Morgunblaðið - 23.09.2000, Blaðsíða 23

Morgunblaðið - 23.09.2000, Blaðsíða 23
MORGUNBLAÐIÐ ERLENT LAUGARDAGUR 23. SEPTEMBER 2000 23 Flokkur Paisleys sigrar í aukakosningum á N-Irlandi Áfall fyrir Trimble og friðarsamninginn Beifast. Reuters, AP, AFP. ANDSTÆÐINGAR friðarsamnings- ins á Norður-írlandi í stærsta flokki mótmælenda gerðu í gær harða hríð að leiðtoga sínum, David Trimble for- sætisráðherra, eftir að flokkurinn missti eitt af öruggustu þingsætum sínum í aukakosningum í fyrradag. Eru úrslitin mikið áfall fyrir Trimble og aðra stuðningsmenn Belfast-sam- komulagsins, sem samþykkt var í þjóðaratkvæðagreiðslu fyrir tveimur árum. Lýðræðislegi sambandsflokkurinn (DUP), sem er andvígur friðarsamn- ingnum, bar sigurorð af flokki Trimbles, Sambandsflokki Ulster (UUP), í Suður-Antrim í aukakosn- ingum sem haldnar voru vegna frá- falls fulltrúa kjördæmisins á breska þinginu. Sigurvegarinn sagði úrslitin endurspegla vaxandi andstöðu meðal sambandssinna við friðarsamninginn. Frambjóðandi DUP, klerkurinn William McCrea, fékk 38% atkvæð- anna en frambjóðandi UUP, David Burnside, 35%. N æstöruggasta vígið fallið Úrslitin ollu miklum titringi í flokki Trimbles, enda hefur Suður-Antrim verið álitið næstöruggasta kjördæmi UUP sem sigraði þar með miklum mun í síðustu kosningum árið 1997. Lýðræðislegi sambandsflokkurinn, undir forystu klerksins Ians Paisleys, hefur notið fremur lítils stuðnings í kjördæminu til þessa og var ekki með frambjóðanda þar í síðustu kosning- um. McCrea sagði að kjósendurnir hefðu sent skýr skilaboð til Trimbles. „Gríðarmikill meirihluti sambands- sinna hefur í dag kveðið upp dóm sinn yfir Balfast-samkomulaginu - þessu óréttláta samkomulagi sem hefur eyðilagt lýðræðið í landi okkar,“ sagði sigurvegari kosninganna. „Þetta er sögulegur dagur.“ Lagði leiðtoga- stöðuna undir Báðir flokkarnir sækja fylgi sitt til mótmælenda, sem eru í meirihluta á Norður-írlandi. Paisley nýtur ein- dregins stuðnings flokksbræðra sinna í andstöðunni við friðarsam- komulagið en það hefur hins vegar valdið djúpstæðum ágreiningi í flokki Trimbles. Forsætisráðherrann lagði leiðtogastöðuna undir þegar hann beitti sér fyrir samkomulaginu og féllst á að mynda heimastjórn með aðild Sinn Fein, stjórnmálaflokks írska lýðveldishersins (IRA). Martin Smyth, sem beið nauman ósigur fyrir Trimble í leiðtogakjöri UUP fyrr á árinu, sagði að ósigurinn í Suður-Antrim sýndi að stefna forsæt- isráðherrans nyti ekki stuðnings flokksbræðra hans. Smyth kvaðst ætla að íhuga vandlega hvort hann ætti að bjóða sig fram aftur gegn Trimble. „Hann verður að gera það upp við sig hvort hann ætlar að stjórna flokknum í andstöðu við viija sambandssinna eða hvort hann ætlar nú að gerast sá forystumaður sem þeir telja sig þurfa,“ sagði Smyth. Þingmaðurinn Jeffrey Donaldsson, sem margir telja að verði leiðtogi flokksins, sagði að UUP ætti að ganga úr heimastjóminni. Flokkur- inn gæti ekki lengur átt aðild að stjóm með Sinn Fein meðan IRA neitaði að láta vopn sín af hendi. Trimble kveðst ekki gefast upp Trimble kvaðst ekki ætla að segja af sér. „Við höldum áfram. Jú, við urðum fyrir áfalli. En við gefumst ekki upp. Við vissum að þetta yrði ekki auðvelt," sagði forsætisráðherr- ann. „Ég veit að til eru menn í Lýð- ræðislega sambandsflokknum sem yrðu himinlifandi ef ég léti af embætti forsætisráðherra." Trimble sagði að ósigurinn væri skýr vísbending um að meirihluti mótmælenda væri mjög andvígur áformum bresku stjórnarinnar um að gera róttækar breytingar á Konung- legu lögreglusveitunum í Ulster, RUC, sem börðust við IRA í 30 ár. Kjósendur úr röðum sambandssinna hefðu fyrst og fremst verið að mót- mæla þessum áformum með því að kjósa flokk Paisleys. Trimble bætti við að úrslitin sýndu einnig að mótmælendur teldu að IRA yrði að hefja afvopnun eins og kveðið er á um í friðarsamningnum. „Það er nú orðið mjög brýnt að raunveruleg- ur árangur náist mjög fljótt.“ Bertie Ahem, forsætisráðherra Ir- lands, varaði menn við því að gera of mikið úr áhrifum kosninganna á frið- arsamninginn og sagði að aukakosn- ingar gætu ekki orðið honum að falli. Stefiiir að því að verða stærstur Helstu skæruliðahreyfingamar á Norður-írlandi hafa staðið við vopna- hlésyfirlýsingar sínar en nokkrir andófshópar mótmælenda og kaþ- ólskra hafa gert árásir endrum og eins til að reyna að grafa undan frið- arsamningnum. Blóðugar illdeilur stríðandi fylkinga herskárra mót- mælenda hafa einnig valdið spennu. Norður-írland er með átján sæti á breska þinginu og Lýðræðislegi sam- bandsflokkurinn er nú með þrjá þing- menn eftir aukakosningamar. Flokk- urinn telur sig nú geta sigrað flokk Trimbles í næstu þingkosningum, sem verða hugsanlega haldnar á næsta ári, og orðið stærsti flokkur mótmælenda í fyrsta sinn. Tækist honum það yrði hann í aðstöðu til að binda enda á sameiginlega heima- stjóm kaþólskra Norður-íra og mót- mælenda. Sigurvegari aukakosninganna, McCrea, er prestur í Óháðu öldunga- kirkjunni í Úlster, sem Paisley stofn- aði. McCrea er ef vill þekktastm- sem söngvari í heimalandinu því hann hef- ur gefið út rúmlega tuttugu hljóm- plötur með kristilegum söngvum og fer reglulega í tónleikaferðir um landið. Liðsmenn IRA hafa reynt að ráða hann af dögum, síðast árið 1994 þegar ráðist var á heimili hans með vélbyss- um. Hann hefur einnig verið umdeild- ur vegna stuðnings síns við herskáa mótmælendur, síðast árið 1997 þegar hann lét taka myndir af sér með Billy „Rottukóngi" Wright, leiðtoga ill- ræmdrar skæraliðahreyfingar sem leggst gegn friðarsamningnum. McCrea hélt því fram á þessum tíma að hann hefði aðeins viljað verja málfrelsi Wrights sem var myrtur skömmu síðar í tilræði öfgamanna úr röðum andstæðinga mótmælenda. GeœcalBectnc General Electric DDE5602 Barkaþurrkari, veltir í bá&r áttir, krumpuvörn, barki fylgir, yérf) Ju. 21.900,- í.ln. General Electric DDE7602 Barkalaus þurrkari, stáltromla, veltir í báðra áttir, krumpuvörn ofl. Verð kr. 39.900,- stg. m ELECTRIC HEKLA HEKIUHÚSINU • LAUGWEGI172 • SlMI 569 5770 • HEIMASÍDA www.lnkla.lj • HETFANG hekla@hekla.ls KENWOOD Kenwood hrærivélarfrá kr. 25.900.' AP Stuðningsmenn Lýðræðislega sambandsflokksins á N-Irlandi halda á William McCrea, sigurvegara kosninganna í Suður-Antrim í fyrradag. Tilboðin J .10.2000
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.