Morgunblaðið - 01.09.2000, Blaðsíða 62
62 FÖSTUDAGUR 1. SEPTEMBER 2000
MORGUNBLAÐIÐ
Ferdinand
MV 6RAMPA SAV5 HE
HA5 SIX GRANPCUILPREN
8-15-00
ANP HE SAVS THAT THI5
FALLTHERE UJILL BETHREE
MORE APPLVIN6 FOR LIFE..
V0UR6RAMPA
HA5 A WAV
OUITH UJ0RP5 J
PROBABLV
HE
GET5
IT
FROM
ME
Afi minn segist eiga sex bamaböm Og hann segir aö f haust muni þrjú í
viðbót sækja um tilvist.
Afi þinn kann að Hann sækir það
fara með orð sennilega til mín
BREF
TIL BLAÐSINS
Kringlunni 1 103 Reykjavík • Sími 569 1100 • Símbréf 569 1329
Vanmáttur
lögreglunnar
Erling Sigurðsson skrifar:
í SUMAR hafa hestamenn í Víði-
dal og nágrenni Rauðavatns mátt
þola mikla plágu sem helgast af ök-
umönnum vélhjóla, svokallaðra tor-
færuhjóla, sem böðlast áfram eftir
göngu- og/eða reiðstígum án þess
að huga að afleiðingum þess. Við
hestamenn, sem þurfum vegna at-
vinnu okkar að ríða um þetta
svæði, verðum að sæta því að þess-
ir menn vaði áfram á þessum
hávaðasömu og óskráðu tækjum og
fæli fyrir okkur hestana, oft með
ófyrirsjáanlegum afleiðingum.
Sjálfur hef ég misst hesta frá, og
oft legið við slysi, vegna hesta sem
fælst hafa vegna þessara hjóla og
auk þess hef ég orðið vitni að því
þegar hestamenn hafa kastast af
baki eftir að hestar þeirra fælast.
Þá eru gangandi vegfarendur í
stórhættu á svæðinu vegna þessara
manna sem virðast einskis svífast.
Ekkert þeirra hjóla sem ég hef séð
er með skráningarmerki eða viður-
kenndan öryggisbúnað auk þess
sem varla þarf að búást við að þau
séu tryggð, ef þau, salda slysi. í vor
var reiðstígur í kringum Rauða-
vatn endurbættur og lagaður í
tengslum við landsmót hestamanna
í Víðidal en nú hefur torfæruhjóla-
liðinu tekist að spæna veginn upp
svo stutt er í að hann verði kominn
í sama horf og áður. Sorglegust er
þó sú staðreynd að ekkert virðist
þýða að tilkynna þetta hættulega
athæfi torfæruhjólamannanna til
lögreglunnar. Þar á bæ segjast
menn ekki hafa bolmagn til þess að
stöðva þá og reyna ekki einu sinni
að mæta á svæðið. Einn lögreglu-
maðurinn, sem varð fyrir svörum,
staðhæfði að niðurskurður væri
svo mikill í lögreglunni að ekki
væru til lögreglumenn á bifhjólum
sem hægt væri að senda í þessi
mál.
Sjálfur náði ég eitt sinn að
stöðva einn þeirra og ákvað að
kyrrsetja hann á meðan ég biði eft-
ir lögreglunni. En sú viðleitni mín
varð til einskis þar sem lögreglan
skipaði mér að sleppa manninum
þar sem ég hefði ekki heimild til að
halda honum um leið og hún sagð-
ist ekki hafa tök á að sinna erind-
inu sökum mannfæðar. Eg og
fleiri, sem ríða reglulega og aðrir
sem ganga um þetta svæði, erum
sannfærð um að það sé ekki lengur
spurning um hvort heldur hvenær
þarna verður stórslys því svo oft
hefur legið við slysi af völdum
þessara torfæruhjólamanna sem
komast upp með að iðka sína stór-
hættulegu iðju án þess að eiga á
hættu að verða stöðvaðir af lög-
reglunni.
ERLING SIGURÐSSON,
Hraunbæ 24, Reykjavík.
„Eru hryðju-
verkamenn á
Austurlandi?“
Frá Sigríði Laufeyju Einarsdóttur:
EG þakka konunni á ísafirði fyrir
„Bréf til blaðsins" 30. ágúst sl., um
árásina á náttúruverndarsamtökin
á Austurlandi.
Þegar ég heyrði um innrás „Afls
fyrir Austurland" kom Gaddafi
Lýbíuleiðtogi upp í huga minn og
hryðjuverkasamtök um allan heim.
Ég segi ekki að Einar Rafn sé
arftaki Gaddafis en viðleitnin til of-
beldis á náttúruverndarsamtökin
er af sama toga.
Þó ég skilji vel afstöðu manna til
atvinnuuppbyggingar í heima-
byggð minni er ekki annað hægt
en að mótmæla árásinni á náttúru-
verndarsamtökin. Undirstaða lýð-
ræðis er að allir geti tjáð sig í
gagnrýninni hugsun og röklegri
umræðu um öll málefni samfélags-
ins.
Hvaða afleiðingar hefur það ef
hópur manna getur með þessum
hætti barið niður frjáls félagasam-
tök í landinu? Næsta skrefið verð-
ur að það verði viðtekin siðgæðis-
regla að svo skuli vera. Sem dæmi
má nefna ef stórt knattspyrnufélag
sendir nógu marga „trygga félaga"
til að ganga í lítið knattspyrnulið
og ná til sín úrvalsleikmönnum
með slíkum aðgerðum.
Hvernig verða óskráðar siða-
reglur framtíðarinnar þá? Það er
afar brýnt að menn hafi siðgæðis-
þrek til að taka þátt í siðferðileg-
um rökræðum og fylgja eftir nið-
urstöðum þeirra. Síðast en ekki
síst að tjá sig á einlægan röklegan
hátt og virða skoðanir annarra. Að
öðrum kosti flýtur okkar lýðræðis-
lega stjórnskiplag sofandi að feigð-
arósi.
Ég skora á þingmenn Austur-
lands að mómæla sameiginlega
umræddum aðgerðum. Fyrrgreind
siðlaus árás á félagasamtök í land-
inu er óhæf í pólitískri umræðu
vegna þess hún er ógnun við við-
teknar siðareglur og lýðræði í
landinu.
Ég sendi Hjörleifi Guttormssyni
og náttúrverndarsamtökunum
baráttukveðju, ég veit að þeir
munu ekki láta deigan síga og
halda samræðunni áfram.
SIGRÍÐUR LAUFEY
EINARSDÓTTIR,
Bjargi - Bakkafirði.
Allt efni sem birtist í Morgunblaðinu og Lesbók er varðveitt í upplýsinga-
safni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt til að ráðstafa efninu þaðan, hvort
sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu efni
til birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari hér að lútandi.