Morgunblaðið - 23.09.2000, Page 14

Morgunblaðið - 23.09.2000, Page 14
14 LAUGARDAGUR 23. SEPTEMBER 2000 HOFUÐBORGARSVÆÐIÐ MORGUNBLAÐIÐ Breiðagerðisskóli þurfti að skerða lengda viðveru vegna skorts á starfsfólki Var komið út fyr- ir öryggismörk Smáíbúðahverfi BREIÐAGERÐISSKÓLI hefur skert lengda viðveru 8-9 ára barna um allt að tveimur og hálfri klukku- stund á dag vegna skorts á skólaliðum til starfa. Guð- björg Þórisdóttir, skóla- stjóri, sagði í samtali við Morgunblaðið í gær að hún hefði metið það svo að ástandið væri komið út fyrir öryggismörk og því væri óhjákvæmilegt að skerða þjónustuna. Auglýst var eftir skólalið- um til starfa á dögunum og kveðst Guðbjörg bjartsýn á að takist að ráða nýtt fólk til starfa á næstu dögum því viðbrögð við auglýsingunni hefðu verið góð. Hún sagði starfsfólk skól- ans mjög gott, réttindakenn- arar væru í öllum stöðum og ófaglært starfsfólk væri mjög hæft þótt allar stöður væru ekki mannaðar. Þrátt fyrir það reyndu hún og starfsfólk skólans af bestu getu að framfylgja stefnu- mótun borgarinnar og fræðsluráðs um lengda við- veru til kl. 17.15 fyrir 6-9 ára börn og veita þá þjónustu sem að er stefnt. Til dæmis sagðist hún reyna að tryggja að álag á það starfsfólk, sem er við störf, væri ekki of mikið og því tæki hún að sér skúringar og þrif, ef á þyrfti að halda, en þau störf eru á verksviði skólaliða. Skólastjórar ganga í þrif „Við skólastjórar þurfum að ganga í mörg störf,“ segir Guðbjörg. „Ef það vantar kennara þá þurfum við að kenna og ef hér eru skítug klósett er það ekkert ómerkilegra starf í mínum huga að þrífa það en að manna forfallakennslu. Við reynum öll eftir bestu getu að halda þessu gangandi í þessari manneklu." Hún sagði að þrátt fyrir að allir legðu sig fram hefði það ekki reynst nóg til þess að hægt væri að sinna gæslu 8 og 9 ára barna að loknum skóladegi og því hefði hún neyðst til að skerða hana um allt að tvo og hálfan tíma á dag við lítinn fögnuð for- eldra, sem þyrftu meiri gæslu en er í boði þessa dag- ana þegar börnin eru send heim strax og aðstoð við heimanám lýkur. Ekkert grín að bera ábyrgð á 400 börnum „Eg er ráðin hér til að framfylgja lögum og reglum og ákvörðunum fræðsluráðs um að bjóða börnum og for- eldrum örugga gæslu 6-9 ára barna til klukkan 17.15. En mér fannst álagið orðið of mikið þannig að ég ákvað að skerða þjónustuna meðan við værum að leita leiða til að manna stöðurnar. Verk- efni okkar er að tryggja börnunum frið og ró og gef- andi aðstæður og tryggja að þeim líði vel en mér fannst þetta komið út fyrir öryggis- mörk vegna álagsins. Það er ekkert grín að taka ábyrgð á 400 börnum og erfiðastur er óttinn um að það verði slys,“ sagði Guðbjörg, sem kvaðst vera ásamt samstarfsmönn- um sínum að leita leiða til að bæta úr. Kennarar væru þegar í talsverðri yfirvinnu og reynt væri að forðast að „kreista síðasta orkudrop- ann“ úr hverjum starfs- manni. Vandinn væri sá að það þyrfti marga einstakl- inga til starfa þegar álagið Morgunblaðið/Kristinn Elísabet Brand telur Höfða rétta staðinn lyrir minnisvarða um íslandsferð Churchills 1941 enda gisti hann í húsinu. Vill minnisvarðann við Höfða Reykjavík „MÉR FINNST að minnis- varði um komu Churchills ætti að standa við Höfða. Hér gisti hann meðan hann dvaldi á íslandi,“ segir Elísa- bet Brand, kennari og leið- sögumaður. Hún tekur undir þá upp- ástungu Stefáns S. Guðjéns- sonar viðskiptafræðings að borgaryfirvöld minnist ferð- ar leiðtoga breska heim- sveldisins í seinni heims- styijöldinni liingað til lands árið 1941 með viðeigandi hætti. f bréfi Stefáns Guðjóns- sonar til borgaryfirvalda var nefnt að Reykjavíkurhöfn gæti komið til greina sem staður fyrir minnismerkið en Elísabet segist telja Höfða rétta staðinn enda tengist hann bæði dvöl Churchills hér á landi og sé eitt þekkt- asta kennileiti borgarinnar. Hún vitnar í að samkvæmt íslandshandbökinni hafi Winston Churchill gist í Höfða meðan hann dvaldi hér. Húsið komst svo í eigu Breta 1942 og sagnir eru um að reimleikar hafi hijáð scndimenn þeirra í húsinu. Hvað sem því líður virðist Höfði hafa verið talinn sá staður í borginni sem helst var talinn samboðinn helsta leiðtoga Bandamanna í heimsstyrjöldinni árið 1941, alveg eins og húsið varð fyr- ir valinu við fund leiðtog- anna Reagans og Gorbatjovs árið 1986. Elísabet segir að hvort sem hún tali sem leiðsögu- maður eða kennari sé þörf fyrir minnisvarðann. „Hingað er farið með er- lenda leiðsögumenn í skoð- unarferðir. Breskum ferða- mönnum finnst sérstaklega gaman að frétta að húsið hafi verið í eigu Breta um tíma og að Chuchill hafi gist hér,“ segir hún. Elísabet kennir m.a. sögu og landafræði á ungl- ingastigi og hún segir að minnisvarði um komu Chu- rchills muni líka hafa þýð- ingu varðandi það að kenna unglingunum sögu þessa tímabils. Með því að vísa til einhvers áþreifanlegs í um- hverfinu á borð við minnis- varða sé auðveldara að vekja athygli þeirra á atburðum og persónum sögunnar. Morgunblaðið/Ámi Sæberg Guðbjörg Þórisdóttir segist vonast til að nýtt fólk komi til starfa næstu daga þannig að hægt verði að lengja viðveruna í það sem að var stefnt. væri mest yfir daginn en hins vegar vildi enginn ráða sig til vinnu í 2 tíma á dag. Hún kvaðst vonast til að fyr- irspurnir sem þegar hafa borist um skólaliðastörfin leiddu til þess að fólk yrði ráðið. Skólaliðar sinna ræst- ingum í dagvinnu, auk starfa við lengda viðveru, og Guð- björg kvaðst telja að fyrir- komulagið gæfist vel og betra væri að hafa sem flest starfsfólk innan um börnin meðan þau væru í skólanum heldur en að sérstakur hóp- ur mætti að loknum skóla- degi til að ræsta. Metnaðarfullt skólaumhverfí Guðbjörg lagði í samtali við blaðamann áherslu á að þótt skólaliða vantaði til starfa og skerða hefði þurft lengda viðveru væri mikið og gott starf unnið í skólanum. Fjöldi barna væri á lúðra- sveitaræfingum á hverjum degi, fjölbreytt tómstundatil- boð væru í gangi, þátttaka í kór og margt fleira. Hún sagði að mikill metn- aður einkenndi reykvískt skólaumhverfi um þessar mundir. „Það er gaman að taka þátt í þeirri uppbygg- ingu sem er í gangi,“ sagði Guðbjörg Þórisdóttir. Framkvæmdir við fyrrverandi húsnæði Hagabúðarinnar hefjast innan skamms Húsið stækkað og önnur hæð byggð Vesturbær INNAN skamms hefjast framkvæmdir við Hjarðar- haga 45 til 49, þar sem Hagabúðin var áður til húsa, en til stendur að stækka húsið og byggja hæð ofan á það. Tillaga um breytt deiliskipulag lóðar- innar var samþykkt í borg- arráði nú í vikunni með fjór- um atkvæðum gegn þremur og á fimmtudag staðfesti borgarstjórn samþykkt borgarráðs með átta at- kvæðum gegn sjö. Fyrirtækið Stoðir á hús- næðið sem um ræðir og seg- ir Jónas Þorvaldsson fram- kvæmdastjóri Stoða að til standi að stækka grunnflöt hússins um rúmlega 100 fermetra og verður jarð- hæðin þá um 490 fermetrar en önnur hæðin um 440 fer- metrar. Jónas segir að 10- 11 muni koma upp verslun á jarðhæðinni, en önnur hæð hússins verði leigð undir hverfisbundna þjónustu, en samkvæmt samþykkt frá borgar- skipulagi hafi nýting hús- næðisins verið skilgreind með þeim hætti að þar yrði slík starfsemi. Á efri hæðinni verður hverfisbundin þjónusta Jónas segir að ekki sé búið að ráðstafa húsnæðinu en margir hafi sýnt því áhuga, enda hafi framboð af slíku húsnæði í hverfinu verið lítið sem ekkert und- anfarin ár. Fyrir um ári síðan stóð til að efri hæð hússins yrði nýtt undir íbúðir, en að sögn Jónasar voru gerðar at- hugasemdir við þá áætlun þegar hún var kynnt þannig að skipulagið var endur- skoðað og var samþykkt í vor að húsnæðið skyldi nýta undir hverfisbundna þjón- ustu. Þá sé gert ráð fyrir að starfsemin í húsinu feli í sér sem minnsta umferð inn í hverfið og segir hann hver- famiðstöð eða tónhstarskóla geta verið dæmi um slíkt. Jónas segir að vonast sé til að framkvæmdir geti hafist í október og að gert sé ráð fyrir að þeim ljúki í lok vetrar þannig að hægt verði að taka húsnæðið í notkun í apríl. Gert í andstöðu við íbúa á svæðinu Fulltrúar Sjálfstæðis- flokksins greiddu atkvæði gegn deiliskipulagstillög- unni bæði í borgarráði og borgarstjórn. I borgarráði óskuðu þeir jafnframt eftir því að bókað yrði að tillagan um nýja hæð ofan á verslun- arhúsnæði við Hjarðarhaga 45, 47 og 49 fæli í sér 70% aukningu byggingarmagns á lóðinni. Þetta væri gert í algjörri andstöðu við íbúa á svæðinu, en það sé engin forsenda verslunarreksturs á 1. hæð að byggð verði hæð ofan á húsið. Einnig segir að miklar líkur séu á því að deiliskipulagstillagan upp- fylli ekki skilyrði skipulags- og byggingarlagareglu- gerða. I bókuninni segir jafnframt að „yfirlýsing um takmörkun á landnotkun við svokallaða hverfis- bundna þjónustu sem til stendur að þinglýsa á 2. hæð“, sé óskilgreind og að ólíklegt sé að hún standist. Þörf er fyrir slíkt hús- næði í Vesturbænum Fulltrúar Reykjavíkur- listans greiddu atkvæði með tillögunni bæði í borgarráði og borgarstjórn og óskuðu eftir því á borgarráðsfundi að bókað yrði að umrædd lóð sé að mörgu leyti vel fallin til uppbyggingar og að ekki verði séð að rúmlega 400 fermetra hæð ofan á húsinu gangi gegn hags- munum nágranna né rýri með nokkrum hætti gæði þess umhverfis sem þeir nú búi við. Einnig segir; „Ljóst er að þörf er fyrir húsnæði í Vesturbænum fyrir hverf- istengda þjónustu sem rek- in er í þágu Vesturbæinga allra og ólíklegt að hægt sé koma henni fyrir svo vel sé annars staðar í hverfinu." Jafnframt segir í bókuninni að slík þjónusta á annarri hæð hússins sé að auki lík- leg til að renna styrkari stoðum undir verslunar- rekstur í húsinu sem hefur legið alllengi niðri.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.