Morgunblaðið - 09.07.2000, Page 32
32 SUNNUDAGUR 9. JÚLÍ 2000
MINNINGAR
MORGUNBL.UÐIÐ
+
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma,
HANNA SIGURRÓS HANSDÓTTIR,
Klausturhólum,
Grímsnesi,
lést á Sjúkrahúsi Suðurlands föstudaginn 7. júlí.
Útförin auglýst síðar.
Ragna María Gunnarsdóttir, Þorgeir Baldursson,
Einar Gunnarsson,
Guðgeir Gunnarsson, Anna Helga Aradóttir,
Þórleif Gunnarsdóttir, Guðmundur Jóhannesson,
barnabörn og barnabarnabörn.
+
Móðir okkar,
ANNA ÞORBJÖRG KRISTJÁNSDÓTTIR,
Skúlagötu 20,
er látin.
Jón B. Stefánsson,
Kristján Stefánsson,
Þorgrímur Stefánsson,
Páll Stefánsson.
+
Elskuleg eiginkona mín, móðír okkar, tengda-
móðir, amma og langamma,
mari'a sólrún jóhannsdóttir,
Staðarvör 3,
Grindavík,
verður jarðsungin frá Grindavíkurkirkju þriðju-
daginn 11. júlí kl. 13.30.
Ingimar Magnússon,
Þormar Ingimarsson,
Vigdís Helgadóttir, Lárus Vilhjálmsson,
Jóhanna Helgadóttir, Heimir Þrastarson,
Ámi Helgason, Jóhanna Lovísa Jóhannsdóttir,
barnabörn og barnabarnabarn.
Ástkær eiginkona mín, móðir okkar, tengda-
móðir og amma,
INGIBJÖRG ELÍSABET JÓHANNESDÓTTIR
frá Flateyri,
Úthlíð 35,
Hafnarfirði,
sem lést föstudaginn 30. júní, verður jarðsung-
in frá Fríkirkjunni í Hafnarfirði mánudaginn
10. júlíkl. 13.30.
Þeim, sem vilja minnast hennar, er bent á líknarfélög.
Helgi Sigurðsson.
Sigurður Helgason,
Jóna Ágústa Helgadóttir, Halldór Skúlason,
Guðný Helga Helgadóttir, Þorvaldur Ægir Harðarson,
Sigríður Kristín Helgadóttir, Eyjólfur Einar Elíasson,
Elísabet Sif Helgadóttir, Jónas Guðmundsson
og barnabörn.
Elskulegur eiginmaður minn, bróðir, mágur,
faðir, tengdafaðir, afi og langafi,
GUÐMUNDUR HALLDÓR GUNNLAUGSSON
fyrrv. deildarstjóri Flugmáiastjórnar,
Móavegi 11,
Njarðvík,
verður jarðsunginn frá Ytri-Njarðvíkurkirkju
þriðjudaginn 11. júlí kl. 14.00.
Blóm og kransar afþakkaðir.
Þeir sem vilja minnast hins látna láti Ytri-Njarðvíkurkirkju njóta þess.
Ruth Vita Gunnlaugsson.
Þóra Gyða Gunnlaugsdóttir, Árni E. Valdimarsson,
Sigríður Soffía Guðmundsdóttir, Þorfinnur Finnlaugsson,
Gunnlaugur Karl Guðmundsson, Agnes Agnarsdóttir,
Guðmundur Ingvi Guðmundsson, Dagný Hafsteinsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
Lokað
Vegna jaröarfarar JÚLÍÖNU GÍSLADÓTTUR verður teiknistofa
okkar lokuð eftir hádegi mánudaginn 10. júlí.
Arkþing ehf.
LAILA
REEHA UG
+ Laila Reehaug
fæddist í Kaup-
mannahöfn 21. mars
1951. Hún lést af
slysförum í Kaup-
mannahöfn 25. maí
síðastliðinn. Foreldr-
ar hennar eru Vita
Reehaug, f. 6.12.
1929, og Jdn
Reehaug, f. 25.2.
1925, d. 3.8. 1990.
Systkini Lailu eru
Erlend Reehaug, f.
16.2. 1954, og Dorte
Reehaug, f. 6.12.
1958. Laila ólst upp
hjá fjölskyldu sinni í Kaupmanna-
höfn.
Hinn 8. apríl 1971 giftist Laila
Jens Hrtímundi Valdimarssyni,
framkvæmdastjdra frá Bfldudal,
f. 13.9. 1948. Foreldrar hans eru
Valdimar B. Ottdsson, f. 12.11.
1921, og Lilja Valdimarsddttir, f.
10.4. 1917, d. 13.8. 1997. Börn
Jens og Lailu eru: 1) Björg
Reehaug, f. 23.3. 1973, nemi í við-
skiptafræði við Háskdla íslands.
Sambýlismaður hennar er Sverrir
Kristinsson, f. 30.12. 1972. Ddttir
Bjargar og Þorsteins Eyfjörð
Benidiktssonar, f. 29.3. 1971, er
Þuríður Katla Þorsteinsddttir, f.
Vegir skiptast alit fer
ýmsar leiðir
inn á fyrirheitsins lönd.
Einum lffið arma breiðir,
öðrum dauðinn réttir hönd.
Einum flutt er árdagskveðja,
öðrum sungið dánarlag,
allt þó saman knýtt, sem keðja,
krossfór ein með sama brag.
Veikt og sterkt í streng er undið,
stórt og smátt er saman bundið.
(E.B.)
Ung glæsileg Kaupmannahafnar-
stúlka stundar nám í meinatækni í
Slagteriskolen í Hróarskeldu í Dan-
mörku. Þar hittir hún meðal nem-
enda ungan, hávaxinn mann frá ís-
landi, sem verður örlagavaldur í lífi
þessarar ungu konu.
Þetta er Laila Reehaug og ungi
maðurinn er Jens Hrómundur
Valdimarsson frá Bfldudal. Þau
bindast tryggðarböndum og ganga í
hjónaband í Stengárdkirkju i Bags-
værd, 8. aprfl 1971.
Foreldrar Lailu eru Vita
Reehaug kennari og Jon Reehaug
húsasmiður, en hann var Norðmað-
ur, sem fluttist til Danmerkur. Hjá
þeim ólst Laila upp ásamt systkin-
um sínum, Erlend og Dorte, í hinu
vinalega og gróðursæla hverfi
Bagsværd.
Við hjónin áttum því láni að fagna
að kynnast þessari fjölskyldu og
bindast vináttuböndum, sem fært
hafa okkur margar ánægjustundir
og góðar minningar.
29.10. 1991. 2) Súni
Reehaug, f. 7.10.1975,
iðnnemi í Kaupmanna-
höfn.
Jens og Laila hdfu
búskap sinn í Kaup-
mannahöfn. Síðan
þjuggu þau á Bfldudal,
ísafirði, á Patreksfirði
og í Chile. Þau settust
að í Reykjavík árið
1990 og bjuggu þar
síðan.
Eftir að Laila flutt-
ist til Islands vann hún
ýmis störf með heimil-
inu, meðal annars fisk-
vinnslu- og kennslustörf. Hún lauk
prdfi frá Fiskvinnsluskdlanum í
Hafnarfirði árið 1987, stúdents-
prdfi frá FB árið 1995. Hún lagði
stund á nám við Háskdla íslands og
lauk þaðan prdfi í dönsku ásamt
bdkasafns- og upplýsingafræðum.
Síðastliðna tvo vetur lagði hún
stund á mastersnám í bdkasafns- og
upplýsingafræðum við Danmarks
Biblioteksskole í Kaupmannahöfn
og hafði nýlokið því er hún lést.
Laila var jarðsungin frá Sten-
gaardskirkju í Kaupmannahöfn 2.
júní. Minningarathöfn verður um
Lailu í Árbæjarkirlqu sunnudaginn
9. júlí og hefst athöfnin klukkan 16.
Með fáeinum orðum viljum við
minnast Lailu sem lést óvænt hinn
25. maí sl. í Kaupmannahöfn nokkr-
um dögum áður en hún átti að taka
við prófskírteini fyrir magisters-
gráðu frá Kaupmannahafnarhá-
skóla, en þar hafði hún stundað
framhaldsnám eftir að hafa lokið
BA-námi við Háskóla íslands.
Undirbúningur var hafinn að því
að fagna námslokum hennar 10. júní
í faðmi fjölskyldu og vina, þegar
skyndilega er klippt á lífsþráðinn.
Enginn veit sína ævina fyrr en öll
er. Svona grimm geta örlögin verið.
Einmitt núna þegar hún var að
ljúka löngu og ströngu námi og lífið
ætti að brosa við henni. Þung sorg
ríkir því hjá eiginmanni, börnum,
dótturdóttur, móður, systkinum og
öðrum ættingjum og vinum.
Útför Lailu var gerð frá
Stengárdkirkju hinn 2. júní sl. og
hvíla nú jarðneskar leifar hennar í
danskri mold við hlið föður hennar.
Það var haustið 1973 að Laila
fluttist með eiginmanni sínum og
dóttur á fyrsta ári til íslands og
settust þau að á Bfldudal. Eigin-
maðurinn vildi helga íslandi krafta
sína þótt í Danmörku byðust honum
góðir framtíðarmöguleikar. Lung-
ann úr lífi sínu dvaldi Laila á Islandi
og hér eignaðist hún marga vini.
Það lætur að líkum að mikil við-
brigði voru það fyrir Lailu að flytj-
ast frá Kaupmannahöfn til Bfldu-
dals. Fara frá stórborg í lítið
sjávarþorp á íslandi, þar sem allt
rfisdrykkjur í Veislusalnum
Sóltúni 3, Akógeshúsinu,
fyrir allt ad300 manns.
EINNIG LETTUR HADEGISMATUR
MEDKAFFI OC TERTU A EFTIR - SAMA VERÐ
03
. sloði3
h'á o^kur
6 n‘tinu!
VEISLAN
Glœsilegar veitingar frá Veislunni
Auslurslrönd 12 «170 Selljarnarnes »511111:561 2031 • Fox: 561 2008
VEITINGAELDHUS
www.veislan.is _ _
— og
ÚTFARARSTOFA ÍSLANDS
Sjáum um alla þá þætti sem hafa ber í huga
er andlát verður
Útfararstjórar okkar búa yfir áratuga reynslu af störfum við
útfararþjónustu.
Sjáum um útfarir á allri landsbyggðinni.
sÝmi 896 8242
Útfararstofa íslands, Suðurhlíð 35, Fossvogi.
Sími 581 3300. Þjónusta allan sólarhringinn.
www.utfararstofa.ehf.is
» - w Baldur
Sverrir Frederiksen
Olsen útfararstjóri,
útfararstjóri. stmi 895 9199
var framandi. Veðráttan gjörólík
því sem hún átti að venjast, landið
með hrikaleg fjöll og sjórinn oft sem
ógnvaldur.
Hún kunni ekki málið, þótt síðar
næði hún mjög góðum tökum á því,
og því urðu öll félagsleg samskipti í
byrjun torveld, foreldrar og æsku-
vinir víðs fjarri. I bréfum til móður
sinnar lýsir hún þessu vel og þar fá
tilfinningar hennar útrás. En heii-
steypt skapgerð, greind og ást á
sínum ágæta eiginmanni var hennar
styrkur.
Mikil umsvif eiginmannsins í at-
vinnulífinu urðu til þess að þau rót-
festust ekki á neinum einum stað
heldur fluttust milli staða.
Eftir skamma dvöl á Bíldudal
fluttust þau tii Isafjarðar þar sem
Jens hóf störf.
Laila fékk ekki starfsmenntun
sína frá Danmörku viðurkennda á
Islandi og má segja að það hafi orð-
ið til þess að hún hóf að auka við
menntun sína til þess að verða bet-
ur hlutgeng í íslensku atvinnulífi.
Það er löng saga hvernig hún sem
húsmóðir úti á landi leysti þau mál,
ýmist með því að stunda fjarnám
frá heimili sínu eða sækja skóla
langt í burtu í sumum tilvikum.
Sýndi hún einstakan dugnað í því
efni. Aðstæður hafa gjörbreyst til
náms á síðustu árum hér á landi
m.a. með skipulagi fjarkennslu og
því ólíku saman að jafna. Aðeins
skal nefnt að hún lauk námi frá
Fiskvinnsluskólanum í Hafnarfirði
og Tækniskóla Islands sem fisk-
tæknir, stúdentsprófi og BA-námi
frá Háskóla íslands. Þetta hefði nú
verið auðveldara fyrir hana ef þau
hjónin hefðu setið alltaf á sama
stað, t.d. í Reykjavík, en svo var nú
ekki.
Eftir skamma dvöl á Isafirði
fluttist fjölskyldan til Patreksfjarð-
ar þar sem Jens beið nýtt starf sem
kaupfélagsstjóri. Eftir nokkurra
ára viðdvöl á Patreksfirði lá leiðin
til Reykjavíkur og skömmu síðar til
Chile þar sem þau bjuggu um tíma.
Aftur er sest að í Reykjavík og nú
hefst nýr atvinnurekstur hjá Jens
sem teygir sig m.a. til Kamchatka í
Síberíu og til Kína.
Þetta hafði í för með sér löng
ferðalög og oft langdvalir Jens að
heiman og þá hvfldi heimilisrekstur-
inn mest á Lailu. Stundum gat hún
þó farið með eiginmanninum í
lengri eða skemmri ferðir, t.d. fór
hún til Kína.
Allt þetta jók víðsýni og þroska
Lailu. Hún lærði betur að skilja
margbreytileika mannlífsins á jörð-
inni. Mannskilningur hennar jókst.
Við söknum þess sárt að heyra
ekki framar rödd hennar, skoðanir
á mönnum og málefnum eða glað-
legan hlátur hennar og hlýtt hand-
tak. En minningin um hugþekka og
heilsteypta konu mun lifa í hjörtum
okkar.
Við færum fjölskyldu og ætt-
mennum öllum okkar dýpstu sam-
úðarkveðjur.
Elín Vilmundarddttir og
Stefán Olafur Jdnsson.
• Fleiri minningargreinar
um Lailu Reehaug bíða birtingar
ogmunu birtast íblaðinu næstu
daga.
Dtieíð /íiger Ohtfur
l 'uftmtrstj. I 'ufmmtj. I hfitvtirstj.
LÍKKISTUVÍNNUSTOFA
EYVINDAR ÁRNASONAR
1899
OSWALDS
simi 551 3485
ÞjÓNUSTA ALLAN
SÓLARHRINGINN
AÐAi.snui;n íb» ioi revkjavík