Morgunblaðið - 01.09.2000, Blaðsíða 76
MOMEELEST
GoTTSÁÐUMMEGW/
ATLANTSSKIP
- ÁREIEJANLEIKI í FLUTNINGUM -
Leitið upplýsinga i síma S20 2040
www.atlantsskip.is
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLUNNl 1,103 REYKJAVÍK, SÍMI5691100, SÍMBRÉF5691181, PÓSTHÓLF3040,
ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 5691122, NETFANG: RITSTJ&MBLJS, AKUREYRI: KA UPVAN GSSTRÆTI1
FÖSTUDAGUR 1. SEPTEMBER 2000
VERÐ í LAUSASÖLU 150 KR. MEÐ VSK.
Bensínverð lækkar
Umhverfis jörðina
á sextugsaldri
, i _ Ævintýrakonan Jennifer Murray lenti þyrlu sinni á Keykjavíkurflugvelii
A innfelldu myndinni er Colin Bodill, sem fylgir Jennifer umhverfís jörðina á
físflugvél sinni.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
en gasolía hækkar
VERÐ á bensíni lækkar í dag um
30 aura á lítra hjá stóru olíufélög-
unum. Hins vegar mun verð á gas-
olíu hækka frá og með mánaðamót-
um um 2,50 kr. á lítra og verð á
gasolíu til útgerðar hækkar um
2,70 kr. á lítra. Einnig mun verð á
svartolíu hækka um 1.900 kr. á
tonn samkvæmt upplýsingum olíu-
félaganna.
Fram kom í fréttum Búnaðar-
bankans verðbréfa í gær að hækk-
un gasolíu til útgerðar væri um
9,3% og frá því í ágúst á seinasta
ári hefði olía til útgerðar hækkað
um samtals 73%. Ljóst væri því að
þessi hækkun á gasolíuverði yki
verulega olíuútgjöld útgerðarinnar.
Samkvæmt upplýsingum Olíufé-
lagsins hækkaði heimsmarkaðs-
verð á gasolíu um rúmlega 70
bandaríkjadali í ágúst eða um nær
30%. Óhagstæð þróun íslensku
krónunnar gagnvart dollar hefði
þau áhrif að hækkun á útsöluverði
hér á landi á gasolíutegundum og
svartolíu sé hærri en annars hefði
orðið.
BRESKA ævintýrakonan Jennifer
Murray lauk þyrluprófi fyrir sex ár-
- jum. Þessa dagana er hún að ljúka
annarri hnattför sinni, en hún lenti
á Reykjavíkurflugvelli í blíðskapar-
veðri á leið sinni til London í gær.
„Þetta er lokaáfanginn," segir
Jennifer sem er á sextugsaldri.
Hnattferðin hófst 31. maí f London.
Þaðan flaug hún í austur og áætlar
hún að lenda í London að viku lið-
inni, með viðkomu í Færeyjum og
Skotlandi. Með hnattförinni er
Jennifer að afla fjár til styrktar
SMILE-góðgerðarsamtakanna.
“SMILE-samtökin voru stofnuð af
skurðlæknum í Bandaríkjunum sem
ferðast um heiminn og gera aðgerð-
ir á fátækum börnum með alvarleg
andlitslýti. Þetta framtak læknanna
er lofsvert og mörg börn hafa notið
i*feóðs af,“ segir Jennifer.
Jennifer er fyrsta konan sem flog-
ið hefur umhverfís hnöttinn í þyrlu
ein síns liðs. 1997 varð hún fyrsta
konan til þess að afreka það með
hjálp aðstoðarflugmanns og er það
met skráð í heimsmetabók Guinnes.
„Ég fékk metið ekki skráð í flug-
bækurnar vegna þess að aðstoðar-
flugmaðurinn var karlmaður. Þess
vegna varð ég að gera þetta aftur
ein,“ segir Jennifer. Að sögn Jenni-
fer keyptu hún og eiginmaður henn-
ar þyrlu fyrir sex árum, en hvorugt
þeirra kunni að fljúga. „Maðurinn
minn sagðist ekki hafa tíma til að
læra að fljúga þannig að ég neyddist
til þess og sé ekki eftir því.“
Vandræði í Kína
Með í för að þessu sinni er Colin
Bodill, sem hefur fylgt Jennifer í fis-
flugvél sinni. „Colin hefur unnið
mikið afrek. Fisvélar eru litlar og
léttar og mjög viðkvæmar fyrir
veðri og vindum. Til þess að fljúga
svona vél umhverfis jörðina þarf
mikið hugrekki,“ segir Jennifer. Að
hennar sögn hefur ferðin gengið
Citicorp og fleiri alþjóðleg fyrirtæki fjárfesta í Netverki
Um 770 milljóna
hlutafj áraukning
HUGBUNAÐAR- og hátæknifyrir-
tækið Netverk lauk í gær 770 millj
óna króna (9,5 milljóna Banda-
ríkjadala) hlutafjáraukningu í sam-
starfi við hóp erlendra fjármálafyr-
irtækja. Leiðandi aðilar í hópi
fjárfestanna eru Citicorp Capital
Asia Limited, fjárfestingarfyrir-
tæki Citibank í Asíu og WestLB
Panmure sem er fjárfestingarfyrir-
tæki WestLB Group.
Netverk ætlar að nýta hið nýja
hlutafé í frekari þróun á hugbúnaði
fyrirtækisins og markaðssetningu
hans og sölu erlendis.
Holberg Másson, stofnandi og
forstjóri Netverks, sagðist í sam-
tali við Morgunblaðið í gærkvöldi
vera mjög ánægður með að hafa
fengið góða erlenda fjárfesta að
fyrirtækinu. Hann sagði að unnið
hefði verið að þessu verkefni í
nokkurn tíma. Fyrirtækið hefði nú
í undirbúningi að verða skráð á
markað og erlendu fjárfestarnir
myndu koma að því. Þessi virtu
fjármálafyrirtæki hefðu sýnt mik-
inn áhuga á þeim hugbúnaðar-
lausnum sem Netverk hefur verið
að þróa á undanförnum árum.
hann sagðist gera ráð fyrir að
starfsmönnum Netverks yrði nú
fjölgað úr 60 í um 100 manns.
WestLB Panmure annaðist fjár-
festingu WestLB sem var gerð í
gegnum dótturfyrirtæki þess,
Equity Bridge Finanz GmbH.
Meðal annarra fjárfesta eru A & A
Actienbank í Zurich og dótturfyrir-
tæki hans, A & A Early Bird Fund
sem er skráð fjárfestingarfyrirtæki
og einbeitir sér að ungum fyrir-
tækjum á sviði fjarskipta og tækni.
Umsvifin aukin í Evrópu, Asíu
og Norður-Ameríku
I kjölfar hlutafjáraukningarinn-
ar hyggst Netverk auka umsvif sín
í Evrópu, Asíu og Norður-Amer-
íku. Á að setja aukinn kraft í sölu,
innleiðingu og þjónustu við hug-
búnað fyrirtækisins á hverju mark-
aðssvæði. Netverk mun opna skrif-
stofur í Danmörku og Bandaríkj-
unum en fyrirtækið hefur nú skrif-
stofur í Hong Kong og á íslandi,
auk höfuðstöðva sinna í Bretlandi.
Holberg sagði að fjárfestarnir
myndu aðstoða Netverk á mörkuð-
um í Bandaríkjunum, Asíu og
Evrópu.
í fréttatilkynningu frá Netverki
í gær er haft eftir K.S. Butalia,
forstjóra Citicorp Capital Asia, að
Netverk væri einstakt fyrirtæki á
þessu sviði og það hefði yfir að
ráða hugbúnaði sem yki öryggi og
gæði þráðlausra gagnasendinga.
Mikil þörf væri á markaðnum fyrir
slíkar hugbúnaðarlausnir og kvaðst
hann búast fastlega við að Netverk
ætti eftir að skapa sér nafn sem
lykilfyrirtæki á þessum ört vaxandi
og mikilvæga markaði.
I fréttatilkynningunni kemur
fram að á síðustu tveimur árum
hefur Netverk aflað sér samtals
rúmlega 1,2 milljarða í hlutafé. Þar
af komu rúmlega 250 milljónir frá
Landsbanka íslands fyrr á þessu
ári.
Auk fjárfestingarsamningsins
hefur WestLB Panmure gert sam-
komulag við Netverk um að veita
fyrirtækinu ráðgjöf varðandi und-
irbúning fyrirtækisins fyrir skrán-
ingu á erlenda markaði.
Hannes Hlífar
sigraði í Portúgal
vel. „Ferðin hefur að mestu gengið
áfallalaust fyrir sig, að undanskild-
um smávægilegum vélarbilunum.
Colin lenti þó í vanda yfir Kína. Her-
þotur neyddu hann til þess að lenda.
Við lentum í vondu veðri og hann
villtist af leið. Kínversk flugyfirvöld
voru ekki ánægð með það svo hann
var neyddur til þess að lenda vélinni
í Kína þar sem hann var hafður í
haldi í þijá daga og yfirheyrður. En
þetta blessaðist allt að lokum.“
„Það er mjög gaman að koma til
íslands í svona góðu veðri. ísland er
stórbrotið og það verður skemmti-
legt að fljúga yfir landið og njóta út-
sýnisins," segir Jennifer. Hún held-
ur af stað áleiðis til London í dag.
Morgunblaðið/Ásdís
Olsen, Olsen
MORTEN Olsen, þjálfari danska
landsliðsins í knattspymu, var í
þungum þönkum á æfingu liðsins á
Laugardalsvellinum í gær enda
mikilvægur leikur framundan gegn
íslendingum á morgun. Olsen hefur
lítið viljað láta uppi um leikáætlun
sína og í dönsku blöðunum voru í
gær miklar vangaveltur um hvaða
leynivopn leyndist í ermi hans.
tryggði sér sigurinn með því að
vinna Israelsmanninn Michael
Oratovsky í tíundu og síðustu um-
ferð mótsins en í níundu umferð
sigraði hann Murtas Kazhgaleyev
frá Kasakstan. Hannes varð einn
efstur á mótinu en nokkrir skák-
menn fengu 71/2 vinning. Þessi ár-
angur Hannesar samsvarar um það
bil 2.700 skákstigum, skv. frétt
Skáksambands Islands í gærkvöldi.
HANNES Hlífar
Stefánsson stór-
meistari fór með
sigur af hólmi á
alþjóðlegu skák-
móti í Lissabon í
Portúgal í gær-
kvöldi. Hannes
fékk átta vinn-
Hannes Hlífar inga af tíu mögu-
Stefánsson legum. Hannes