Morgunblaðið - 01.09.2000, Blaðsíða 32
32 FÖSTUDAGUR 1. SEPTEMBER 2000
MORGUNBLAÐIÐ
\
LISTIR
„Þátttakandi í einni af mörgum árlegum útihátíðum í Reykjavík blæs
sápukúlur." Ljósmynd eftir Ragnar Th. Sigurðsson.
Krúttlegi Kínverj- I
inn í vestrinu
Hátíð
í borg
BÆKUR
L j ó s m y n d i r
REYKJAVÍK -
Á VIT NÝRRA ALDA
eftir Ara Trausta Guðmundsson
og Ragnar Th. Sigurðsson.
Filmur, prentun, umbrot: Oddi hf.
Hönnun: Elísabet A. Cochran.
Arctic bækur sf. 2000.
144 bls.
í TILEFNI þess að Reykjavík er
ein af menningarborgum Evrópu ár-
ið 2000 hafa ljósmyndarinn Ragnar
Th. Sigurðsson og Ari Trausti Guð-
mundsson, rithöfundur og náttúru-
fræðari, sent frá sér bók sem þeir
kalla Reykjavík - Á vit nýrra alda.
Höfuðborgin sem þeir sýna hér er
lífleg og litrík. Myndirnar eru næst-
um 200 talsins, sumar birtar á heil-
um opnum en á öðrum síðum er allt
að sextán smámyndum stillt upp
saman. Dregin er upp ímynd borgar
sem mótuð er af frumkröftunum; á
eftir ávörpum borgarstjórans, Ingi-
bjargar Sólrúnar Gísladóttur og
Thors Vilhjálmssonar, rithöfundar,
taka við meginkaflarnir fjórir: Eld-
ur, Jörð, Loft og Vatn.
Markmið höfundanna hefur verið
að búa til fjölbreytilegt portrett af
lifandi borg. Þeir hefja hvern kafla á
umfjöllun um listamann, með mynd
af honum og verki eftir hann. Þessir
listamenn eru Erró, Finna Birna
Steinsson, Ragnheiður Jónsdóttir
og Kristinn E. Hrafnsson. í textan-
um rekur Ari Trausti síðan á lipur-
legan hátt sköpunarsögu landsins
sem borgin rís á og umhverfis henn-
ar. Þá er saga Reykjavíkur sögð og
skýrt frá ýmsum sérkennum og
áhugaverðum staðreyndum, hvort
sem um heitt vatn eða listasöfn er að
ræða.
I myndunum kemur Ragnar Th.
víða við. Nokkuð er um landslags-
myndir og þær notaðar til að út-
skýra áhrif náttúrunnar á mótun
borgarinnar, en þorri myndanna
sýnir þó mannlíf og arkitektúr.
Menningarborgin iðar af lífi á síðum
bókarinnar, komið er við í tívolí, á
miðborgarhátíðum, í maraþoni, í
næturgleði. Að mínu mati hefði mátt
veita hvei'sdeginum meira inn á síð-
urnar, spurningin er hvort þessi
ærsl séu raunveruleikinn sem við
borgarbúar lifum við. En það er val
höfundanna að fylla miðborgina
þessu lífi og margar myndanna það-
an eru hreint ágætar, þótt þær séu
vissulega missterkar. I sumum
myndum af fólki saknaði ég þess að
sjá ekki ákveðnari afstöðu; nálgun
ljósmyndarans er svo mismunandi
og stundum fólki augljóslega stillt
upp. Ahrifamestu ljósmyndir Ragn-
ars Th. eru myndir hans af arkitekt-
úr, hvort sem það eru stakar bygg-
ingar eða ásýnd borgai-hverfa. Þar
vinnur hann vel út frá formum og
blæbrigðum í birtu.
Til að fjölga röddum bókarinnar
eru bh’t portrett af nafngreindum
einstaklingum á ólíkum aldri, sem
iáta skoðanir sínar á borginni í ljós í
stuttu máli. Þá er sýnt fólk að störf-
um, eins og fiskimenn og kona við
erfðarannsóknh-, og komið við í
menningarstofnunum sem og versl-
unum. Fjölbreytileikinn er því mikill
á síðum þessarar bókar, en ekki hef-
ur tekist að halda utan um hann sem
skyldi í hönnuninni. Farin er sú leið
að halla portrettum af einstakling-
um á síðunum, en það er ósmekklegt
og gengur ekki upp, ekki frekar en
að klippa út nokkrar myndir og setja
inn í texta. Þessar hönnunaræfingar
vinna gegn því að skapa hrynjandi
og stílfestu innan bókarinnar.
Annars er þetta fjörleg bók, um
leið og hún er fræðandi, og í anda
borgar þar sem árið sem er að líða á
að vera ein samfelld hátíð í lit.
Einar Falur Ingólfsson
KVIKMYNPIR
Laugarásbíó,
Háskólabfó og
B í 6 b o r g i n
SHANGHAINOON ★ ★%
Leikstjóri: Tom Dey. Handrit:
Miles Millar and Alfred Gough.
Aðalhlutverk: Jackie Chan,
Owen Wilson, Roger Yuan,
Xander Berkeley og Lucy Liu.
Buena Vista Pictures 2000.
JACKIE Chan er vægast sagt
mjög sérstakur náungi. Hann er
þekktur íyrir frábær bai’dagaatriði,
íyrir að framkvæma öll atriðin sín
sjálfur og að hafa brotið í sér hvert
bein oft og mörgum sinnum við þær
líflegu framkvæmdir. Ég held að
þessi 46 ára Kínverji eigi sér fleiri
kvenaðdáendur en gengur og gerist
um bardagatöffara. Ég þekki heilu
stelpuhópana sem fara saman og
leigja sér Jackie Chan-myndir. Þeim
finnst hann svo mikið krútt. Og það er
eitthvað einstakt við þennan náunga
sem líka gefur myndunum þennan
vinalega blæ sem m.a. er að finna í
Shanghai Noon. Þó að persónusköp-
unin sé ekki sú frábærasta og þaðan
af síður sú frumlegasta er ekki annað
hægt en að lifa sig inn í ævintýri litla
einlæga Kínverjans frá upphafi til
enda. Hann er bara þannig. Svo mikið
krútt. Pokémon fullorðna fólksins.
1 Shanghai Noon leikur Jackie
Chan Chon Wang, kínverskan þjón
keisarans í Kína, sem ferðast alla leið-
ina til villta vestursins til að bjarga
kínversku prinsessunni Pei Pei frá
mannræningjum. Litli Kínverjinn
lendir í hinum ótrúlegustu mann-
raunum (sem hann reddar sér út úr
með bardagalistina að vopni, nema
hvað!) og kynnist m.a lestarræningj-
anum Roy O’Bannon og þeir verða
góðir félagar.
Mér fannst þetta frekar fyndin
mynd. Bestu brandararnir eru þegar
gert er grín að vestra-formúlunni
með slatta af tilvísunum í nútímann
og kvikmyndasöguna. En oft á tíðum
er húmorinn líka á frekar lágu plani,
en það er ekkert sem er ófyrirgefan-
legt. Og svo er náttúrulega húmor í
bardagaatriðunum, og það er spurn-
ing hvort húmorinn sé skrifaður inn í
handritið, eða hvort megi skrifa hann |
á Jackie Chan. Ég held að Jackie
Chan hafi sjálfur hannað þau og takið ■
eftir atriðunum þegar hann berst við f
indíánana, þau eru frábær.
Sumum gæti þótt vera of fá bar-
dagaatriði í þessari kvikmynd miðað
við hans fyrri myndir, en mér fannst
þetta alveg nóg. Þetta er einföld og
ævintýraleg saga, og færri bardaga-
atriði gefa pláss fyrir meiri kómedíu
og persónulega hluti. En það er meiri
tilfinningasemi og mannlegri persón- >
ur í þessari mynd en gerist í vestrum 1
sem var ánægjulegt og smellpassar
fyrir Jackie Chan og Roy félaga hans §
sem Owen Wilson leikur líka mjög
vel.
Það er helst að ástannálunum hafi
ekki verið gerð nógu góð skil og það
er galli. Það var nú einu sinni ástin
sem rak hann heimsálfna á milli til að
byija með.
Frá mínum bæjardyrum séð er
þetta hinn hressilegasti grínvestri
sem endar á tilhlýðilegan hátt, skal
ég segja ykkur. Og getið nú!
Hildur Loftsdóttir (|
INNKÖLLUN HLUTABRÉFA (VINNSLUSTÖÐINNI HF
Stjórn Vinnslustöðvarinnar hf., kt. 700269-3299, gerir kunnugt að með heimild í 2. mgr. 27. gr. laga um hlutafélög, nr. 2/1995, hef-
ur hún tekið ákvörðun um að hlutabréf í félaginu verði tekin til rafrænnar skráningar í kerfi Verðbréfaskráningar íslands hf. Rafræn
skráning tekur gildi 27. nóvember árið 2000 kl. 9.00 árdegis. Frá þeim tíma ógildast hin áþreifanlegu hlutabréf í félaginu í samræmi
við heimild í ákvæði til bráðabirgða nr. II í lögum nr. 13/1997, um rafræna eignaskráningu verðréfa, sbr. 6. gr. laga nr. 32/2000, um
breytingar á ýmsum lögum vegna tilkomu rafrænnar eignaskráningar á verðbréfum og reglugerð nr. 397/2000, um rafræna eigna-
skráningu verðbréfa í verðbréfamiðstöð.
Nánar tilgreint verða öll hlutabréf í Vinnslustöðinni hf. tekin til rafrænnar skráningar, en þau eru í 5 flokkum, öllum jafn réttháum,
auðkennd í raðnúmerum frá 1 og í samfelldri röð nú 6500. Utgáfudags er getið á hverju bréfi.
Hér með er skorað á alla eigendur ofangreindra hlutabréfa, sem telja nokkurn vafa leika á því að eignarhald þeirra sé réttilega fært í
hlutaskrá Vinnslustöðvarinnar hf., að staðreyna skráninguna með fyrirspurn til skrifstofu Vinnslustöðvarinnar hf. Hafnargötu 2, 900
Vestmannaeyjum. Komi í ljós við slíka könnun að eigendaskipti hafi ekki verið skráð ber eigendum að færa sönnur á þau gagnvart
félaginu innan þriggja mánaða frá síðari birtingu innköllunar í Lögbirtingi.
Ennfremur er skorað á alla þá sem eiga takmörkuð réttindi til ofangreindra hlutabréfa, s.s. veðréttindi, að koma þeim á framfæri við
fullgilda reikningsstofnun, sbr. 10. gr. laga nr. 131/1997, um rafræna eignaskráningu verðbréfa, innan þriggja mánaða frá síðari birt-
ingu innköllunar í Lögbirtingi. Gæta skal þess að reikningsstofnun hafi gert aðildarsamning við Verðbréfaskráningu íslands hf.
Stjóm Vinnslustöðvarinnar hf. hefur ákveðið að eftir að innköllunarfrestur er liðinn og rafræn skráning á ofangreindum hlutabréfum
hefur átt sér stað í kerfi Verðbréfaskráningar íslands hf. skuli arðgreiðslur til hluthafa einungis fara fram í gegnum kerfi Verðbréfa-
skráningar íslands hf. sbr. heimild í 4. tölul. 54. gr. reglugerðar nr. 397/2000.
Við rafræna útgáfu ofangreindra hlutabréfa er nafnverð hluta ákveðið ein króna eða margfeldi þar af.
Að lokinni rafrænni skráningu geta hluthafar falið reikningsstofnun sem gert hefur aðildarsamning við Verðbréfaskráningu íslands
hf. umsjón með eignarhlut sínum í félaginu. Hluthafar munu fá sendar tilkynningar og reikningsyfirlit í samræmi við ákvæði reglu-
gerðar nr. 397/2000.
VINNSLUSTÖÐIN HF.,
Vestmannaeyjum, 28. ágúst 2000
F.h. Stjórnar Vinnslustöðvarinnar hf.
Sigurgeir Brynjar Kristgeirsson,
framkvæmdastj ór i.
I