Morgunblaðið - 09.07.2000, Síða 48
48 SUNNUDAGUR 9. JÚLÍ 2000
MORGUNBLAÐIÐ
FÓLK í FRÉTTUM
Listahátíð á Seyðisfirði dagana 19.-23. júlí
Morgunblaðið/Hafdís Bogadóttir
Framkvæmdastjóri Aðalheiður Borgþórsdóttir, ásamt Guðnýju Pálu
Rögnvaldsdóttur og Halldóru Malin.
L.ung.A
fyrir unga
fólkið
Egilsstöðum; Morgunblaðið.
LISTAHÁTÍÐ ungs fólks, L.ung.A,
verður haldin á Seyðisfirði dagana
19.-23. júlí nk. Um er að ræða fjöl-
breytta hátíð með óvenjulegu sniði;
* hátíð sem áhugafólk um öðruvísi
skemmtun og þroskandi og áhuga-
verð námskeið ætti ekki að láta íram-
hjá sér fara.
Farið verður vítt og breitt í list-
sköpun á þeim fimm dögum sem há-
tíðin stendur. Settar verða upp
vinnubúðir, þar sem leiðbeinendur
munu leiða þátttakendur inn í ýmsa
heima listsköpunar. Má þar nefna
leiklist, þar sem Helga Braga Jóns-
dóttir leikkona leiðbeinir, Andri
Snær Magnason rithöfundur leið-
beinir fólki í hinum ýmsu fræðum
varðandi rit- og orðlist, Orville afró-
dansari kennir afródansa, Magnús
Reynir Jónsson ljósmyndari kennir
Camera obscura, sem í stuttu máli
má skýra sem kennslu í að búa til
myndavél, og Sara og Gunnhildur, 2.
árs nemar í Listaháskóla íslands,
leiðbeina þátttakendum í myndlist.
Að lokum má nefna að Addi, tromm-
ari í Súrefni, ætlar að sjá um tónlist-
arsköpun í anda STOMP.
Einnig verður á hátíðinni hönnun-
arsamkeppni (föt og hlutir), auk þess
sem keppt verður um skemmtileg-
asta og frumlegasta lagið. í hvorugri
þeirri keppni er nauðsynlegt fyrir
þátttakendur að hafa verið á hátíð-
inni, heldur geta þeir mætt daginn
sem viðkomandi keppni fer fram með
hönnun sína eða tónlist. Nauðsynlegt
er að keppendur láti vita um þátt-
töku. Glæsilegir vinningar eru í boði
fyrir sigurvegara, má þar nefna að í
verðlaun fyrir besta lagið eru tíu tím-
ar í stúdió Steinholti. Ekkert þátt-
tökugjald er í samkeppnina.
Þátttökugjaldi
mjög stillt í hóf
Það er óhætt að segja að þátttöku-
gjaldi fyrir listahátíðina sé mjög stillt
í hóf því fyrir námskeið og þrjár mál-
tíðir hvem dag þarf einungis að reiða
fram fimm þúsund krónur. Þátttak-
endur fá fWtt tjaldstæði og svefn-
pokapláss og hátíðin er opin ungu
fólki á aldrinum 16-25 ára hvaðan-
æva af landinu. Seyðisfjarðarbær
styrkir hátíðina, en hún er liður í ,Á
seyði“, listahátíð á Seyðisfirði sem
stendur frá 17. júní til 6. ágúst.
Margir listamenn koma við sögu
L.unga.A. Má þar meðal annars
nefna Gjömingaklúbbinn og Sól-
dögg auk þess sem hinir ungu lista-
menn munu sýna afrakstur vinnu
sinnar á sýningu sem hefst á laugar-
deginum. Þar stíga þátttakendur í
vinnuhópum L.ung.A út úr fylgsnum
sínum og sýna á sér nýuppgötvaðar
hliðar. Einnig mun gestum gefast
kostur á að taka létt afróspor svo
eitthvað sé nefnt. Á sunnudeginum
verður svo opnuð sýning 2. árs nema
í Listaháskóla Islands í félagsheimil-
inu Herðubreið, en ber sú sýning
yfirskriftina „Menning og náttúra -
virkjun". Sýningin er samstarfsverk-
efni Listaháskólans og Reykjavíkur
- menningarborgar Evrópu árið
2000 og stendur til 6. ágúst.
Það er von þeirra sem að hátíðinni
standa að sem flestir sjái sér fært að
mæta og umhugsunarefni fyrir for-
eldra og atvinnurekendur hvort ekki
sé ástæða til að hvetja unga fólkið til
þátttöku, því hér fer tilvalinn vett-
vangur fyrir það að rækta hugann og
sköpunargleðina. Það mun sannar-
lega ríkja útihátíðar- og kamival-
stemmning...milli fjallanna háu við
hinn fallega og seiðandi Seyðisfjörð.
Framkvæmdastjóri listahátíðar er
Aðalheiður Borgþórsdóttir, en auk
hennar era í framkvæmdaráði Stefán
Benedikt Vilhjálmsson Egilsstöðum,
Guðný Pála Rögnvaldsdóttir Seyðis-
firði og Halldóra Malin Egilsstöðum.
[VandfæðaQemlinqafnÍHeFii
áRlifHillleik'sTálnv
Endalausirpltinoaleikir.
Faanleq á isölumwndbahdiSum
iSiÍ
Góð
nwndbönd
Eyes wide shut
+-k‘Á
Nokkuð snúinn en spennandi
svanasöngur meistara Kubrícks.
Truflar mann að hann hafi ekki lif-
að nógu lengi til að fullklára verkið.
Cookie frænka / Cookie’s For-
tune
irk'Á
Þessi nýja mynd leikstjórans
Roberts Altmans er
vel þess virði að sjá.
Sposk og skemmtileg
smábæjarmynd með
Snum leikurum.
Ævintýri Elmo litla/
The Adventures of
Elmo in Grouchland
★★J4
Skemmtileg barna-
mynd með brúðunum
úr Sesam-stræti.
Góður húmor, söng-
atriði, sprell og glens
gefa henni gildi.
Fullkominn eigin-
maður / An Ideal
Husband
★★'/é:
Lipur útfærsla á
skemmtilegu leikríti
Oscars Wildes. Góðir leikarar og
litrík umgjörð.
Jakob lygari / Jakob the Liar
-kkVi
Jakob lygari fjallar um tilveru gyð-
inginga í gettói í Varsjá á valda-
tíma nasista. Mynd sem leynir á
sér.
Brjálaði aðkomumaðurinn / Gad-
joDilo
★★★
Kvikmynd um samfélag sígauna í
Rúmeníu. Vel gerð mynd sem fer
með áhorfandann í einstakt ferða-
lag á framandi slóðir.
Myrkrið fellur/Darkness Falls
■k-k'Á
Full hægfara en magnað leikhús-
drama þar sem snillingurinn Ray
Winstone bjargar málunum. Glæp-
samlega vannýttur leikari.
Lif mitt hingað til / My life so far
ik-k'Á
Fallega tekin kvikmynd sem lýsh•
bernskuminningum í skoskii
sveitasælu. Tilvalinn kostur fyrir
þá sem hafa gaman af Ijúfum fjöl-
skyldumyndum.
Síðasti söngur Mifune / Mifunes
sidste sang
★★★
Þessi þriðja mynd úr dönsku
Dogma-reglunni skartar sérlega
lifandi og áhugaverðum persónum.
Ljúfsár og bráðskemmtileg kvik-
mynd.
Mafíumenn / Made Men
★★★
Bráðfyndin og spennandi mafíu-
mynd framleidd af HBO-sjón-
varpsstöðinni. Fær bestu með-
mæli.
Berserksgangur í Alabama /
Crazy ín Alabama
k-k‘Á
I þessari frumraun sinni í leik-
stjórastólnum vinnur Antonio
Banderas skemmtilega kvikmynd
úrsamnefndri skáldsögu.
Morgunverður hinna sigursælu /
Breakfast of Champions
_ kkI4
Ahugaverð aðlögun á skáldsögu
Kurts Vonnegut þar sem deilt er á
hamslausaneyslumenningu
Bandaríkjanna. Bruce Willis og
Nick Nolte fara á kostum.
Beautiful People / Fallegt fólk
★★★
Fyndin, pólitísk og nokkuð frum-
leg mynd sem segir frá mismun-
andi persónum sem tengjast á einn
eða annan hátt í stórborginni Lon-
don. Góð frumraun hjá leikstýr-
„Djörf og ögrandi
hneykslisrannsókn
en ekki nógu heil-
steypt," segir í
dómnum um dönsku
myndina Idioterne.
unni Didzar.
Regeneration / Endurnýjun
kkklÁ
Ljóðræn stríðsmynd um skáldið
Sigfried Sassoon sem settur var
inn á geðveikrahæli vegna skoð-
anna sinna á ómennsku fyrri heim-
styrjaldarinnar. Jonathan Pryce
er frábær í hlutverki sínu sem geð-
læknir Sassoons.
American Perfekt / Amerisk
fyrirmynd
kkÁ
Robert Forster er frá-
bær í þessari undar-
legu vegamynd um
sálfræðing sem hefur
tekið þá ákvörðun að
ákveða næstum allt
sem hann gerir með
því að kasta peningi
upp á það.
Kleine Teun / Tony
litli
kkk‘Á
Hrikalega áhrifamikil
og vel leikin kvikmynd
um sjúklegan ástar-
þríhymingsem mynd-
ast þegar einföld
bóndahjón ráða til sín
unga kennslukonu til
þess að bóndinn geti
lært að lesa.
The Girl Next Door / Dóttir
nágrannans
kkk'Á
Ferill klámmyndaleikonunnar
Stacy Valentine rakinn frá upphafi
og þar til hún fær verðlaun á ful-
lorðinsmyndahátíðinni í Cannes.
Ahrifamikil en ávallt hlutlaus lýs-
ing á þessum yfirborðskennda iðn-
aði.
Rótleysi / Tumbleweeds
★★★
Einkar vel gerð kvikmynd sem lýs-
ir flóknu sambandi móður og dótt-
ur af einstakri næmni. Leikkon-
umar Janet McTeer og Kimberiey
Brown fara á kostum í hlutverki
mæðgnanna.
Ringulreið / Topsy-Turvy
★★★
Sériega vönduð og íburðarmikil
mynd eftir breska leistjórann Mi-
ke Leigh sem fjallar um heim
óperettunnar í Lundúnum á 19.
öld.
Slagsmálafélagið / Fight Club
kkk’A
Umtöluð mynd og ekki að ósekju.
Kærkomið kjaftshögg fyrir sanna
bíóunnendur og jaðrar á barmi
snilldarinnar. Edward Norton er
snillingur.
Fávitarnir / Idioterne
kk‘Á
Eins og við mátti búast nýtir sér-
vitringurinn Lars Von Trier sér
Dogma-formið út í ystu æsar.
Djörf og ögrandi hneykslisrann-
sókn en ekki nógu heilsteypt.
Hvað varð eiginlega um Harold
Smith? / Whatever Happened To
Harold Smith?
★★★
Fortíðardýrkunin er hér allsráð-
andi og í þetta sinn áttundi ára-
tugurinn á mörkum diskósins og
pönksins. Klikkuð og bráð-
skemmtileg bresk eðalmynd.
Hústökuraunir / Scarfies
★★★
Enn einn óvænti glaðningurinn frá
nýsjálendingum. í þetta sinn pott-
þétt spennumynd í anda Shallow
Grave. Fylgist með höfundinum
Sarkies í framtíðinni.
Fucking Ámál / Árans Ámál
kkk'Á
Einfaldlega með betrí myndum um
líf og raunir unglinga. Allt í senn
átakanleg, trúverðug og góð
skemmtun. Stúlkumar tvær vinna
kláran leiksigur.
Heiða Jóhannsdóttir
Ottó Geir Borg
Skarphéðinn Guðmundsson