Morgunblaðið - 09.07.2000, Side 50

Morgunblaðið - 09.07.2000, Side 50
50 SÚNNUDAGUR 9. JÚLÍ 2000 MORGÚNBLÁÐIÐ FÓLK í FRÉTTUM Jagúar fer hringinn Listin að fön Birgisson og Samúel Jón Samúelsson yfír kaffíbolla. mjómsveitin Jagúar er að fara í túr um landið. Á SAMA tíma og músíkmaskínumar með sólskinsbrosin fylla hvert sveita- ballið á fætur öðru ætlar fönksveitin Jagúar að gera heiðarlega tilraun til þess að endurvekja hefð sem hefur að mestu gleymst í þynnkuhausverkjun- um á milli helganna. Það er sú þraut að ferðast út á land um sumartíma í þeim tilgangi að halda tónleika í stað balla. Til þessa eru það einungis trúbadúramir sem hafa haldið líftór- unni í þessari hefð enda afar lítill ' kostnaður sem fylgir flutningi þeirra. Hljómsveitarmeðlimir Jagúars hafa verið að slá persónuleg met í símnotkun síðustu mánuði því þeir hafa séð um að bóka sveitina á nánast hverju einasta kvöldi í tæpar þrjár vikur á menningarsvæðunum fyrir utan borgarmörkin. Fönklífið er ekki auðvelt ,Ástæðan fyrir því að þessar hljómsveitir haifa ekki verið að gera þetta er sú að þetta er náttúrulega v erfitt,“ segir Börkur Birgisson gítar- leikari Jagúars. „Við eram búnir að kynnast því núna eftir að hafa gengið á milli stofnana, nefnda, fyrirtækja og ráðuneyta í von um aðstoð. Við eram með skothelt ferðaplan sem við sjáum alveg um sjálfir. Það er ekki eins og við sitjum á rassgatinu og bíðum eftir því að hlutimir gerist fyrir okkur...“ „Lengur,“ bætir Samúel Samúels- son básúnuleikari við og glottir úr sófahorninu sem hann hefur komið sér svo þægilega fyrir í. „Við höfum verið að leggja þessa góðu áætlun fyrir fólk í nefndum og það verður að segjast eins og er að ís- lenskir ráðamenn mega skammast sín,“ klárar Börkur eftir glettilegt innskot vinar síns. „Þrátt fyrir það að ’97 skrifaði há- vær hópur um útrás íslenskrar tón- listar þá hefur ekkert gerst síðustu 3 ár,“ bætir Daði Birgirsson við, bróðir Barkar og hljómborðsleikari Jag- úars. Það er orðið blaðamanni fullljóst að Jagúar-menn era ekki sáttir við hve ólíkum höndum ráðamenn þjóðarinn- ar taka á íslenskum listgreinum. Það ætti ekki að koma neinum á óvart þar sem meðlimir sveitarinnar era í stöðu sem þekkist vart í íslenskum tónlist- ariðnaði í dag. Þeir era nefnilega at- vinnutónlistarmenn. Sem dæmi má nefna að enginn tónlistarmaður sem býr til klassíska tónlist hefur nokkum tímann fengið listamannalaun. „Þetta er náttúralega klárleg og skýr mismunun," segir Daði. „Önnur mismunun er sú að tónlist- arfólk borgar 24,5% í vask á meðan bókmenntafólkið borgar 14%,“ bætir Börkurvið. Enginn hávaði Hljómsveitin er samt staðráðin í því að fönka upprétt þó á móti blási. Tónleikaferð þeirra hefst í Reykjavík með tvennum tónleikum þann 12. júlí, um daginn spila þeir á Vegamótum en skokka svo með græjumar yfir á Gauk á Stöng fyrir kvöldið. Eftir það verður hljóðfæranum pakkað niður í bfla og lagt af stað til Keflavíkur. „Við ætlum að heimsækja þá staði sem höfðu áhuga á því að fá, að okkar mati, góða tónlist og menningu inn á staði sína,“ segir Daði. „Við ætlum að búa til eitthvað skemmtilegt annað en dansleik. Þetta er undir formerkjun- um „menningarlegir atburðir". Við ætlum að stóla svoldið á hljómburð staðanna og vera ekki með stór kerfi.“ „Vera samt bara eins og við erum,“ segir allt í einu maðurinn úr sófa- hominu. „Við ætlum ekki að fara að spila eitthvað órafmagnað. Það orð kemur hvergi nálægt sögu.“ „Þetta verður enginn hávaði," bæt- ir Daði svo við og lítur til Samúels sem hefur komið sér aftur þægilega fyrir í sófahominu. Á tónleikadagskrá sveitarinnar verður að finna lög af breiðskífu sveitarinnar sem kom út síðasta haust auk efnis af næstu. Áætlað er að sú breiðskífa komi út á næstu mán- uðum. En Samúel bendii- þó glögg- lega á að það sé „teygjanlegt hugtak“. Tilraunir hljómsveitarmeðlima uppréttur Hljómsveitin Jagúar er að fara í hringferð um landið að spila. Birgir Örn Steinarsson ^ hitti þá Börk Hrafn Birgisson, Daða Tveir fyrir einn til Barcelona 19. júlí ,»17.450 Einstakt tækifæri fyrir þá sem vilja r kynnast þessari heillandi borg sem er Síðustu tvímælalaust ein mest spennandi borg Evrópu í dag. Nú getur þú | Q SðBtÍil tryggt þér sæti til Barcelona á frábærum kjörum. Þú bókar tvö sæti, greiðir eingöngu fyrir eitt og getur valið um úrval gististaða í hjarta Barcelona með Heimsferðum. Verðkr. 17.450 K HEIMSFERÐIK Verö pr. sæti, kr.34.900.-12- 17.450.- Skattar kr. 2.490 p.mann, ekki innifaldir. Austurstræti 17, 2. hæð, sími 595 1000. www.heimsferdir.is Ámyndbandi 11. júlí ÆGISSÍÐU 123 SlHll SS1-S292 NÚPALINO 1 KðP. gjHI, B64 BBPO FURUGRUND 3 KÓP. StMll S54-1S17 LAUGAVEGUR 1S4 SlHSSSmUM MOSFELLSBÆ SlMb SSS BO« HAFNARFIRÐI fjHh m|) IfjflP ■ÞAR SiM NÍJUSTU MYNDIRNAR fÁST" „Þessi ferð er eiginlega þríþætt," segir Börkur. „Fyrst og fremst er hún til þess að kynna okkar eigið efni, svo er hann til að komast að því hvort þessi hljómsveit hafi burði til þess að gera svona hlut. Eftir þessa ferð vit- um við hverjir verða áfram í hljóm- sveitinni og hverjir ekki. I þriðja lagi eram við að fara í tónleikaferð til Skandinavíu næsta vor og þú ferð ekkert í svoleiðis ferð nema að vera með traustan hóp og svona reynslu á bakinu.“ Þess má til gamans geta að hljómsveitin hefur hingað til ekki far- ið lengra út fyrir bæjarmörkin en til Akraness að spila. Það verður engin hljómsveitarrúta sem ber piltana bæjanna á milli. Einn sendibfll sér um hljóðfærin og tvo meðlimi á meðan hinir fjórir ferðast á einkabflum. „Þama komumst við að því hve þolinmæðiþröskuldur hljómsveitar- meðlima er hár,“ segir Daði og brosir. En við hverju búast Jagúar-menn með útrás sína út á landsbyggðina? „Að allir þeir sem áhuga hafa á góðri músík mæti,“ segir Daði. „En við eigum ekkert eftir að ríða feitum hesti úr þessari ferð.“ Samtaka / núlw^ Áfengiskaun fyrir unglinga eru lögbrot »1H IIM.T.1gWmWJHWM

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.