Morgunblaðið - 23.09.2000, Síða 21

Morgunblaðið - 23.09.2000, Síða 21
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 23. SEPTEMBER 2000 21 VIÐSKIPTI s Arleg velta á sementsmarkaðinum um 1,5 milljarðar króna Búist við aukinni samkeppni EKKI liggur enn fyrii- við hvaða verði Aalborg Portland Islandi mun selja sement hér á landi en Bjarni Óskar Halldórsson, framkvæmdastjóri Aalborg Portland íslandi, segist þó telja að fyrir- tækið muni verða samkeppnisfært bæði í verði og gæðum. Samkvæmt þeim upplýsingum sem Morgun- blaðið hefur aflað sér selur Sementsverksmiðjan hf. á Akranesi tonnið af Portland-sementi á um 11.800 krónur með virðisaukaskatti í lausasölu til steypuframleiðenda. Lunginn af því sementi sem verksmiðjan framleiðir er selt í lausasölu og flutt beint til kaupenda með tankbifreiðum. Verð á sementi í sekkjum er nokkuð hærra eða 13.695 krónur með virðisaukaskatti en þar er um mun minna magn að ræða, en ætla má að verð til kaup- enda sé mismunandi eftir magni og eðli viðskipta. Ef miðað er við uppgefið verð og áætlaða sölu í ár má gera ráð fyrir að veltan á sementsmarkaðin- um sé á bilinu 1,4 til 1,6 milljarðar króna. Líklegt má telja að aukinnar verðsamkeppni muni gæta á þessum markaði með tilkomu Aaal- borg Portland. Þeir kaupendur sem Morgunblað- ið ræddi við voru flestir sammála um það að menn myndu bíða og sjá hvað Aalborg Portlandi muni bjóða upp á. Það væri auðvitað svo í þessum iðn- aði að menn tækju þeim tilboðum sem hagstæðust væru að gefnum gæðum. Einn kaupendanna taldi þó magnið sem Aalborg Portland hyggst flytja inn of lítið til þess að hafa veruleg áhrif á markað- inn. Lækkandi verð á sementi I febrúar í ár stofnaði Aalborg Portland dóttur- fyrirtæki á íslandi og tilkynnt var um áform um að selja innflutt sement hér á landi. Stuttu síðar eða 1. apríl síðastliðinn lækkaði Sementsverk- smiðjan hf. verðið á sementi um 6% að meðaltali og lækkaði verð á hraðsementi heldur meira en á Portland-sementi sem langmest er selt af. Sem- entsverð hafði verið óbreytt frá 1. desember árið 1998 en þá lækkaði laust sement um 7% í verði. Raunverð á sementi frá Sementsverksmiðjunni hf. hefur því lækkað í kringum 16-17% á þessu sextán mánaða tímabili að því er segir í tilkynn- ingu frá Sementsverksmiðjunni. Sala Sements- verksmiðjunnar hefur verið mjög mikil í ár. Alls voru seld tæp 91.000 tonn fyrstu átta mánuði árs- ins eða tæplega 9% umfram það sem áætlað hafði verið og er þetta 5,9% meiri sala en á sama tíma í fyrra en þá nam salan tæpum 132.000 tonnum og hafði ekki verið meiri í liðlega áratug. Gera má ráð fyrir að salan í ár verði enn meiri eða á bilinu 135.000 til 145.000 tonn. Flutningsjöfnuður á sement A innflutta sementið leggst ekki neinn tollur en Aalborg Portland á íslandi þarf að greiða sem nemur 1.300 krónum í Flutningsjöfnunarsjóð af hverju tonni af sementi sem það flytur inn og hið sama gildir um Sementsverksmiðjuna, þ.e. fyrir hvert framleitt tonn. Flutningasjóður er notaður til þess að tryggja jafnt verð á sementi um allt' land. Gjaldið hækkaði 1. september síðastliðinn úr um 1.200 krónum á tonnið. Samkvæmt heim- ildum Morgunblaðsins er um það bil einum þriðja hluta sjóðsins varið til reksturs Skeiðfaxa sem er sjóflutningaskip Sementsverksmiðjunnar. Skeið- faxi tekur 450 tonn af lausu sementi sem flutt er til stöðva Sementsverksmiðjunnar í Reykjavík og á Akureyri. Flutningsjöfnunarsjóður greiðir allan kostnað vegna skipsins og er ekki um fyrirfram tiltekna upphæð að ræða. Aðrar tekjur sjóðsins eru notaður til þess að greiða niður verð á sem- enti sem flutt er landleiðina. Um 70% af sements- sölu Sementsverksmiðjunnar hafa farið á höfuð- borgarsvæðið en líklegt verður að teljast að Aalborg Portland íslandi muni fyrst og fremst einbeita sér að sölu á höfuðborgarsvæðinu þannig að það mun væntanlega fá verulega minna til baka en það greiðir í Flutningsjöfnunarsjóð. Lögum um Flutningsjöfnunar- sjóð verður breytt Atli Freyr Guðmundsson, skrifstofustjóri í við- skiptaráðuneytinu, segir að samkvæmt lögum um Flutningsjöfnunarsjóð sements þá skipi ráðherra þrjá menn í stjórn sjóðsins, tvo án tilnefningar en sá þriðji sé tilnefndur af Sementsverksmiðjunni og nú sitji framkvæmdastjóri Sementsverksmiðj- unnar í stjórninni. Ráðherra hafi hins vegar boð- að það að hann muni flytja frumvaip á þinginu í haust þar sem gerðar verði breytingar á þessu fyrirkomulagi þannig að ekki verði tilnefndur maður í stjórn af hálfu Sementsverksmiðjunnar. Núverandi lög hafi verið barn síns tíma og þar sem aðstæður hafi nú breyst sé einnig nauðsyn- legt að breyta lögunum. Aalborg Portland hafí farið fram á þetta og mönnum hafi þótt eðlilegt að verða við því. Það sé því aðeins um það að ræða að verið sé að leysa tæknilega hluti. Forsendur fyrir sölu Sementsverksmiðjunnar? Aðspurður segir Atli Freyr að ekki standi til að leggja Flutningsjöfnunarsjóð niður. Það sama eigi við um sementsflutninga og olíflutninga að Alþingi hafi ákveðið að sama verð skuli vera á olíu um allt land og nákvæmlega slíkt hið sama gildi um sementsflutninga. í febrúar í ár spurði Jóhann Ársælsson iðnað- ar- og viðskiptaráðherra meðal annars um áætl- anir um sölu Sementsverksmiðjunnar og ef svo væri hvenær stefnt væri að sölu. I svari ráðherra kom fram að heimild sé til þess í fjárlögum frá ár- inu 1997 að selja 25% hlutafjár í Sementsverk- smiðjunni. Ákvörðun hafi verið tekin um að nýta ekki söluheimild né óska eftir heimild Alþingis til frekari sölu. Sú niðurstaða hafi að miklu leyti byggst á neikvæðri afstöðu heimamanna til sölu verksmiðjunnar. Engar áætlanir séu því uppi (þ.e. í febrúar) um að selja verksmiðjuna. Þá sagðist ráðherra ekki vera hlynntur því að einkavæða fyrirtæki sem hefði markaðsráðandi stöðu, ríkis- einokun væri skaplegri en einkaeinokun. Skapist hins vegar virk samkeppni í greininni kunni for- sendur fyrir sölu verksmiðjunnar að breytast. Ekki náðist í Valgerði Sverrisdóttur, iðnaðar- og viðskiptaráðherra vegna þess máls. Delta setur upp Cognos- upplýsinga- kerfi fyrir stjórnendur • DELTA hefurgengiö til samstarfs við Ax-hugbúnaðarhús um kaup og innleiðingu á Cognos upplýsinga- kerfi fyrirstjórnendur. Cognos „Bus- iness Intelligence" er hugbúnaður sem veitir lausnir sem miða að sam- ræmingu fyrirtækjagagna á margvítt form, sem á að auövelda greiningu þeirra og úrvinnslu. Framsetningin á gera stjórnendum kleift að vinna verðmætar upplýsingar úr gögnun- um, sem nýtast viö ákvarðanatöku í rekstrinum. Einnig býöur hugbúnað- urinn upp á möguleika til skýrslu- gerðar og miðlunar upplýsinga. Að sögn Úlfars Helgasonar, deild- arstjóra upplýsingatæknideildar Delta, verða lausnirnarfyrst nýttar til greiningar á rekstrar- og söluupp- lýsingum fýrirtækisins. „Þegarfram líöa stundir munu lausnirnar nýtast viö greiningu á öðrum þáttum starf- seminnar, s.s. framleiðslu og birgðahaldi. Lausnirnar verða settar upp á innri vef Delta, sem þýðir að fyrirtækið er að nýta sér nýjustu að- ferðir við miðlun upplýsinga." --------------------- Leiðrétting í FRÉTT sem birtist á viðskiptasíðu Morgunblaðsins í gær um kaup Vodafone á 40% hlut í Global Sign var sagt að Vodafone hefði keypt hlutinn í framhaldi af 16 milljóna króna hlutafjáraukningu. Hið rétta er að hlutafjáraukningin nam 16 milljónum evra, eða um 1.150 mil- ljónum króna. Beðist er velvirðingar á þessum mistökum. Laugardagar til lukku í ACO Laugardagstilboð ACO *A: macromedia® Dreamweaver Macromedia fyrir 3,0 Mac kostar 40.100 kr. á laugardagstilboði 29.900 kr. Championship Manager fyrir Mac kostar 3.900 kr. á laugardagstilboði 2.450 kr. Allir sem versla í ACO í dag fá bíómiða sem gildir fyrir tvo á The Hollow Man sem sýnd er í Stjörnubíói. ACO er opið á laugardögum í allan vetur og mun alltaf hafa á boðstólum eina eða fleiri vörutegundir á sérstöku laugardagstilboði 0OD hugsaðu | skapaðu \ upplifðu Skaftahlfð 24 • Sfml 630 1800 ■ Fax 630 1801 • www.aco.ls

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.