Morgunblaðið - 23.09.2000, Page 43

Morgunblaðið - 23.09.2000, Page 43
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 23. SEPTEMBER 2000 43 UMRÆÐAN „DRAUMAPILLAN“ EF lyfjaframleið- endur gætu framleitt pillu sem gerði allt í senn þ.e. lækkaði blóðþrýsting, drægi verulega úr hættunni á að fá hjarta- og æða- sjúkdóma og ýmsar tegundir krabba- meina, lækkaði heild- arblóðfitu og blóð- þrýsting hjá mörgum, auðveldaði þyngdar- stjórnun, drægi úr hættunni á beinþynn- ingu og bjúmyndun í fótum, auk þess að: Hilmar Björnsson bæta svefn og auka al- mennt þol og starfs- getu, þyrftu þeir ekki að hafa áhyggjur af af- komunni í framtíðinni. Þessi pilla er því miður ekki til, en það er til ráð til þess að ná fram sömu verkan og draumapillan hefði. Rannsóknir Hjarta- verndar hafa leitt í ljós helstu áhættuþætti hjarta- og æðasjúk- dóma. Þær hafa sýnt fram á að þú getur sem einstaklingur með lífs- stíl þínum náð fram svipuðum áhrif- um. Það er nefnilega þannig að hreyfing (þjálfun) hefur veruleg áhrif á alla framangreinda þætti, og það jákvæða er að þessi hreyfing þarf ekki að vera neitt verulega mikil. Rannsóknir sýna að tveggja til þriggja tíma hreyfing á viku er nægjanleg til þess að ná fram þess- um jákvæðu þáttum. Minni hreyf- ing er af hinu góða en aðalatriðið er að hreyfmgin sé reglubundin. Hvaða hreyfíngu erum við að tala um? 1. Hreyfingu sem eykur hjart- slátt og súrefnisflæði um líkamann. Hreyfing Rannsóknir sýna segír Hilmar Björnsson, að tveggja til þriggja tíma hreyfíng á viku er nægjanleg til þess að ná fram þessum jákvæðu þáttum. Dæmi um slíka hreyfingu er að ganga (skokka), hjóla, synda, skauta, ganga á skíðum, stunda al- menna líkamsrækt, auk ýmissa daglegra starfa eins og að vinna í garðinum, mála húsið, moka snjó o.s.frv. 2. Styrkjandi og liðkandi æfingar. Almenn leikfimi með styrktaræfi k ingum og teygjum, líkamsrækt með lóðum og tækjum. Hér eru tekin dæmi um jákvæða hreyfingu sem flestir geta stundað óháð efnahag og aldri. Það er ekki tilviljun að hreyfing varð fyrir valinu sem þema fyrsta alþjóðlega hjartadagsins sem hald- inn verður um allan heim á morgun hinn 24. september. Sænskt máltæki segir: „Farið út að ganga með hundinn, þótt þið eig- ið engan." Höfundur er íþróttafræðingur og stjómarmaður í Hjartavemd. kallar ' .. Fjölhæfari og þægilegri fjölskyldubíU % ý. v , J,- ■ Renault Scénic RT 21.198, á mánuði* íifciteJiS® Verð 1.738.000,- 5 dyra - 5 gíra - 1600cc - 4 loftpúðar - abs bremsur ■ fjarstýrð hljómtæki - fjarstýrðar samlæsingar Renault Seénic RT sjálfskiptur 22.460,- á mánuði* Verð 1.838.000,- 5 dyra - 4 þrepa sjálfskipting - 1600 cc - 4 loftpúðar - abs bremsur - fjarstýrð hljómtæki - fjarstýrðar samlæsingar Renault Scenic RX4 29.134,- á mánuði* Verð frá 2.390.000,- 5 dyra - 5 gíra - 2000cc - 4 loftpúðar - abs bremsur - fjarstýrð hljómtæki - fjarstýrðar samlæsingar Söludeild 575 1220 *meðalgreiðsla á mánuði miðað við 25% útborgun (t.d. notaðan bíl) og afganginn á 84 mánuðum. Prófaðu Renault Scénie til að svara kalli fjölskyldunnar um þægilegri bíl sem hægt er að aðlaga sérlega vel að hverri ferð fyrir sig. 1 RENAULT

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.