Morgunblaðið - 01.09.2000, Blaðsíða 53
MORGUNBLAÐIÐ
MINNINGAR
FÖSTUDAGUR 1. SEPTEMBER 2000 53
+ Páll Friðfinnsson
byggingarmeist-
ari fæddist að Skriðu
í Hörgárdal, hinn 9.
september 1906.
Hann lést á Fjórð-
ungssjúkrahúsinu á
Akureyri að kvöldi
22. ágúst sfðastliðins.
Forcldrar hans voru
Friðfinnur Steindór
Jónsson, bóndi, f. 7.
nóvember 1875, d.
20. ágúst 1951 og
kona hans, Jóhanna
Pálsdóttir húsfrú, f.
18. janúar 1871, d.
28. júní 1940. Bróðir hans var
Hjalti Friðfinnsson, fæddur í
Skriðu 17.5. 1904, d. 26.5. 1956.
Þegar Páll er átta ára flyljast for-
eldrar hans að Barká í Hörgár-
dal, fæðingarstað móður hans, og
býr hann þar til sextán ára aldurs
er hann flytur til Akureyrar, og
byrjar nám í trésmíði hjá Jónasi
Gunnarssyni trésmíðameistara.
Sveinsprófi í iðn sinni tekur hann
árið 1925 og meistararéttindi öðl-
ast hann fjórum árum síðar.
Páll kvæntist Önnu Ólafsdóttur
8. apríl 1933. Foreldar hennar
voru Björg Halldórsdóttir húsfrú,
Elsku pabbi minn, það fyrsta sem
kemur upp í hug mér þegar þú hefur
kvatt þetta líf er þakklæti. Þakklæti
til Guðs fyrir að gefa mér þig sem
föður.
Og fyrir þá auðnu og sérréttindi,
að fá að njóta samfylgdar þinnar svo
lengi. Trúin um að öll eigum við eftir
að hittast og sameinast í ljóssins sal
„Musteri Guðs“ yfirskyggir sorgina,
veitir huggun í harmi. Þú kvartaðir
ekki, þó sjónin bilaði, heymin dofn-
aði og fætumir vildu ekki hlýða. Ut-
varpið stytti þér margar stundir og
þakklátur varst þú þeim sem sóttu
f. 10.8. 1876, d. 26.7.
1960, og Ólafur
Þorkell Eirfksson, f.
18.4. 1869, d. 26.8.
1935, er sfðast
bjuggu að Ljósstöð-
um í Glerárþorpi.
Börn Páls og Önnu
eru: 1) Björgvin L.
Pálsson, bygg.m.
Hrísey, í sambúð
með Önnu Eiðsdótt-
ur. 2) Þór S. Páls-
son, bygg.m. Akur-
eyri, kvæntur
Hrefnu Sigur-
steinsdóttur. 3) Olöf
Pálsdóttir, húsfrú Akureyri, gift
Jóhannesi Hjálmarssyni. 4)
Tryggvi Pálsson, fasteignasali,
Akureyri, kvæntur Aðalbjörgu
Jónsdóttur. 5) Bragi V. Pálsson,
trésmiður og bóndi, Björgum,
Hörgárdal, kvæntur Hafdisi Jó-
hannesdóttur. 6) Friðfinnur S.
Pálsson, bygg.m. Akureyri,
kvæntur Ingu G. Tryggvadóttur.
Barnabörnin eru 24, barnabarna-
bömin 54 og barnabarnabarna-
börnin níu.
Útfór Páls fer fram frá Glerár-
kirkju f dag og hefst athöfnin
klukkan 14.
þig heim. Var þá mikið spurt og
spjallað um málefni fyrr og nú.
Auðvitað á langri ævi komu ýmis
vandamál upp á þitt borð. En þú
vannst úr þeim, á þinn hljóðláta og
yfirvegaða hátt, meðan við börnin
lékum okkur áhyggjulaus og ómeð-
vituð um þá hluti. Þú flíkaðir ekki til-
finningum þínum, en hvað þú unnir
okkur mikið, sást best á öllu því sem
þú lagðir á þig, okkur til handa.
Sveitinni þinni Hörgárdalnum
unnir þú heitt. Og margan sunnu-
daginn minnist ég ferða okkar þang-
að til vina og ættingja. Allt frá því ég
man fyrst eftir mér áttir þú bíl. Og
gaman var að ferðast með þér um
landið. Þekking þín á sögu þess og
stöðum, var mikil. Af henni miðlaðir
þú okkur samfylgdarfólkinu þínu. Þú
varst vel lesinn og fróðleiksþyrstur.
Ferðafélagsbækumar last þú spjald-
anna á milli, þær voru góðar vörður á
leið þinni um landið. En í dag, bý ég
að fróðleik þeim er ég fékk í ferðun-
um með ykkur mömmu og bræðrum
mínum.
Sextán ára komstu í bæinn til að
nema húsasmíði. Jafnframt lærðir
þú útskurð í tré hjá Geir Þormar
frænda þínum. Bifreiðarpróf tókstu
snemma og er skírteini þitt númer
30.
Þið mamma giftust á Möðruvöll-
um árið 1933 og ári síðar byggðuð
þið hús sem þið nefnduð Sólvelli.
Á tólf árum urðum við systkinin
sex, og það gefur auga leið, að langan
vinnudag þurfti til að framfleyta svo
stórri fjölskyldu. Þið mamma voruð
samhent um að fegra allt og prýða,
jafnt innan sem utan húss. Ég hugsa,
að svefntíminn hafi oft verið í styttra
lagi hjá ykkur ekki síst fyrir jólin,
þegar verið var í „laumi“ að útbúa
jólagjafimar handa okkur systkin-
um. Þú smíðaðir, mamma saumaði.
Dótakassar, bílar, flugvélar,
dúkkurúm og margt, margt fleira
var þá framleitt.
Gjaman var þá bætt við smíðarn-
ar einu eða tveim stykkjum handa
frændum og frænkum, sem minnast
þín með þakklæti fyrir umhyggju
þína.
Skíði vom meðal þess sem þú
smíðaðir handa okkur systkininum
og minnist ég vel skíðaferðanna sem
við fómm saman.
Þú teiknaðir fleira en húsin sem
þú byggðir því ófá urðu munstrin
sem þú útbjóst og mamma saumaði
svo út í dúka, sængur, kodda og
fleira.
Perlusauminn, sem prýddi kjólana
hennar mömmu, teiknaðir þú. Fleiri
fengu að njóta þessara hæfileika
þinna, það var ekkert sjálfsagðara
hjá þér en að verða öðmm að liði.
Jólatré, skraut og jólasveina fram-
leidduð þið líka. Einnig minnist ég
PÁLL
FRIÐFINNSSON
TRYGGVI
BERGSTEINSSON
+ Tryggvi Berg-
steinsson fæddist
að Torfastöðum í
Grafningi 19. febr-
úar 1918. Hann lést
24. ágúst síðastlið-
inn. Móðir hans var
Sigríður María Ein-
arsdóttir, f. 20.11.
1894 að Litla-Hálsi í
Grafningi, d. 15.7.
1991. Faðir hans var
Bersteinn Sveinsson,
f. 6. 3. 1879 á Mark-
arskarði í Hvol-
hreppi, d. 1.6.1962.
Utför Tryggva fer
fram frá Njarðvíkurkirkju í dag
og hefst athöfnin klukkan 14.
Tryggva þekktum við frá því
nokkru eftir að við fómm fyrst að
muna eftir okkur. Hann hafði komið í
Njarðvíkumar 18 ára gamall til þess
að vinna hjá afa okkar, Finnboga
Guðmundssyni í Tjarnarkoti, sem
var einn af útvegsbændunum í Innri-
Njarðvík í þann tíð. Þar var afi með
nokkrar kýr í fjósi, allmargar rollu-
skjátur í móunum og rífandi útgerð
og fiskverkun niður við seylubryggj-
una. Tryggvi gerðist síðan Njarðvík-
ingur og var partur af heimsvitund
okkar drengjanna. Hann var hógvær
og feiminn en hlýr. Hann var skýr og
talaði öðruvísi en margir aðrir sem
fundu bólstað í æskuminningum
drengjanna í Njarðvík. Tryggvi
ræddi ekkert um sjálfan sig en mikið
um bækur sem hann hafði lesið eða
nýjar hugmyndir. Hann talaði tæp-
ast illa um nokkurn mann, sagði
reyndar um einn að hann væri dáldið
útundan sér en í rauninni innundir
sig aftur. Hann hafði hlotið erfitt
uppeldi í sárri fátækt, átti vart fót til
skiptanna. Hann mundi eftir því að
hann gat ekki sofið fyrir kulda og
snemma hefur hann
verið settur til verka.
Af sögum fólks er til
þekkti má ráða að að-
stæður sumar í upp-
vexti hans höfðu ekki
þróast á þann veg að
þær væru fallnar til að
örva lítinn dreng and-
lega og líkamlega.
Hann hlaut naumast þá
menntun sem hann
hefði viljað og hæft
hefði honum og móðir
hans átti erfiða daga og
gat illa forðað honum
frá vondum mönnum
sem vildu niðurlægja drenginn.
En Tryggvi lét ekki bugast og það
var gaman að hitta hann. Hann hafði
gjarnan eitthvað merkilegt um að
tala og tilsvör hans voru oftast ekki
nein tuskusýning. Hann hafði yndi af
lestri góðra bóka. Ekki hafði hann
verið nema tvö til þrjú ár með Njarð-
víkingum þegar hann dró fyrir
glugga í herbergi sínu í frístundum
og hóf að læra enska tungu af bók-
um. Með þessu háttalagi vakti hann
allnokkra undrun, jafnvel aðdáun, í
plássinu. Náði Tryggvi færni í lestri
enskunnar sem hann síðan hélt við
með lestri tímarita, var m.a. áskrif-
andi að National Geographic fram á
síðustu ár. Þar fann hann mikinn
fróðleik um móður jörð, menn og
þjóðir, lönd og náttúru. Þar fann
hann stóran heim sem hann dáði, þar
var hvfld að hafa frá smærri mann-
heimi norður við dumbshaf. - Manni
verður á að hugsa, hvar hefði
Tryggvi látið staðar numið ef hann
hefði haft hjá sér nettengda tölvu á
þessum árum? Góð tónlist var
Tryggva mikil unun og naut hann
þess sérstaklega að hlusta á óperu-
söng. Hann fékk sér orgel og lærði
nótnalestur af sjálfum sér og orgel-
spil, sem hann gamnaði sér við löng-
um.
Mestan hluta starfsævi sinnar
vann Tryggvi sem múrari. En hann
hafði ekki bara tekið til hendinni í
einu starfi, hann stundaði sjó og
hann hafði lagt fyrir sig leigubíla-
akstur. Hann byggði sér myndarlegt
hús við Kirkjubraut í Innri-Njarð-
vík. Ekki lagði Tryggvi í hjónaband-
ið og ekki kunnum við af honum sam-
býlissögur. Hann tók til sín aldraða
móður sína, Maríu Einarsdóttur,
sem bjó hjá honum þar til hún lést 96
ára gömul. Tryggvi fór á mis við
margt í uppvextinum og ekki var
hlaðið undir hann. En öfugt við
marga samtímamenn sína, sem þrátt
fyrir fátækt nutu þó betra atlætis,
fylltist hann ekki öfund og neikvæð-
um viðhorfum heldur skapaði sér
sinn eigin heim þar sem hann gladd-
ist með góðum vinum og nágrönnum
í Innri-Njarðvík þar sem hann kaus
að búa sér heimili. Máske hafði hann
hugboð um að orsaka hörguls og
hamingju væri beggja að leita í hug-
arfarinu. Á seinni árum var hann
plagaður af fingurkreppu í höndum
og gat þá ekki spilað á orgelið eða
gert ýmsa fínni handavinnu. Þetta
var slæmt fyrir hann og gerði einlífi
hans og einsemd erfiðari.
Síðasta árið mun Tryggvi hafa
verið orðinn veikur en fékkst lítið um
það. Þegar hann leitaði loks læknis
var hann kominn með langt genginn
sjúkdóm sem erfitt var við að eiga.
Hann bar sig vel eftir stóra aðgerð
og sagði: „Ja, nú tekur í piltar, en
maður verður að taka því sem að
höndum ber.“ Hann sló ekkert af í
lífsstíl sínum í þessum síðustu
þrengingum. Hann hafði skapað sér
sína lífssýn og heimspeki og kvaddi
þennan heim óbeygður.
Við þökkum honum samfylgdina
og vinskapinn og kveðjum með sökn-
uði góðan dreng. Megi hann hvfla í
friði.
Við vottum aðstandendum hans og
vinum hluttekningu.
Matthías Kjeld,
Gylfi Pálsson.
útskurðar þíns á laufabrauðinu í
gamla daga, hann var engu líkur.
Áríð 1942 byggðir þú nýtt hús
handa okkur á Munkaþverárstræti
42 og þaðan á ég margar Ijúfar minn-
ingar. Og sérstaklega er mér minnis-
stætt dúkkuhúsið sem þú smíðaðir
handa mér, einu dótturinni, sem stóð
í garðhorninu.
Sumarbústað byggðir þú líka, svo
við gætum notið „sveitasælu“ og oft
var þar margt um manninn, enda
voruð þið mamma höfðingjar heim
að sækja og alltaf var pláss fyrir ætt-
ingjaogvini.
Akureyrarveikina svokölluðu
fékkst þú og eftir langa legu tókst
þér, af ótrúlegri eljusemi og þraut-
seigju, að þjálfa þig til starfa á ný.
Hagyrðingur varstu góður, og
margar tækifærisvísur urðu til. Þú
skemmtir þá gjarnan á árshátíðum
og þorrablótum með gamanvísum og
eftirhermum, sem þú samdir og
fluttir sjálfur. Þú varst góður söng-
maður og spilaðir bæði á fiðlu og sög.
Það var gaman að hlusta á þig leika á
sögina, því það eru ekki margir sem
það gera.
Elsku pabbi, í dag kveð ég þig í
hinsta sinn og ljúf minning um ást-
ríkan föður mun lifa með þakklæti
fyrir allt sem þú hefur gert fyrir mig
og mína fjölskyldu.
Ég bið Guð að gefa móður minni
styrk í þessari miklu sorg.
Hvfl í friði, pabbi minn.
Þín dóttir,
Ólöf Pálsdóttir.
Elsku langafi minn er nú farinn
frá okkur. Þegar ég fékk fréttir um
að þú hefðir verið lagður inn á
sjúkrahús fársjúkur brá mér mikið.
Að morgni 23. ágúst sl. fékk ég svo
þær fréttir að þú hefðir andast að
kvöldi 22. ágúst og varð ég mjög
hrygg og margar minningar komu
upp í huga mér. Alla mína ævi varst
þú eini langafi minn.
Hjá ykkur langömmu átti ég
margar ánægjustundir, t.d. er ég átti
heima hjá afa og ömmu í Seljahlíð 11
og þið bjugguð í Seljahlíð 13, kíkti ég
gjarnan út um dymar á morgnana til
að gá hvort búið væri að draga frá
svefnherbergisglugga ykkar svo að
ég mætti skokka í heimsókn. Alltaf
var eitthvað góðgæti hjá ykkur að fá
og margar góðar sögur frá því í
gamla daga sagðir þú mér. Þið voruð
líka dugleg að spila við mig.
Á sjötugsafmæli langömmu minn-
ar hinn 25. október 1982 var ég skírð
á heimili ykkar og hélt langamme
mér undir skím. Þegar ég var fimm
ára gömul fluttist ég suður og var
það alltaf mitt fyrsta verk þegar ég
kom norður að heimsækja ykkur.
Nú síðast föstudaginn 23. júní
heimsótti ég ykkur á elliheimilið
Hlíð og sá ég þig þá í hinsta skipti.
Elsku afi minn, erfitt er að hugsa til
þess að þú sért dáinn og farinn frá
okkur, erfiðast mun það þó reynast
langömmu. Þú varst alltaf fastur
punktur í lífi hennar. En að þú sért
farinn frá okkur er hlutur sem við öll
verðum að sætta okkur við. Elsku
langafi minn, ég sakna þín sárt og
minningar þínar geymi ég í hjarta
mínu.
Ég votta ástvinum þínum; lang-<-
ömmu minni, Björgvin, Þór, Ólöfu
ömmu, Tryggva, Braga, Friðfinni og
fjölskyldum þeirra mína dýpstu
samúð.
Hvfl í friði, elsku langafi minn.
Aníta Gunnlaugsdóttir.
+
Elskulegur bróðir okkar og mágur,
ÞORGILS ÞORGILSSON,
Hrfsum,
Fróðárhreppi,
Ólafsvík,
verður jarðsunginn frá Brimilsvallakirkju
Fróðárhreppi laugardaginn 2. september
kl. 14.00.
Hermann Þorgilsson,
Una Þorgilsdóttir,
Anna Þorgilsdóttir, Sveinn Ólafsson.
+
Laugardaginn 26. ágúst lést á Dalbæ Dalvík,
MARÍA SIGURJÓNSDÓTTIR,
áður til heimilis Hvoli,
Dalvfk.
Útför hennar fer fram frá Dalvíkurkirkju laugar-
daginn 2. september kl. 13.30.
Elín Skarphéðinsdóttir,
Gylfi Björnsson,
Jón Emil Gylfason og fjölskylda.
V
+
HALLDÓR KRISTJÁNSSON
frá Kirkjubóli,
verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju í dag,
föstudaginn 1. september, kl. 15.
Fósturbörn, systkini og fjölskytdur.
Lokað
verður á skrifstofum og afgreiðslum Orkuveitu Reykjavíkur í dag
frá kl. 13.00 vegna jarðarfarar GUNNARS H. KRISTINSSONAR,
fyrrverandi hitaveitustjóra Hitaveitu Reykjavíkur.
Orkuveita Reykjavíkur.