Morgunblaðið - 09.07.2000, Side 19
MORGUNBLAÐIÐ
LISTIR
SUNNUDAGUR 9. JÚLÍ 2000 1 8'
Ydun Duo: Lise Lotte Riisager og Morten Spanggaard koma fram á tón-
leikum í Listasafni Sigui'jóns Ólafssonar.
Dúó frá Danmörku
í Sigurjónssafni
Á ÞRIÐJUDAGSTÓNLEIKUM
hinn 11. iúlí kl. 20.30 í Listasafni Sig-
urjóns Olafssonar kemur fram YD-
UN DUO frá Danmörku. Dúóið
skipa Lise Lotte Riisager mezzó-
sópran og gítarleikarinn Morten
Spanggaard. Á efnisskrá eru söng-
lög eftir dönsku tónskáldin P.E.
Lange-Muller, Carl Nielsen og Egil
Harder og einleiksverk íyrir gítar
eftir Manuel de Falla.
Lise Lotte Riisager hlaut mennt-
un sína við Nordjysk Musikkon-
servatorium, Álaborg, Malmö Mus-
ikhögskola og Det Kongelige
Danske Musikkonservatorium í
Kaupmannahöfn, en frá þeim skóla
lauk hún burtfararprófi árið 1999.
Hún hefur stundað nám hjá Evy
Bráhammar og Bodil Gúmoes og
tekið þátt í námskeiðum hjá Dorothy
Irving og Judith Bechmann. Lise
Lotte Riisager hefur komið fram
sem einsöngvari við ýmis tækifæri,
meðal annars við Den Jyske Opera í
Árósum.
Morten Spanggaard stundaði gít-
amám hjá Carlos Bonell í London
1996-97 og hefur tekið þátt í nám-
skeiðum hjá gítarleikurunum Pepe
Romero og Aldo Lagrutta og einnig
hjá píanóleikaranum George Hadj-
inikos. Árið 1998 lauk Morten
Spanggaard burtfararprófi frá Nord-
jysk Musikkonservatorium, Álaborg,
en kennari hans þar var Karl Peter-
sen. Spanggaard hefur haldið tón-
leika víða í Danmörku, Englandi og
Grikklandi og tekið þátt í tónlistar-
hátíðinni í Slésvík-Holsetalandi.
Lise Lotte Riisager og Morten
Spanggaard hafa unnið saman frá
árinu 1992 undir heitinu YDUN
DUO. Eftfr tónleikana í Listasafni
Sigurjóns halda þau til Stykkis-
hólms, Akureyrar og Seyðisfjarðar.
Tónleikaferðin er styrkt af nor-
ræna menningarsjóðnum.
1 KJ M-2000
' ■ -y* Sunnudagur 9. júlí
I
HÁSKÓLABÍÓ KL. 15.00 OG 20.30.
STOMP
Lokatónleikar hins ásláttarglaða
listahóps STOMP eru í dag. Miða-
sala erí verslunum Skífunnarí
Kringlunni og á Laugaveginum og í
Háskólabíói eftir kl. 13.00.
www.stomponline.Gom
SKÁLHOLT KL. 9.
Sumartónleikar
Aðgangurað tónleikunum erókeypis
og er barnagæsla á staðnum. Sum-
artónleikarnir standa til 13. ágúst.
www.skalhoK.is
LISTASÖFN LANDSINS
íslenski safnadagurinn
Á íslandi eru starfrækt rúmtega 70
söfn og safnatengdar stofnanir sem
flestar taka þátt í safnadeginum og
bjóða upp á sérstaka dagskrá í til-
efni dagsins. íslandsdeild ICOM í
samvinnu við Félag íslenskra safna-
manna stendur aö deginum.
www.icom.is
Sumarkvöld vlð orgelið er liður í
menningarborgarárinu í Hall-
grímskirkju.
HAFNARFJÖRÐUR - UÓSAKLIF KL. 14.
Japanskir listamenn og listviðburðir
/ dag hefst listamaðurinn Keizo
Ushio handa við gerð skúlptúrs utan
við sýningarrými Ljósaklifs. Gestum
og gangandi er velkomið að fylgjast
með vinnu listamannsins frá degi til
dags.
www.lightciiff-art.is
VÍÐIVELLIR KL. 12.
Landsmót 2000.
Lokadagur hins alþjóölega hesta-
mannamóts, Landsmót 2000. Úrslit
í gæðinga- og barnaflokki, verðlauna-
afhending og mótsslit kl. 18.
www.landsmot.is
RÁÐHÚS REYKJAVÍKUR KL. 15.
BRAGI
Um er að ræða samvinnuverkefni
Námsflokka Reykjavíkur, Humboldt-
háskóla í Berlín, Ljósmyndasafns
Reykjavíkur og annarra aöila.
Markmiðið með BRAGA eraö búa til
námsefni í íslensku sem annað
tungumál en við gerð þess er sótt í
ístenskt nútímaþjóöfélag og sögu
þess. Námskeiöin, sem fram fara
hjá Námsflokkum Reykjavíkur, hefj-
ast á morgun og standa til 7. ágúst.
HALLGRÍMSKIRKJA KL. 20.
Sumarkvöld við orgelið
Listvinafélag Hallgrímskirkju stendur
fyrir tónleikaröð þarsem organistar
frá öllum níu Menningarborgum
Evrópu árið 2000 skipta með sér
tónleikum á sunnudagskvöldum
síðsumars. Tónleikaröðin stendur til
3. september en organistinn Hákan
Wikman frá Helsinki ergesturþessa
Sumarkvölds.
www.hallgrimskirkja.is
www.reykjavik2000.is, wap.olis.is
Kældu þig
á ströndinni
Með gjaldeyrinum færðu tösku sem heldur
drykkjunum þínum köldum.
Nú fá allir þeir sem kaupa gjaldeyri hjá Sparisjóði
vélstjóra fyrir 30.000 eða meira glæsilega fjölnota
sumartösku að gjöf!*
Taskan er tilvalin á ströndina því hún heldur bæði
nestinu þínu og drykkjunum köldum í sólinni.
Allt er á sínum stað í sumartösku SPV.
Sparisjóður vélstjóra hefur allar helstu tegundir
gjaldeyris til sölu, allt frá dollara til drökmu.
Verið velkomin á afgreiðslustaði okkar
í Síðumúla 1 , Rofabæ 39 og Borgartúni 18.
Sími575 4000
* Meðan birgðir endast.
«
sipv
Sparisjóður
vélstjóra
www.spv.is