Morgunblaðið - 23.09.2000, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 23.09.2000, Blaðsíða 12
12 LAUGARDAGUR 23. SEPTEMBER 2000 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Hátíðarmynt vegna landafunda Leifs Eiríkssonar Mjög góð salaí Banda- ríkjunum MYNT, sem gefin var út í Banda- ríkjunum nú í sumar til að minn- ast landafunda Leifs Eiríkssonar fyrir eitt þúsund árum, hefur selst mun betur en fulltrúar banda- rísku myntsláttunnar höfðu gert ráð fyrir. Sala á myntinni hófst í Bandaríkjunum 21. júní síðastlið- inn en bæði er um að ræða ís- lenska mynt og bandarískan silf- urdollara. Hefur íslenska myntin selst í 80 þúsund eintökum en myntsláttumenn þar vestra höfðu einungis gert ráð fyrir að selja 50 þúsund eintök af henni á sölu- tímabilinu öliu, en því lýkur 31. desember. Myntpeningarnir tveir eru seld- ir annaðhvort hvor í sínu lagi eða sem sett. Að sögn Patricks Ingr- ams, forsvarsmanns Sjóðs Leifs Eiríkssonar, hafa selst 80 þúsund íslenskir myntpeningar, um 147 þúsund eintök af bandarísku myntinni og því samanlagt um 227 þúsund myntpeningar. Þar af hafa um 60 þúsund sett verið seld. Ekki hefur enn verið hafin sala á myntinni hér á Islandi en stefnt er að því að hún hefjist í nóvem- ber. Sagði Ingram, sem er stadd- ur hér á landi um þessar mundir, að samkvæmt þessu mætti gera ráð fyrir að salan fari fram úr björtustu vonum manna. Aðspurð- ur sagði hann skýringuna á þess- um áhuga vestanhafs líklega tengjast vel heppnaðri víkinga- sýningu í Smithsonian-safninu í Washington og almennum áhuga fyrir Leifi Eiríkssyni, siglingum hans og afrekum. „Islendingum hefur sömuleiðis gengið vel að markaðssetja land sitt í Bandaríkjunum á undan- förnum mánuðum, það sést t.d vel á fjölda greina um ferðalög um _ Island í fjölmiðlum vestanhafs. Eg geri ráð fyrir að samanlögð áhrif þessara þátta valdi þessari miklu sölu á myntinni," sagði Ingram. Alþingi svarar Blaðamannafélagi íslands vegna heimsóknar Li Peng Rúmlega 30 þúsund manns sóttu viðburði á Listahátíð í Reykjavík Hagnaður varð af vel heppnaðri hátíð FRAMKVÆMDASTJÓRN Lista- hátíðai’ í Reykjavík gerði hátíðina upp í gær með athöfn í Þjóðmenn- ingarhúsinu. Þar kom fram að ríf- lega 30 þúsund manns sóttu þá 30 listviðburði sem í boði voru frá 20. maí til 8. júní síðastliðins. Er þetta mun betri aðsókn en á síðustu Listahátíð fyrir tveimur árum. Sveinn Einarsson, formaður framkvæmdastjórnar, sagði við Morgunblaðið að aðsóknartölur væru sérlega ánægjulegar í ljósi þess hvað framboð listviðburða hefur verið mikið á menningar- borgarári. Þá hefði hátíðin tekist í alla staði mjög vel og viðbrögð áhorfenda og gagnrýnenda verið eftir því. Þetta hefði verið metn- aðarfull hátíð og gengið vel út frá listrænum sjónarmiðum séð. Sveinn sagði fjárhagslega af- komu hátíðarinnar afar ánægju- lega. Hagnaður varð upp á milljón króna en veltan var upp á um 90 milljónir. Listahátíð í Reykjavík hefur verið verið haldin 16 sinnum frá árinu 1970 og aðeins tvisvar áður hefur hún skilað hagnaði. „Hátíðin er að sjálfsögðu ekki rekin sem gróðafyrirtæki en það er æskilegt að menn haldi sér inn- an fjárhagsramma. Það tókst í þetta sinn og gott betur,“ sagði Sveinn en hagnaðinum skal ávallt verja til nýsköpunar í íslenskri list fyrir næstu hátíð. Að sögn Sveins var mikil áhersla lögð á íslenska sköpun á Listahátíðinni en vel á þriðja hundrað íslenskra listamanna kom fram. Eins og áður sagði sóttu ríflega 30 þúsund manns hátíðina. Þar af komu um 17 þúsund manns á tón- leika og leiksýningar og um 14 þúsund manns á myndlistarsýn- ingar og aðra viðburði. Nýtt stjórnskipurit Fulltrúaráðsfundur Listahátíð- ar fór fram í gær. Þar tók gildi Morgunblaðið/Þorkell Uppgjör Listahátíðar kynnt í Þjóðmenningarhúsinu. Undir ávarpi nýráðins listræns stjórnanda, Þórunnar Sigurðardóttur, stinga saman nefjum þau Sveinn Einarsson, formaður framkvæmdastjórnar, og Helga Jónsdóttir, fráfarandi stjórnarmaður, og Björn Bjamason menntamálaráðherra fylgist með. nýtt stjórnskipurit fyrir næstu há- tíð. Harpa Björnsdóttir fram- kvæmdastjóri hefur látið af störf- um og voru henni færðar kærar þakkir fulltrúaráðs. Auglýst verð- ur eftir nýjum framkvæmda- stjóra. Framkvæmdastjórnin hef- ur til þessa ráðið listrænni stefnu en nú hefur verið ráðinn listrænn stjórnandi til þess, sem er Þórunn Sigurðardóttir. I nýrri stjórn Listahátíðar eru Halldór Guð- mundsson, skipaður af Reykjavík- urborg, Sveinn Einarsson, skipað- ur af menntamálaráðuneytinu, og Karólína Eiríksdóttir, skipuð af fulltrúaráði hátíðarinnar. Gert er ráð fyrir að listrænn stjórnandi geti fengið sérstaka ráðgjafa- nefnd sér til stuðnings. Sveinn hefur komið nálægt Listahátíð frá upphafi. Hann sagði það í raun ótrúlegt hversu vel hefði tekist að halda sér við markmið hátíðarinnar, annars vegar að fá heimsins bestu lista- menn til landsins og hins vegar að ýta undir frumsköpunina heima fyrir. „Það á að vera viðurkenning fólgin í því að koma fram á Lista- hátíð. í upphafi voru menn efins um að hátíðin myndi lifa af en núna er ekki nokkur maður í vafa. Hátíðin er bráðnauðsynleg, fyrir utan það hvað hún er skemmti- leg,“ sagði Sveinn Einarsson. Alþingi leggur áherslu á góð sam- skipti við fjölmiðla ALÞINGI svaraði í gær bréfi Blaðamannafélags íslands, þar sem bornar voru fram nokkrar spurn- ingar vegna heimsóknar Li Peng, forseta kínverska þingsins. Bréfið, sem er undirritað af Helga Bernódussyni, aðstoðarskrif- stofustjóra Alþingis, verður birt hér í heild á eftir. Morgunblaðið hefur fyrr í vikunni birt svör ríkis- lögreglustjóra vegna fyrirspurna fréttastjóra og fréttamanns Stöðv- ar 2-Bylgjunnar um fyrrgreinda heimsókn: „Vísað er til bréfs Blaðamannafé- lags íslands, dags. 15. september 2000, þar sem óskað er svara við til- teknum spumingum sem beint er til forsætisnefndar Alþingis og varða heimsókn Li Peng, forseta kínverska þingsins, til Islands. Á fundi forsætisnefndar Alþingis í dag var fjallað um bréf Blaða- mannafélagsins og samþykkt eftir- farandi svör við spurninum félags- ins: 1. Spurt er: Hvers vegna mis- munaði lögreglan fjölmiðlum, er- lendum og innlendum, og veitti sumum greiðari aðgang að dag- skráratriðum varðandi heimsókn kínverska þingforsetans en öðrum? Svar: Spurningin lýtur að störf- um lögreglunnar og er því rétt að spurningunni sé beint til hennar. 2. Spurt er: Var það samkvæmt fyrirmælum starfsmanna Alþingis eða ef til vill gestanna? Svar: Starfsmenn Alþingis gáfu engin fyrirmæli sem fólu í sér að fjölmiðlum væri mismunað. 3. Spurt er: Að hve miklu leyti bera starfsmenn Alþingis ábyrgð á fyrrgreindum aðgerðum lög- reglunnar? Svar: Enga. 4. Spurt er: Hefur Alþingi eða forsetar Alþingis mótað nýja og breytta starfshætti varðandi að- gang fjölmiðla að atburðum sem þingið stendur fyrir eða þeim gest- um sem hér eru í boði þingsins? Svar: Nei. Alþingi hefur alltaf lagt áherslu á góð samskipti við fjölmiðla og svo mun verða áfram. Áðgangur fjölmiðla að gestum Al- þingis ræðst hins vegar einnig af óskum gestanna hverju sinni. Benda má á að föstudaginn 1. sept- ember sl., daginn áður en forseti kínverska þingsins kom hingað til lands í boði Alþingis, dvaldist hér Wolfgang Thierse, forseti þýska sambandsþingsins. í samráði við Thierse var ákveðinn tími tekinn frá í dagskrá hans þar sem hann veitti fjölmiðlum færi á viðtölum. Það er regla við slíkar heimsóknir. 5. Spurt er: Fjölmiðlar fengu upplýsingar um það hjá Alþingi að Li Peng hvorki veitti viðtöl né efndi til blaðamannafundar. Kínverska sendiráðið segir hins vegar að eng- ar beiðnir hafi borist um viðtal við Li Peng. Tók Alþingi það upp hjá sjálfu sér að synja blaða- og frétta- mönnum um viðtöl við hinn erlenda gest - eða hvaða skýring liggur hér að baki? Svar: Skrifstofa Alþingis gaf ekki út tilkynningu þess efnis að forseti kínverska þingsins mundi hvorki halda blaðamannafund né veita við- töl. Ljóst mátti hins vegar vera af dagskrá sem send var öllum fjöl- miðlum að ekki yrði efnt til blaða- mannafundar. Einnig var fjölmiðl- um afhent yfirlit þar sem var tilkynnt hvernig háttað yrði myndatökum við eins konar athafn- ir heimsóknarinnar. Við gerð dag- skrár heimsóknar kínverska þing- forsetans var þeim er undirbjuggu heimsóknina af hans hálfu boðið af starfsmönnum Alþingis að setja blaðamannafund á dagskrána eins og venja er til. Á því var ekki áhugi. Fram kom síðar af hálfu blaðafull- trúa gestanna að biðja yrði um við- töl með fyrirvara. Skrifstofu Al- þingis barst aðeins ein formleg beiðni um viðtal við kínverska þing- forsetann. Hún barst frá starfs- manni Morgunblaðsins 1. septem- ber 2000. Starfsmaður Alþingis kom beiðninni símleiðis sama dag til blaðafulltrúa kínversku sendi- nefndarinnar. Svar barst ekki frá blaðafulltrúanum. í einu tilviki, þegar gestimir voru staddir í skoð- unarferð í raforkuverinu á Nesja- völlum síðdegis 4. september, til- kynnti starfsmaður Alþingis fréttamanni (frá Stöð 2), að tilmæl- um kínverskra öryggisvarða, að kínverski þingforsetinn mundi ekki svara spurningum fréttamanna eða veita viðtöl í skoðunarferðinni. I framhaldi af því tilkynnti starfs- maður Alþingis yfirmanni frétta- mannsins á Stöð 2 símleiðis að kín- verski þingforsetinn veitti ekki viðtal. Þeim skilaboðum var komið áleiðis að ósk kínverskra öryggis- varða. 6. Spurt er: Telja forsetar Al- þingis að þeir atburðir, sem áttu sér stað í samskiptum fjölmiðla og lögreglu annars vegar og starfs- manna Alþingis hins vegar, hafi verið með eðlilegumóti? Svar: Forsætisnefnd vill taka fram að meðan á heimsókn kín- verska þingforsetans stóð lögðu starfsmenn Alþingis sig fram um að eiga gott samstarf við fjölmiðla eins og endranær. Væntir forsætisnefnd þess að það góða samstarf haldi áfram.“
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.