Morgunblaðið - 01.09.2000, Blaðsíða 52

Morgunblaðið - 01.09.2000, Blaðsíða 52
52 FÖSTUÐAGUR 1-. SEPTEMBEtR 2000 MINNINGAR MORGUNBLAÐIB Eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, VALTÝR GÍSLASON, frá Ríp, Aflagranda 40, lést á Landspítalanum í Fossvogi miðviku- daginn 30. ágúst. Fyrir hönd aðstandenda, Eva Benediktsdóttir, frá Þverá, Aflagranda 40. + Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma, langamma og langalangamma, OLGA V. SVEINSDÓTTIR, Veghúsum 31, áður til heimilis í Akurgerði 50, Reykjavík, lést á heimili sínu miðvikudaginn 30. ágúst. Jarðarförin auglýst síðar. Fyrir hönd aðstandenda, Guðrún Álfgeirsdóttir, Kristinn Álfgeirsson. Útför elskulegrar móður okkar, tengdamóður, ömmu, langömmu og langalangömmu, KRISTJÖNU GUÐRÚNAR JÓNSDÓTTUR frá Botni í Súgandafirði, verður gerð frá Suðureyrarkirkju laugardaginn 2. september kl. 14.00. Birkir Friðbertsson, Kristjana Friðbertsdóttir, Kristín Friðbertsdóttir, Ásta Bjðrk Friðbertsdóttir, Reynhildur Friðbertsdóttir, Guðrún Fanný Björnsdóttir, Hafsteinn Sigmundsson, Baldur Árnason, Kjartan Þór Kjartansson, barnabörn, langömmubörn og langalangömmubörn. + Innilegar þakkir til allra þeirra sem sýndu okkur samúð, hlýhug og vináttu við fráfall_og útför ástkærrar unnustu minnar, dóttur okkar, systur og barnabarns, HELGU SJAFNAR FORTESCUE, Grýtubakka 6. Sérstakar þakkir til starfsfólks gjörgæsludeildar Landspítalans í Fossvogi, foreldra í Breiðholti, vina og vandamanna. Rúnar Þór Oddný Inga Fortescue, Ottó Svanur Markússon, Sigríður María Fortescue, Helgi John Fortescue, Markús Sigurðsson, Reynisson, Sigurjón Skæringsson, Jón Ingi Ottósson, Björn Kjartansson, Kristjana Einarsdóttir, Sjöfn Ottósdóttir. + Hugheilar þakkir sendum við öllum sem sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát og útför ÞÓRU ÞORSTEINSDÓTTUR fyrrv. talsímakonu frá Grund í Svínadal, Flókagötu 7, Reykjavfk. Sérstakar þakkir færum við starfsfólki á deild 4-B, Landspítala Fossvogi, fyrir góða umönnun siðustu mánuði. Ásta Sigfúsdóttir, Guðmundur Þorsteínsson, Guðrún Sigurjónsdóttir, Guðrún Jakobsdóttir, Sigrún Guðmundsdóttir, Einar Sigurðsson og fjölskyldur. + Kristfn Björg Gunnarsdóttir fæddist á ísafírði 10. október 1918. Hún iést á Droplaugar- stöðum mánudaginn 28. ágúst síðastlið- inn. Foreldrar hennar voru hjónin Gunnar Kristinsson sjómað- ur og vélgæslumað- ur, f. 1891, d. 1977, og Elísabet Andrés- dóttir húsmóðir í Sólbyrgi á Isafirði, f. 1888, d. 1965. Kri- stín var elst fimm systkina sem eru: Mari'a, f. 1920, Kristinn, f. 1922, Andrés, f. 1926, og Aðal- steinn, f. 1930. Kristín giftist 25. október 1947 Alfred J . Baarregaard, tannlækni á Isafirði. Hann var danskur, fæddur á Jótlandi 18. janúar 1909, dáinn 4. mars 1970. Synir þeirra eru: 1) Gunnar Anker Baarregaard, f. 23.3. 1948, heimilislæknir í Reykjavfk, kona hans er Katrín Guðmunds- dóttir, f. 8.4. 1949. Börn þeirra: a) Krist- ín Sigríður, f. 3.6. 1969, maður hennar Ingvi Týr Tómasson, f. 13.5.1968, þau búa í Miami í Flórída. Börn þeirra eru: Gunnar Ingvi, f. 16.2.1992, og Jóna Katrín, f. 21.1. 1998. b) Alfreð, f. 16.11. 1972, sambýlis- kona Milagros Valencia, f. 31.5. 1973, þau búa á Malaga á Spáni. Sonur þeirra er Alfreð Baarre- gaard Valencia, f. 13.10. 1998. c) Birna María, f. Í0.4.1978, sambýl- ismaður Burkni J. Óskarsson, f. 28.10. 1974, og sonur þeirra er Andrés Uggi, f. 9.12.1996. d) Guð- mundur Kristján, f. 22.3. 1982. 2) Harald B. Aifreðsson, f. 19.10. 1949, verkfræðingur í Reykjavík, kona hans er Ingibjörg Berg- mundsdóttir, f. 23.9. 1957. Börn þeirra: a) Harald Bergur, f. 8.10. 1979, sambýliskona Hildur Guð- mundsdóttir, f. 8.10. 1978, þau búa í Kaupmannahöfn. b) Birgir, f. 27.4. 1983. 3) Björn B. Alfreðs- son, f. 29.12. 1950, tannlæknir í Reykjavík, kona hans er Laura Bergs, f. 10.7. 1955. Börn þeirra: a) Björn Gauti, f . 22.11. 1983. b) Gyða Elín, f. 23.6. 1990. c) Kristín Björg, f. 5.2.1996. Kristín fór fljótlega að vinna eftir gagnfræðapróf á Isafirði. Starfaði í verslun, saltfiskvinnslu og við síldarsöltun á Siglufirði á sumrin. Hún var um tíma bæjar- gjaldkeri á ísafirði og banka- starfsmaður. Kristín Björg flutti til Reykjavíkur haustið 1970 og hóf þá störf í Landsbanka íslands, aðalútibúi í gjaldeyrisdeild og vann þar uns hún lét af störfum sjötug að aldri árið 1988. Hún bjó lengst af í Safamýri 40 en flutti á Droplaugarstaði í april 1999. Utför Kristínar fer fram frá Fossvogskirkju í dag og hefst at- höfnin klukkan 10.30. KRISTÍN BJÖRG GUNNARSDÓTTIR - V Elskuleg tengdamóðir mín, Krist- ín Björg Gunnarsdóttir, er látin eftir erfið veikindi og mér er ljúft að minnast hennar nokkrum orðum. Nú eru Iiðin rúm tuttugu ár síðan ég kynntist Kristínu sem síðar varð tengdamóðir mín og frá fyrstu tíð var ég umvafin þeirri hlýju og elsku sem hún átti í svo ríkum mæli. Þegar ég tengdist fjölskyldunni hafði Kristín fyrir alllöngu misst eig- inmann sinn, Alfred J. Baarregaard, langt fyrir aldur fram og flust þúferl- um ásamt sonum sínum frá Isafirði til Reykjavíkur og hafið störf í Landsbankanum. Starfi sínu þar gegndi hún af stakri trúmennsku uns hún lét af störfum fyrir aldurs sakir. Mér duldist aldrei hve heitt hún unni æskustöðvunum á ísafirði þrátt fyrir langa búsetu í Reykjavík þai- sem hún átti heimili til æviloka. Hún minntist uppvaxtar síns í foreldra- húsum með mikilli hlýju og á Isafirði gekk hún í hjónaband, eignaðist drengina sína og lifði hamingjuríku fjölskyldulífi í mörg ár. „Skógurinn" skipaði sérstakan sess í huga tengdamóður minnar en hann geymdi sælureit fjölskyldunn- ar, sumarbústaðinn Lynghól sem maður hennar reisti. Þangað fór hún á hverju sumri og átti ótal unaðs- stundir „í faðmi fjalla blárra" allt þar til snjóílóð hreif burt sumarbú- staðabyggð Isfirðinga í Tungudal vorið 1994. Eins og nærri má geta var missir Lynghóls henni þung raun en því mótlæti tók hún af æðruleysi eins og öðru sem á móti blés á Iíf- sleiðinni. Kristín tengdamóðir mín var fal- leg kona og svipsterk, dökk á brún og brá. Glaðlyndi og góðvild ein- kenndi hana öðnj fremur ásamt já- kvæðu hugarfari. Hún bjó yfir innri ró og yfirvegun og færði allt til betri vegar. Ættfróð var hún og minnug og hafði gaman af að spjalla, ekki síst um gömlu, góðu dagana fyrir vestan. En við þurftum ekki alltaf að segja margt. Það var einfaldlega svo nota- legt að vera í návist hennar og oftar en ekki hlusta á taktfast tifið í prjón- unum sem hún skildi sjaldan við sig. Nægjusemi var Kristínu í blóð borin og hún var þakklát fyrir allt sem fyr- ir hana var gert. Syni sína og fjölskyldur þeirra bar hún mjög fyrir brjósti og umhyggja hennar fyrir okkur var takmarka- laus. Mesta gleðin í lífi hennar var fólgin í samverustundum með fjöl- skyldunni og helst vildi hún hafa all- an hópinn sinn hjá sér. Börnin okkar Bjöms sakna nú ömmu sinnar sem var þeim einstak- lega kær. Hennar ljúfa viðmót náði svo vel til barnanna, hún sýndi þeim mildi og skilning og var óspör á hvatningu og hrós. Kristín bjó við góða heilsu mestan hluta ævi sinnar en síðustu árin er heilsunni tók að hraka þáði hún vist á sjúkrastofnunum. Eg vil fyrir hönd fjölskyldunnar færa starfsfólki Grensásdeildar, öldrunardeildar Landakots og Droplaugarstaða ein- lægar þakkir fyrir þá einstöku um- hyggju og alúð sem henni var sýnd í erfiðum veikindum. Það er sárt að kveðja Kristínu tengdamóður mína sem svo lengi hefur verið órjúfanlegur hluti af lífi mínu og víst er að heimurinn verður ekki samur. Ég fæ aldrei að fullu þakkað þá lífsgæfu að hafa átt hana að og mun um ókomin ár ylja mér við dýrmætar minningar um samfylgd sem aldrei bar skugga á. Guð blessi minningu hennar. Laura Bergs. r Blómabwðin > Öat*c3shom t v/ FossvogskifUjugaeð > Sími. 554 0500 / + Ástkaer eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, HALLA AÐALSTEINSDÓTTIR, Brekkugerði 34, Reykjavík, andaðist á heimili sínu miðvikudaginn 23. ágúst. Útförin fer fram frá Grensáskirkju, í dag, föstudaginn 1. september, kl. 13.30. Guðmundur Árnason, Árni Árnason, Jóhanna Gunnlaugsdóttir, Aðalsteinn Árnason, Þórný Eiríksdóttir, Helga Lára Guðmundsdóttir, Björn Guðmundsson, Margrét Guðmundsdóttir, Lúðvíg Lárusson, barnabörn og barnabarnabarn. + Hjartkaer bróðir okkar, mágur og frændi, MAGNÚS GUÐMUNDSSON, Böðvarsgötu 2, Borgarnesi, lést á sjúkrahúsi Akraness föstudaginn 25. ágúst. Útför hans verður gerð frá Borgarneskirkju laugardaginn 2. september kl. 14.00. Jarðsett verður á Ökrum. Sigurbjörg Guðmundsdóttir, Ólöf Guðmundsdóttir, Ólafur Egilsson, Þórunn Bergþórsdóttir og systkinabörn. " 'i Vesturhlíð 2 Fossvogi Sími 551 1266 www.utfor.is Þegar andlát ber að höndum Önnumst alla þættí útfararinnar. •Ó1 ■4? Við Útfararstofu kirkjugarð- anna starfa nú 14 manns með áratuga reynslu við útfaraþjónustu. Stærsta útfararþjónusta landsins með þjónustu allan l . sólarhringinn. Prestur Kistulagning Kirkja Legstaður Kistur og krossar Sálmaskrá Val á tónlistafólki Kistuskreytingar Dánarvottorð Erfidrykkja UTFARARSTOFA KIRKJUGARÐANNA EHF.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.