Morgunblaðið - 01.09.2000, Síða 66

Morgunblaðið - 01.09.2000, Síða 66
66 FÖSTUDAGUR 1. SEPTEMBER 2000 MORGUNBLAÐIÐ t Í^h ÞJÓÐLEIKHÚSIÐ sími 551 1200 KORTASALAN HEFST í DAG ENDURNÝJUN ÁSKRIFTARKORTA STENDUR YFIR Þú getur valið um tvennskonar Þjóðleikhúskort: ÁSKRIFTARKORT Frátekið sæti á 6 leiksýningar; 5 ákveðnar sýningar og 1 valsýning sem ákveða má hvenær sem er leikársins. Einnig er frjálst að skipta út leiksýningum. OPIÐ KORT Gildir á 6 sýningar að eigin vali. Ekkert frátekið sæti en má notast hvenær sem er leikársins. Veitir að öðru leyti sömu fríðindi og áskriftarkort. SÝNINGAR LEIKÁRSINS Stóra sUiíib: • KIRSUBERJAGARÐURINN - Anton Tsjekhov BLÁI HNÖTTURINN - Andri Snær Magnason • ANTIGÓNA - Sófókles • LAUFIN í TOSCANA - Lars Norén • SYNGJANDI í RIGNINGUNNI (Singin'in the Rain) Litla sóiðið: • HORFÐU REIÐUR UM ÖXL — John Osborne JÁ, HAMINGJAN — Kristján Þórður Hrafnsson MAÐURINN SEM VILDI VERA FUGL (Birdy) - Naomi Wallace Smiðaóerksteeðið ÁSTKONUR PICASSOS — Brian McAvera MEÐ FULLA VASA AF GRJÓTI - Marie Jones VILJI EMMU - David Hare Frá furra teikári: GLANNI GLÆPUR í LATABÆ - Magnús Scheving og Sigurður Sigurjónsson SJALFSTÆTT FÓLK (Bjartur og Asta Sóllilja) - Halldór Laxness DRAUMUR Á JÓNSMESSUNÓTT - WillianShakespeare • Sýningar í áskrift. Allar sýningar leikársins geta verið valsýningar. 25% AFSLÁTTUR AF MIÐAVERÐI ÁSKRIFTARKORT OG OPIÐ KORT KR. 9.750 FYRIR ELDRI BORGARA OG ÖRYRKJA KR. 8.550 Miðasalan er opin mánud.-þriðjud. Id. 13-18, miðvikud.-sunnud. kl. 13-20. Símapantanir frá kl. 10 virka daga. Sfmi 551-1200. www.leikhusid.is. thorev @ theatre.is. KaífiLeikbúsið Vesturvötu 3 ■■llfJ.WJHMMIlM Stormur og Ormur barnaeinleikur 2. sýn. sunnud. 3. sept. kl. 15 3. sýn. lau. 9. sept. kl. 15 4. sýn. sun. 10. sept. kl. 15 MIÐASALA í síma 551 9055 isi i:\sk \ oi*i:h\\ =J|ni Sími 511 4200 Vínartónleikar lau. 2/9 kl. 20.30 Vínarhljómsveit Einsöngvari Unnur Astrid Wilhelmsen JjjJ ,j Gamanleikrit I leikstjórn Sigurðar Sigurjðnssonar fös 1/9 kl. 20 UPPSELT lau 9/9 kl. 20 Miðasölusími 551 1475 Miöasala opin kl. 15—19 mán—lau. og fram að sýningu sýningardaga. Símapantanir frá kl. 10. Sýnt í Tjarnarbíói Sýningar hefjast kl. 20.30 lau. 2/9 lau. 9/9 Miöapantanir í síma 561 0280. Miða9ölusími er opinn alla daga kl. 12-19. Miöinn gildir 2 fyrir 1 í Argentína steikhús. Ath. ósóttar pantanir, seldar 2 dögum f. sýn. Áskrifendur Sinfónrunnar Tryggið ykkur forkaupsrétt 0 SINFÓNÍAN Frestur... rennur út í dagS Háskóiabfó v/Hagatorg Sími 545 2500 www.sinfonia.is FÓLK í FRÉTTUM Óvæntir bólfélagar í Listasafni Reykjavíkur í kvöld Börkur Jónsson hefur hannað og smíðaö sex hljóðfæri fyrir kvöldið. Morgunblaðið/Sverrir Ylfur og gól mónódróna Það er gaman að spila á gúmmiteygju. Börkur Jónsson hefur hinsvegar stigið skrefínu lengra og býr nú til sín eigin hljóð- færi. Birgir Örn Steinarsson hitti hann og —?------------------------------------- Oskar Guðjónsson en þeir verða ásamt öðr- um Ovæntir bólfélagar í kvöld. OLL göngum við um með hljóðfæri í hálsinum. Mörg okkar ráða þó ekk- ert sérstaklega vel við það. Aðrir hafa ekki einu sinni hug- mynd um hvernig það virkar. Sum- um finnst sinn fugl fagur á meðan aðrir ráða ekki við að heyra sína eig- in rödd á símsvaranum sínum. Allar eru þessar raddir byggðar upp eftir sömu grunnlögmálum og öll þau órafrænu hljóðfæri sem maðurinn þekkir í dag. Börkur Jónsson myndlistarmaður er einn þeirra sem hefur þurft að kynnast þessum grunnlögmálum með því að fara lengri og ítariegri leiðina, þ.e. að fikra sig áfram í gegn- um hljóðheiminn hægt og rólega. Tilraunaeldhúsið úthlutaði honum það skemmtilega verkefni að hanna og smíða sín eigin hljóðfæri sem verða svo kynnt í kvöld á tónleikum í Listasafni Reykjavíkur. Síðustu mánuði hefur hann unnið hörðum höndum að sjóða, bræða eða líma saman furðuhluti sem gefa frá sér hljóð og skapað þannig sex ný hljóðfæri. Hreyfing lofts, titringur og hiti „Þegar ég byrjaði að smíða þessi hljóðfæri þurfti ég að byrja á grunn- inum,“ segir Börkur áhugasamur. „Hljóð verða til með nokkrum að- I EIKFÉLAG ÍSLANDS Leikhúskortið: Sala í fullum gangi L8fflslflL'NM 551 3°°° THRILLER sýnt af NFVÍ lau. 2/9 kl. 20.00 nokkur sæti laus Síðasta sýning PAN0DIL FYRIR TV0 fös. 8/9 kl. 20.00 cn 53° 3°3° JÓN GNARR. Ég var einu sinni nörd □ VI lau. 2/9 kl. 20 nokkur sæti laus ÍÐHÓ 'au 9/9kl 20 Miðasalan er opin í Iðnó frá kl. 11-19 en aðeins sýn ingardaga í Loftkastalanum. Opið er fram að sýningi sýningarkvöld. Miðar óskast sóttir í Iðnó en á sýningar degi í viðkomandi leikhús (Loftkastalann eða Iðnó) Ösóttar pantanir seldar 3 dögum fyrir sýningu. ferðum; með hreyfmgu lofts, áslætti, titringi strengja, titringi skinna og svo getur hiti líka framleitt hljóð. Ég var með þá hugmynd að búa til eld- saxófón sem yrði með viðfasta eld- vörpu.“ Þó svo að Börkur hafi nú ekki framkvæmt þá hugmynd eru þau hljóðfæri sem verða kynnt á tónleik- unum í kvöld ekki síður athyglisverð. Áhugi Barkar á hljóðfærasköpun kviknaði þegar hann bjó til hina svokölluðu vatnstrommu fyrir hljómsveit systur sinnar, Spúnk. Vatnstromma þessi er sílíkonpoki fylltur af vatni sem er látinn hanga í lausu lofti. Við hann er svo festur næmur snertihljóðnemi sem nemur hljóðið inn í pokanum. Þegar svo slegið er á pokann myndast mjög sérstakt hljóð sem Börkur magnar upp í gegnum hátalarakerfi. Tíðni hljóðsins er svo hægt að breyta með því að minnka eða auka vatnsmagnið í pokanum. „Ég var að leita að innri hljóm- hluta og því sem gerist í lokuðu rými. Ef þú setur eyrað upp við loftræsirör þá heyrir þú hinn eiginlega grunn- hljóm sem myndast út frá massa og ummáli rörsins. Þetta er einhver tíðni sem er bara í gangi út af loft- streyminu. Það er eins með sjávar- hljóðið í kuðungum." Eftirlætis afkvæmið Ekkert foreldri ætti að gera upp á milli barna sinna, en Börkur viður- kennir fúslega að hann sé stoltastur af hinum svokölluðu mónódrónum. Þar notast Börkur við loftræsirör sem er opið á annan endann en yfir hinn strekkir hann skinn. Ut úr miðju skinnsins stendur svo nælon- strengur. Þegar togað er í strenginn með rökum fingrum titrar skinnið og gefur frá sér hJjóð. „Það sem er skemmtilegast við þetta hljóðfæri er það að hægt er að ná fram alls konar mismunandi ýlfri og gólum eftir því hvernig þú togar í strenginn. Svo getur þú líka spilað á strenginn með því að plokka á hann eins og bassaleikari gerir á bassa. Þar stjórnar þú svo tónunum með því að toga eða slaka á strengnum.“ Fyrir áhugasama þá er hægt að læra margt af hljóðfærasköpun Barkar, t.d. uppgvötaði blaðamaður ágætis aðferð til þess að stytta sér stundir í þvottahúsinu með aðstoð þvottasnúranna og lýsingu Barkar á strengjaplokki mónódrónsins. Vænt- anlega eru margir nemar sem kann- ast við þá athöfn að leggja reglustik- una á borðendann, plokka á hana og mynda þannig mismunandi tóna eft- ir því hve endinn stendur langt fram af skólaborðinu. Þó svo að slík spila- mennska sé ekkert sérstaklega hag- kvæm fyrir þá sem vænt þykir um reglustikur sínar þá er hún engu að síður skemmtileg. Hispurslausi sextettinn Sá hópur hljóðfæraleikara sem fær þann heiður að vígja hljóðfærin í kvöld kallar sig „Hispurslausi sextettinn". Umsjónarmaður hans er Óskar Guðjónsson saxófónleikari en hinir fimm eru: Arnar Ómarsson trommuleikari, Birgir Baldursson trommuleikari, Guðni Finnsson bassaleikari, Músíkvatur fjöllista- maður og Elvar Már Kjartansson raftónlistarmaður. „Ég vona að það verði ekkert spil- að á önnur hljóðfæri en Börkur kem- ur með,“ segir Óskar. „Það verður kannski leikið sér með einhverjar sinusbylgjur á mjög frumstæð raf- hljóðfæri. Fólk fær að kynnast hverju hljóðfæri fyrir sig og sjá upp á hvaða möguleika þau hafa að bjóða í einleik eða samleiksverkum sem við semjum bara á staðnum.“ Þegar blaðamaður hitti þá félaga hafði sextettinn ekki enn fengið að grípa í hljóðfærin og auðséð á mönn- um að tilhlökkunin var orðin þó nokkur. „Maður gengur alveg í barndóm þegar maður fær eitthvað fyrir framan sig sem maður þekkir ekki,“ segir Óskar. „Þegar þú kemur upp að píanói ertu búinn að sjá fullt af píanóleikurum spila. Þú veist því að það á að setjast við það og hvar hendurnar eiga vera og svoleiðis. Þegar þú kemur svo að einhverju sem þú hefur aldrei séð áður gerir þú bara það sem þér dettur í hug. Þú neyðist til þess að fikta og útilokar ekki neinar hugmyndir sem þú færð. Strjúka það, sparka í það eða lemja það, bara hvað sem þér dettur í hug.“ Við þessi orð kemur undarlegur svipur á Börk og hann byrjar að ókyrrast í sæti sínu. Þegar Oskar svo tekur eftir því sannfærir hann Börk um það að sextettinn hafi ekki í hyggju að beita hljóðfærin hans of- beldi svo skaparinn tekur að róast aftur. Hvort Hispurslausi sextettinn stendur við orð sín eður ei kemur í ljós í Listasafni Reykjavíkur í kvöld. Eins og á öllum uppákomum Til- raunaeldhússins verður símagjörn- ingurinn „Telefónían" á sínum stað en að þessu sinni verður henni stjórnað af Asmundi Asmundssyni og Ingirafni Steinarssyni.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.