Morgunblaðið - 09.07.2000, Blaðsíða 6
6 SUNNUDAUUK9. JUL12000
ERLENT
MUKUUNBLADltí
Frakkar teknir við formennskunni í ráðherraráði Evrópusambandsins
Þolraun fyrir sljórn
arsambúð Chiracs
og sósíalista
BAKSVIÐ
Nýjar hugmyndir Jacques Chiracs, forseta
Frakklands, um Evrópusamrunann hafa
vakið misjöfn viðbrögð. Franski forsætis-
ráðherrann Lionel Jospin dregur enga dul á
að þeir forsetinn séu ósammála. Engu síður
hétu þeir Romano Prodi, forseta fram-
kvæmdastjórnar ESB, í vikunni að Frakk-
land muni á hálfs árs formennskutímabili
sínu tala einni röddu. Auðunn Arnórsson
skoðaði frönsku Evrópu-dagskrána.
Jacques Chirac Frakklandsforseti leggur áherzlu á mál sitt er hann
kynnti ESB-formennskuáætlun Frakka fyrir Evrópuþinginu. Nicole
Fontaine, forseti EÞ, fylgist með.
EIR Chirac og Jospin
sögðu í byrjun vikunnar að
á ESB-formennskumisseri
Frakklands myndu þeir
einbeita sér að því að ná í höfn samn-
ingum um erfiðar umbætur á stofn-
anauppbyggingu og ákvarðanatöku í
sambandinu og geyma stórtækari
markmið varðandi Evrópusamrun-
ann til betri tíma.
Lýstu þeir því yfir á blaðamanna-
fundi í París, eftir að franska ríkis-
stjórnin tók þar á móti framkvæmda-
stjórn ESB eins og siður er við
upphaf hvers formennskumisseris,
að umdeild „sýn“ Chiracs á framtíð
Evrópusamrunans, að meðtalinni
hugmynd hans um evrópska stjóm-
arskrá, væri ekki hluti af dagskrá
franska formennskumisserisins.
I ræðu sem Chirac hélt í þýzka
þinginu í Berlín í liðinni viku útmál-
aði hann hvemig hann sæi framtíð
Evrópusamrunans íyrir sér. Gengu
hugmyndimar sem hann lýsti í aðal-
atriðum út á að afmarkaður hópur
aðildarríkja ESB, með „fransk-
þýzka öxulinn" sem driffjöður, ætti
að mega fara hraðar í nánari sam-
mna en önnur ríki em tilbúin til. Þá
vildi hann að unnið yrði markvisst að
því að setja Evrópusambandinu
stjórnarskrá, þar sem „verkaskipt-
ingin“ milli stjómvalda þjóðríkjanna
og hinna yfirþjóðlegu valdastofnana
ESB væri skilgreind með skýmm
hætti. Báðar þessar hugmyndir,
„tveggja hraða Evrópa“ og að stofn-
sáttmála ESB verði breytt í stjómar-
skrá, fela það í sér að ESB fái fleiri
einkenni rflds. Gauliistinn Chirac hef-
ur þó fram að þessu ekki verið álitinn
neinn sambandsrfldssinni í Evrópu-
málunum, enda tók hann fram í ræðu
sinni að hann vildi frekar sjá „samein-
aða Evrópu þjóðríkja“ (Europe unie
des étaWUnited Europe of States)
verða til en „Bandaríki Evrópu" (Et-
ats unies de l’Europe/United States of
Europe).
Mjög svipaðar áherzlur var að
finna í ræðu sem þýzki utanrfldsráð-
herrann Joschka Fischer hélt í maí
sl. Sú ræða vakti mikil viðbrögð, enda
var það yfirlýstur tilgangur Fischers
að ýta með henni af stað nýrri um-
ræðu um það hvert endanlegt
markmið Evrópusamrunans skyldi
vera. Hans tillaga að svari við því var
að ESB þróaðist í eins konar „sam-
bandsríki þjóðríkja", með ríkisstjóm
og löggjafarþing, á grundvelli stjórn-
arskrár sem kvæði skýrt á um verka-
skiptinguna milli stjómsýslustiganna
(héraðs, þjóðríkis og Evrópu).
Til glöggvunar er rétt að taka fram
að grunnreglur Evrópusambandsins,
sem skráðar em í stofnsáttmálann,
innihalda í flestu svipuð atriði og
gegna svipuðu hlutverld og stjómar-
skrár þjóðrikja. Ólíkt þjóðríkjunum
gefur Evrópusambandið sér þó ekki
„stjómarskrána" sjálft. Það em að-
ildarríkin sem það gera. Þýzk stjóm-
völd hafa mælzt til þess að fljótlega
eftir að þeirri endurskoðun stofnsátt-
málans sem nú stendur yfir (og snýr
að því að búa stofnanir sambandsins
og fyrirkomulag ákvarðanatöku und-
ir fjölgun aðildarríkja) verði hafizt
handa við næstu endurskoðun hans.
Þá skuli miðað að því að breyta hon-
um í eins konar stjómarskrá sem
tryggi skilvirkni stofnana ESB en
jafnframt lýðræðislegt lögmæti
þeirra í stækkuðu Evrópusambandi.
Skammtímadagskráin
nýtur forgangs
Spennan í „stjómarsambúð"
þeirra Chiracs og Jospins kom
greinilegar upp á yfirborðið en oft
áður eftir Berlínarræðu forsetans.
Pierre Moscovici, Evrópumálaráð-
herra í ríkisstjóm Jospins, lét svo
ummælt að það sem forsetinn hefði
sagt í þessari ræðu væri eingöngu
bindandi íyrir hann. Chirac sá þá
ástæðu til að minna Jospin á að hann,
forsetinn, hefði talað í nafni Frakk-
lands í Berlín og að Frakkland tali
aðeins einni röddu. Þar með var
ágreiningurinn opinberlega lýstur úr
sögunni. Þykir þetta gefa vel til
kynna að í rfldsstjóm sósíalistans
Jospins séu menn famfr að ókyrrast
eftir að gaullistinn Chirac tók upp á
því að reyna að gefa sig út fyrir að
vera enn meiri Evrópusinni en sósíal-
istarnir í rfldsstjóminni, sem þó hafa
sterka hefð fyrir mikilli Evrópu-
hyggju.
A blaðamannafundinum í París í
byijun vikunnar bætti Chirac því við
að hugmyndimar sem hann lýsti í
Berlín væm nær því að vera lang-
tímasjónarmið; önnur mál yrðu efst á
baugi næstu mánuðina, þ.e. hin yfir-
lýstu áherzluatriði franska for-
mennskumisserisins. Sagði hann það
vera hlutverk sitt sem forseta for-
mennskuríkis ESB að bera upp
vangaveltur um hvert stefna skuli og
varpa fram hugmyndum í hina opnu
umræðu. Það sem hann sagði í Berlín
hefði ekki verið hugsað sem eitthvað
sem ætti að byrja að hrinda í fram-
kvæmd á næstu mánuðum.
Jospin, sem fastlega er búizt við að
muni etja kappi við Chirac um for-
setaembættið þegar næst verður
kosið til þess árið 2002, lét svo um
mælt að það væri allt í lagi að Chirac
viðraði skoðanir sínar á þessu sviði,
HERSVEITIR Rússa í Tsjetsjníu
gerðu í fyrradag harðar loftárásir á
svæði þar sem talið er að tsjetsjensk-
ir skæruliðar haldi sig og bjuggu
hermenn sig undir fleiri árásir í lík-
ingu við þær sem skæruliðar gerðu
fyrr í vikunni.
Aslan Maskhadov, forseti Tsje-
tsjníu, flutti sjónvarpsávarp í fyrri-
nótt og hvatti konur og börn til að
fara tafarlaust frá borginni Guder-
mes þar sem skæruliðar ætluðu að
taka borgina um helgina.
Gudermes féll í hendur rússneska
hersins við upphaf níu mánaða her-
farar hans í Tsjetsjníu í nóvember sl.
og hafa skæruliðar ítrekað heitið því
en þær væru ekki á dagskrá franska
formennskumisserisins.
Þau atriði sem þar bera hæst snúa,
auk áður nefndra kerfisumbóta, í að-
alatriðum að því að stuðla að auknum
hagvexti í ESB, aðgerðum gegn at-
vinnuleysi og félagslegu misrétti (ný
„félagsmáladagskrá" til fimm ára),
og sitthvers fleira. Fyrir leiðtoga-
fundinn í Nizza í desember stendur
metnaður Frakka auk þess til að
gengið verði frá nýjum sáttmála um
grundvallarréttindi borgara ESB, að
„evru-ríkin“ ellefu taki upp nánara
samráð í efnahagsmálum, þar með
talið um skattheimtu, og að unnið
verði að gerð sameiginlegrar inn-
flytjenda- og ílóttamannastefnu sam-
bandsins, svo nokkur helztu atriðin
séunefnd.
Á þriðjudag kynnti Chirac for-
mennskuáætlunina fyrir Evrópu-
þinginu í Strassborg. Þar reyndi
hann einnig að lægja öldurnar sem
Berlínarræða hans hafði valdið á
þeim vettvangi. Lýsti þann því yfir
að það væri alls ekki ætlun sín að
ýta undir nýjan klofning í Evrópu.
Frakkland væri staðráðið í að nýta
formennskumisserið eftir beztu
getu til að þoka áformum um fjölgun
aðildarríkja sambandsins áleiðis.
En hann sagði að forsenda fyrir
stækkun ESB væru umbætur af því
tagi sem hann lýsti í Berlínarræð-
unni.
„Markmiðið er ekki að reka fleyga
í milli þjóða álfunnar. Það er öllu
heldur að innleiða nýjan sveigjan-
leika í starfshætti stækkaðs
Evrópusambands, sem gerði þeim
sem vildu kleift að stika sömu leiðina
að ná borginni, sem liggur um 30 km
austur af höfuðstaðnum Grosní. Mik-
il spenna ríkir nú í Grosní eftir árásir
skæruliða og búast rússnesldr her-
menn við hinu versta.
Handtökur vegna
sjálfsmorðsárása
Hafa hersveitir Rússa handtekið
tvo skæruliða er taldir eru tengjast
einni af sjálfsmorðsárásum Tsje-
tsjena í vikunni, sem drógu 33 rúss-
neska hermenn til dauða og særðu
84. Samkvæmt heimildum AP hafa
mennimir játað að hafa undirbúið
árásina sem átti sér stað í Argun, þar
sem 26 menn féllu.
saman hraðar en ella,“ sagði Chirac.
Það var þó einmitt þessi hugmynd
sem mestu írafári olli í kjölfar Berlín-
arræðunnar, ekki bara hjá pólitísk-
um keppinautum Chiracs í Frakk-
landi. Viðbrögðin voru sterkust í
Bretlandi og ýmsum öðrum aðildar-
ríkjum sambandsins. Bretar, sem
fram að þessu hafa kosið að standa
utan Efnahags- og myntbandalags-
ins (EMU), óttast að komi frekari
hugmyndir um „tveggja hraða
Evrópu" til framkvæmda myndu þeir
einangrast meira frá „kjama“
Evrópusammnans og smærri aðild-
arríkin, ekki sízt Norðurlöndin, eru
vön að vera á varðbergi gagnvart
hugmyndum um evrópska stjómar-
skrá, þar sem þeim þykir fylgja hætt-
an á því að smærri rfldn missi áhrif
sem þau hafa að óbreyttu.
Wolfgang Schússel, kanzlari Aust-
urríkis, sagði í tilefni af ræðu Chiracs
og Joschka Fischers að hann hafnaði
þessum frönsk-þýzku hugmyndum
um breyttar áherzlur í Evrópusam-
runanum. Þær myndu leiða til
„drottnunar" stóro aðildarríkjanna.
Réttindi og áhrif smærri ríkjanna
yrði að varðveita.
Hinn mjög svo Evrópusinnaði for-
sætisráðherra Finnlands, Paavo
Lipponen, lét hins vegar svo ummælt
eftir Berlínarræðu Chiracs, að ESB
ætti að greiða fyrir sveigjanlegum
samrona innan þeirrar stofnanaupp-
byggingar sem fyrir er. Mikilvægt
væri hins vegar að farið væri í öllu að
umsömdum reglum við framþróun
sambandsins. Sagðist hann ekki hafa
neitt á móti sveigjanleika af því tagi
sem sjá má í myntbandalaginu eða
Schengen-vegabréfasamstarfinu.
Þess yrði hins vegar að gæta að sam-
starfið innan ESB skiptist ekki upp í
mismunandi „deildir"; kerfið mætti
ekki verða þannig að sum ríki yrðu
sjálfkrafa forvalin í eins konar kjarna
sem öðrom væri ekki kleift að eiga
aðild að. Öll aðildarríkin yrðu að eiga
sömu möguleika á að taka þátt í nán-
ari/hraðari samruna; leikreglurnar
yrðu því að vera mjög skýrar hvað
þetta varðar.
í svipaðan streng og Lipponen tók
Romano Prodi, forseti framkvæmda-
stjórnarinnar, á fundi sínum með
Chirac og Jospin í vikunni. „Evrópu-
samband með 27, 28 eða fleiri aðild-
arríkjum mun þurfa á sterkari stofn-
unum að halda, ekki veikari,“ sagði
hann og varaði við því að sérsniðin
(„ad hoc“) form samstarfs myndu
eyðileggja það kerfi lýðræðislegs
jafnvægis og gagnkvæms aðhalds
sem við lýði væri í ESB.
Chirac tók undir það, að mikilvægt
væri að viðhalda óskiptri stofnana-
uppbyggingu sambandsins; ekki beri
að byggja upp hliðarstofnanir utan
hins sáttmálabundna stofnanakerfis,
sem öllum aðildarríkjum væri sam-
eiginlegt.
BM-VAUÁ
Söludeild í Fomalundi
Breiðhöfða 3 • Sími 585 5050
Steypudælur
Nýjar steypudælur spara þér
tíma og peninga. Kynntu
þér öfluga steypuþjónustu á
www.bmvalla.is
www.bmvalla.is
Tsjetsjenar boða árásir
Segjast ætla að
ná Gudermes
Grosní, Nazran. AP, Reutere.