Morgunblaðið - 23.09.2000, Blaðsíða 8

Morgunblaðið - 23.09.2000, Blaðsíða 8
8 LAUGARDAGUR 23. SEPTEMBER 2000 FRETTIR MORGUNBLAÐIÐ Hver þorir að koma að vega? Morgunblaðið/Helgi Bjamason Fornleifafræðingamir Magnús A. Sigurðsson og Eaavan O’ Dochartaigh ganga frá eftir rannsóknir á tóftunum í Kollafirði. Engar mannvistarleifar fundust í Kollafirði EKKI fundust neinir munir eða aðrar mannvistarleifar í tóftum í Kollafirði á Ströndum sem forn- Óká 170 km hraða LÖGREGLAN á Akureyri- svipti á fimmtudag ökumann ökuleyfi eftjr að hafa ekið á 170 km hraða í Öxnadal. Ökumaðurinn var á kraft- miklum bfl. Að sögn lög- reglunnar er sjaldgæft að öku- menn séu stöðvaðir eftir svo mikinn hraðakstur. Ieifafræðingar hafa grafið upp og rannsakað að undanfornu. Stjórn- andi rannsóknarinnar, Magnús A. Sigurðsson, minjavörður Vestur- lands og Vestfjarða, telur helst að þarna hafi verið sjóbúð. Vegagerðin hyggst færa kafla vegarins í norðanverðum KoIIa- firði úr hlíðinni og niður undir sjó þar sem er snjóléttara. Þar eru fyrir gamlar húsatóftir og þurfti að rannsaka þær áður en ráðist yrði í framkvæmdir. Magnús segir að tekið hafi ver- ið ofan af allri tóftinni og húsið kortlagt. Vegghleðslur eru miklar en herbergi lítil og út frá veggj- um eru hlaðnir bekkir. Engin kol fundust og segir Magnús að svo virðist scm ekki hafi verið eldað í þessum húsum. Ekki fundust neinir munir eða aðrar mannvist- arleifar svo erfitt getur reynst að aldursgreina mannvirkið. Uppgreftrinum er lokið en rannsókninni ekki, eftir er að kanna aðrar heimildir og gera skýrslu um rannsóknina. Magnús segir að svo virðist sem fólk hafi komið til stuttrar dvalar í þessu húsi með matinn með sér og gæti það bent til þess að þetta væri sjóbúð. Eftir væri að kanna það hvort sjóróðrar hefðu verið stundaðir á þessum slóðum. Einnig kæmi fleira til greina, til dæmis útihús, enda væru merki um tún þarna í nágrenninu. Fornleifafræðingarnir Daniel Rhodes frá Englandi og Eavan O’ Dochartaigh frá Irlandi unnu að uppgreftrinum með Magnúsi. Dagur stærðfræðinnar 27. september I tilefni alþjóðlegs stærðfræðiárs Guðrún Angantýsdóttir HINN 27. september nk. verður Dagur stærðfræðinnar, í tilefni af alþjóðlegu ári stærðfræðinnar. Það er Flötur, samtök stærðfræði- kennara, sem hefur veg og vanda af degi þessum en sæti i undirbúningsnefnd á Guðrún Angantýsdóttir kennari. Hún var spurð hvað ætti að gera á Degi stærðfræðinnar „Við félagar í Fleti ákváðum á hauststefnu ' samtakanna fyrir tæpu ári að standa fyrir einhverjum degi í tilefni af alþjóðlegu ári stærðfræðinnar. Okkur leist vel á þennan dag, þá eru skólamir rétt byrjaðir og enn allir „ferskir" og áhugasamir í náminu. Skip- uð var undirbúningsnefnd og sam- kvæmt tillögum stjómar fór nefnd- in að búa til hugmyndarit fyrir kennara. I þessu riti em hugmynd- ir að alls konar verkefnum sem hægt er að vinna við á þessum degi. Verkefnin em öll tengd rúmfræði. Ástæðan fyrir því er að rúmfræði- þekking er sífellt að aukast í dag- legu lífi fólks. Rúmfræðin er mikið notuð hjá öllum þoma fólks og þekking á henni er mikflvæg í alls konar rannsóknum líka. Okkur finnst líka að rúmfræðiþekking styrki stærðfræðflega hugsun og vinnubrögð meðal bama. Talna- skflningur þeima styrkist ef að þau fara markvisst að vinna með ýmis rúmfræðileg mynstur." - Hvers konar verkefni eru þetta? „Þetta em hópverkefni og það er mikil áhersla lögð á verklega vinnu og umræður og markvissa notkun stærðfræðihugtaka sem tengjast rúmfræði með ýmsum hætti. Við emm með verkefni alveg frá iyrsta og upp í tíunda bekk í gmnnskóla. Við höfum skipt verkefnunum í ákveðin aldursstig en það er samt hægt að nota þau á öllum aldurs- stigum með nokkmm áherslu- breytingum. Við höfum sett markmiðslýsingar í þessi verkefni sem taka mið af aðalnámskrá grunnskóla. Þessi verkefni em hins vegar aðeins tillögur að kennsluferli. Við emm Jíka með nánari hugmyndir ef fólk vill dýpka þessa vinnu.“ - Hvemig eru þessi verkefni unnin? „Þetta em hópverkefni og allt verkleg vinna. Við bendum á vef- slóðir sem hægt er að skoða og margmiðlunardiska sem hafa að markmiði að þjálfa nemendur. Við emm einnig með þrautir og rann- sóknarverkefni. Svo vonumst við til að kennarar geti fundið hug- myndir að verkefnum sem nemendur geti farið með heim og unnið með foreldmm sínum eða öðmm.“ - Hver eru markmið ykkar með þessurn degi? „Markmið okkar em tvenns konar: I fyrsta lagi að vekja nemendur og sem flesta aðra til umhugsunar um stærðfræði og hlutverk hennar í samfélaginu. I öðra lagi að nem- endur sjái stærðfræði í víðara sam- hengi en almennt gerist í hefð- bundinni skólastærðfræði." - Hvers vegna var ár stærð- fræðinnar ákveðið? „Árið 1992 vom á heimsráð- stefnu alþjóðasambands stærð- fræðinga samþykktar tillögur um að árið 2000 yrði alþjóðlegt stærð- ► Guðrún Angantýsdóttir fædd- ist 21. ágúst 1956 í Keflavík. Hún lauk stúdcntsprófi frá Mennta- skólanum við Tjörnina 1976 og prófi frá Kennaraháskólanum 1980. Hún hefur starfað sem kennari frá námslokum, nú er hún kennari í Lindaskóla 1 Kópa- vogi. Hún á sæti í stjórn Flatar sem er samtök stærðfræðikenn- ara. Guðrún er gift Viðari Má Matthíassyni prófessor og eiga þau fjögur börn. fræðiár. Það sem Flötur hefur gert var að halda non-æna ráðstefnu í Borgamesi í sumar. Þar þinguðu norrænir stærðfræðikennarar. Kennaraháskóli Islands var með okkur um þessa ráðstefnu. Hún stóð í fimm daga og það vom haldnir fyrirlestrar, hópvinna unn- in, umræður fóm fram og kynning- ar vom á kennsluháttum á Norður- löndum. Einnig vom kynningar á rannsóknum þar sem stærðfræði- kennsla var skoðuð. Þá má nefna að Flötur var með sumamámskeið fyrir framhaldsskólakennara en Flötur er sameiginlegur vettvang- ur stærðfræðikennara á öllum skólastigum. Markmið Flatar em nánar til tekið að efla stærðfræði- nám og kennslu í íslenskum skól- um, stuðla að aukinni menntun stærðfræðikennara, að vera vett- vangur umræðna um markmið og áherslur í stærðfræðinámi og kennslu í samræmi við þróun þjóð- félagsins. Einnig að veita kennur- um stuðning við að takst á við ný og breytt viðfangsefni og vinnubrögð. Þetta höfum við verið að reyna að vekja sérlega athygli á allt þetta ár. Til þess að gera daginn sem eftir- minnflegastan þá ákváðum við að gera þetta hugmyndahefti, sem getur vonandi nýst kennumm á öll- um skólastigum, bæði fyrir Dag stærðfræðinnar og alla aðra daga, þetta eru mörgverkefni.“ - Er s tærðfræði- kennsia hér svipuð og á Norðurlöndunum ? „Á ráðstefnunni í sumar kom í ljós að stærðfræðikennsla hér á landi, þar sem hún er best, jafnast fullkomlega á við það sem er að gerast á hinum Norður- löndunum. Hér em margir kennar- ar að vinna gott starf í þágu stærð- fræðinnar. Þó að Flötur standi nú aðeins fyrir einum ákveðnum stærðfræðidegi, getur hver og einn tileinkað stærðfræðinni marga daga í lífi sínu og við vonum að Dagur stærðfræðinnar verði að- eins varða á leið okkar til að kanna nýjar leiðir." Hér eru marg- ir kennarar að vinna gott starf í þágu stærð- fræðinnar
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.