Morgunblaðið - 01.09.2000, Blaðsíða 21
MORGUNBLAÐIÐ
VIÐSKIPTI
FÖSTUDAGUR 1. SEPTEMBER 2000 21
Breytingar
á eignar-
aðild að
BM Yallá
MAGNIJS Benediktsson, sonur
Benedikts Magnússonar frá Vallá,
stofnanda og fyrrum forstjóra BM
Vallár, hefur selt Guðmundi Bene-
diktssyni, bróður sínum, og Víg-
lundi Þorsteinssyni, framkvæmda-
stjóra BM Vallár, hlut sinn í
félaginu, en Magnús átti rúm 41% í
félaginu. Eins hafa þeir Guðmundur
og Víglundur keypt allan hlut
Björgunar í BM Vallá, eða 5,25%.
Eftir kaupin eiga Guðmundur og
Víglundur nánast allt hlutafé í BM
Vallá.
Magnús ákvað að draga sig í hlé
frá rekstri félagsins af persónuleg-
um ástæðum.
Að sögn Víglundar Þorsteinsson-
ar mun þetta ekki hafa nein áhrif á
rekstur félagsins, en mikill vöxtur
er í starfsemi þess. „I ár má reikna
með því að veltan aukist um 50%,
úr einum milljarði árið 1999 í 1,5
milljarða í ár.“
Víglundur segir einkum tvennt
koma þar til: Almennur vöxtur á
hefðbundnum markaðssvæðum þess
og framleiðsla á steinsteypu fyrir
Vatnsfellsvirkjun. „Má reikna með
því að 230 milljónir af þessari 500
milljóna króna veltuaukningu komi
frá framleiðslu fyrir Vatnsfellsvirkj-
un,“ segir Víglundur.
Stáltak
tapar 50
milljónum
króna
TAP Stáltaks hf. eftir skatta
fyrstu sex mánuði ársins nam 50
milljónum króna. Stáltak hf. varð
til við sameiningu Stálsmiðjunnar
hf. og Slippstöðvarinnar hf. fyrir
réttu ári og því eru ekki til saman-
burðarhæfar tölur frá því í fyrra.
Rekstrartekjur Stáltaks voru
rúmar 889 milljónir króna og
rekstrargjöld án afskrifta tæpar
877 milljónir. Hagnaður fyrir af-
skriftir og fjármagnsliði var því
tæpar 13 milljónir króna en af-
skriftir voru 44 milljónir og fjár-
magnsliðir neikvæðir um 28 millj-
ónir króna.
Eignir voru samtals tæpir 1,3
milljarðar króna, skuldir, skuld-
bindingar og hlutdeild minnihluta í
eigin fé dótturfélaga samtals rúm-
ur einn milljarður og eigið fé 264
milljónir króna. Eiginfjárhlutfall
var 20,6%, veltufjárhlutfall 0,8 og
veltufé rekstrar var neikvætt um
56 milljónir króna.
Söluhagnaður af fasteignum er
inni í rekstrartekjum og nam hann
38 milljónum króna á tímabilinu.
í árshlutareikningnum er ekki
tekið tillit til afkomu dótturfélags
Stáltaks, Dráttarbrauta Reykja-
víkur ehf., sem er að 52,4% í eigu
Stáltaks, þar sem milliuppgjör
þess félags liggur ekki fyrir.
Betra útlit á seinni
helmingi ársins
í fréttatilkynningu frá félaginu
segir að afkoma þess á fyrri hluta
ársins sé nokkru verri en gert hafi
verið ráð fyrir og stafi það meðal
annars af því að verkefni sem
áætlað hafði verið að yrðu unnin í
júní hafa færst yfir á seinni helm-
ing ársins. Verkefnastaða í júlí og
ágúst hafi verið góð og september
líti vel út að þessu leyti. Félagið
reiknar með að viðsnúningur verði
í afkomu þess á seinni hluta ársins
og að það muni skila hagnaði þeg-
ar allt árið verður gert upp.
Hlutabréf í Stáltaki lækkuðu um
10% á Verðbréfaþingi íslands í
gær og lokagengi þess var 0,81.
Áhrifa tilboðs sænska fyrirtækisins OIVI Group í KauphöMina i London gætir víða
Mögulegt gagntilboö frá Frankfurt
Morgunblaðið. Óslð
YFIRMENN frá kauphöllunum í
Frankfurt, London, Mílanó og
Madrid munu hittast í dag til að
ræða mögulegt gagntilboð í kaup-
höllina í London (LSE) í tilefni af
tilboði sænska fyrirtækisins OM
gruppen í LSE, að því er fram
kemur í norrænu fjölmiðlunum
Dagens Industri og Aftenposten.
Tilboð OM upp á sem svarar til
95 milljarða íslenskra króna og
LSE hefur hafnað, hindrar nú
formlega sameiningu LSE og
þýsku kauphallarinnar Deutsche
Börse undir merkinu iX og reyna
nú stjórnir fyrirtækjanna að verj-
ast óvinveittu yfirtökutilboði OM.
Talsmenn OM halda því fram að
jákvæð viðbrögð hafi fengist við
tilboðinu frá hluthöfum í LSE.
Hluthafafundi LSE hefur verið
frestað en hluthafafundur kaup-
hallarinnar í Frankfurt verður
haldinn 14. september.
Stjórnarformaður kauphallar-
innar í Frankfurt, Rolf Ernst
Breuer, hefur staðfest að haft
hafi verið samband við yfirmenn
kauphallanna í Madrid og Mílanó
með samstarf í huga og að við-
brögð þeirra hefðu verið jákvæð.
Nasdaq og Euronext
líklegir tilboðsgjafar
Ekki hefur verið ákveðið að
kauphallirnar leggi fram sameig-
inlegt tilboð, að því er fram kem-
ur í Dagens Industri. Antonio
Zoido, talsmaður kauphallarinnar
í Madrid, segir þennan möguleika
vel hugsanlegan en ekkert hafi
verið rætt alvarlega eða ákveðið í
því sambandi. Málið er á byrjun-
arstigi og ef ákveðið verður að
gera sameiginlegt tilboð, mun
taka vikur eða mánuði að koma
því saman.
Tilboð í LSE frá öðrum kaup-
höllum eru einnig möguleg, að því
er fram kemur í Aftenposten. T.d.
frá Euronext sem er sameiginlegt
félag kauphallanna í París,
Amsterdam og Brussel. Einnig er
talið að Nasdaq kauphöllin í
Bandaríkjunum sé mögulegur til-
boðsgjafi.
Safnar ryki.
V\ö ábyrgjumst hvert einasta smáatriði Delí netþjóns I þrjú ár. Hann vinnur stöðugt allan sólarhringinn og heldur tólvukerfinu þlnu
gangandi á meðan hann situr óhreyfður inni I skáp og lætur lltiö lyrir sér fara. Pað er þvl hætt við að þú gleymir að þurrka af honum
vikum og mánuðum saman.
Dell Power Edge
3ja ára ábyrgð
D0LL
EJS vinnur samkvæmt ISO 900 1 vottuðu gæðakerfi + EJS hf. + 563 3000 + www.ejs.is + Grensásvegi 10 + 108 Reykjavik