Morgunblaðið - 23.09.2000, Qupperneq 24
24 LAUGARDAGUR 23. SEPTEMBER 2000
MORGUNBLAÐIÐ
ERLENT
Viðbúnir
árás á dönsku
krónuna
Reuters
Poul Nyrup Rasmussen, forsætisráðherra Danmerkur, með bæklinginn „Mynt framtíðarinnar". Þar er að finna
rök ríkisstjórnarinnar fyrir því að ganga í myntbandalagið.
Kaupmannahöfn. Morgunblaðið.
MOGENS Lykketoft, fjármálaráð-
herra Danmerkur, segir að ríkis-
stjórnin sé viðbúin því að gjaldeyr-
isbraskarar ráðist til atlögu við
dönsku krónuna.
Ónafngreindir embættismenn
segja í samtali við dagblaðið Borsen
að meiri líkur en minni séu á slíkri
árás verði aðild að evrópska mynt-
bandalaginu hafnað í þjóðar-
atkvæðagreiðslunni 28. september.
Ýmsir bankar og hagfræðingar ef-
ast þó um að krónan sé í hættu og
draga jafnframt í efa aðrar
svartsýnisspár ríkisstjórnarinnar.
Skoðanakannanir sýna enn afger-
andi forystu andstæðinga evrunnar.
I könnunum sem birtar voru í gær í
dagblöðunum Politiken og Bersen
kemur fram að forskot andstæðing-
anna hafi enn aukist og í Bersen
segir að þeir séu í fyrsta sinn með
hreinan meirihluta kjósenda á bak
við sig, eða 51% á móti 44% sem eru
fylgjandi evrunni. Samkvæmt Gall-
up-könnun sem blaðið Berlingske
Tidende birtir á hverjum degi hefur
þó lítillega dregið saman með fylk-
ingunum. Mikill munur hefur verið
á niðurstöðum skoðanakannana
undanfarna viku en þær hafa þó all-
ar sýnt töluverða yfírburði þeirra
sem andsnúnir eru aðild að mynt-
bandalaginu.
Andstaðan mikil
á Fjóni og- Jótlandi
I könnun Borsen, sem birt var í
gær, kemur einnig fram að mikill
munur er á afstöðu Dana eftir því
hvar þeir búa í landinu. Þannig sýn-
ir hún lítinn mun á fjölda fylgis-
manna og andstæðinga evrunnar á
Sjálandi. Þar sögðust 47,6% svar-
enda vera henni fylgjandi en 48,8% á
móti. A Jótlandi sögðust hins vegar
52,2% þeirra sem svöruðu vera á
móti evrunni, en 41,3% með. A Fjóni
var munurinn enn meiri, þar hafnaði
55,1% svarenda aðild að myntbanda-
laginu, en aðeins 39,8% sögðust vera
henni fylgjandi. Niðurstaðan er ekki
síst athyglisverð vegna þess að
stóru stjórnmálaflokkamir hafa lagt
sérstaka áherslu á að fara út á
landsbyggðina til að kynna evruna,
og þeir einnig lagt áherslu á, að auk-
in atvinna vegna inngöngunnar í
myntbandalagið myndi einkum
koma öðrum landshlutum en Kaup-
mannhafnarsvæðinu til góða.
Enn telja fylgismenn evrunnar að
þeir eigi möguleika á sigri. Þeim
hefur undanfarna tvo daga tekist að
leiða athygli fjölmiðla frá gagnrýnis-
atriðum andstæðinganna og að rök-
um fyrir aðild. Ríkisstjórnin hefur
einkum lagt áherslu á efnahagslega
kosti þess taka upp evruna. Hún
bendir til dæmis á að vaxtamunur
milli Danmerkur og evrusvæðisins
verði minni en ella, sem komi efna-
hagnum og ríkinu vel, gjaldeyris-
kostnaður af ýmsu tagi verði minni
og samkeppni aukist því auðveldara
verði að bera saman verð milli landa.
Danmörk b-þjóð
í Evrópusamstarfinu?
Hagfræðingar og bankar sem
spurðir hafa verið álits á spám ríkis-
stjórnarinnar hafa gefið mjög mis-
munandi svör, allt frá því að þær séu
öfgafullar svartsýnisspár og til þess
að þær séu einum of varfærnar.
Flestir eru þó á því að litlar líkur
séu á því að krónan verði fyrir
stóráföllum strax eftir atkvæða-
greiðsluna eins og Lykketoft fjár-
málaráðherra óttast.
Andstæðingar evrunnar hafa,
eins og við var búist, dregið út-
reikninga ríkisstjórnarinnar mjög í
efa og segja tölurnar úr lausu lofti
gripar.
Talsmaður Danska þjóðarflokks-
ins, Kristian Thulesen, gagnrýnir
að nú sé farið að ræða einvörðungu
um efnahagsmál, því að evran sé
ekki síður pólitískt mál. Ríkis-
stjórnin hefur raunar einnig lagt
áherslu á að áhrif Dana innan
Evrópusambandsins verði meiri
taki þeir þátt í evrusamstarfinu.
Þannig geti þeir áfram beitt sér
með árangri til dæmis í umhverfis-
og vinnuverndarmálum og fyrir því
að Austur-Evrópuríkjunum verði
veitt innganga í ESB.
Erlendir sérfræðingar í Evrópu-
málum segja að hafni Danir evr-
unni verði þeir í eins konar b-flokki
í ESB. Einn þeirra, Peter Ludlow,
sem starfar hjá Evrópurannsókn-
arstofnun í Brussel, bendir í viðtali
við blaðið Berlingske Tidende á að
Danir hafi einnig haldið sig utan við
þróun öflugra hernaðarsamstarfs
aðildarríkjanna og hafnað að miklu
leyti að hafa samstarf um dómsmál
og málefni pólitískra flóttamanna
og innflytjenda, og með því að
standa utan evrusvæðisins að auki,
muni áhrif þeirra minnka til muna.
Verði niðurstaðan sú, aukist einnig
líkurnar á að „kjarni" Evrópusam-
bandsins, það er að segja öll aðild-
arríkin að undanskildum Bretum,
Svíum og Dönum, taki upp meira
samstarf án þess að taka tillit til
hinna. Ludlow segir að fari svo
muni Danir standa illa að vígi.
Bretar séu nauðsynlegir í hernað-
arsamstarfi Evrópuríkjanna, og
geti af þeim ástæðum þrýst á að
tekið verði tillit til þeirra sjónar-
miða, en Evrópusambandið geti vel
án Danmerkur verið.
Læknar mega skilja að síamstvíbura gegn vilja foreldranna
„Andvökunætur og
miklar sálarkvalir“
Reuters
Þessi teikning af síamstvíburunum Jodie og Mary er gerð eftir ljós-
mynd. Verði þær skildar að, mun Mary deyja og mörgum hrýs hugur við
því lífí, sem hugsanlega bíður Jodie.
Barnaklámhringur í Danmörku
Saksóknari og sér
fræðingur í barna-
klámi handteknir
Kaupmannahöfn. Morgunblaðið.
„ÉG hef aldrei átt í jafn miklu sálar-
stríði í neinu máli og þessu,“ sagði
dómari við áfrýjunarrétt í Bretlandi í
gær en þá úrskurðaði dómstóllinn að
læknar mættu skilja að síamství-
bura, stúlkurnar Jodie og Mary, þótt
foreldrar þeirra væru því andvígir.
Líkamar stúlknanna tengjast full-
komlega þannig að engu er líkara en
þær hafi einn búk með höfuð á hvor-
um enda. Fæturnir koma síðan þvert
út úr miðjum búknum.
Önnur stúlkan, Jodie, er með
þroskað hjarta, lungu og lifur en hin,
Mary, ekki. Segja læknar, að auk
þess hafi hún mjög óþroskaðan heila.
Stúlkurnar eru nú sex vikna gaml-
ar en læknar vilja skilja þær að þeg-
ar þær eru orðnar þriggja mánaða
gamlar. Telja þeir, að þá séu líkurn-
ar bestar en ekki megi bíða lengur
því að líffæri Jodie, sem vinni fyrir
þær báðar, muni ekki ráða við það
öllu lengur.
Ljóst er að Mary mun ekki lifa en
möguleikar eru á að Jodie muni gera
það þótt hún verði hugsanlega mikið
fötluð.
Alan Ward, einn dómaranna
þriggja við áfrýjunarréttinn, sagði í
gær í viðtali við BBC, breska ríkis-
útvarpið, að hann hefði átt marga
andvökunóttina og liðið „miklar sál-
arkvalir“ í þessu máli. Kvaðst hann
hafa spurt sig þeirrar spurningar
hvort hann væri að svipta Mary lífi
með því að leyfa, að reynt yrði að
bjarga Jodie.
„Samúð mín er mest með foreldr-
unum. Helmingur landsmanna mun
verða samþykkur dómnum og hinn
helmingurinn mótfallinn honum,“
sagði Ward.
Erfiðar, siðferðilegar
spurningar
Foreldrar stúlknanna, sem eru frá
Möltu og kaþólskrar trúar, eru and-
vígir aðgerðinni og vilja að náttúran
hafi sinn gang og dætur þeirra fái að
deyja. Víst þykir að þeir muni biðja
um leyfi til að áfrýja úrskurðinum til
lávarðadeildarinnar, sem er æðsta
dómstig í Bretlandi.
Þetta mál hefur vakið margar sið-
ferðilegar spumingar enda er í
fyrsta sinn verið að leyfa aðgerð,
sem mun leiða til dauða barns eða
manneskju. Hafa ýmis samtök, sem
berjast gegn fóstureyðingum, tekið
afstöðu með foreldrunum og einnig
Cormac Murphy-O’Connor, hinn
kaþólski erkibiskup af Westminster.
Þá sagði Raanon Gillon, prófessor og
ritstjóri tímarits um siðareglur og
siðfræði lækna, að í þessu máli ætti
vilji foreldranna að ráða.
„Ef ég réði þessu einn og væri viss
um að önnur stúlkan lifði myndi ég
heimila aðgerðina. Mér finnst hins
vegar ekki að ég eða nokkur annar
eigi að ráða fyrir foreldrana."
TVEIR opinberir starfsmenn í
Danmörku, lögfræðingur hjá lög-
regluembætti og félagsráðgjafi,
sem starfaði hjá ríkislögreglustjór-
anum og hafði með höndum mál
sem vörðuðu barnaklám og barna-
níðinga, hafa verið handteknir fyr-
ir að dreifa barnaklámefni á Net-
inu. Alls hafa 35 manns verið
handteknir í tengslum við málið.
Á fímmtudaginn í síðustu viku
var 26 ára gamall maður hand-
tekinn fyrir að senda barnaklám-
efni frá tölvu í háskóla í Óðins-
véum. Hann var hvorki nemandi
né starfsmaður háskólans en í ljós
kom að hann hafði ítrekast laum-
ast inn í tölvuver til að senda frá
sér efnið. Athæfi hans komst upp
vegna þess að einu sinni sló hann
inn vitlaust póstfang og fyrir til-
viljun lenti barnaklámefni þannig
hjá lögreglumanni. Lögreglan
kannaði hvaðan efnið var sent og
síðan beið hún þess að maðurinn
kæmi þangað aftur.
Lögreglan komst að því að mað-
urinn hefði sent barnaklám á að
minnsta kosti 37 póstföng og í
framhaldi af því voru 35 manns um
allt land handteknir.
Maðurinn skiptist á klámefni við
þá alla en óljóst er hversu mikil
tengsl hinir höfðu innbyrðis. Ekki
hefur verið sýnt fram á að greitt
hafi verið fyrir efnið og því er ekki
hægt að dæma neinn þeirra í fang-
elsi, aðeins í sektir. Lögreglan
segir að myndir sem fundist hafa í
tengslum við rannsóknina hafi ver-
ið sérlega grófar og af mjög ung-
um börnum.
Sagðist vera að
rannsaka kynferðisafbrot
Strax í upphafi kom fram í fjöl-
miðlum að einn hinna handteknu
væri lögfræðingur sem starfaði
sem saksóknari hjá lögregluemb-
ættinu í bænum Næstved. Hann
neitaði þó sjálfur allri sök og sagð-
ist lengi hafa rannsakað barna:
klámefni á vegum lögreglunnar. I
tengslum við umfangsmikla rann-
sókn á máli sem varðaði hugsan-
lega misnotkun á dönskum börn-
um sagðist hann hafa tekið
barnaklámefni inn á tölvuna heima
hjá sérþví tölvan í vinnunni hefði
ekki haft nægilegt minni til að
geyma það allt. Hann segist jafn-
framt hafa fengið leyfi yfirmanns
síns til þess. Yfirmenn lögreglunn-
ar hafa hai'nað þessum skýringum.
í gærmorgun skrifaði dagblaðið
Ekstrabladet að í hópi hinna hand-
teknu væri einnig félagsráðgjafi
hjá ríkislögreglustjóraembættinu.
Hann hefur meðal annars starfað
sem ráðgjafi fyrir nefnd sem hefur
það verkefni að fyrirbyggja glæp-
iog var talinn vera sérfræðingur á
sviði barnakláms og kynferðisaf-
brota gegn börnum. Hann neitar
einnig allri sök og segist hafa ætl-
að upp á eigin spýtur að koma upp
um barnaklámhring þótt það hafi
ekki verið á hans starfssviði.