanlegt. Þetta fyrir-
komulag hentar okkur mjög vel, en
við höfum líka áhuga á því að reyna
fyrir okkur erlendis og höfum þegar
gert.“
Aðspurður hvort hann hræðist er-
lenda samkeppni á íslandsmarkaði
svaraði Loftur: „íslenskir bygging-
arvertakar hafa alltaf staðið sig vel
gagnvart erlendum fyrirtækjum og
við erum ekkert smeykii’ við erlenda
samkeppni hér á landi."
Borun eftir heitu vatni á Sigtúnum í Eyjafjarðarsveit frestað
Árangurinn ekki í sam-
ræmi við væntingar
BORUN eftir heitu vatni á Sigtún-
um í Eyjafjarðarsveit hefur verið
hætt, í bili að minnsta kosti, og þessa
dagana eru nú unnið að því að færa
borinn Sleipni að Laugalandi á Þela-
mörk þar sem framkvæma á svokall-
aða stefnuborun út úr holu sem ekki
hefur nýst. Franz Árnason, fram-
kvæmdastjóri Hita- og vatnsveitu
Akureyrar, sagði að árangurinn af
boruninni á Sigtúnum hefði ekki ver-
ið í samræmi við væntingar og að það
væru vissulega nokkur vonbrigði.
Á Sigtúnum var borað niður á
1.000 metra og var hitastigið í botni
holunnar um 90 gráður en afar lítið
vatn. „Eftir þessa mælingu ætluðum
við að bora dýpra en þá fór að koma
hrun og borun gekk illa og sl. sunnu-
dag var ákveðið að hætta fram-
kvæmdum, í bili að minnsta kosti, og
skoða framhaldið. Það er ekkert nýtt
að það mistakist hola hér í firðinum
og ekkert annað að gera í stöðunni
en bora annars staðar eða hugsa upp
aðgerðir til að komast þarna niður
aftur.
Franz sagði að menn hefðu þó séð
að þarna væri sá hiti sem vonast var
eftir en lítið vatn. „Vatnsæðar hér í
firðinum eru yfirleitt þröngar og
vont að hitta á þær, eins og sýndi sig
á Sigtúnum, þótt dýpri borun kynni
að hafa skilað einhverju.
Hita- og vatnsveita Akureyrar
skrifaði í byrjun maí sl. undir samn-
ing við Jarðboranir hf. um borun á
áðumefndum tveimur holum í Eyja-
firði. Samningurinn hljóðaði upp á
liðlega 40 milljónir króna en heildar-
kostnaður við verkið er áætlaður 55-
60 milljónir króna.