Morgunblaðið - 01.09.2000, Page 64

Morgunblaðið - 01.09.2000, Page 64
' $4 'FÖSfífDÁÖM i. SÉÍPftíliIKÉR12Ó00 ; MORfilJN'BLADH) FRETTIR Héraðshátíð framsókn- armanna í Skagafírði HERAÐSHATIÐ framsóknar- manna í Skagafírði verður haldin í Miðgarði, laugardaginn 2. september nk. og hefst kl. 21. Meðal dagskráratriða mun Páll Pétursson félagsmálaráðherra flytja ávarp, Jóna Fanney Svavarsdóttir syngja einsöng við undirleik Thomas Higgerson og Jóhannes Kristjánsson flytja gamanmál. Álftagerðisbræður munu taka lagið við undirleik Stefáns R. Gíslasonar. Kynnir verður Ami Gunnarsson. Að loknum skemmtiat- riðum verður dansleikur með hljóm- sveit Geirmundar Valtýssonar. „Þess má geta að héraðshátíðin hefur verið haldin samfellt í yfir 50 ár, þar af í Miðgarði frá byggingarári 1967 og hefur hljómsveit Geirmund- ar Valtýssonar skemmt á öllum dans- leikjum héraðshátíðar frá 1968,“ seg- ir í fréttatilkynningu. V eg’farendum gefst kostur á andlitsmyndum unardaginn en verkið verður til sýnis á venjulegum afgreiðslutíma versl- unarinnar. ------------- Langur laugardagur á morgun LANGUR laugardagur verður á Laugaveginum 2. september og verður ýmislegt í gangi. Dansarar frá Dansskóla Auðar og Jóhanns Arnar sýna línudans, Skóla- lúðrasveit Kópavogs marserar niður Laugaveginn og harmonikuleikari verður á ferðinni. Mjólkursamsalan verður með kynningu á því sem er í boði af mjólkurdrykkjum fyrir skóla- böm. Verslanir eru að taka inn vetr- arvörur, bókabúðir við Laugaveginn eru fullar af skólavörum og hafa opið fyrir viðskiptavini sína fram eftir kvöldi alla daga vikunnar. Á löngum laugardegi eru verslanir opnar til kl. 17 og eins og fyrr er frítt í bílastæðahúsin en í stöðu- og miða- mæla eftir kl. 13. GESTUM og gangandi gefst færi á að láta taka af sér andlitsmynd í Portrettmyndastúdíói Hrafnkels Sigurðssonar laugardaginn 2. sept- ember, gegn vægu gjaldi, en stúdíóið er að hefja starfsemi sína á neðri hæð tískuverslunarinnar Dýrið við Laugaveg 47. „Sjálfsmyndir þessar, sem eru í stærðinni Á4, sýna þá hlið á einstakl- ingnum sem yfirleitt er ekki sýnileg með berum augum. Hver mynd verður síðan hluti af stærri heild sem einnig er til sýnis í versluninni. Myndirnar eru unnar með ævafornri tækni sem var mjög vinsæl í Evrópu á síðustu öld en hér er hún notuð á nýstárlegan og stafrænan hátt og er þetta í fyrsta skipti sem þessari að- ferð er beitt hér á landi,“ segir í fréttatilkynningu. Kynningin stendur til kl. 23 á opn- Lýst eftir vitnum BIFREIÐINNI LV 584 var lagt í stæði við Bárugötu 12 laugardaginn 19. ágúst um kl. 15. Þegar eigandinn kom aftur að bifreið sinni kl. 21:15 var komin rispa með rauðri máln- ingu á vinstra framhom bifreiðar- innar. Talið er að bflhurð hafi verið skellt þarna utan í LV 584. Sá sem tjóninu olli eða vitni eru beðin um að hafa samband við lögregluna í Reykjavík. Árekstur við Norðurbrún Þriðjudaginn 22. ágúst sl. á bif- reiðastæði bak við húsið Norðurbrún 1 er talið að hafði orðið árekstur milli JI418, hvítrar Suzuki Samurai fólks- bifreiðar og R 7805, Ijósblárrar Daihatsu Charade fóksbifreiðar. Þetta gerðist að kvöldi til. Ágrein- ingur er milli aðila um tjónið og eru vitni beðin að gefa sig fram við lög- regluna í Reykjavík. ---------------- Sýnir hús- gagnahönnun í Valencia ÁRNI Björn Guðjónsson, húsgagna- smíðameistari og hönnuður, sýnir á sýningunni International Furniture Fair í Valencia í september nk. og er sýningin á sjálfstæðum bás í sal 5 nr. J-117 þar sem Árni sýnir hillur og skápaveggi. Þetta er í fyrsta sinn sem bás á þessari sýningu er merktur Islandi en sýningarhöllin í Valencia er með stærstu sýningarhöllum í Evrópu. Hönnun Árna verður seld hér á landi í versluninni Micasa, Síðumúla 13, en einnig seld til annarra landa. Hálstöflur Mýkjandi fýrir hálsinn með ómótstæðilegu lakkrfsbragði - Halstabletter rrwd frisk lakrklssmag 4-0 stk./24 g Prófaðu - fæst í apótekum ÍDAG VELVAKAINDI Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15 frá mánudegi til föstudags Slysatíðni í umferðinni GUÐMUNDUR Snorrason hafði samband við Velvak- anda og vildi hann vekja at- hygli á slysatíðninni í um- ferðinni á þessu ári. Mikið hefur verið rætt um orsakir þessara slysa. Hann telur að orsakir margra þessara slysa séu slæmt vegakerfi, einbreiðar brýr og fleira mætti tína tíl. Það væri allt i lagi fyrir Vegagerðina að birta kort, til dæmis yfir einbreiðar brýr á landinu, ferðamönnum til athugun- ar. Einnig þyrfti að hækka ökuleyfisaldurinn í 18 ár. Flestir 17 ára unglingar eru ekki hæfir til þess að fara út í umferðina. Fyrir nokkrum árum var felld niður ljósastilling á bílum. Afleiðingin er sú að margir bílar aka um eineygðir og með vanstilit ljós. Þar er mikil vanræksla i gangi. Einnig þyrfti aukna lög- gæslu á þjóðvegum lands- ins og inni í bæjum og borg- inni okkar. Það er margt að athuga í þessu máli. Norræna - Nei takk ÞANN 8. júm' síðastliðinn fór ég með kærasta mínum í ferð með skipinu Nor- rænu/Smyril line. Við vor- um að flytja til Noregs og því með alla búslóðina með okkur, bílinn troðfullan og kisuna okkar hana Anast- asíu. Miðana keyptum við þó nokkru áður og okkur þá sagt að það væri ekkert mál að taka kisuna með um borð í skipið, var einnig tekið fram að dýr væru oft og iðulega tekin með og að það væri ágætis pláss sér- staklega fyrir þau. Með þetta í huga lögðum við spennt af stað til Seyðis- fjarðar með Anastasíu í stóru og góðu búri svo ör- ugglega færi vel um hana því þetta var svo sannar- lega ekki auðveld ferð fyrir litla greyið, hreint út sagt ein martröð! Þegar um borð var komið tjáði ein af þjónustustúlk- unum okkur að þetta yrði lítið mál með kisuna því í fyrri ferð hefði verið hund- ur sem fékk að vera í her- berginu hjá eigendunum, svo við vorum full bjart- sýni. En það stóð nú ekki yfir lengi því að fengum fljótt að vita að dýr eru ekki velkomin um borð í þessu skipi og það er harðbannað að hafa dýr um borð en það hafði okkur aldrei verið sagt, nei síður en svo! Jæja, næst á dagskrá var að bíða eftir einhverju æðra valdi sem átti að vita meira um dýrahald um borð. Eftir dá- góða stund birtist skugga- legur Færeyingur sem skipaði okkur að koma með sér og þorðum við ekki ann- að en að hlýða. Við skildum ekki upp né niður í hvers vegna hann æddi út á dekk og inn í eitthvað sem átti að kallast klefi og var það ógeðslegasta sem ég hef séð í þessum dúr. Hann til- kynnti okkur svo að hér ætti kötturinn okkar að vera og í þokkabót ofan í lokuðum kassa með þremur súrefnisgötum. Við fengum vægast sagt áfall!!! Þarna var allt á bólakafi í skit, opnar málningardósir og dósir með ýmsum sterkum efnum. Við heyrðum varla í sjálfum okkur fyrir látum úr skipsvélinni og Anastas- ía var á barmi taugaáfalls, hún reyndi að brjótast út og grét mikið og sársaukafullt. Eg reyndi að telja þessum ómanneskjulega Færeyingi að þetta myndi ekki ganga upp og að kötturinn gæti ekki pínst þarna í þrjá daga en hann reif bara kjaft og var hinn vérsti. Sama hvað við reyndum að koma bæði honum og skipstjóranum í skilning um að þetta væri ófært þá þurftum við að láta í minni pokann. Við erum bæði ansi mikið reið yfir svona meðferð á kisunni okkar þvf þetta var okkur ekki sagt áður en við lögðum af stað og við vor- um ekki að borga fyrir þetta. Anastasía var hálf skemmd eftir ferðina vondu og var í marga daga að ná sér. Við viljum að lokum benda þeim á sem þykir vænt um dýrin sín og þurfa af einhverjum ástæðum að flytja þau milli landa að fara ekki með Norrænu því þetta var martröð. Starfs- liðið um borð ætti líka að hugsa sinn gang því mikil óliðlegheit og ókurteisi gerði það að verkum að við munum ekki stíga fæti okk- ar um borð aftur. tílfhildur Guðjónsdóttir, Ingvi Þór Guðmundsson, Noregi. Ráð gegn fótsveppum ÞAÐ er mjög dýrt að kaupa lyf gegn fótsveppum hér á landi. Ég hef lesið í mörg- um dönskum blöðum að einfalt og ódýrt ráð sé að nota Atamon. Atamon er verjandi fyrir sultutau og fleira og eyðir einnig fót- sveppum. Sem sagt einfalt og ódýrt. Engir lyfseðlar, það er nóg að fara í næstu verslun. Eldri borgari. Þakkir ÉG lá á Landsspítalanum fyrir stuttu síðan og langar mig að þakka öllum á deild 11-B fyrir dásamlega hjálp sem ég fékk. Sérstaklega þó Ugga Ásgeirs og Axel á skurðstofu. Sendi ég þeim mínar bestu þakkir. Maria A. nr.2659. Tapad/fundid Lítil grá taska tapaðist LITIL grá taska tapaðist á Astro laugardaginn 19. ágúst sl. Skilvís finnandi hafi samband í síma 551- 1496 eða 898-1332. Þessir drengir héldu hlutaveltu fyrir nokkru. Afraksturinn var 2.598 krónur og rann hann óskiptur til Rauða krossins. Þeir heita Valgeir Erlendsson og Halldór Guðmundsson. Þessar stúlkur héldu hlutaveltu til styrktar ABC hjálpar- starfi. Þær heita Þórhildur Elva Þórisdóttir og Hulda Páls- dóttir. Þær söfnuðu 1.340 krónum. Víkverji skrifar... VÍKVERJA hefur borist eftirfar- andi bréf: „Víkverji hefur að undanförnu ver- ið að velta því fyrir sér hvað ráði því hvar Síminn leggur breiðband hverju sinni. Þeirri spumingu hefur m.a. verið velt upp hvort sumir íbúar borgarinnar og landsins séu mikil- vægari en aðrir í augum Símans og fái því fyrr breiðband. Síminn myndi gjarnan vilja geta lagt breiðbandið heim tii allra lands- manna á sama degi en eðli sínu sam- kvæmt tekur slíkt nokkurn tíma. Einhvers staðar þarf að byija og enda. Árið 1995 var ákveðið að leggja breiðbandið. Miðað var við að hægt yrði að tengja 5-6 þúsund heimili á ári og Ijóst að þetta tæki nokkur ár. Ákveðið var að byrja á þeim svæð- um þar sem hagkvæmast er að leggja. Breiðbandið er lagt í öll ný hverfi og þar sem verið er að endur- nýja lagnir í eldri hverfum. Síminn hefur átt gott samstarf á undanfom- um ámm við önnur fyrirtæki og not- að tækifærið þegar grafa þarf skurði á annað borð og lagt breiðband. Kostnaðurinn dreifist og úr sögunni er sú gamla tilhneiging að verið sé að grafa aftur og aftur sömu skurðina. Þess vegna hefur breiðbandið t.d. verið lagt í hluta Vesturbæjarins og fyrst Víkverji spyr þá er rétt að taka fram að það er líka breiðband í Hlíð- unum, t.d. í blokkunum við Eskihlíð, Stigahlíð, Bogahlíð og Bólstaðarhlíð, þar sem dijúgur hluti Hlíðabúa er búsettur. Auk þess hefur Síminn lagt breiðbandið á öðmm svæðum þar sem ekki þarf að koma til mikið jarð- rask t.d. ef hægt er að rista það niður í gras líkt og gert var í hluta Breið- holts. Hvað varðar landsbyggðina gilda þar sömu reglur um hagkvæmni og í höfuðborginni. Húsavík var hins veg- ar tilraunaverkefni fyrir breiðbandið og það lagt um allan bæinn. Nýlega var lokið við að leggja breiðband um Stykkishólm þar sem verið var að skipta um hitaveitulagnir. Þá hefur breiðband verið lagt að hluta til í aðra bæi á landinu eins og Keflavík, Eg- ilsstaði, Akureyri og Isaljörð. Fyrir- hugað er að ljúka þeim tengingum næsta sumar og hefja þjónustu á breiðbandinu í framhaldi af því. Virðingarfyllst, Guðbjörg Gunnarsdóttir kynningarfúlltrúi“ Víkveiji þakkar bréfið en hefði þótt vænt um að fá nákvæmari upp- lýsingar um fyrirætlanir og tíma- setningar Landssímans í þessum efn- um. VINUR Víkverja er áhugamaður um akstursíþróttir. Saknar hann þess sérstaklega að heims- meistarakeppninni í rallakstri skuli ekki vera gefinn neinn gaumur í dag- skrá sjónvarpsstöðvanna. Hann telur sig vita að íþróttadeild- um fréttastofa stöðvanna berist fréttamyndir frá hverri keppni, en þetta efni sé aldrei sýnt, þótt áhuga- fólk um þessa viðburði skipti þúsund- um hér á landi, eftir því sem vinurinn slær föstu. Segir hann heimsmeist- arakeppnina í ralli vera eitt vinsæl- asta áhorfendasport í heimi. Þykir honum miður, að frá því þátturinn Mótorsport fluttist frá rík- issjónyarpinu í ruglaða dagskrá Stöðvar tvö sé orðið erfiðara að fylgj- ast með því sem er að gerast í íslenzk- um akstursíþróttum. Rfldssjónvarpið virðist telja, að með því að sýna reglu- lega frá Formúlu eitt-kappakstri sé þörfum allra íslenskra áhugamanna um akstursíþróttir fullnægt. Burtséð frá því að þykja gæðum lýsinganna frá formúlukeppnunum í Sjónvarpinu mjög ábótavant þykir vini Víkverja ástæða til að vekja athygli á því, að heimur akstursíþróttanna sé mun fjölbreyttari og að það sé synd að þessum spennandi heimi sé ekki sinnt í dagskránni.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.