Morgunblaðið - 09.07.2000, Síða 26
26 SUNNUDAGUR 9. JÚLÍ 2000
MORGUNBLAÐIÐ
h
MorgunblaðiðA'aldimar
Áhorfendabrekkan var þéttsetin þegar sýningar ræktunarbúa fóru fram á Brekkuvelli. Ekki voru þó allir að fylgjast með því sama.
Róleg Ijaldbúðastemmning
á landsmóti
Sveitin betri
en borgin
Á TJALDSTÆÐINU í Kríunesi
við Elliðavatn era um 60-70 tjöld
auk gamallar rútu sem nýtt er sem
húsbíll. Björn Stefánsson, sem á og
rekur gistiheimilið í Kríunesi, telur
að um 100-120 manns gisti á tjald-
stæðinu, mest útlendingar.
„Stemmningin er auðvitað ekki
neitt svipuð og á venjulegu lands-
móti,“ segir Björn, sem bjóst
reyndar alls ekki við að fá svona
marga tjaldgesti. Hann segir að
einhver truflun hljóti að verða á
næturkyrrðinni við Elliðavatn en
Björn segir nágranna sína taka
þessu vel, þeir geri sér grein fyrir
því að um einstakan viðburð sé að
ræða, landsmót hestamanna hafi
ekki áður verið haldið í nágrenn-
inu. Þar sem Björn gerði ekki ráð
fyrir að þurfa að taka á móti flest-
öllum tjaldgestum mótsins gafst
ekki tími til að koma upp sturtuað-
stöðu fyrir alla gesti en tvær sund-
laugar séu í göngufæri. „Svæðið er
í rauninni ekki hugsað sem tjald-
stæði. Eg er bara að hjálpa þeim á
landsmótinu."
Borgin eins og Bandaríkin -
sveitin eins og Danmörk
Jprgen Villadsen bar sig fag-
mannlega að við prímusinn þar
sem hann eldaði kvöldmatinn
Morgunblaðið/Rúnar
Dönsku hestamennirnir (f.v.) Janne Spannon, Helle Stærmose,
Grethe Saether, Jörgen Villadsen og Karen Steen Jörgensen hefðu
kosið að fleira fólk hefði sótt tjaldstæðin.
Mathilda Östling, Kerstin Bjurnman, Anna Östling og Sofía Palmqvist
létu Stefan Bervelius sjá um að elda kvöldmatinn.
Utsalan hefst
á morgun kl. 8.00
Oáuntv Sími 561 1680.
, „ Opið daglega kl. 10-18,
tiskuverslun v. Nesveg, . .
Seltjarnarnesi ISUflardap kl. 10-14.
handa sér og fjórum dönskum vin-
konum sínum. Hópurinn kemur
víðsvegar að frá Danmörku en þau
kynntust fyrir þremur árum þegar
þau sóttu námskeið í kynbótarækt- I
un hjá Ingimari Sveinssyni á L
Hvanneyri. Mikill áhugi er fyrir ís-
lenska hestinum í Danmörku og
hann fer að sögn vaxandi. Oll eru
þau ánægð með að vera komin á
landsmót. „Það er auðvitað frábært
að sjá bestu reiðmennsku í heimi
og hrossin eru framúrskarandi
góð,“ segir Grethe Saether, sem er
að koma til Islands í fimmta skipti. Jj
„Allir eru mjög vingjarnlegir."
Jörgen sagðist kannski vera
mest undrandi á því að sólin hefði
látið sjá sig á föstudagskvöldið en
annars töldu þau að nokkuð vant-
aði upp á landsmótsbraginn. „Að
koma til Reykjavíkur er eins og að
vera kominn til Bandaríkjanna,"
segir Grethe „En þegar maður
kemur út í sveit þá er umhverfið og
fólkið líkara því sem við eigum að
venjast í Danmörku."
Gætu staðið sig betur gagn-
vart erlendum gestum
Jprgen taldi að mótshaldarar
hefðu getað gert meira til að skapa
landsmótsstemmningu. „Mér finnst
skrítið að tjaldstæðin skuli ekki
vera nær svæðinu. Þar gæti orðið
alþjóðleg stemmning þar sem mað-
ur gæti hitt fleira fólk til að ræða
um hesta o.þ.h. við.“ Danirnir voru
á einu máli um að þulirnir þyrftu ,
að standa sig betur. „Það er erfitt
að fylgjast með hvaða hestur er í
brautinni og þá er stutt í að maður ‘
missi þráðinn. Þetta er frekar
gremjulegt," segir Janne Spannon.
„Þeir tala mikið á íslensku og svo
kemur kannski ein setning á ensku
og ein á þýsku. Og þá veltir maður
fyrir sér hvað þeir vora eiginlega
að segja. Það er sjálfsagt mjög
áhugavert því oft fara allir að
hlæja í brekkunni en sjálfur skilur ,
maður ekki neitt,“ segir Grethe en
bætir við að aðalatriðið sé að lands-
mótið sé meiriháttar viðburður
sem gaman sé að fylgjast með.
Ekki sami andinn og úti í sveit
Kvenmenn virtust í öruggum
meirihluta á tjaldstæðinu í Kríu-
nesi en Stefan Bervelius var einn í
hópi fjögurra sænskra stúlkna.
Eins og hjá hinum danska Jorgen
dæmdist eldamennskan á Stefan.
Svíunum þótti landsmótið að flestu
leyti vel heppnað en töldu þó frek-
ar undarlegt að halda landsmótið í
Reykjavík. „Það myndast ekki
sami andinn og úti í sveit,“ segir
Kerstin Bjurnman. „Eg er vön því
að flestir gisti í tjöldum á lands-
mótum en nú fara flestir heim til
sín á kvöldin."
Lýsa yfír
stuðning’i
við Sleipni
AÐILDARSAMTÖK Norræna
flutningasambandsins NTF á Is-
landi, sem samanstendur af Flug-
freyjufélagi íslands, Flugvirkjafé-
lagi Islands, Sjómannafélagi
Reykjavíkur, Starfsmannafélagi
Reykjavíkurborgar og Verkamanna-
sambandi Islands, samþykkti eftir-
farandi:
„Aðildarsamtök Norræna flutn-
ingamannasambandsins á Islandi
lýsa yfir fullum stuðningi við baráttu
félagsmanna Bifreiðastjórafélagsins
Sleipnis. Verkfall Sleipnis hefur nú
staðið í mánuð. Óbilgirni Samtaka
atvinnulífsins er með ólíkindum og
ber vott um ný og framandi viðhorf
atvinnurekenda til verkfalla á ís- fe
lenskum vinnumarkaði. í fyrsta sinn
í atvinnusögu íslands eftir síðari i;|
heimsstyrjöld reyna atvinnurekend- ™
ur að beita lögbönnum sýslumanna
gegn löglega boðuðum vinnudeilum.
Slíkar aðgerðir og aðfarir atvinnu-
rekenda vega að starfsréttindum
verkalýðsfélaga og eiga einungis
heima í þjóðfélögum sem ekki virða
mannréttindi né önnur lýðréttindi.
Aðildarsamtökin hvetja forystu-
menn íslenskrar verkalýðshreyfing- fe
ar til að beita öllum áhrifum sínum til
stuðnings við lögmæta kjarabaráttu
Sleipnismanna."