Morgunblaðið - 23.09.2000, Síða 22
22 LAUGARDAGUR 23. SEPTEMBER 2000
ERLENT
MORGUNBLAÐIQ
UR VERINU
Meiri afli
en í fyrra
FISKAFLINN síðastliðinn ágúst-
mánuð var 57.526 tonn samanborið
við 70.178 tonn í ágústmánuði árið
1999 og minnkaði því um tæp 13 þús
tonn á milli ára. Þar af minnkaði kol-
munnaaflinn um tæp 12 þús. tonn og
skel- og krabbadýraaflinn um 1.498
tonn. Botnfiskaflinn jókst b'tillega á
milli ára, fór úr 27.408 tonnum í ágúst
1999 í 27.887 tonn nú. Þar af jókst
þorskaflinn um 1.298 tonn og karfa-
aflinn um 1.815 tonn, en afli nær allra
annarra botnfísktegunda dróst sam-
an á milli ára.
Síðasta fiskveiðiár
Heildaraflinn það sem af er árinu
er 1.370.458 tonn sem er töluvert
meira en veiðst hafði á sama tíma í
fyrra (1.175.782 tonn). Þessa aukn-
ingu má að mestu leyti rekja til auk-
innar veiði tveggja tegunda, loðnu og
kolmunna, en báðar þessar tegundir
hafa veiðst töluvert betur í ár en í
fyrra. Afli flestra annarra fískteg-
unda hefur hins vegar dregist saman.
Skel- og krabbadýraafli hefur t.d.
minnkað um rúm 7 þús. tonn frá árinu
1999 og botnfiskaflinn hefur dregist
saman um tæp 16 þús. tonn á milli
ára.
Heildarafli íslenskra skipa úr íslenskri lögsögu
þús. tonn
JANÚAR TIL ÁGÚST
1.370.458 t
I I Botnfiskafli ftSÉI Kolmunni
EHH Síld \ZJ Skel
I I Loöna HMB Annar afli
þús. tonn ÁGÚST
80
1999
2000
1999
2000
Fiskveiðiárinu 1999-2000 lauk nú í
ágúst, en það stendur frá byrjun sept-
ember til ágústloka. Samkvæmtbráð-
abirgðatölum Hagstofunnar kemur
m.a. fram að heildarfiskafli síðastlið-
ins fiskveiðiárs var ívið meiri en
heildaralli fiskveiðiársins 1998-1999,
eða 1.654.221 tonn samanborið við
1.457.656 tonn. Þar munar mestu um
loðnuaflann sem jókst um tæp 94 þús.
tonn á milli fiskveiðiára og um kol-
munnann en kolmunnaafli íslenskra
skipa jókst um rúm 92 þús. tonn, eða
tæplega 150%. Botnfiskaflinn var
tæpum 11 þús. tonnum meiri þetta
fiskveiðiár en það síðasta. Þar af jókst
þorskaflinn um rúm 13 þús. tonn og
úthafskarfaaflinn um rúm 5 þús. tonn.
Karfaaflinn dróst hins vegar saman
um tæp 7 þús. tonn. Þá dróst skel- og
krabbadýraaflinn saman um rúm 7
þús. tonn á milli fiskveiðiára en síld-
veiðin var tæpum 6 þús. tonnum meiri
nú en á fiskveiðiárinu 1998-1999.
Markaðsfundur Sölumiðstöðvar hraðfrystihúsanna
„Höfum styrkt félagið
með breytingunum“
RÓBERT Guðfmnsson, formaður
stjórnar SH, segist ánægður með
þær grundvallarbreytingar sem
gerðar hafi verið á rekstri SH. Með
þeim hafi kostnaður lækkað verulega
og betra samband komizt á milli
framleiðenda og markaðsfyrirtækj-
anna. Hann segir það sannfæringu
sína að með þessu hafi fyrirtækið
styrktstöðusína.
Mikill vöxtur á Spáni
Þetta kom fram á markaðsfundi
SH, sem haldinn var í gær. Þar var
farið yfir gang mála á helztu
markaðssvæðum fyrirtækisins og
vakti athygli mikill vöxtur starfsem-
innar á Spáni og mikil markaðshlut-
deild í sölu á karfa í Austurlöndum
fjær. Þá kom fram að lágt gengi evr-
unnar væri til baga. Framkvæmda-
stjórar dótturfyrirtækjanna voru
ánægðir með breytingamar á rekstri
SH og töldu þær skila mikilh hagræð-
ingu og betra sambandi við framleið-
endur.
„A miðju síðasta ári tók stjóm SH
ákvörðun um verulega endurskipu-
lagningu á rekstri félagsins og dótt-
urfélaga þess,“ sagði Róbert Guð-
finnsson í ávarpi sínu á fundinum.
„Breytingamar komu að fullu til
framkvæmda á þessu ári og auðvitað
höfðu margir skoðun á framkvæmd-
Nýstárleg
vöruskipti
KOMIÐ hefur í ljós nýstárleg leið
ferðamanna sem heimsækja Noreg til
hafa eitthvað upp í ferðakostnaðinn.
Þeir skipta á áfengi og fiski sem þeir
taka með heim og selja á svimandi háu
verði.
Það er norska sjávarútvegsblaðið
Fiskeribladet sem greinir frá þessu og
hefur eftir Rolf Bendiksen, fomanni
sjómannafélags Norðurlandsfylkis.
Hann telur að tolleftirlit með ferðá-
mönnum sem koma akandi til landsins
sé allt of lítið. Hann segir að algengt sé
að einkabílar með kæhbúnað komi til
Lófóten til að sækja fisk. í kælinum sé
þeir með mikið af sterku áfengi og víni
sem sé selt í skiptum fyrir fiskinn á
bryggjunni. Afengið sé ódýrt en fisk-
urinn dýr á heimaslóðum ferðamann-
anna en því sé öfugt farið í Noregi.
inni. Ég er ánægður með árangurinn
og tel að breytingamar hafi tekizt
eins og bezt varð á kosið, enda lögðust
menn þar á eitt til þess að breyting-
amar heppnuðust. Það er sannfæring
mín að með þessum breytingum höf-
um við styrkt félagið og lagað það að
breyttum viðskiptaháttum. Milliliða-
laust samband milli framleiðandans
og markaðsfyrirtækja SH erlendis
hefur eflt tengsl framleiðandans við
markaðinn og jafnframt styrkt stöðu
markaðsdeildar SH.
Framleiðendum verður
ekki haldið óupplýstum
Ég hef áður sagð að það sé mis-
skilningur hjá þeim, sem telja að unnt
sé að halda íslenzkum framleiðendum
í sjávarútvegi óupplýstum og ein-
angra þá frá markaðsupplýsingum.
Nútíma upplýsingatækni og almenn
þekking á sjávarútvegi hefur gert það
að verkum að nýrra vinnubragða var
þörf.
Það samkeppnisumhverfi, sem
sjávarútvegurinn býr við, krefst þess
að allir hlekkir keðjunnar frá veiðum
og inn á borð neytandans séu traustir
og hafi þann styrk sem þarf til þess að
íslenzkur sjávarútvegur haldist
áfram í fremstu röð.
Á fyrri helmingi ársins hefur komið
í ljós að fjárhagslegur grundvöllur
breytinganna var traustur og skilaði
félaginu 189 milljóna króna hagnaði
þetta tímabil. Sú staða sem SH hefur
skapað sér í dag er aðeins grunnurinn
að frekari sókn félagsins," sagði Ró-
bert.
Hefur dregið verulega
úr kostnaði
„Það var markvert á þessum fundi
að það er að myndast ákveðið jafn-
vægi í viðskiptum milh dótturfyrir-
tækjanna og framleiðenda,“ sagði Ró-
bert í samtali við Morgunblaðið að
fundi loknum. „Það er aukinn skiln-
ingur hjá báðum aðilum á möguleik-
unum sem hafa orðið til með viðskipt-
um á Netinu. Þannig hefur tekizt að
ná niður kostnaði og styrkja sam-
keppnisstöðu okkar með því að draga
verulega úr kostnaði.
Staðan er almennt góð hjá dóttur-
fyrirtækjum SH. Það gengur vel í
Japan, vöxturinn á Spáni er hraður,
smáerfiðleikar voru í Bandaríkjunum
á fyrri hluta ársins, en þeir eru að
baki, Bretland er á svipuðu róh og í
fyrra og við erum að vinna okkur út
úr þeim vandkvæðum, sem við höfum
átt við að stríða í Frakklandi og
Þýzkalandi. í heildina séð eru dóttur-
fyrirtækin okkar að gera það gott og
það virðist bjart framundan," segir
Róbert Guðfinnsson.
Dýr frídagur
„EINN dýrasti og jafnvel
óskynsamlegasti frídagur Islend-
inga er sjómannadagurinn. Á
miðri úthafskarfavertíð, þegar
aflabrögð eru sem bezt, er allur
flotinn kallaður inn til löndunar.
Þetta skapar óhagræði við lönd-
un, lestun og útflutning,“ sagði
Jón Magnús Kristjánsson, fram-
kvæmdastjóri Icelandic Japan,
dótturfyrirtækis SH í Tókíó, í er-
indi sínu á markaðsfundi SH.
Hann sagði þetta þó alls ekki
eina óhagræðið: „Sjómannadag-
urinn skapar líka gífurlegan
þrýsting á markaðinn, þegar
saman koma í land 8.000 til
10.000 tonn af úthafskarfa nánast
á einu bretti, en þetta svarar til
um 20% af árlegri neyzlu Japana.
Kaupendur eru beinlínis farnir að
ætlast til að verð lækki um þessa
helgi og telja sig jafnframt geta
valið úr mestu gæðin, því fram-
boðið er svo mikið. Ástandið hef-
ur hríðversnað og margir dreif-
ingaraðilar eru farnir að leika
þann leik að kaupa inn, þegar
fyrstu landanir koma inn í byrjun
maí, en hinkra síðan við því 6 vik-
um eftir sjómannadag vita allir
að markaðurinn fyllist af karfa.
Það er öllum hlutaðeigandi fyrir
beztu að færa þennan dag til eða
breyta fyrirkomulaginu á annan
hátt. Nóg er um samkeppnina
samt þótt við íslendingar séum
ekki að rýra samningsstöðu okk-
ar með þessum hætti,“ sagði Jón
Magnús Kristjánsson.
Eftir miklu að slægjast í breska lottóinu
Camelot fær
aftur að bjóða í
London. AP, Daily Telegraph.
DÓMSTÓLL í Bretlandi úrskurðaði
í fyrradag, að Camelot, fyrirtækið
sem nú rekur hið ábatasama lands-
lottó, fái að bjóða í reksturinn
áfram gegn Þjóðarlottóinu, fyrir-
tæki Sir Richards Bransons. Áður
hafði lottónefndin útilokað Camelot
frá því.
Lottónefndin fann ýmislegt að
tilboðum beggja fyrirtækjanna en
útilokaði aðeins Camelot og tók þvf
næst upp viðræður við fyrirtæki
Bransons. Camelot áfrýjaði úr-
skurði nefndarinnar í siðasta mán-
uði og í fyrradag komst dómari að
þeirri niðurstöðu, að úrskurður
nefndarinnar hefði verið ósann-
gjarn og því ólöglegur.
íhaldsmenn i Bretlandi túlka nið-
urstöðuna sem enn eitt áfallið fyrir
ríkisstjórn Verkamannaflokksins
og einkanlega fyrir Chris Smith
menningarmálaráðherra. Taka
þeir svo til orða, að í því ráðuneyti
standi nú ekki lengur steinn yfir
steini. Talsmaður Smiths sagði, að
þetta mál væri honum algerlega
óviðkomandi enda hefði hann engin
afskipti af lottónefndinni.
Frá því að landslottóinu var kom-
ið á fót 1996 hefur það selt miða
fyrir 3.570 miHjarða ísl. kr. Er sam-
ið um rekstur þess til sjö ára i' senn
og rennur samningurinn við Camel-
ot út á næsta ári. Hafa verið viðvar-
andi vandræði með lottóhugbúnað
fyrirtækisins og vegna þess ákvað
lottónefndin að útiloka fyrirtækið
frá frekari rekstri. Talsmenn
Camelots héldu því hins vegar
fram, að þeim hefði ekki vcrið gef-
inn kostur á að skýra út sitt mál og
upplýsa í hveiju endurbæturnar
yrðu fólgnar. Hugbúnaðinn hefur
Camelot fengið frá bandaríska
lottófyrirtækinu GTECH en það
var áður hluthafi í Camelot.
Ábatasamur rekstur
Fyrirtæki Bransons gerir enga
athugsemd við úrskurð dómarans
enda segist hann viss um, að tilboð
þess sé það besta. Fyrir tveimur ár-
um vann Branson meiðyrðamál
gegn Guy Snowden, fyrrverandi
forstjóra GTECH, og hann hefur
sakað Snowden um að hafa reynt
að múta sér til að hætta við tilboð í
lottóreksturinn.
Breska lottóið hefur veitt um
1.500 milljarða ísl. kr. til ýmissa
samfélagsmála, lista- og menning-
arstarfsemi á starfstíma sínum en
mörgum hefur ofboðið hagnaður
Camelots af rekstrinum, rúmlega
8,9 milljarðar kr. árlega. Eru
launagreiðslur til stjórnenda þess í
takt við það.
Árásin á höfuðstöðvar bresku
ley niþj ónustunnar
Beittu rússnesku
skriðdrekavopni
London. Reuters, AFP.
BRESKA lögreglan hefur komist að
því að vopnið sem var notað við árás
á aðalstöðvar MI6, bresku leyniþjón-
ustunnar, sl. miðvikudag, var af
rússneskri gerð, Mark 22, og ætlað
til að granda skriðdrekum.
Þetta vopn eða hlutar úr því hafa
aldrei fundist í Bretlandi fyrr en það
hefur aftur á móti fundist í vopna-
búrum á Norður-írlandi, sem rakin
hafa verið til „Hins sanna IRA“,
klofningshóps úr írska lýðveldis-
hemum.
Að sögn lögreglunnar er vopnið
mjög meðfærilegt og auðvelt að fela
það. Era flaugamar úr því mjög öfl-
ugar, eiga að komast í gegnum
metraþykkan steinvegg, og því þykir
það mesta mildi, að ekki skuli hafa
orðið meiri skaði á húsinu en raun
ber vitni og enginn slasast.
Óttast fleiri
tilræði
Líklegast þykir, að „Hinn sanni
IRA“, sem varð 29 manns að bana í
Omagh á N-írlandi 1998, hafi staðið
að tilræðinu og talið er, að hópur á
hans vegum sé starfandi í London.
Hafa borgarbúar verið varaðir við
fleiri tilræðum.
Talsmaður lögreglunnar sagði í
gær, að gæsla vegna flokksþings
Verkamannaflokksins í Brighton í
næstu viku yrði mjög mikil en
skæruliðar IRA stóðu fyrir sgrengj-
utilræði þar í borg 1984 er íhalds-
flokkurinn var með sinn landsfund.
Ný skoðanakönnun í Noregi
Aðeins 17% kjós-
enda ánægð með
Stoltenberg
AÐEINS 17% kjósenda í Noregi
telja að Jens Stoltenberg forsætis-
ráðherra hafi staðið sig vel í emb-
ætti, að því er fram kemur í Gallup-
könnun, sem dagblaðið Verdens
Gang birti í gær. Ér þetta minnsta
fylgi sem norskur forsætisráðherra
hefur fengið frá því slíkar kannanir
hófust árið 1996.
Þegar Thorbjprn Jagland var
forsætisráðherra var fylgi hans
minnst í júní 1997 þegar 32% sögð-
ust ánægð með frammistöðu hans í
embætti. Minnsta fylgi Kjells Mag-
ne Bondeviks var 49% í ágúst 1998
og Gro Harlem Brundtland fékk
aldrei minna en 76%.
Stoltenberg er þó ekki eini
flokksleiðtoginn sem kemur illa út
úr nýjustu könnuninni sem var gerð
5.-15. þessa mánaðar. Aðeins 10%
aðspurðra sögðust telja að Jagland
hafi staðið sig vel sem formaður
Verkamannaflokksins. Aðeins 7%
voru ánægð með Jan Petersen, leið-
toga Hægriflokksins, 4% með Odd
Roger Enoksen, leiðtoga Mið-
flokksins, og Valgerd Svarstad
Haugland, formann Kristilega þjóð-
arflokksins, og 3% með Lars Spon-
heim, leiðtoga Venstre.
Kjell Magne Bondevik, fyrrver-
andi forsætisráðherra, er vinsæl-
asti stjórnmálamaður Noregs. 49%
aðspurðra sögðust ánægð með störf
hans og 43% voru ánægð með Carl
I. Hagen, formann Framfaraflokks-
ins.