Morgunblaðið - 23.09.2000, Blaðsíða 20
20 LAUGARDAGUR 23. SEPTEMBER 2000
VIÐSKIPTI
MORGUNBLAÐIÐ
Innffldp seðlabanka Evrópu, Bandarfkjanna og Japans á g;ialdeyrismarkaði
Sameiginlegt átak til að
hækka gengi evrunnar
í GÆR gripu Seðlabanki Evrópu
(ECB), Seðlabanki Bandaríkjanna
og Seðlabanki Japans inn í gengi
evrunnar í því skyni að hækka það
gagnvart dollar. Inngrip sem þessi
felast í því að kaupa evrur fyrir doll-
ara, en ekki hefur fengist upp gefið
hversu mikil inngripin voru.
Eftir þessi inngrip fór gengið í
gær upp í 0,9014 evrur gagnvart
dollar, en gaf aftur eftir þegar líða
tók á daginn og var í um 0,88 síðdeg-
is í gær.
Þessi inngrip, sem eru fyrstu inn-
grip ECB, eiga sér langan aðdrag-
anda, en frá því evran var tekin í
notkun í byrjun árs 1999 hafði hún
lækkað um 28% fyrr í vikunni og var
komin niður í 0,8438 Bandaríkjadali.
Lengi vel eftir upptöku evrunnar
var lágmarksviðmiðið einn dollari
hver evra, en evran fór niður fyrir
það mark í byrjun þessa árs. Síðan
þá hefur hún rofið hvert viðmiðið á
fætur öðru. Frá því um miðjan ágúst
hefur evran veikst hratt og sérfræð-
ingar hafa keppst við að gefa skýr-
ingar og spá fyrir um framhaldið. Æ
háværari hefur sú fullyrðing orðið
að evran sé bara ekki meira virði og
hefur því verið spáð að hún eigi eftir
að lækka enn meira. Viðunandi verð
fyrir fjárfesta sé 75-80 sent, svo
vitnað sé til orða sérfræðings hjá
Chase bankanum á CNN nýverið.
IMF hvatti til inngripa
Stjómmálamenn hafa beðið al-
menning að halda ró sinni en ýmsir
hagfræðingar hafa knúið á um inn-
grip ECB. í síðustu viku keypti
Evrópski seðlabankinn evrur í
fyrsta skipti. Námu kaupin 2,5 millj-
örðum evra og sagði bankinn að
þarna væri ekki um inngrip að ræða
heldur aðeins verið að kaupa fyrir
vexti af gjaldeyrisinnistæðum. Ýms-
ir litu þó á þetta sem tilraun bank-
ans til að hafa áhrif á gengi evrunn-
ar, enda hafa kaup á evru þau áhrif
að hækka gengi hennar. Hver sem
ástæða þessara kaupa bankans var
höfðu þau ekki þau áhrif að hækka
gengi evrunnar.
Michael Mussa, aðalhagfræðing-
ur Alþjóðagjaldeyrissjóðsins (IMF)
sagði fyrir skömmu að aðstæður nú
væru ákjósanlegar til inngripa á
fjármálamarkað, og að æskilegt
væri að styrkja sameiginlega
evrópska mynt með inngripum.
Að mati Mussa á ECB að halda
uppi aðhaldssamri peningastefnu
með inngripum til að leiðrétta skoð-
un markaðarins á evrunni. Að hans
mati er veik evra alþjóðlegt vanda-
mál, ekki einungis vandamál
Evrópulanda.
Sérfræðingar hafa sagt að til að
inngrip hafi tilætluð áhrif, verði þau
að vera vandlega skipulögð sam-
vinna margra seðlabanka, að hinum
bandaríska meðtöldum. Vafi lék þó
á að Seðlabanki Bandaríkjanna væri
viljugur til að tefla sterkum dollara í
tvísýnu, en annað kom á daginn í
gær. Ein af ástæðunum sem nefnd
hefur verið fyrir því að Seðlabanki
Bandaríkjanna mundi ekki vilja fara
út í aðgerðir vegna lækkunar evr-
unnar er væntanlegar forsetakosn-
ingar í Bandaríkjunum. Emst Welt-
eke, bankastjóri Seðlabanka
Þýskalands, hafði m.a. sagt í samtali
við ft.com að erfitt yrði að fá fram
skýra afstöðu Bandaríkjamanna af
þessum sökum.
Samkvæmt þýskri skoðanakönn-
un sem Business Week vitnar til,
óska tæpir tveir þriðju hlutar Þjóð-
verja þess að ríkið hefði haldið sig
við þýska markið sem gjaldmiðil.
Þeir óttast einnig að ECB muni
aldrei geta varið evruna eins vel og
Þýski seðlabankinn hefur varið
markið í gegnum tíðina.
Stórfyrirtæki hafa kvartað
undan gengisþróuninni
Stærstu fyrirtæki heims kvarta
nú sáran undan niðursveiflu evrunn-
ar. Afkoma fyrirtækja eins og Gill-
ette, McDonalds og Colgate-Palm-
olive hefur versnað mjög vegna
cp
una.nei
AUGLÝSING VEGNA ÚTGÁFU RAFBRÉFA
í KERFI VERÐBRÉFA5KRÁNINGAR Í5LAND5 HF.
Stjórn línu.nets hf. kt. 490799-3039, 5kúlagötu
19, Reykjavík, gerir kunnugt að með heimild í 2. mgr. 27.
GR. LAGA UM HLUTAFÉLÖG NR. 2/1995 HEFUR STJÓRNIN TEKIÐ
ÁKVÖRÐUN UM AÐ HLUTIR í FÉLAGINU VERÐI GEFNIR ÚT MEÐ
RAFRÆNUM HÆTTI í KERFI VeRÐBRÉFASKRÁNINGAR ÍSLANDS HF.
MÁNUDAGINN 2. OKTÓBER ÁRIÐ 2000 KL. 9.00 ÁRDEGIS.
Hluthafar sem vilja fá staðfestingu á því að þeir séu rétt
SKRÁÐIR í HLUTHAFASKRÁ FÉLAGSINS GETA BÉINT FYRIRSPURN
ÞESS EFNIS TIL FÉLAGSINS, í SÍMA 5951200, FYRIR 2. OKTÓBER
NÆSTKOMANOI. ÞÁ ER VAKIN ATHYGLI ALLRA ÞEIRRA SEM EIGA
TAKMÖRKUÐ RÉTTINOI TIL HLUTA í LÍNU.NET HF., SVO SEM
VEÐRÉTTINOI, Á AÐ KOMA RÉTTINDUNUM Á FRAMFÆRI VIÐ
FULLGILDAR REIKNINGSSTOFNANIR, Þ.E.A.S. BANKA, SPARISJÓÐI
EÐA VERÐBRÉFAFYRIRTÆKI SEM GERT HAFA AÐILDARSAMNING VIÐ
VERÐBRÉFASKRÁNINGU Í5LAN0S, FYRIR 2. OKTÓBER
NÆSTKOMANOI.
Að lokinni rafrænni skráningu geta hluthafar nálgast
HLUTI SÍNA í LÍNU.NET MEÐ ÞVÍ AÐ STOFNA V5-REIKNING HJÁ
REIKNINGSSTOFNUN. VERÐUR HLUTHÖFUM NÁNAR TILKYNNT UM
ÞETTA BRÉFLEIÐIS.
Reykjavík
Stjórn LÍNU.NETS HF.
óhagstæðrar gengisþróunar. Sömu
sögu er að segja um ýmis hátækni-
fýrirtæki. Intel hefur t.d. sent frá
sér afkomuviðvörun vegna minni
sölu í Evrópu og lækkaði verðmæti
fyrirtækisins verulega í kjölfarið.
Þessi fyrirtæki eru bandarísk en
tekjur þeirra koma að stórum hluta
frá Evrópulöndum eins og Frakk-
landi, Þýskalandi og Ítalíu sem eru í
myntbandalaginu. Yfir fjórðung-
slækkun evrunnar gagnvart dollar
frá upphafi hefur haft mikil áhrif á
afkomu slíkra íyrirtækja.
Hlutabréf þeirra hafa fallið í verði
og eru nú í tveggja til fjögurra ára
lágmarki. Auk þess hafa verðbréfa-
fyrirtæki breytt mati sínu á þeim til
hins verra.
Mánaðarleg skýrsla þýsku rann-
sóknarstofnunarinnar IFO hefur átt
ríkan þátt í falli evrunnar en vísitala
IFO heldur áfram að lækka. IFO
birtir mánaðarlega vísitölu sína sem
sýnir skoðun fyrirtækja á efna-
hagsástandinu. Þetta kemur m.a.
fram á ft.com.
Stjómmálamenn hafa fremur
gert lítið úr áhyggjum fjárfesta af
gengisþróun evrunnar og kanslari
Þýskalands, Gerhard Schröder,
sagði eins og kunnugt er orðið að
veik evra væri hagstæð útflutningi
frá evrulöndunum. I kjölfarið
hrundi gengi hennar sem aldrei
fyrr. Þá hefur Hans Eichel, fjár-
málaráðherra Þýskalands, ráðlagt
mönnum að halda ró sinni og sagt að
aðalatriðið sé að hagkerfið standi
styrkum fótum.
Á fréttavef BBC kom enda fram
nýlega að Ijósi punkturinn við lágt
gengi evrunnar sé að evrópsk fyrir-
tæki flytji nú meira út en nokkru
sinni þar sem veik evra geri vörur
þeirra eftirsóknarverðari. Þetta geti
örvað hagvöxt í Evrópu.
Óvissa um framhaldið
Þrátt fyrir vöxt og styrk í efnahag
t.d. Þýskalands og Frakklands, er
að mati The Economist lítið sem
bendir til þess að þessi hagkerfi geti
haldið í við hið bandaríska sem ein-
kennst hefur af stöðugum hagvexti
og lítilli verðbólgu.
I Business Week kemur fram að
hagvöxtur sé enn meiri í Bandaríkj-
unum en í Evrópu og þangað
streymi fjármagn frá Evrópu. Sér-
fræðingum BNP-Paribas bankans í
Frakklandi reiknast til að í viku
hverri festi Evrópubúar yfir 3 millj-
arða Bandaríkjadala í verðbréfum í
Bandaríkjunum.
Fyrirtæki hafa hagnast meira af
fjárfestingum í Bandaríkjunum en í
Evrópu, að því er fram kemur í Bus-
iness Week, og tímaritið segir pen-
ingastreymið inn í Bandaríkin skýra
að miklu leyti hvers vegna evran
hafi lækkað svo síðan hún hóf göngu
sína í ársbyrjun 1999. Business
Week telur þó að efnahagur evru-
landanna sé sterkur og á uppleið.
ECB hafði hækkað vexti fimm
sinnum á þessu ári áður en hann og
seðlabankar Bandaríkjanna og Jap-
ans gripu inn í með kaupum á evru í
gær. Þær aðgerðir dugðu ekki, en
engin leið er spá fyrir um árangur af
inngripunum nú. Fyrr í vikunni
sagði aðstoðarbankastjóri ECB,
Christian Noyer, að fjármálaráð-
herrar G7-landanna mundu stað-
festa á fundi þeirra um helgina að
evran sé „hættulega vanmetin".
Þrátt fyrir inngripin í gær og
nokkra hækkun evrunnar verður
staða hennar án vafa mikið til um-
ræðu á þessum fundi, enda mikil
óvissa um framhaldið.
Comtec-
brennslu-
hvatinn á
markað í
Suður-Afríku
NÝTT fyrirtæki, Fuel Boost Ltd.,
hefur verið stofnað í Bretlandi til
að markaðssetja og selja Comtec-
brennsluhvatann í Suður-Afríku
og Mið-Evrópu. David Butt, sem
fann upp og hannaði brennslu-
hvatann, stofnaði fyrirtækið ný-
lega í Bretlandi ásamt Sherard
Wrey, George Dale og Ralph
Wright. Butt hefur hins vegar að-
setur á Akranesi og mun sinna
starfi sínu þaðan sem tæknilegur
ráðgjafi hjá fyrirtækinu. Hann
stofnaði á sínum tíma Comtec
Combustion Technologies sem
framleiddi hvatabúnaðinn og
seldi m.a. í Kanada. Brennslu-
hvatinn gerir það að verkum að
jarðefnaeldsneyti fær hreinni og
betri bruna í díselvélum.
Sherard Wrey og Catherine
Wrey, dóttir Northbrook lávarðar
fyrrum eiganda Baring Brothers
bankans, hafa lagt fram talsvert
fjármagn í nýja fyrirtækið sem
verður starfrækt í Winchester á
Englandi. Búnaðurinn verður
jafnframt framleiddur í Bretlandi
og markaðssettur í Suður-Afríku
og Mið-Evrópu. I fréttatilkynn-
ingu frá fyrirtækinu segir að til-
raunir með búnaðinn séu þegar
hafnar í Suður-Afríku.
Mánaðaryfírlit Flugleiða fyrir ágúst
Fleiri farþegar en
lakari sætanýting
FLUGLEIÐIR sendu í gær frá sér
frétt um framboð og flutninga í
ágúst. Þar kemur fram að í mánuðin-
um hafi farþegum í millilandaflugi
Flugleiða fjölgað um 5,2% frá ágúst í
fyrra. Sé litið til þess að Flugleiðir
flugu áður milli Kaupmannahafnar
og Hamborgar, sem félagið gerir
ekki nú, er fjölgun farþega 7,6%. Með
sömu viðmiðun, þ.e. án flugsins milli
Kaupmannahafnar og Hamborgar,
fjölgaði viðskiptafarþegum um 12,7%
milli ára. Sætanýting er hins vegar
heldur lakari í ár en í fyrra, eða
82,7% á móti 83,8%. Árið 1998 var
nýtingin þó lakari en í ár, eða 81,9%.
Farþegum í innanlandsflugi Flug-
félags íslands fjölgaði um 23,2% og
Flugleiðir-Frakt jók flutninga sína
um 53,7% frá ágúst í fyrra.
Erfitt rekstrarumhverfi
Um rekstrarumhverfi sitt segja
Flugleiðir að verð á flugvélaeldsneyti
hafi enn hækkað og sé nú 60% yfir
meðalverði síðustu tíu ára. Gert sé
ráð fyrir að verðið haldist hátt, að
minnsta kosti út þetta ár. Þessi verð-
hækkun hafi áhrif á afkomu flugfé-
laga. Þá segir félagið að lækkun evr-
unnar gagnvart bandaríkjadal hafi
verið félaginu óhagstæð vegna hlut-
deildar þessara mynta í sjóðstreymi
félagsins.
Innköllun vegna
rafrænnar skráningar hlutabréfa
Mánudaginn 6. nóvember 2000 verða hlutabréf Nýherja
hf. skráð rafrænt hjá Verðbréfaskráningu íslands hf.
Lokað verður fyrir viðskipti með hlutabréf félagsins á
Verðbréfaþingi íslands þann dag.
Vegna rafrænu skráningarinnar eru hlutabréf í Nýherja
hf. hér með innkölluð í samræmi við ákvæði laga um
rafræna skráningu hlutabréfa og rafræna eignarskráningu
réttinda yfir þeim hjá Verðbréfaskráningu íslands hf.
Hér með er skorað á alla eigendur hlutabréfa Nýherja hf.
að ganga úr skugga um að eignarhald þeirra sé réttilega
fært í hlutaskrá félagsins með fyrirspurn til skrifstofu
Nýherja að Borgartúni 37,105 Reykjavík. Komi í Ijós við
slíka könnun að eigendaskipti hafi ekki verið skráð ber
eigendum að færa sönnur á þau gagnvart félaginu innan
þriggja mánaða frá síðustu birtingu innköllunar þessarar
í Lögbirtingarþlaðinu.
Aðrir sem eiga takmörkuð réttindi í ofangreindum
hlutabréfum, s.s. veðréttindi, eru jafnframt hvattir til að
koma þeim á framfæri innan þriggja mánaða frá síðustu
þirtingu innköllunar þessarar í Lögbirtingarblaðinu við
fullgilda reikningsstofnun sem hefur gert aðildarsamning
við Verðbréfaskráningu íslands hf.
Athygli hluthafa er vakin á því að hin áþreifanlegu hlutabréf
félagsins verða ógilt sjálfkrafa og því ekki þörf á að skila
þeim til félagsins. Jafnframt er vakin athygli á því að ferli
rafrænnar skráningar hefur engin áhrif á möguleika
hluthafa til að eiga viðskipti með bréf sín í félagnu.
Nánari upplýsingar um rafræna skráningu hlutabréfa er
að finna á www.vbsi.is. Hluthafaskrá Nýherja hf. veitir
upplýsingar um hlutafjáreign og svarar spurningum Í
síma 569 7712.
Borgartún 37
105 Reykjavík
Sími: 569 7700
www.nyherji.is
NÝHERJI