Morgunblaðið - 23.09.2000, Qupperneq 19
MORGUNBLAÐIÐ
VIÐSKIPTI
LAUGARDAGUR 23. SEPTEMBER 2000 19
Carlsberg hyggst
stofna líftækni-
fyrirtæki
Ósló. Morgunblaöið.
DANSKA brugghúsið Carlsberg
leitar nú að samstarfsfyrirtækjum í
þeim tilgangi að nýta þekkingu
Carlsberg á líftækni. Markmiðið er
að stofna líftæknifyrirtæki, að því er
Politiken greinir frá.
Leitin að samstarfsfyrirtækjum
er nú hafin og vonast forsvarsmenn
Carlsberg til að geta stofnað eitt eða
fleiri fyrirtæki á sviði líftækni sem
síðar yrðu seld.
„Mikil þekking er innan fyrirtæk-
isins, t.d. á eiginleikum gers og
byggs, sem er æskilegt að markaðs-
setja,“ segir Flemming Lindelov,
forstjóri Carlsberg. Um 150 vísinda-
menn starfa hjá fyrirtækinu og seg-
ir Lindelov að þekking þeirra á
fleiru en geri og byggi muni einnig
nýtast innan líftæknifyrirtækis þeg-
ar fram í sækir.
Carlsberg hefur allt frá stofnun
fyrirtækisins árið 1876 leynt öllum
upplýsingum um ölgerðina mjög vel.
Nú sjá forsvarsmenn fyrirtækisins
aftur á móti möguleika á að nýta
upplýsingarnar til verðmætasköp-
unar, að því er segir í Politiken.
Nokkur lítil líftæknifyrirtæki
hafa bréf sín skráð í Kauphöllinni í
Kaupmannahöfn og fleiri undirbúa
skráningu. í Politiken segir að þessi
fyrirtæki hafi selt hlutabréf fyrir
margar milljónir án þess að hafa
sýnt árangur. „En möguleikar
Carlsberg á að ná árangri á mark-
aðnum eru mun meiri þar sem þró-
unarvinna innan fyrirtækisins er svo
Hörð sam-
keppni
í útgáfu
gulra síðna
Ósló. Morgunblaðið.
HLUTABRÉF dótturfélags sænska
fjarskiptafyrirtækisins Telia, Eniro
AB, verða skráð í Kauphöllinni í
Stokkhólmi í október. Um er að ræða
fyrirtæki sem m.a. gefur út síma-
skrár auk upplýsingabóka og -bækl-
inga af ýmsu tagi. Einnig rekur fyrir-
tækið upplýsingaþjónustu á Netinu.
Telia mun selja 50,1% af 150 millj-
ónum hluta í Eniro. Hlutabréfaút-
boðið fer fram í lok september og
verða bréfin skráð 10. október.
Tekjur Eniro jukust um 20% á milli
áranna 1998 og 1999 og nam hagnað-
ur síðasta árs um 6,5 milljörðum ís-
lenskra króna.
Að sögn vefmiðilsins digitoday.no
getur þessi hagnaður þurrkast út ef
nýleg áform Tele Danmark ganga
eftir. Dagens industri greinir nefni-
lega frá því að Tele Danmark hyggi á
útgáfu upplýsingabóka, eða svokall-
aðra gulra síðna, í Svíþjóð næsta vor.
I þessum tilgangi hefur Tele Dan-
mark stofnað dótturfyrirtæki í Svi-
þjóð, Gulan AB.
Verð auglýsinga í bók Gulan AB
verður 30-50% lægra en Eniro hefur
boðið hingað til. Þessar upplýsingar
koma ekki á góðum tíma fyrir Telia
og geta haft neikvæð áhrif á fjárfesta
í undanfara útboðsins. Allt að helm-
ingur tekna Eniro kemur frá útgáfu
„gulu síðnanna“ og því Ijóst að leikur
Tele Danmark getur skaðað rekstur
Eniro. Fjárfestum er einnig mis-
heppnað hlutafjárútboð Telia í
fersku minni en hlutabréf fyrirtækis-
ins lækkuðu i gær og hafa lækkað um
30% á þeim tíma sem liðinn er frá út-
boðinu.
Sérfræðingur sem Dagens ind-
ustri ræðir við líkir þessu dæmi við
það sem gerðist þegar Deutsche
Telekom lækkaði verð á símtölum
um 40% á sama tíma og þýska far-
símafélagið Debitel kynnti hlutafjár-
útboðog skapaði hinu síðarnefnda
veralega erfiðleika.
langt á veg komin,“ segir í Politiken.
Yfirlýst markmið Carlsberg er að
verða eitt af fimm stærstu brugg-
húsum heims og m.a. í þeim tilgangi
er nú sóst eftir samstarfi við önnur
fyrirtæki. Carlsberg hefur þegar
aflað fjármagns með því að selja Tí-
volí í Kaupmannahöfn og nú er rætt
um að selja fleiri fyrirtæki í eigu
Carlsberg, t.d. postulíns- og skraut-
gripafyrirtækið Royal Scandinavia.
Nýtt tilboð í LSE
Ósló. Morgunblaðið.
BÚIST er við að Euronext, félag
sameinaðra kauphalla Parísar,
Amsterdam og Brussel, leggi fram
tilboð í Kauphöllina í London (LSE)
í dag. Sænska blaðið Dagens ind-
astri greinir frá þessu. Þar segir að
tilboðið verði upp á um 1,2 milljarða
punda, sem samsvarar um 140 millj-
örðum íslenskra króna.
Þar með gæti tilboðsstríð um
LSE verið hafið. Sænska fyrirtækið
OM Gruppen hefur þegar lagt fram
tilboð, eins og kunnugt er, ogjafnvel
er búist við að Kauphöllin í Frank-
furt leggi fram tilboð, en nýlega var
fallið frá fyrirhuguðum samruna
LSE og Kauphallarinnar í Frank-
íúrt undir merkjum iX.
Samstarfsfélagið Euronext var
formlega stofnað í gær og getur fé-
lagið því nú fyrst lagt fram formlegt
tilboð. Samkvæmt franska dagblað-
inu L’Agefí, sem DI vitnar til, mið-
ast tilboðið við greiðslu í reiðufé og
ku vera álitlegt fyrir hluthafa í LSE.
Fréttavefur vitnar í franskan
verðbréfamiðlara sem segir að Eur-
onext geti ekki staðið aðgerðarlaust
á meðan lítið sænskt fyrirtæki eins
og OM gleypi LSE. Talsmaður
Euronext staðfestír ekki að félagið
geri tilboð í dag en segir að stjóm
Euronext hafi fullan hug á að taka
þátt í þeirri þróun sem verið hefur.
Euronext-samruninn hefur geng-
ið hnökralaust fyrir sig og er hinu
sameinaða félagi hampað sem
fyrstu landamæralausu kauphöll-
inni með sameiginlega evrópska
mynt. Frönsku hluthafamir eiga
60% hlutafjár í Euronext; hollensku
32% og Belgar eiga 8%. A mánudag
er búist við að LSE hefji vöm sína
gegn hinu óvinveitta 820 milijóna
punda tilboði OM Grappen.
'lff
Fólkið okkar er að springa úr ferskleika enda
nýkomið af námskeiði hjá hinum þekkta heims-
meistara KLAUS WAGENER. Komið um helgina
og leyfið okkar meisturum að kynna ykkur
blómlega nálgun á þremur ólíkum lífsstílum.
Helga Harðardóttir
Fríða Guðlaugsdóttir MÍúka a,erðin ,So,t look)
Hjördís Jónsdóttir ® S,erku ukri,in (S,ron9 ,ourh)
Kristján Ingi Jónsson ® Brey,,a nli,ia (Chon3e
i ' \í\ 90-W \
*'evVraTl°«V»'oWsk,<i
®r£S-k’'*,í*w’
3 Erikur
frjólsf val
kr.999
mriTiKfiTíi