Morgunblaðið - 01.09.2000, Blaðsíða 25

Morgunblaðið - 01.09.2000, Blaðsíða 25
MOIiGUN BLAÐLÐ ERLENT FQSTUDAGUR 1. SEPTEMBUR 2000 26 Kohl-skop FRAMLEIÐANDI grín- og hrekkja- lómahluta í Þýzkalandi hefur sett þetta sérpakkaða súkkulaði á markað, tileinkað hneykslismálum Helmuts Kohls, fyrrverandi kanzl- ara. „Schock-Kohl-adé“ er afbökun á þýzka orðinu yfir súkkulaði og þýð- ir svo mikið sem „Sjokk-Kohl- bless“. Þá er skammstöfunin fyrir flokk Kohls, Kristilega demókrata, CDU, notuð í setningu sem er borin fram eins og „Zu dumm gelaufen", en hún þýðir að eitthvað hafi farið úrskeiðis. Þá eru frasarnir „Wohl bekomm’s" (verði þér/ykkur að á súkkulaði góðu) og „Wohlstand fíir alle“ (vel- megun fyrir alla) skopstældir, en þann síðarnefnda notuðu Kohl og CDU í kosningabaráttu í austurhér- uðum Þýzkalands í kring um sam- einingu landsins árið 1990. Og „Kiep Kohl“ tengir kosninga- slagorð úr síðustu kosningabaráttu fyrir þingkosningarnar í september 1998, þegar stuðningsmenn Kohls hvöttu kjósendur til að „halda Kohl“ („Keep Kohl“) í kanzlara- stólnum, og nafn Walters Leislers Kiep, eins höfuðpaurs leynireikn- ingshneykslisins svokallaða, en hann var um árabil ljármálastjóri flokksins og trúnaðarmaður Kohls. Seðlabanki Evrópu V extir hækkaðir SEÐLABANKI Evrópu hækkaði vexti um 25 punkta, eða 0,25%, í gær og og eru þeir nú 4,50%. Þetta er í sjötta sinn frá 4. nóvember í fyrra sem bankinn hækkar vexti sína, en fyrir þá hækkun vora vextirnir 2,50%. Að sögn útgáfu Financial Times í Þýskalandi eru röksemdir bankans fyrir þessari hækkun þær að útlit fyi-- ir vöxt efnahagslífsins á evrusvæðinu sé mjög gott og til að svo verði áfram þurfi verðlag að haldast stöðugt. Þó bankinn geri ekki ráð fyrir að þessi hækkun nú hafi áhrif til skamms tíma, þar hafi olíuverð og gengi mest að segja, hafi hún þau áhrif til meðal- langs tíma litið að draga úr tilhneig- ingu til hækkunar verðlags. Þessi vaxtahækkun kom markaðn- um ekki á óvart því almennt hafði verið búist við 25 til 50 punkta hækk- un. Fyrst eftir hækkun fór evran lítil- lega upp gagnvart Bandaríkjadal en lækkaði svo á ný og náði sögulegu lágmarki sínu í 0,8840 dölum, áður en hún hækkaði á ný. Vaxtahækkun seðlabanka Evrópu hafði ekki nein mælanleg áhrif á ís- lenskum fjármálamarkaði í gær. Bandaríkin hunsa ráðstefnu 1 Japan Þáttur í mótmælum gegn hvalveiðum Tókýó. AP. STJORNVOLD í Japan hafa lýst vonbrigðum sínum yfir því að Bandaríkjamenn skyldu ákveða að hundsa alþjóðlega rúðstefnu í Japan á vegum Sameinuðu þjóðanna sem hófst í gær. Markmið Bandaríkja- stjórnar með ákvörðuninni er að leggja áherslu á andúð sína á því að japanskir hvalveiðimenn ætla að hefja svonefndar vísindaveiðar á búrhvölum og skorureyðum en nú þegar veiða þeir um 400 hrefnur ár- lega við Suðurskautslandið. Bandaríkjamenn hafa hótað að grípa til viðskiptalegra refsiaðgerða gegn Japönum ef þeir láti verða af því að hefja umræddar veiðar. Jap- anar segja að utanríkisráðuneytið í Washington hafi látið sendiherra Japan í Bandaríkjunum vita á mið- vikudag af ákvörðuninni um að hundsa ráðstefnuna. „Ráðstefnan kemur ekkert hval- veiðum við,“ sagði Takeshi Ogawa, embættismaður hjá umhverfis- stofnun Japans, í gær. „Málið er ekki einu sinni á dagskránni," sagði hann og bætti við að ákvörðun Bandaríkjamanna væri „óheppi- leg“. Ráðstefnan er kostuð af efna- hags- og félagsmálanefnd SÞ fyrir Asíu og Kyrrahafslönd. Hún hófst í gær í borginni Kitakyushu á eynni Kyushu. Japanar eiga sæti í Alþjóðahval- veiðiráðinu, IWC, sem bannaði hvalveiðar í atvinnuskyni 1986. Telja andstæðingar hvalveiða að með vísindaveiðunm á hval séu Japanar að fara í kringum bannið. Ekki bætir úr skák að bæði búr- hvalur og skorureyður eru á skrá Bandaríkjamanna yfir dýr í útrýmingarhættu. Þessar tvær teg- undir hafa ekki verið veiddar í 13 ár.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.